Fréttablaðið - 20.06.2003, Side 28

Fréttablaðið - 20.06.2003, Side 28
20. júní 2003 FÖSTUDAGUR28 JOHNNY ENGLISH kl. 3.45 THE MATRIX R.. 5.30, 8, 10.30 b.i 12 BRINGING DOWN... kl. 3.45, 5.50, 8, 10.15 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 6, 8 og 10 kl. 6NÓI ALBINÓI kl.10 b.i 12THE MATRIX RELOADED 8 og10 TRICKY LIFE (EN LA PUTA VIDA) OLD SCHOOL kl. 3.45, 5.50, 8, 10.15 b.i 12 Lúxus kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15 TÖFRABÚÐINGURINN m/ísl. kl. 4 IDENTITY kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i 16 kl. 6 og 8 b.i. 12 Sýnd kl. 5.40, 8, og 10.20 b.i. 16 ára Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.40 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Sýnd í lúxus kl. 6 og 8.30 kl. 5.45, 8 og 10.15HOW TO LOSE A... XMEN kl. 10.15 bi 12 AGENT CODY BANKS 3.40, 5.50 og 8 SKÓGARLÍF 2 kl. 4 KANGAROO JACK kl. 4, 6, 8 og 10 Fréttiraf fólki TÓNLIST Á mánudag leggur rokk- hljómsveitin Singapore Sling af stað í heljarinnar tónleikaferð um Bandaríkjanna. Sveitin hefur tryggt sér þar útgáfusamning við Stinky Records og kom frumraun sveitarinnar, „The Curse of Singa- pore Sling“, út á þjóðhátíðardegi Íslendinga í Bandaríkjunum og Kanada. Tónleikaferðin hefst ekki á amalegum stað, heldur á miðri Manhattan-eyju í New York, nánar tiltekið í Central Park. „Það er einhver sérstakur dag- ur þar tileinkaður Íslandi,“ útskýr- ir Henrik Baldvin Björnsson, söngvari, gítarleikari og lagahöf- undur Singapore Sling. „Þetta er hátíð sem er haldin á hverju sumri og alltaf haldnir tónleikar um helg- ar og á fimmtudögum. Þar spilum við með Trabant og Apparat Organ Quartet. Þetta eru tónleikar að degi til, það höfum við ekki gert áður. Við spilum klukkan sex um eftirmiðdaginn, við ættum að geta vaknað klukkutíma fyrir það.“ Eftir tónleikana í garðinum hoppa liðsmenn upp í rútu og keyra vestur, þvert yfir Bandarík- in. Aðeins verður stöðvað á skyndi- bita- og tónleikastöðum. Kannski þó hugsanlega fyrir kvenfólki enda er tónleikadagskráin afar stíf. Nánast haldnir tónleikar á hverju einasta kvöldi. Lokahnykkurinn verður svo í Los Angeles þar sem sveitin hitar upp fyrir eina af sín- um uppáhaldshljómsveitum, The Raveonettes. „Ég hugsa að maður fari nú ekk- ert á fyllerí á hverju einasta kvöldi. Ég held að það væri ekkert voða- lega sniðugt. Maður reynir að halda ímyndinni og drekka eplasafa úr Jack Daniels-flöskunni. Maður fær heldur ekki mikinn tíma til þess að skoða, en við getum kynnst landinu í gegnum gluggann.“ Samningurinn sem Slingararnir undirrituðu nýlega hljóðar upp á þrjár plötur og undirbúa liðsmenn að hljóðrita þá næstu fyrir jól. Þetta ævintýri ætti því að endast þeim næstu tvö til þrjú árin. Prufu- eintök af plötunni voru send til fjölmiðla fyrir um það bil mánuði og hafa liðsmenn farið í nokkur viðtöl í kjölfarið. Pressan úti stað- setur sveitina við hlið Black Rebel Motorcycle Club, The Raveonettes og The Warlocks. Singapore Sling ætlar að kveðja landa sína með tónleikum á Grand Rokk annað kvöld. biggi@frettabladid.is R&B-goðið Luther Vandrossgaf út nýja plötu fyrr í mán- uðinum og þaut hún á topp sölu- lista í Bandaríkjunum með 442.000 seld eintök. Platan, sem heitir „Dance With My Father“, er fyrsta breiðskífa ástarballöðu- söngvarans um nokkurt skeið, en hann er nú á spítala. Vandross fékk nefnilega heilablóðfall fyrir tveimur mánuðum og er enn langt því frá búinn að jafna sig. „Dance With My Father“ ýtti þar með „St. Anger“ þeirra Metall- ica-manna úr toppsæti listans, en þeir sitja í 2. sæti, sennilega þokkalega sáttir. Radiohead- menn koma svo nýir inn í 3 sæti með „Hail to the Thief“... Á smáskífulistanum vestan hafseru það þó aðrir listamenn sem verma toppsætin, en öll 3 vinsælustu lögin eru úr smiðju keppenda í American Idol. Þannig