Fréttablaðið - 11.03.2003, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 11.03.2003, Blaðsíða 17
Ali G lendir stöðugt í vandræð-um vegna þáttaraðarinnar sem hann vinnur nú fyrir bandaríska sjónvarpsstöð. Nú íhugar rithöf- undurinn Naomi Wolf, sem er mik- il kvenréttindakona, að kæra þátt- inn eftir að hafa verið niðurlægð í viðtali. Hann gerði víst stólpa- grín að henni og lítillækkaði konur í gríð og erg að mati rithöfundar- ins. Sjónvarps- stöðin HBO hefur ákveðið að birta viðtalið ekki. Nú velta menn því fyrir sér hvort þáttur að hætti Ali G geti gengið á stórri sjónvarpsstöð í Bandaríkj- unum. Þar gilda aðrar reglur og auðveldara fyrir fólk að fara í meiðyrðamál. Ákvörðun leikar-ans Josh Harnett að af- þakka boð um að leika Súper- mann í þrem- ur kvik- myndum hefur sett framleiðslu þeirra í vanda. And- rúmsloftið á milli leikstjórans Brett Ratner og framleið- andans Jon Peters er víst rafmagnað og talast þeir varla við heldur öskra. Aðrir leikarar sem þykja koma til greina að leika ofurhetjuna eru Hayden Christiansen, Jude Law, Brendan Frasier og Paul Walker. Engin þeirra virðist reiðubúinn til þess að skuldbinda sig í gerð þriggja mynda enda gæti slíkt ævintýri tekið allt að tíu ár í framkvæmd. Popparinn Justin Timberlake hef- ur verið orðaður við hlutverk Jim- my Olsen. Leikarinn Toby Maguire ætlar aðgiftast kærustu sinni Jennifer Meyer í sumar. Besti vinur Kóngu- lóarmannsins Leonardo DiCaprio hefur tekið að sér að vera svara- maður félaga síns. Popparinn Billy Joel hefur játaðað hafa verið að drekka kampa- vín kvöldið sem hann keyrði bíl sínum á tré. Hann segist þó aðeins hafa drukkið eitt glas. Þrátt fyrir það getur hann ómögulega munað eftir samtali sínu við lögreglu sem átti sér stað strax eftir slysið. Söngkonan Cher lenti illa í því erhún var á tónleikaferðalagi um Virginiufylki í Bandaríkjunum á dögunum. Uppáhalds hárkollu hennar var stolið. Kollan kostaði hana 7500 pund (rúmlega 920 þúsund ísl. kr.) á sínum tíma og því mikill missir. Helm- ingur kollunnar er svartur en hinn úr andafjöðrum. Ef þið sjáið hana, þá vitið þið hver á hana. Ef þið tókuð hana, ættuð þið að skamm- ast ykkar. Rokkhljómsveitin Black RebelMotorcycle Club hefur hafið vinnslu á annari breiðskífu sinni. Liðsmenn segja helsta muninn sá að nýja platan verði eðlilegri en sú fyrri. Minni tilraunamennska og að nú kunni liðsmenn á hljóðfæri sín, ólíkt þeirri stefnu sem var í gangi við gerð fyrstu plötunnar. Leikarinn AlPacino hefur tekið að sér að leika Heródes í leikritinu „Sal- ome“ sem sýnt verður á Broad- way næsta sumar. Leikkonan Marisa Tomei leikur titil- hlutverkið. Breski söngvarinn og leikarinnAdam Faith, sem gerði lögin „What do you Want“ og „Poor Me“ vinsæl á sjöunda áratugnum, er lát- inn. Hann fékk hjartaáfall eftir sýn- ingu leikritsins „Love & Marriage“ þar sem hann fór með hlutverk og lést stuttu síðar. Á sínum tíma var hann álíka jafn þekktur og Cliff Richard. Hann var 63 ára gamall. Leikkonan Bridget Fonda, semmeiddist lítillega í bílslysi á dög- unum, er á leiðinni upp altarið. Það ætti að vera nóg af drungalegum tónum á heimili hennar næstu árin því mannsefni hennar er enginn annar en Danny Elfman sem semur meðal annars tónlistina við allar myndir Tim Burtons. Hann samdi einnig alla tónlistina við „The Nightmare Before Christmas“ er löngu er orðin klassík í dag. Gítarleikarinn Blixa Bargeld semleikið hefur með hljómsveit Nick Cave, The Bad Seeds, frá stofnun hennar hefur nú sagt skilið við hana. Hann hefur alla tíð verið höfuðpaur þýsku iðnaðarsveitarinn- ar Einsturzende Neubauten og ætl- ar að einbeita sér að henni. Sam- starfsslitin fóru víst fram með mestu vinsemd. Leik- og söngkonanJennifer Lopez hyggst taka upp eftirnafn leikar- ans Ben Af- fleck eftir að þau gifta sig. Bæði í faglegu- og einka- lífi sínu. Þetta neit- aði hún að gera þeg- ar hún gifti sig í hin tvö