Fréttablaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 6
6 20. júní 2003 FÖSTUDAGUR
■ Lögreglufréttir
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 73.63 0.33%
Sterlingspund 123.17 -0.02%
Dönsk króna 11.53 -0.60%
Evra 85.57 -0.64%
Gengisvístala krónu 120,60 0,00%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 296
Velta 5.320 milljónir
ICEX-15 1.463 0,34%
Mestu viðskiptin
Framtak Fjárf.banki hf. 1.342.292.200
Baugur Group hf. 134.654.260
Össur hf. 107.020.183
Fjárf.félagið Straumur hf. 34.060.503
Pharmaco hf. 22.310.205
Mesta hækkun
Framtak Fjárfestingarbanki hf. 10,12%
Össur hf. 3,97%
Flugleiðir hf. 2,22%
Sölum. Hraðfrystihúsanna hf. 1,98%
Eimskipafélag Íslands hf. 0,81%
Mesta lækkun
Skeljungur hf. -1,26%
SÍF hf. -1,25%
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. -1,13%
Íslandssími hf. -0,39%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ: 9209,3 -0,9%
Nasdaq: 1661,5 -0,9%
FTSE: 4131,5 -1,8%
Nikkei: 9110,5 0,2%
S&P: 1000,0 -1,0%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Tveir menn vopnaðir hnífum rændusöluturn í Kópavogi í fyrradag. Hvað
heitir söluturninn?
2Í gær var 19. júní, baráttudagurkvenna á Íslandi. Hvaða ár fengu
konur almennan kosningarétt hér á landi?
3Hvað heitir bandaríska djasssöngkon-an sem ætlar að gleðja landann með
söng sínum í Laugardagshöllinni í ágúst?
Svörin eru á bls. 38
Ráðherra ósáttur við yfirlýsingu og vefengir biðlistatölur barnageðlækna:
Passar ekki við okkar tölur
HEILBRIGÐISMÁL Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra segir fullyrð-
ingar barnageðlækna um fjölda
barna á biðlista á barna- og ung-
lingageðdeild í ósamræmi við tölur
ráðuneytisins.
Stjórn Félags íslenskra barna-
geðlækna sagði í yfirlýsingu á mið-
vikudag að tæplega 30 börn innan
við tólf ára aldur væru á biðlista
Barna- og unglingageðdeildar Land-
spítalans.
„Það þarf að fara yfir hvað er á
bak við þá lista. Það passar ekki við
þær upplýsingar sem ég hef. Í vetur
var talið að fjölga þyrfti um átta
varanleg rými. Síðan hefur verið
komið á þverfaglegu teymi sem að-
stoðar fólk utan stofnana,“ segir
ráðherra. Aðspurður um yfirlýs-
ingu barnageðlækna um að staða
málsins sé óviðunandi segir Jón:
„Ég ætla ekki að rengja það á þessu
stigi. En stjórnin getur fengið viðtal
hjá mér samdægurs og mér finnst
því þessar bréfaskriftir vera dálítið
stirt samskiptaform okkar á milli.“
Jón segir unnið af krafti að fram-
gangi tillögu sem ríkisstjórnin hafi
samþykkt fyrir þremur mánuðum
um úrbætur í málefnum barna- og
unglingageðdeildarinnar.
Jón segist hafa viljað funda með
stjórn félags barnageðlækna í gær.
Það verði þó ekki fyrr en á mánudag
vegna fjarveru stjórnarmanna. ■
Steypustöðin semur við Aalborg Portland:
Hættir við kaup á
Sementsverksmiðjunni
VIÐSKIPTI Nýir eigendur Steypu-
stöðvarinnar hafa samið við Aal-
borg Portland um sementskaup.
Vegna þessa hefur Steypustöð-
in dregið sig út úr viðræðum um
kaup á Sementsverksmiðjunni, en
fyrirtækið hafði verið í samstarfi
með Framtaki fjárfestingar-
banka, BM Vallá og Björgun um
kaup á verksmiðjunni.
Konráð Andrésson hjá
Loftorku í Borgarnesi, sem
keypti Steypustöðina fyrir rúmri
viku síðan, segir að nýjum eig-
endum hafi einfaldlega ekki litist
á að kaupa Sementsverksmiðj-
una. Því hafi verið ákveðið að
semja við Aalborg Portland.
Hann segist ekki reikna með því
að þessi ákvörðun hafi áhrif á
samstarf hinna aðilanna þriggja.
Þeir séu þegar búnir að fá nýjan
aðila inn í samstarfið.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er Sementsverksmiðjan
verðlögð á 450 milljónir króna.
Verksmiðjan skuldar hins vegar
á annan milljarð króna. ■
JÓN KRISTJÁNSSON
„Stjórnin getur fengið viðtal hjá mér sam-
dægurs og mér finnst því þessar bréfa-
skriftir vera dálítið stirt samskiptaform okk-
ar á milli,“ segir heilbrigðisráðherra um
harðorða yfirlýsingu stjórnar Félags ís-
lenskra barnageðlækna.
STEYPUBÍLL
Sementsverksmiðjan verðlögð
á 450 milljónir króna. Verk-
smiðjan skuldar hins vegar á
annan milljarð króna.
