Fréttablaðið - 19.06.2003, Blaðsíða 2
2 19. júní 2003 FIMMTUDAGUR
Hann hefur ekki skilið umræðuna
um fiskveiðistjórnunarkerfið.
Í ræðu sinni á 17. júní sagði Davíð Oddsson for-
sætisráðherra sjávarútvegsumræðuna í kosning-
unum hvorki hafa verið skýra né skynsamlega.
Frjálslyndi flokkurinn sem hefði helgað sig barátt-
unni gegn kvótakerfinu væri enn minnsti flokkur-
inn á þingi. Guðjón Arnar Kristjánsson er formað-
ur Frjálslyndra.
Spurningdagsins
Guðjón Arnar, hvernig fannst þér
ræða Davíðs?
■ Írak
■ Lögreglufréttir
Kerlingarfjöll:
Aukin
hveravirkni
JARÐHITASVÆÐI Fannborgarmenn,
áhugamenn um Kerlingarfjöll og
svæðið þar í kring, hafa orðið var-
ir við aukna hveravirkni á jarð-
hitasvæðinu í Hveradölum.
Jónas Kjerúlf, einn Fannborg-
armanna, segir að fyrir mörgum
árum hafi verið virkur leirhver
við ána sem var kallaður Víti.
„Hann þornaði upp í kringum
1970 og færði sig innar í gilið, en
varð þó aldei aftur neitt í líkingu
við Víti. Nú hefur opnast hver á
nýjum stað og þegar ég var þarna
um helgina sá ég að hann hafði
skvett heilmiklu úr sér og
dynkirnir og hávaðinn voru með
ólíkindum. Það er reyndar þannig
með þessi háhitasvæði að þau eru
alltaf að breyta sér, en það er
óneitanlega meiri virkni þarna
upp á síðkastið en verið hefur,“
segir Jónas.
NÆSTRÁÐANDI HANDTEKINN
Bandarískar hersveitir í Írak
hafa handtekið Abid Hamid Ma-
hmud al-Tik-
riti, valda-
mesta mann
Íraks á eftir
Saddam
Hussein og
Qusai syni
hans. Al-Tikriti
stjórnaði að-
gangi að for-
setanum fyrr-
verandi og hafði yfirumsjón með
margvíslegum varnarmálum.
EKKI SENDA FLÓTTAMENN HEIM
Ríkisstjórnir ættu að bíða með að
senda íraska flóttamenn aftur til
Íraks, segir Dennis McNamara,
sendimaður Flóttamannafulltrúa
Sameinuðu þjóðanna í Írak. Hann
segir landið ekki nægilega
stöðugt til að senda hundruð þús-
unda flóttamanna aftur heim að
svo stöddu.
SJÁVARÚTVEGUR Samherjatogarinn
Baldvin Þorsteinsson EA 10 kom í
gær til Reykjavíkur með 900 tonn
af karfa af Reykjaneshrygg.
Árni V. Þórðarson skipstjóri
segist ekki vita hvort um mettúr
hafi verið að ræða. „En það hefur
alla vega ekki oft verið komið með
jafn mikið eftir jafn stuttan tíma.
Við vorum þrettán sólarhringa á
veiðum,“ segir hann.
Karfinn fer frosinn beint til
Japans. „Þetta eru 500 tonn af
hausuðum karfa,“ segir Árni og
upplýsir aðspurður að aflaverð-
mætið sé rúmar 60 milljónir
króna: „Fyrir tveimur árum hefði
þetta verið 90 milljónir miðað við
gengi og verð sem þá var.“
Skipstjórinn skýrir ekki frá
upphæð aflahluta skipverjanna.
„En ég get sagt þér að hver háseti
borgar á bilinu 250 til 300 þúsund
krónur til samfélagsins fyrir að fá
að fara þennan túr. Menn geta
reiknað það ef þeir vilja en þetta
er mikil vinna og er ekki gert
nema með hörkudugnaði,“ segir
hann.