skipt- in. LeikarinnNick Nolte segir að það að hafa verið tekinn af lögreglunni hafi hjálp- að honum að losna við eiturlyf. Lögreglan stöðvaði bifreið hans í september eftir að leikarinn hafði keyrt á móti umferð. Lögreglan sá strax að Nolte var í vímu og handtók hann á staðn- um. Nolte segist hafa sigrast á fíkn sinni og að hann taki nú hvern dag fyrir sig. Rúmlega tvær milljónir miðahafa nú selst á þýsku kvik- myndina „Goodbye Lenin“ í heima- landinu. Hún er þar með orðin vin- sælasta kvikmynd landsins frá upphafi. Um er að ræða gaman- mynd sem fjallar um fall Berlínar- múrsins. Aðalsögupersónan er austurþýskur strákur sem trúir því að heimurinn hinum megin við múrinn sé mun verri en sá raun- veruleiki er hann býr við. + 333 kr. (flugvallarskattur og tryggingagjald) aðra leiðina Nú getur fjölskyldan flogið saman í frí fyrir ódýrara fargjald á manninn en nokkru sinni fyrr. Tilvalið til að heimsækja vini og ættingja um allt land eða gera eitthvað annað skemmtilegt. Þetta einstaka tilboðsfargjald • gildir á leiðum Flugfélags Íslands innanlands og til Færeyja • er fyrir börn að 12 ára aldri í fylgd með fullorðnum • gildir 17. febrúar - 17. mars • býðst eingöngu þegar bókað er á netinu, www.flugfelag.is Króna fyrir börnin 17. febrúar til 17. mars ! Í S L E N S K A A U G L Ý S I N G A S T O F A N E H F . / S I A . I S - F L U 2 0 2 1 7 0 2 / 2 0 0 3 17ÞRIÐJUDAGUR 11. mars 2003 SÍMI 553 2075 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15 Sýnd kl. 5og 8 bi. 16 ára ABOUT SCHMIDT 5.30, 8 og 10.30 TWO WEEKS NOTICE kl. 8 og 10.10 SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 2, 4 og 6 Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 FRIDA kl. 5.30, 8 og 10.30 bi. 12 ára CHICAGO kl. 5.30, 8 og 10.30 Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 bi. 12 ára Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 bi. 16 ára Leikstjórinn og handritshöfundur-inn Paul Thomas Anderson (“Boogie Nights“ & „Magnolia“) seg- ist hafa samið söguna „Punch Drunk Love“ með Sandler í huga. Persónan hans er miðja myndar- innar og mikið er lagt í að móta hana. Sandler leikur sérvitran kaupsýslu- mann sem á við geðræn vandamál að stríða. Hann hefur greinilega bælt niður í sér margra ára gremju sem brýst svo út á óheppilegustu stund- um. Eitt kvöld þegar hann er ein- mana hringir hann í kynlífsþjónustu en það hefur afdrífaríkar afleiðingar. Sandler er hreint stórkostlegur og fær loksins að sanna sig í veigameira hlutverki en í þeim þunnu ræmum sem hann er þekktur fyrir. Anderson hefur sagt í viðtölum að hann hafi það á tilfinningunni að hann muni aldrei aftur gera eins góða mynd og „Magnolia“. Það getur vel verið, enda er „Magnolia“ með betri myndum sem ég hef séð, en ef hann heldur áfram að skila af sér myndum í þessum gæðaflokki er hann á góðri leið með að verða einn af merkilegri leikstjórum Hollywood. Sumir Sandler-aðdáendur eiga ef- laust eftir að klóra sér í höfðinu. Enda er þetta ekki „Adam Sandler- mynd“, þetta er þriðja meistara- stykki Paul Thomas Anderson. Birgir Örn Steinarsson Punch Drunk Love Umfjöllunkvikmyndir Endurfæddur Sandler Johnny Cash: Ævisagan kvikmynduð Nú er verið að vinna að kvikmynd um fyrstu ár kántríkóngsins Johnny Cash á tónlistarbrautinni. Leikarinn Joaquin Phoenix, sem margir muna eftir úr „Gladiator“ og „Signs“, kemur til með að leika „svartklædda manninn“. Leikkon- an Reese Witherspoon hefur tekið að sér hlutverk tónlistarkonunnar June Carter sem varð síðar eigin- kona hans. Myndin heitir „Walk the Line“ og hefjast tökur í haust. Myndinni er lýst sem „óhefðbundinni ævi- sögu“ enda ævi kappans líklegast nokkuð óhefðbundin. James Mangold, leikstjóri og höfundur „Copland“ og „Girl, Interrupted“, gerir myndina. ■ JOHNNY CASH Johnny Cash er svo sannarlega maður sem hefur þurft að synda upp í móti.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.