Fréttablaðið - 19.06.2003, Blaðsíða 9
11FIMMTUDAGUR 19. júní 2003
990 kr.
Molta
(með trjáplöntum)
44 l
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
15
11
06
/2
00
3
399 kr.
Birkikvistur
299 kr.
Petúnía
899-1099 kr.
Alaskaösp
Keisar
Haukur
Brekkan
100-150 sm
599 kr.
Margaríta
Trjáplöntutilbo›
Nú 399 kr.
Blátoppur
Verð áður 990 kr.
20% afsláttur
Allar fjölærar plöntur
Trjáplöntur og runnar...
...á stórlækkuðu verði
299 kr.
Gljámispill
2.200 kr.
15 Stafafurur
499 kr.
Hansarós
FLÓRÍDA, AP Lögregluyfirvöld í Flór-
ída telja sig hafa haft hendur í hári
fjöldamorðingja sem lék lausum
hala á götum Jacksonville í Flórída í
vetur.
Þrítugur leigubílstjóri, Paul
Durousseau, hefur verið handtek-
inn og ákærður fyrir fimm morð í
Flórída á tímabilinu desember til
febrúar og eitt í Georgíuríki árið
1997. Durousseau var handtekinn í
febrúar síðastliðnum fyrir að brjóta
skilorð en DNA-sýni, símtöl og
fleira tengdi hann við morðmálin
sex. „Við erum nokkuð sannfærð
um að við höfum náð rétta man-
ninum,“ sagði lögreglustjórinn í
Jacksonville.
Öll fórnarlömbin voru konur á
aldrinum 17 til 26 ára og voru sum-
ar þeirra viðskiptavinir Durous-
seau. Tvær kvennanna voru barns-
hafandi. Krufningar leiddu í ljós að
flestar þeirra voru beittar kynferð-
islegu ofbeldi og kyrktar. Ein
kvennanna fannst bundin á heimili
sínu ásamt tveimur ungum börnum
sem höfðu verið ein í íbúðinni ásamt
látinni móður sinni í hátt í tvo sóla-
hringa. ■
KREFJAST STYTTRI VINNUTÍMA
Verkamenn í vélaverksmiðju í austurhluta
Þýskalands lögðu niður störf til að leggja
áherslu á kröfur sínar um styttri vinnutíma.
PAUL DUROUSSEAU
Hinn þrítugi leigubílstjóri hefur verið ákærður fyrir að misþyrma og
myrða sex ungar konur.
HÚSIN FRIÐUÐ Menntamálaráð-
herra hefur friðað nokkur menn-
ingarhús. Forsalur og aðalsalur
Þjóðleikhússins hefur verið frið-
aður en auk þess ytra og innra
borð almenningsrúma Norræna
hússins og Listasafns Einars
Jónssonar. Þá er búið að friða
laug, búningsklefa og sturtur
Sundhallar Reykjavíkur.
■ Húsfriðanir
GÜNTER VERHEUGEN
Segir aðild Ísraela að EES koma vel til
greina en ekki aðild að Evrópusambandinu.
Ísrael:
Gæti fengi
inni í EES
EVRÓPUSAMBANDIÐ Günter
Verheugen, sem fer með stækk-
unarmál í Evrópusambandinu,
segir ekkert því til fyrirstöðu að
Ísrael eigi aðild að samningnum
um Evrópska efnahagssvæðið.
Verheugen lét þessi orð falla í
ferð til Ísraels vegna viðræðna
sem eiga að leiða til nánari sam-
skipta Evrópusambandsins og ná-
lægra ríkja.
Haft er eftir Verheugen í Fin-
ancial Times að Ísrael sé meðal
þeirra ríkja sem Evrópusamband-
ið eigi að leggja mesta áherslu á
að auka samskipti við. Slíkt geti
þó reynst erfitt ef ekki verður
friðvænlegra í sambúð Ísraela og
Palestínumanna. ■
VEIÐUM MÓTMÆLT
Fólk víða að mótmælti hvalveiðum Japana.
Alþjóðahvalveiðiráðið:
Hafnar
veiðum
BERLÍN, AP Tillaga Japana um að
þeim yrði heimilað að veiða 150
hvali í norðanverðu Kyrrahafi
næstu árin var felld með 27 at-
kvæðum gegn 17 á fundi Alþjóða-
hvalveiðiráðsins í gær.
Japanir sögðu tilganginn með
veiðunum vera þann að styðja við
bakið á sjávarþorpum sem reiða
sig á sjósókn. Að auki yrðu veið-
arnar til þess að menn gætu sett
upp eftirlitskerfi með veiðum
sem væri til þess fallið að binda
enda á deilur um hvort veiða ætti
hvali eða ekki. ■
Meintur fjöldamorðingi ákærður:
Misþyrmdi og myrti
sex ungar konur