Baldvin Þorsteinsson átti að
halda í nótt sem leið með sömu
áhöfn að nýju á karfamiðin á
Reykjaneshrygg. „Það er sami
mannskapurinn að minnsta kosti
þennan og næsta túr,“ segir skip-
stjórinn. ■
VIÐSKIPTI Fyrstu fjóra mánuði árs-
ins keyptu erlendir fjárfestar ís-
lensk húsbréf fyrir um 20 millj-
arða króna, að sögn Halls Magn-
ússonar, sérfræð-
ings stefnumótunar
og markaðsmála
Íbúðalánasjóðs.
„ Ú t l e n d i n g a r
eru að kaupa rúm-
lega það sem Íbúða-
lánasjóður er að
gefa út á hverjum
mánuði,“ segir Hallur.
Ein helsta forsenda stjórn-
valda fyrir hækkun húsnæðislána
í 90% er að núverandi þróun haldi
áfram. Hallur segir allt stefna í að
það gerist og langmestur hluti
húsbréfa fari úr landi. Hann segir
erlenda fjárfesta líta á húsbréfin
sem mjög góðan fjárfestingar-
kost. Þau séu í fyrsta lagi ríkis-
tryggð, þá sé lánshæfismat Ís-
lands mjög gott og síðast en ekki
síst séu vextir á þeim háir miðað
við vexti á alþjóðamarkaði og þau
verðtryggð.
Hallur segir þessa ásókn er-
lendra fjárfesta í bréfin hafa
komið sér mjög vel fyrir íslenska
neytendur.
„Á síðustu níu mánuðum hafa
bréfin farið úr 13 til 14% afföllum
í yfirverð, sem þýðir 1% raun-
vaxtalækkun á húsbréfum. Það er
álit greiningardeilda bankanna að
þessi þróun muni halda áfram.“
Bent hefur verið á að hækkun
húsnæðislána í 90% geti valdið
því að offramboð verði af hús-
bréfum. Sérstaklega geti það
gerst ef áhugi erlendra fjárfesta
minnki, t.d. ef vextir erlendis
hækki. Þá muni kaupþunginn
leggjast í auknum mæli á íslenska
fjárfesta, bankakerfið og lífeyris-
sjóðina. Hallur segist ekki skilja
þessa gagnrýni því ef vextir er-
lendis hækki muni þeir einfald-
lega líka hækka hérlendis. Bréfin
verði því góður fjárfestingarkost-
ur eftir sem áður.
Önnur forsenda hækkunar
húsnæðislána í 90% er að þau
verði skráð hjá erlendum upp-
gjörsaðila. Viðmælendur Frétta-
blaðsins innan bankakerfisins
hafa bent á að ekki sé víst að er-
lendir uppgjörsaðilar muni vilja
skrá bréfin, það sé ekki víst að
það svari kostnaði fyrir þá því ís-
lenski skuldabréfamarkaðurinn
sé mjög smár. Líklegt sé að ís-
lensk stjórnvöld muni þurfa að
greiða með skráningu bréfanna.
Hallur segir afar ólíklegt að er-
lendir uppgjörsaðilar muni hafna
skráningu bréfanna. Alls sé verið
að gefa út húsbréf fyrir um 500
milljónir dollara á ári og það ætti
að duga til þess að fá bréfin skráð.
„Af hverju ættu þeir ekki að skrá
okkar bréf eins og bréf annarra?“
trausti@frettabladid.is
19. JÚNÍ „Við ætlum að mála bæinn
bleikan,“ segir Katrín Anna Guð-
mundsdóttir, talskona Femínista-
félags Íslands. Í dag er kvenrétt-
indadagurinn, sem haldinn er í til-
efni þess að 19. júní árið 1915
fengu konur í fyrsta skipti kosn-
ingarétt. Femínistafélag Íslands, í
samstarfi við sjö önnur félög sem
berjast fyrir jafnrétti, ætlar að
standa fyrir nokkurri dagskrá í
tilefni dagsins.
