Fréttablaðið - 19.06.2003, Blaðsíða 4
4 19. júní 2003 FIMMTUDAGUR
Átti lögreglan að hafa afskipti af
mótmælendunum á Austurvelli?
Spurning dagsins í dag:
Hvernig líst þér á ráðningu Ásgeirs
Sigurvinssonar sem landsliðsþjálfara?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
50,2%
49,8%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Jeffrey Archer:
Sleppt úr
fangelsi
BRETLAND Rithöfundurinn og fyrr-
um þingmaðurinn Jeffrey Archer
sleppur úr fangelsi í næsta mán-
uði. Nefnd sem tekur ákvörðun
um reynslulausnir ákvað að
Archer skyldi sleppt út þegar
hann hefur setið inni í tvö ár, en
hann var dæmdur í fjögurra ára
fangelsi. Fyrsti möguleiki manna
á reynslulausn er þegar þeir hafa
afplánað helming fangelsisdóms
síns.
Archer var dæmdur fyrir
meinsæri. Hann var fundinn sek-
ur um að hafa fengið kunningja
sinn til að bera ljúgvitni í skaða-
bótamáli sínu gegn bresku dag-
blaði. ■
EVRÓPUSAMBANDIÐ Í nýrri skýrslu
um tengsl Íslands og Noregs við
Evrópusambandið, sem unnin hef-
ur verið í samvinnu norsku alþjóða-
málastofnunarinnar NUPI og Al-
þjóðamálastofnunar Háskóla Ís-
lands, er því haldið fram að ákveði
Noregur og Ísland að sækja um að-
ild að Evrópusambandinu samtímis
myndi það réttlæta endurskoðun á
sameiginlegri sjávarútvegsstefnu
sambandsins. Í slíkri endurskoðun
yrði komið til móts við hagsmuni
ríkjanna tveggja í sjávarútvegi.
Skýrsluhöfundar benda m.a. á að
sameiginlega sjávarútvegsstefnan
hafi þegar verið endurskoðuð, á
þann veg að hún komi nú betur til
móts við grundvallarhagsmuni Ís-
lands og Noregs. Þeir benda einnig
á að heildarafli ESB-ríkjanna sé nú
um 6 til 7 milljón tonn en yrði á bil-
inu 10 til 11 milljón tonn með aðild
Íslands og Noregs. Slík aukning
myndi réttlæta endurskoðun á
stefnunni.
Skýrslan um sjávarútvegsmál
er viðauki við skýrsluna sjálfa,
sem fjallar í stórum dráttum um
þrjár leiðir ríkjanna tveggja til að
tengjast Evrópusambandinu. Að
sögn Baldurs Þórhallssonar, for-
manns stjórnar Alþjóðamálastofn-
unar HÍ, verður innihaldið nánar
kynnt á morgun, bæði í Noregi og
á Íslandi. ■
JÓN KRISTJÁNSSON
Barnageðlæknar vilja efndir á loforði heil-
brigðisráðherra um stjórnsýsluúttekt á
Barna- og unglingageðdeild Landspítalans.
Geðheilbrigði
ungmenna:
30 börn á
biðlista
HEILBRIGÐISMÁL „Tæplega 30 börn
12 ára og yngri bíða eftir inn-
lögn,“ segir í yfirlýsingu Barna-
geðlæknafélags Íslands, þar sem
óánægju er lýst með stöðu geð-
heilbrigðismála barna og ung-
linga. Læknarnir segja unglinga-
geðdeild Landspítalans að jafnaði
yfirfulla og biðlista þar svo lang-
an að óviðunandi sé.
Stjórn félagsins segir stöðu
geðheilbrigðismála barna og ung-
linga að mestu leyti óbreytta þrátt
fyrir fyrirheit og auknar fjárveit-
ingar.
„Stjórn BGFÍ telur einnig mik-
ilvægt að loforð ráðherra um
stjórnsýsluúttekt á Barna- og ung-
lingageðdeild LSH verði efnd.
Einnig þau loforð ráðuneytis um
að skipa nefnd í samstarfi við
barnageðlæknafélagið. Er einnig
með öllu óskiljanlegt hvers vegna
þessum áformum er ekki hrint í
framkvæmd,“ segir í yfirlýsing-
unni. ■
Barðastrandarsýsla:
Þrír
handteknir
FÍKNIEFNI Þrír menn eru í haldi lög-
reglunnar á Ísafirði, grunaðir um
fíkniefnamisferli.
Lögreglan á Patreksfirði hand-
tók mennina seint að kvöldi þjóð-
hátíðardagsins í Barðarstrandar-
sýslu eftir ábendingu frá lögregl-
unni á Ísafirði. Í bíl mannanna
fundust tæki til neyslu fíkniefna
og lítilræði af fíkniefnum. Menn-
irnir eru nú lausir úr haldi lög-
reglu og telst málið upplýst. ■
KARLAR
L U J T Mörk Stig
KR 5 3 1 1 6:6 10
Fylkir 5 3 0 2 9:4 9
Þróttur 5 3 0 2 8:7 9
KA 5 2 2 1 8:6 8
FH 5 2 2 1 7:5 8
ÍA 5 1 3 1 5:4 6
ÍBV 4 2 0 2 6:7 6
Valur 5 2 0 3 7:9 6
Grindavík 5 1 0 4 5:10 3
Fram 4 0 2 2 4:7 2
Þróttur 2:1 Fylkir
FH 2:1 Grindavík
ÍBV Frestað Fram
Telja að meira tillit yrði tekið til hagsmuna Íslands og Noregs við aðild:
Breytt sjávarútvegsstefna talin líkleg
NÁTTÚRULÆKNINGAR „Á annað ár er
búið að banna mér að flytja inn all-
ar jurtir á þeim forsendum að ég
sé að búa til lyf. Þetta hefur valdið
mér miklum vandræðum,“ segir
Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir,
sem hefur ekki
fengið að flytja
inn jurtir í hálft
annað ár. Kol-
brún hefur starf-
að við grasa-
lækningar síðan
árið 1994 og seg-
ir að þetta bann
Lyfjastofnunar
stórskemmi fyr-
ir sér. Hún hefur
fengið aðstoð lögfræðings til að ná
fram rétti sínum.