Enn vaxa skuldir
sveitarfélaganna
Fyrstu niðurstöður úr nýjum gagnagrunni fyrir ársreikninga sveitarfélaga sýna að skuldir sveit-
arsjóða jukust um fimm milljarða í fyrra. Nýja kerfið gerir kleift að fá samanburðarhæfar tölur
um rekstur sveitarfélaganna fjórum mánuðum fyrr en áður var.
SVEITARSTJÓRNIR Heildarskuldir
sveitarfélaga jukust um fimm
milljarða króna í fyrra og eru nú
yfir 69 milljarðar samkvæmt
bráðabirgðaniðurstöðum.
Samband ís-
lenskra sveitar-
félaga, Hagstof-
an, félagsmála-
ráðuneytið og
endurskoðunar-
s k r i f s t o f a n
KPMG kynntu í
gær nýjan
gagnagrunn sem
þessir aðilar
hafa unnið sam-
eiginlega að og
sem ætlað er að
halda utan um ársreikninga sveit-
arfélaga. Um leið voru kynntar
fyrirliggjandi heildarniðurstöður
um rekstur og efnahag um helm-
ings sveitarfélaga í landinu, sem
samtals telja um 94% íbúanna.
Hingað til hafa þessar tölur ekki
legið fyrir samandregnar fyrr en í
október. Reikningar eru settir
fram samkvæmt nýjum reikn-
ingsskilareglum.
„Það skiptir miklu máli fyrir
alla aðila að niðurstaða liggi fyrir
eins fljótt og kostur er,“ sagði Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, formað-
ur Sambands íslenskra sveitarfé-
laga.
Fram kom í máli fulltrúa Hag-
stofunnar og félagsmálaráðuneyt-
is að ekkert væri því til fyrirstöðu
að tölur sveitarfélaganna gætu
legið fyrir miklu fyrr en í júní.
Benti Hallgrímur Snorrason hag-
stofustjóri á að í Noregi væru töl-
urnar til reiðu strax í febrúar.
„Það er áhyggjuefni að það
sem virðist ekki breytast er
skuldasöfnun sveitarfélaganna,“
sagði Gunnlaugur A. Júlíusson,
sviðsstjóri hag- og upplýsinga-
sviðs Sambands íslenskra sveitar-
félaga. Hann bætti því við að
skattar væru 75% af heildartekj-
um íslenskra sveitarfélaga, sem
væri mjög hátt hlutfall í saman-
burði við sveitarfélög annarra
norrænna þjóða.
Samkvæmt niðurstöðunum
námu heildarskuldir áðurnefndra
sveitarsjóða, sem telja 94% íbúa
landsins, um 67,7 milljörðum
króna um síðustu áramót. Að við-
bættum áætluðum skuldum
þeirra sveitarfélaga sem enn eru
ekki í grunninum eru skuldirnar
áætlaðar yfir 69 milljarðar.
Skuldirnar eru hins vegar yfir
130 milljörðum króna ef fyrirtæki
sveitarfélaganna eru tekin með í
reikninginn. Fram kom að skuld-
irnar sem hlutfall af tekjum eru
mestar í sveitarfélögum með
fleiri en fimm þúsund íbúa. Þetta
á þó ekki við um Reykjavík.
gar@frettabladid.is
VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON
Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga fagnaði í gær nýju rafrænu gagnvinnslukerfi sem flýtir mjög fyrir því að samanburðarhæfir
ársreikningar sveitarfélaga liggi fyrir ár hvert.
„Það er
áhyggjuefni
að það sem
virðist ekki
breytast er
skuldasöfnun
sveitarfélag-
anna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Viðræður um varnarmál:
Hefjast á
mánudag
VARNARMÁL Gunnar Snorri Gunn-
arsson, ráðuneytisstjóri í utanrík-
isráðuneytinu, verður í forsvari
fyrir íslensk stjórnvöld í viðræð-
um við Bandaríkjamenn um fram-
hald varnarsamstarfs þjóðanna.
Fyrsti viðræðufundur sendinefnda
ríkjanna verður haldinn á mánu-
dag. Framtíð varnarliðsins á Mið-
nesheiði ræðst í þeim viðræðum.
Forystumaður bandarísku
sendinefndarinnar verður Marisa
Lino, sendiherra í utanríkisþjón-
ustu Bandaríkjanna. Hún er ráð-
gjafi um málefni sem tengjast
bandarískum herstöðvum á er-
lendri grund. ■
ÞRIGGJA BÍLA ÁREKSTUR Árekst-
ur þriggja bíla varð á Reykjanes-
braut á móts við Smáralind í gær.
Samtals voru sjö manns í bílun-
um og sluppu allir með minni-
háttar meiðsl. Lentu bílarnir hver
aftan á öðrum.
SLAGSMÁL Í HAFNARSTRÆTI
Lögreglan í Reykjavík þurfti að
hafa afskipti af tveimur mönnum
í slagsmálum í Hafnarstræti um
hádegi í gær. Lögreglan skakkaði
leikinn og fór með þá upp á lög-
reglustöð til yfirheyrslu.