Fréttablaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 36
Ég verð nú bara 29 ára, svo þettaer ekkert merkilegt,“ segir
Nanna Guðbergsdóttir, eigandi
Kaffi Roma á Rauðarárstíg og nú
nýlega nýs kaffihúss undir sama
nafni í Kringlunni. „Það er ekkert
planað ennþá, en ég ætla að
minnsta kosti að bjóða fjölskyldu
og vinum að kíkja til mín niður á
kaffihús. Bara svona lítið og létt,
kaffi og bakkelsi,“ segir Nanna,
sem dettur ekki í hug að loka kaffi-
húsinu á meðan.
Nanna segist ekki hafa gert mik-
ið úr afmælunum sínum í gegnum
tíðina. „Þegar ég var krakki héldu
foreldrar mínir alltaf voða fína
veislu handa mér, en svo varð
minna úr þessu með aldrinum. Ég
bjó líka erlendis í sex ár og þá voru
náttúrlega fjölskylda og vinir víðs
fjarri.“ Nanna segist ekki í fljótu
bragði muna eftir neinum einum af-
mælisdegi sem stendur uppúr. „Eft-
irminnilegustu gjöfunum held ég
fyrir sjálfa mig,“ segir hún hlæj-
andi.
Nanna rekur ásamt eiginmanni
sínum Oliver Pálmasyni kaffihúsin
á Rauðarárstíg og í Kringlunni. „Vð
vorum að opna í Kringlunni þannig
að ég er mikið að vinna og tek mér
ekkert frí. En ef ég ætti möguleika
á fríi myndi ég splæsa á mig dekur-
degi. Fara í nudd og andlitsbað og
láta dekra við mig frá toppi til táar.“
Nanna á níu mánaða dóttur,
Nadju, og ætlar að sækja hana um
tvöleytið til dagmömmunnar og
taka hana með í veisluna á kaffihús-
inu. „Það er engin veisla án henn-
ar,“ segir Nanna, sem hefur heldur
engin sérstök plön fyrir sumarið.
„Það verða svona styttri ferðir inn-
anlands þegar tími gefst til, mig
langar til dæmis að fara á Búðir á
Snæfellsnesi og njóta útiverunnar
með fjölskyldunni.“ ■
36 20. júní 2003 FÖSTUDAGUR
■ Óskalagið
Af hverju eru Skotar svona góðir ígolfi?
Þeir eru svo nískir og reyna því eins
og þeir geta að spara höggin.
Pondus eftir Frode Øverli
Með súrmjólkinni
Afmæli
NANNA GUÐBERGSDÓTTIR
■ kaffihúsaeigandi er nýbúinað opna
Kaffi Roma í Kringlunni og verður að
vinna þar á afmælisdaginn. Þangað eru
hins vegar vinir og vandamenn velkomnir
í kaffi og bakkelsi í tilefni dagsins.
NANNA GUÐBERGSDÓTTIR
Er upptekin í vinnu í allt sumar en langar að fara í helgarferð á Búðir á Snæfellsnesi.
Dekur frá
toppi til táar
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
ÉG VISSI ÞAÐ!!!
Fyrst þið bjóðið svona vel þáætla ég að fá að heyra norska
baráttulagið „Kambodsja er fri“
sem gefið var út í tilefni þess þeg-
ar Rauðu Khmerarnir náðu völd-
um í Kambódíu,“ segir Óttarr
Proppé, bóksölumaður og tónlist-
argúrú. „Ástæðan fyrir því að
þetta lag vil ég heyra er að plö-
tunni sem ég hafði aðgang að hef-
ur verið stolið af óprúttnum aðil-
um. Ef þið eigið erfitt með að
finna þetta þá minnir mig að þetta
sé í flutningi þeirra Hans og Sten,
sem munu vera einhverjir síð-
hærðir norskir hippar. Þetta er al-
gjör snilld.“ ■
Nýjar rannsóknir hafa leitt í
ljós að flestar konur vantar
svokallað „bílabrautagen“...