Fréttablaðið - 19.06.2003, Blaðsíða 10
12 19. júní 2003 FIMMTUDAGUR
■ Bandaríkin
Í TEYGJUSTÖKKI
Það var mikið fjör í miðbænum á 17. júní
eins og sjá má á þessari stúlku.
Stendur við yfirlýsingar
um lögbrot Flugleiða
Valgerður Bjarnadóttir botnar ekkert í klögumáli Flugleiða á hendur
henni. Hefur ekkert með úrskurði Kærunefndar jafnréttismála að gera.
JAFNRÉTTISMÁL „Ég þarf hvergi að
víkja sæti. Kærunefnd jafnréttis-
mála er að fjalla um málið. Starf
nefndarinnar er mér algjörlega
óviðkomandi og ég veit varla
hverjir eiga sæti í nefndinni,“
segir Valgerður Bjarnadóttir,
framkvæmdastýra Jafnréttis-
stofu, vegna þeirra ávirðinga sem
Flugleiðamenn hafa sett fram á
hendur henni vegna kæru Kven-
réttindafélags Ís-
lands á hendur fyr-
irtækinu. Flugleið-
ir þurfa að svara til
saka vegna auglýs-
inga á borð við
„Dirty Weekend“
og „One Night
Stand“. Urgur er
meðal kvenna sem telja að Flug-
leiðir séu með auglýsingunum að
stórskaða ímynd íslenskra kvenna
á alþjóðavettvangi.
Meðal þeirra sem hafa tjáð sig
um auglýsingarnar er Valgerður
Bjarnadóttir jafnréttisstýra, sem
sagði í viðtali að það væri hennar
skoðun að auglýsingarnar væru á
skjön við jafnréttislög. Í svari
Flugleiða vegna málsins er
nokkru púðri eytt í að lýsa van-
hæfi Valgerðar vegna áður-
nefndra yfirlýsinga.
Hún segist ekkert
botna í þeim málflutn-
ingi þar sem kæru-
nefndin myndi úr-
skurða um málið óháð
sinni skoðun. Jafnrétt-
isstofa kæmi ekki að
málinu fyrr en eftir úr-
skurðinn.
„Ef úrskurður verð-
ur Flugleiðum í hag
fellur málið um sjálft
sig og þeir standa með
pálmann í höndunum.
En að öðrum kosti mun
það falla í okkar hlut að
fylgja málinu eftir. Við
höfum ekkert úrskurðarvald,“
segir Valgerður.
Í svari Flugleiða vegna
kærunnar er vakin athygli á því
að Valgerður hafi tjáð sig opinber-
lega um hinar umdeildu auglýs-
ingar án þess að hafa
séð þær.
„Þetta er alrangt og
ég hafði séð nokkrar af
þessum auglýsingum,
en að vísu ekki þær sem
eru í neðanjarðarlest-
um. Síðan hef ég séð fleiri þeirra,
sem styrkir mig enn frekar í skoð-
un minni. Ég hef ekki breytt
þeirri skoðun minni að þær séu á
skjön við jafnréttislög. Mál þetta
snýst um ímynd íslensku þjóðar-
innar. Málið þurfti aldrei að fara í
þennan farveg. Um leið og þeir
heyrðu að auglýsingarnar voru
svona umdeilar hefðu þeir getað
brugðist við og sagt að þeir
myndu taka athugasemdirnar til
greina,“ segir Valgerður.
Hún segist ekki hafa miklar
áhyggjur af þeim málflutningi
Flugleiða sem snýr að henni.
„Ég fæ enga marbletti þótt á
mér sé barið,“ segir hún.
rt@frettabladid.is
FLUGLEIÐIR
Félagið var kært fyrir ósæmilegar auglýsingar sem þykja skaða ímynd ís-
lenskra kvenna.
„Ég fæ
enga mar-
bletti þótt á
mér sé
barið.
