Fréttablaðið - 19.06.2003, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 19.06.2003, Blaðsíða 8
PARÍS, AP Tvær íranskar konur kveiktu í sér í París til að mót- mæla herferð franskra yfirvalda gegn írönskum stjórnarandstæð- ingum. Fyrr í vikunni handtók franska lögreglan 160 meinta meðlimi írönsku samtakanna Mujahedeen Khalq og lagði hald á sem svarar um 220 milljónum íslenskra króna í reiðufé auk tölvubúnaðar. Frönsk yfirvöld telja að sam- tökin hafi verið að skipuleggja hryðjuverkaárásir í Evrópu en mótmælendur halda því fram að Frakkar séu að hlýða tilskipunum klerkastjórnarinnar í Íran. Sam- tökin Mujahedeen Khalq berjast gegn írönsku stjórninni og eru skilgreind sem hryðjuverkahópur á Vesturlöndum. ■ 19. júní 2003 FIMMTUDAGUR BYGGÐAMÁL Mál Raufarhafnar bíð- ur meðferðar hjá ráðuneytum og ríkisstjórn og stendur eftir að gera arðsemisútreikninga á rekstri saltfiskvinnslu til bjargar byggðarlaginu. Uppsagnir Jökuls, dótturfyrirtækis Eimskipa, taka í flestum tilfellum gildi 1. septem- ber og er vonast til að koma af stað annarri starfsemi fyrir þann tíma. „Við þurfum að sjá hvort við getum keypt fisk á samkeppnis- hæfu verði og selt hann fyrir kostnaði. Takmarkið er að fá trillusjómenn til að landa hér með því að gefa þeim gott verð fyrir fiskinn,“ segir Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri Raufar- hafnar. Reiknað er með að hið opin- bera og Útgerðarfélag Akureyr- inga verði ráðgefandi í fyrirhug- uðum rekstri saltfiskvinnslu. Þá hafa hugmyndir um línuívilnun verið uppi á pallborðinu, en hún hefur í för með sér að þeir sem veiði með línu fái hlutfallslega aukningu á kvóta miðað við land- aðan afla. Með þessu verður hugs- anlega bættur upp kvótaskortur þorpsins, en ÚA landar annars staðar tæplega þúsund tonna kvóta sem skráður er á Raufar- höfn. Einnig er í burðarliðnum að laða ferðamenn að Raufarhöfn, en ekki hefur verið rætt sérstaklega með hvaða hætti sérstaða þorps- ins verður kynnt. ■ Byggt á hæsta- réttardómum Hart er deilt um uppsagnarfrest bæjarstjórans í Vestmannaeyjum. Ást- ráður Haraldsson hæstaréttarlögmaður segir sex mánaða uppsagnarfrest gilda. Hann segir fráleitt að sú niðurstaða sé pöntuð. MÓTMÆLI Í PARÍS Andstæðingar klerkastjórnarinnar í Íran söfnuðust saman fyrir framan höfuðstöðvar frönsku leyniþjónustunnar í París þar sem meintir meðlimir samtakanna Mujahedeen Khalq eru í haldi. Íranskir stjórnarandstæðingar: Kveiktu í sér í mótmælaskyni SVEITARSTJÓRNARMÁL „Niðurstaða mín byggir á dómum Hæstaréttar í sambærilegum málum,“ segir Ástráður Haraldsson hæstarétt- arlögmaður, sem skilað hefur því áliti að Ingi Sigurðsson, bæjar- stjóri í Vestmannaeyjum, eigi að- eins rétt á sex mánaða uppsagnar- fresti í stað þess að greiða þurfi honum laun út k j ö r t í m a b i l i ð eins og minni- hluti Sjálfstæð- isflokksins í b æ j a r s t j ó r n heldur fram. Staða bæjar- stjórans er veik og vilji er fyrir því innan núver- andi meirihluta að segja honum upp störfum og ráða annan. Guð- jón Hjörleifsson, oddviti sjálf- stæðismanna og fyrrverandi bæj- arstjóri, sem stóð að ráðningu Inga Sigurðssonar í upphafi kjör- tímabilsins, sagði við Fréttablaðið að hann liti þannig á að niðurstað- an um sex mánaða uppsagnar- frest væri pöntuð þar sem í samn- ingnum væri dagsetning um að hann gilti út kjörtímabilið. Ást- ráður segir þetta ekki eiga sér neina stoð. Honum hefði verið falið að gera úttekt á stöðu starfs- manna bæjarins með tilliti til hugsanlegra skipulagsbreytinga. „Málið bar þannig að að þeir ræddu við mig um að gera ljósa stöðu bæjarstjórans og annarra starfsmanna í sambandi við skipulagsbreytingar hjá bænum. Það blasti við að skoða sérstak- lega stöðu bæjarstjórans og ég skoðaði sérstaklega ráðningar- samning hans og komst að þeirri niðurstöðu að hann ætti sex mán- aða uppsagnarfrest. Þar tek ég sérstaklega mið af tveimur hæstaréttardómum þar sem bæj- arstjórum hafði verið sagt upp áður en kjörtímabilinu lauk. Þar horfði ég sérstaklega til máls Óla Jóns Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóra í Borgarnesi,“ segir Ástráður. Hann segir að þeir sem haldi því fram að ráðningarsamningar séu tímabundnir eigi talsvert á brattan að sækja. Almenna venjan sé sú að skipt sé um bæjarstjóra á sama tíma og skipt er um meiri- hluta í sveitarstjórn. Óvenju ríf- leg uppsagnarkjör bæjarstjóra undirstriki þetta. „Sá sem ræður sig sem bæjar- stjóra verður að ganga út frá því sem almennri for- sendu að meiri- hlutinn haldi. Ákvæði eru í samningi bæjar- stjórans í Vest- mannaeyjum um að til þess geti komið að ráðning hans verði framlengd. Sex mán- aða uppsagnarfrestur er ríflegur og blanda af biðlaunum og upp- sagnarfresti,“ segir Ástráður. Hann segir að dagsetningin í samningi Inga Sigurðssonar sé lýsandi fyrir það að ráðning hans sé til sama tíma og meirihlutinn sem réði hann til starfa ætlaði að starfa. „Ég byggi mína lögfræðilegu niðurstöðu fyrst og fremst á Borgarnesmálinu en menn geta haft á þessu alls konar skoðanir,“ segir Ástráður. rt@frettabladid.is FRÁ VESTMANNAEYJUM Staða bæjarstjórans er mjög veik eftir að nýr meirihluti tók við völd- um í Vestmannaeyjum. „Sá sem ræður sig sem bæjar- stjóra verður að ganga út frá því sem almennri for- sendu að meirihlutinn haldi. SVEITARSTJÓRI RAUFARHAFNAR Fyrirhuguð saltfiskvinnsla mun beina spjót- um sínum að trillukörlum með því að bjóða hagstætt verð fyrir fiskinn. Aðgerðir á Raufarhöfn: Trillukarlana heim GUÐJÓN HJÖRLEIFSSON Niðurstaða um uppsagnarfrest pöntuð af meiri- hlutanum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.