Fréttablaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 22
22 20. júní 2003 FÖSTUDAGUR
FERSK Í BÚÐIR Á HVERJUM DEGI
KNATTSPYRNA Massimo Moratti,
forseti Internazionale á Ítalíu
sér ekki eftir David Beckham til
Real Madrid. Þvert á móti hefur
nú opnast möguleiki á að fá hinn
portúgalska Luis Figo til liðsins.
„Beckham er frábær leikmað-
ur en eins og staðan er er hann
ekki inni í okkar áætlunum. Það
er Figo hins vegar. Fótboltinn er
skrýtinn, heimurinn er stór og
allt getur gerst. Þar á meðal
kaup okkar á Figo.“
Real Madrid skuldar Inter
Milan enn háar greiðslur vegna
Ronaldo hins brasilíska og með
tilkomu Beckhams er orðið
þröng á þingi í liði Madrid með
Makelele, Zidane, McManaman,
Beckham, Guti, Helguera, Sol-
ari, Conceicao, Cambiasso og
Figo að berjast um sömu eða
svipaðar stöður innan liðsins.
Má því gera ráð fyrir að Beck-
ham þurfi að venjast því að vera
ekki fastamaður í byrjunarliði
eins og verið hefur hans feril
með Manchester United. ■
LUIS FIGO
Hann er efstur á óskalista Inter Milan.
Forseti Inter Milan á Ítalíu:
Inter vill Figo
KNATTSPYRNA Mikið er rætt um end-
urkomu Eyjólfs Sverrissonar í ís-
lenska knattspyrnu en Eyjólfur er
að koma sér fyrir á Íslandi eftir
langa dvöl erlendis.
Sjálfur segist Eyjólfur ekki
leiða hugann að neinu ennþá enda
með nóg á sinni könnu. Hann hefur
tæpan mánuð til að gera upp hug
sinn í þeim málum því þann 15. júlí
opnast leikmannaskiptamarkaður
Knattspyrnusambands Íslands. Sú
staðreynd að Ásgeir Sigurvinsson
landsliðsþjálfari virðist enn telja
Eyjólf vænlegan kost í landsliðið
gefur til kynna að hann sé hugsan-
lega að fara að leika hérlendis.
Ekkert er þó ákveðið í þeim efnum
en ef hann ákveður að leika er ljóst
að mörg lið myndu vilja fá hann í
sínar raðir.
Öll félög vilja fá
Eyjólf Sverrisson
Einn reyndasti leikmaður íslenskrar knattspyrnu í dag er hættur í at-
vinnumennsku. Hann hefur undanfarið æft með Fylki í Árbænum.
Leikmannamarkaðurinn opnast 15. júlí.
FERILL ERLENDIS
Eyjólfur Sverrisson (f. 3. ágúst 1968)
leikir mörk
VfB Stuttgart (1989-1994) 110 21
Besiktas JK (1994-1995) 33 9
Hertha BSC Berlin (1995-2003) 140 10
Samtals (1989-2003) 283 40
A-landsleikir (1990-2001) 66 10
EYJÓLFUR MEÐ
HERTHA BERLÍN
Hvarvetna er borin
mikil virðing fyrir hon-
um sem leikmanni.
Heyrnartæki
Nú fáanleg með greiðsluþátttöku ríkisins
• Afgreidd á 3 vikum
• Möguleiki á 28.000 kr
niðurgreiðslu frá ríkinu
• Persónuleg þjónusta
• Frí heyrnarmæling og ráðgjöf
hjá heyrnarfræðingi
• Verð frá 76.000 kr.
• 2 ára ábyrgð
GLÆSILEGUR ÁRANGUR
* Þýskur meistari með Stuttgart árið
1992
* Tyrkneskur meistari með Besiktas
árið 1995
* Deildabikarmeistari með Hertha
árin 2001 og 2002
* Eyjólfur er leikjahæstur Íslendinga
í þýsku Búndeslígunni með 250
leiki.
Atli Eðvaldsson lék 224 leiki og Ás-
geir Sigurvinsson 211 leiki.