Gjaldþrot rækjuvinnslunnar á Kópaskeri:
Sveitarstjóri biður um byggðakvóta
KÓPASKER „Við munum væntanlega
óska eftir byggðakvóta. Hann
þyrfti að vera að minnsta kosti
200 til 300 tonn,“ segir Elvar Árni
Lund, sveitarstjóri í Öxarfjarðar-
hreppi, en rækjuvinnslan Gefla á
Kópaskeri fór fram á gjaldþrota-
skipti á dögunum. Hún hefur lengi
verið ein meginstoðin í atvinnulífi
Kópaskers, en að sögn Elvars er
þó ekki hægt að segja að skellur-
inn komi núna fyrir sveitarfélag-
ið, því rækjuvinnsla hefur að
mestu legið niðri í verksmiðjunni
undanfarna mánuði.
Að sögn Elvars sótti Öxarfjarð-
arhreppur um byggðakvóta fyrr á
árinu, en var hafnað án útskýringa.
Aftur á móti var útgerðarfélagi
Hólmsteins Helgasonar á Raufar-
höfn, sem var stór hluthafi í Geflu,
úthlutað 53 þorskígildistonnum.
Ætlunin var að skipta honum út
fyrir rækjukvóta og landa aflan-
um á Kópaskeri. Af þessu varð
ekki m.a. vegna slælegrar rækju-
veiði og er kvótinn að mestu
óveiddur, að sögn Elvars. Hann
segir líklegt að hann verði veiddur
í bráð, en hann er að meginstofni
til þorskur og ýsa, og landað á
Kópaskeri.
Hins vegar þarf mun meira til,
að sögn Elvars. Auk þess að sækja
um kvóta hefur sveitarstjórnin
áhuga á því að leita leiða til að
auka fiskeldi á staðnum. Elvar
bendir á vel heppnað fordæmi Silf-
urstjörnunnar í því sambandi. ■
VALGERÐUR
BJARNADÓTTIR
Hvikar hvergi frá þeirri
skoðun sinni að auglýsing-
ar Flugleiða séu á skjön
við jafnréttislög.
BAGDAD, AP Bandarískir hermenn
skutu á íraska borgara sem höfðu
safnast saman fyrir utan aðal-
bækistöðvar innrásarhersins í
Bagdad til að mótmæla. Tveir
Írakar létu lífið og að minnsta
kosti einn særðist.
Um var að ræða fyrrum her-
menn í íraska hernum. Talsmaður
bandaríska hersins segir að mót-
mælendurnir hafi kastað steinum
að bílalest herlögreglunnar þegar
hún var að koma að hliði fyrrum
forsetahallar Saddams Husseins,
sem nú hýsir höfuðstöðvar innrás-
arliðsins.
Íraskir borgarar hafa ítrekað
efnt til mótmæla við forsetahöll-
ina síðan bandaríski herinn
hertók Bagdad, einkum vegna
ógreiddra launa opinberra starfs-
manna og hermanna. Undanfarna
sólarhringa hefur bandaríski her-
inn gert óvænta húsleit um miðjar
nætur á heimilum fjölda borgar-
búa og handtekið um 400 manns.
Aðgerð þessi, sem kallast „Eyði-
merkursporðdrekinn“, hefur vak-
ið mikla reiði meðal almennings í
landinu og orðið til þess að kynda
undir tortryggni Íraka í garð
bandaríska innrásarhersins. ■
Átök við höfuðstöðvar innrásarhersins í Bagdad:
Bandarískir hermenn
skutu á mótmælendur
HALDIÐ AFTUR AF MÓTMÆLENDUM
Bandarískir hermenn beina byssum sínum að Írökum til þess að koma í veg fyrir
að þeir brjóti sér leið inn í höfuðstöðvar innrásarliðsins í Bagdad.
SAGAN ENDURSKOÐUÐ George
W. Bush
Bandaríkja-
forseti sakaði
gagnrýnend-
ur sína um að
endurskoða
söguna með
því að halda
því fram að
ekki hefði
stafað hætta
af Saddam Hussein fyrir innrás-
ina í Írak.
BISKUP HANDTEKINN Biskup í
borginni Phoenix var handtekinn
eftir að hafa keyrt á brott í kjöl-
far þess að hann ók á gangandi
vegfaranda. Biskupinn sagðist
hafa staðið í þeirri trú að hann
hefði keyrt á hund eða kött,
ellegar að einhver hefði kastaði
steini í bíl sinn.