„Við ákváðum að gera þetta
með svolitlum stæl og ætlum að
reyna að búa til stemningu í
kringum þetta,“ segir Katrín. „Við
viljum reyna að skapa samstöðu
hjá fólki um það að við viljum
jafnrétti og að fólk sýni það í
verki með að vera með eitthvað
bleikt.“ Allir sem vilja þrýsta á
um aukinn rétt kynjanna eru
hvattir til þess að klæðast bleiku
eða bera eitthvað bleikt í dag. Auk
þess verða æðstu ráðamönnum
þjóðarinnar afhentir bleikir stein-
ar til að hvetja þá til þess að hafa
jafnréttissjónarmið að leiðarljósi
við ákvarðanatöku. ■
BÍLVELTA Á NESVEGI Bíll valt á
Nesvegi á milli Grindavíkur og
Krísuvíkur í gær. Tveir voru í
bílnum. Annar fann til eymsla í
öxl og var fluttur á heilsugæslu-
stöð. Bíllinn var nokkuð skemmd-
ur og þurfti að fjarlægja hann
með dráttarbíl.
FARTÖLVU STOLIÐ Lögreglunni í
Reykjavík var tilkynnt um inn-
brot í heimahús í gær. Stolið var
fartölvu og fylgihlutum.
HÓFLEGUR HRAÐI Lögreglan í
Vík í Mýrdal mældi ökuhraða í
mikilli umferð í gær. Allir mæld-
ust á löglegum hraða í góða veðr-
inu.
BALDVIN ÞORSTEINSSON
Samherjatogarinn Baldvin Þorsteinsson landaði í Reykjavíkurhöfn í gær nærri 900 tonnum af
karfa sem áhöfnin veiddi djúpt út af Jökultunguenda um 130 mílur vestur af Reykjanesi.
Íslandsmet Baldvins Þorsteinssonar í úthafskarfaveiðum:
Níu hundruð tonn í einum túr
BARÁTTUDAGUR KVENNA
Allir sem vilja þrýsta á um aukinn rétt
kynjanna eru hvattir til að klæðast
bleiku eða bera eitthvað bleikt í dag.
19. júní er baráttudagur kvenna:
Bleikur dagur
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR
Hallur Magnússon, sérfræðingur stefnumótunar og markaðsmála Íbúðalánasjóðs, segir er-
lenda fjárfesta líta á húsbréfin sem mjög góðan fjárfestingarkost, ekki síst þar sem þau
séu ríkistryggð.
Tugmilljarða
kaup útlendinga
Sérfræðingur stefnumótunar og markaðsmála Íbúðalánasjóðs segir vax-
andi áhuga á húsbréfum meðal erlendra fjárfesta. Hann vísar á bug
gagnrýni á hækkun húsnæðislána í 90%.
■
„Útlendingar
eru að kaupa
rúmlega það
sem Íbúðalána-
sjóður er að
gefa út á hverj-
um mánuði.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
LE
M
Húsnæði Radíóhússins:
Allt fullt af
græjum
TÆKI „Ég er að fara að tæma þetta
endanlega,“ segir Páll Grétar Jóns-
son, eigandi hins gjaldþrota Radíó-
húss. Eigandi húsnæðisins, Erling
Jóhannesson, hafði samband við
Fréttablaðið í kjölfar fréttar um að
Páll hefði farið með vörubílahlöss
af ósóttum græjum á haugana. Er-
ling bendir á að húsnæðið sé enn
fullt af græjum og dregur í efa að
Páll hafi hent miklu.
Páll segist standa við frásögn
sína. Hins vegar segir hann það
rétt að húsnæðið sé ekki orðið
tómt. Þar eru enn vídeótæki sem
Páll segist ætla að nota í varahluti,
auk þess sem viðgerð standi yfir á
nokkrum sjónvörpum.
Málið er í raun orðið æsispenn-
andi, þar sem Erling hyggst henda
öllu undir eins og hann fær útburð-
arheimild. Erfið staða getur komið
upp ef sjónvörpin sem komu ný-
verið í viðgerð fara á haugana. Páll
segist ætla að reyna að ná í
græjurnar í tæka tíð. Hann kveðst
hins vegar orðinn uppiskroppa
með pláss til að geyma þær, því
hann hafi þegar fyllt eigin hirslur
af nýtilegum tækjum sem hann
vildi ekki henda. Á meðal þess sem
eftir er í húsnæðinu er 46 tommu
sjónvarpið sem hann hyggst nota
sjálfur. ■
RADÍÓHÚSIÐ
Eigandi húsnæðisins sem Radíóhúsið var í
bíður eftir útburðarheimild til þess að geta
tæmt húsnæðið.