er Clay Aiken í efsta sæti með lagið „This is the Night/ Bridge Over Troubled Water“, Ruben Studdard í öðru sæti með lagið „Flying Without Wings/ Superstar“ og úrslita- keppendur saman í því þrið- ja með lagið „God Bless the USA“. Wu Tang Clan-meðlimurinn ograpparinn Ol’Dirty Bastard, einnig þekktur sem Dirt McGirt, spilaði á föstudaginn síðasta (þann 13.) á fyrstu tónleikum sín- um síðan hann kom úr fangelsi fyrir tveimur mánuðum. Það gekk ekki áfallalaust en áhorf- endur þurftu að bíða heilan klukkutíma eftir að hann léti sjá sig. Eigandi klúbbsins bað alla að bíða rólega, sagði hann væri ekki alveg tilbúinn á svið strax, það þyrfti að þrífa hann. Að lokum tók hann þó lagið og flutti marga af sínum helstu smellum, en bað fólk að afsaka sig ef eitthvað væri að klikka, hann væri bara búinn að vera læstur inni of lengi. Ol’Dirty Bastard er að vinna plötu sem kemur út í ár. Á henni nýtur hann hjálpar lista- manna eins og The Neptunes og Wu Tang-bróðursins RZA. A Angurværa og mjúkrómasöngspíran Craig David hætti nú á dögunum við að fara með Mariuh Carey og vera stuðnings- atriði á tónleikaferð hennar um Bandaríkin, þegar miðasala reyndist svo dræm að endur- skipuleggja þurfti fjölmarga tón- leika. Ástæðan er sú að nýju dag- setningarnar stangast á við hans eigin tónleikaferð um Evrópu. Mariah er þó hvergi bangin og stefnir sjálf í heimstúr sem hefst í Kóreu og segir listamenn sem vilji fá að spila með henni sitja um sig. KVIKMYNDIR Talsmenn Gwyneth Paltrow neita því harðlega að næsta mynd hennar „Sylvia“ muni fara illa í gagnrýnendur. Þeir eru þar með að svara orðrómi af slúðursíðunni Pagesix.com sem segir að njósnarar hjá kvikmynda- veri myndarinnar telji hana af- spyrnulélega. Talsmennirnir segja að Paltrow hafi séð fyrstu drög myndarinnar og telji það sjálf með sínu allra besta efni. Talsmennirn- ir segja að tefla eigi myndinni fram í Óskarsverðlaunabaráttu og að kynningar fyrir myndina gangi glimrandi, þeir hafi til dæmis fengið myndir á forsíðum þriggja stórra tímarita. Myndin fjallar um ljóðskáldið Sylviu Plath, sem átti við sjálfs- morðshugsanir og þunglyndi að stríða. Menn hafa þó upp á síð- kastið óttast um geðheilsu Gwyneth sjálfrar. Ónafngreindur aðili segir þannig að hún sé mjög þunglynd yfir ástandi leikferils síns, en hún hefur ekki leikið í vin- sælli mynd lengi og ofan á það bæt- ist dauði föður hennar. Sylvia verð- ur frumsýnd í byrjun október vest- an hafs. ■ GWYNETH PALTROW Ótraustar heimildir segja að stúlkan sé þunglynd. Sylvia: Stefnt í Óskarinn SINGAPORE SLING Hefur verið að kynna plötu sína í bandarískum fjölmiðlum með viðtölum og öðru. „Ég fékk einu sinni mjög fáránlega spurningu. Var beðinn um að lýsa tónlistinni sem hlut, eins og ég myndi gera fyrir mann sem væri sjón- og heyrnarlaus,“ segir Henrik. „Ég svaraði „Coca Cola Bottle“. Svo er svolítið spurt hvort landslagið hafi ekki mikil áhrif á okkur. Ég vil nú ekki meina það.“á Eplasafi í Jack Daniels-flösku Frumraun Singapore Sling, „The Curse of Singapore Sling“, kom út í Bandaríkjun- um á þjóðhátíðardaginn. Í kjölfarið heldur sveitin út í heljarinnar tónleikaferð um landið þvert. Frá kr. 495 pr. líter Útimálning S: 517 1500 • Sætún 4 www.islandsmalning.is Akrýlbundin vatnsmálning til notkunar á stein utanhúss. Stórmarkaður með málningarvörur Nokkur pláss laus í sumar. Bókaðu strax hjá Guðrúnu í Keramik fyrir alla, sími 552 2882 eða á www.keramik.is Hvernig fannst þér á sumar- námskeiðinu fyrir skapandi börn hjá Keramik fyrir alla? Þórunn Anna: Ég fer oft í Ker- amik og finnst gaman. Þess vegna vildi ég fara á námskeið. Námskeið fyrir skapandi börn J Ó L A H Ú S I Ð www.jolahusid.com Ath. ný aðkoma við Stjörnugróf Sími 568 8181 WILLIRAYE STUDIO Ný sending

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.