„Málsmeðferðin er með endem-
um. Það er búið að taka heilt ár að
fá rökstuðning Lyfjastofnunar fyr-
ir þessu banni. Ég fékk loks svar
fyrir nokkrum vikum. Stofnunin
skiptir þessu í lækningajurtir og
hefðbundnar jurtir sem aðrir en
ég fá að flytja inn. Mér er bannað
að flytja inn kamillu, piparmyntu,
hafra og fleiri jurtir sem seldar
eru á almennum markaði. Þeir
segja að ég sé að búa til lyf, sem er
alrangt. Ef það sem ég geri eru lyf
þá er kjötsúpa lyf. Ef þetta á yfir
mig að ganga þá verða þeir að
gæta jafnræðis og banna allar
matjurtir sem fluttar eru inn á
vegum matvörubúða,“ segir Kol-
brún.
Hún segir að jurtir sínar hafi
verið stöðvaðar hjá Tollstjóra að
fyrirmælum Lyfjastofnunar, sem
stjórni þessu.
„Ég nota jurtirnar að hluta til
að losa fólk undan óþörfum lyfj-
um. Ég er búin að tala við lyfja-
fræðing heilbrigðisráðuneytisins
sem sýndi mér skilning en hefur
ekki burði til að kippa þessu í lið-
inn. Ég ætla að leita ásjár heil-
brigðisráðherra,“ segir Kolbrún.
Fanney Ásgeirsdóttir, lyfjaeft-
irlitsmaður hjá Lyfjastofnun,
segir að bannið sé tilkomið vegna
þess að þarna sé um að ræða efni
sem eru notuð til lyfjagerðar.
„Það þarf leyfi til þess. Hún er
að framleiða úr jurtum sem eru
skilgreind sem lyf. Við athuguð-
um hjá Landlækni hvort hún
hefði leyfi en svo var ekki. Hún
þarf að útvega sér leyfi til að
stunda lyfjaframleiðslu,“ segir
Fanney.
Hún segir að lyfjalög segi
skýrt að efni sem notuð séu til að
lina þjáningar séu skilgreind sem
lyf.
rt@frettabladid.is
Grasalæknir leitar
ásjár ráðherra
Lyfjastofnun hefur á annað ár bannað jurtir sem Kolbrún Björnsdóttir
grasalæknir notar við starf sitt. Lyfjastofnun segir hana ekki hafa leyfi til
lyfjaframleiðslu. Kolbrún segist ekki vera í lyfjaframleiðslu.
KOLBRÚN BJÖRNSDÓTTIR
Fær ekki að flytja inn matjurtir og aðrar þær jurtir sem hún notar í starfi sínu.
„ Máls-
meðferðin er
með endem-
um. Það er
búið að taka
heilt ár að fá
rökstuðning.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
ÞRÓTTARAR NÁLGAST TOPPINN
Nýliðar Þróttar komu mörgum á óvart með því að leggja Fylki í Laugardalnum í gær.
Sigurmarkið kom ekki fyrr en eftir að venjulegur leiktími var liðinn.
Neyðarástand:
Óeirðir í
smábæ
MICHIGAN, AP Lýst hefur verið yfir
neyðarástandi í bænum Benton
Harbor í Michigan í Bandaríkjun-
um. Fimmtán manns hafa særst í
óeirðum þar síðustu tvær nætur.
Reiði bæjarbúa kviknaði þegar
eftirför lögreglumanna lauk með
dauða ungs bifhjólamanns. Und-
anfarnar nætur hafa hundruð
manna þyrpst út á götur bæjarins,
kveikt í húsum og bílum og ráðist
á vegfarendur vopnaðir hnífum
og skotvopnum. Rætt hefur verið
um að setja á útgöngubann.
Ekki er ljóst hvers vegna bif-
hjólamaðurinn var að flýja undan
lögreglunni. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Stórir regndropar:
Hellidemba
úr skýjum
VEÐUR Rigning með stórum drop-
um eins og var í gær er frekar
sjaldgæf hér á landi. Aftur á móti
minnir hún marga á útlönd.
„Í gær voru svipaðar aðstæður
hjá okkur hér sunnanlands eins og
er oft í öðrum löndum, fremur
hlýtt og rakt. Þá myndast háreist
skúraský sem valda talsverðum
dembum,“ segir Þorsteinn Jóns-
son, veðurfræðingur á Veðurstofu
Íslands. Þegar er hlýtt og rakt á
jörðu niðri en kalt í háloftunum
verður loftið óstöðugt. Aðstæður
sem þessar eru þær sömu og
valda eldingum. Það á mjög sjald-
an við hérna hjá okkur, það verður
nánast aldrei nógu hlýtt.
Í dag verður norðanátt og ætti
því að vera þurrt sunnanlands
með norðangolu. Hitinn ætti að
fara upp í tólf til þrettán stig. Aft-
ur á móti verður rigning og frekar
leiðinlegt veður fyrir norðan og
austan. Hitinn þar lækkar frá í
gær þegar hann fór upp í sautján
stig á köflum. Búast má við að hit-
inn verði á bilinu tíu til tólf stig. ■
FISKVEIÐAR
Gert er ráð fyrir endurskoðun
sjávarútvegsstefnunnar.