Fréttablaðið - 20.06.2003, Side 38
Hrósið 38 20. júní 2003 FÖSTUDAGUR
Ég er myndlistarmenntuð oghef alltaf haft áhuga á endur-
vinnslu og endurnýtingu,“ segir
Ásta Þórisdóttir, aðstoðarverslun-
arstjóri Góða hirðisins. „Ég tók á
sínum tíma þátt í Listsmiðju Hins
hússins, þar sem við til dæmis
tókum gamla stóla, poppuðum þá
upp og notuðum á kakóbarnum
Geysi. Þá kviknaði hjá mér við-
skiptahugmynd um að stofna fyr-
irtæki sem tæki gömul húsgögn
sem þyrfti að flikka upp á og
gerði þau að söluvöru.“
Ásta fór með þessa hugmynd á
viðskiptanámskeiðið Brautar-
gengi, sem var haldið fyrir at-
hafnakonur í Reykjavík, og vann
frekar að hugmyndinni þar. Liður
í hráefnisöfluninni var að hafa
samband við Sorpu og þá bauðst
Ástu óvænt verslunarstjórastaða í
Góða hirðinum. „Ég er búin að
vera hér frá árinu 1999, og hef
haft mjög gaman af. Mín áhuga-
mál tengjast endurnýtingu og um-
hverfismálum, bæði nytjahlutan-
um og landnýtingu,“ segir Ásta,
sem líka er í Margmiðlunarskól-
anum og lýkur þaðan námi um jól-
in. „Ég er svona náttúrukerling og
stefni að því að verða æðarbóndi
og margmiðlunarfræðingur norð-
ur á Ströndum,“ segir hún hlæj-
andi. Maðurinn minn, Gunnar
Melsted, tekur við skólastjóra-
stöðu í Drangsnesskóla næsta vet-
ur, svo nú vantar mig bara að
finna rétta æðarskerið og rétta
seljandann. Þetta er svo skemmti-
leg blanda, að vera æðarbóndi og
margmiðlunarfræðingur, nútím-
inn gegn fortíðarþránni,“ segir
Ásta, sem reyndar viðurkennir að
hún hafi áhuga á öllu milli himins
og jarðar. „Ég hélt til dæmis ein-
hvern tímann að ég hefði ekki
áhuga á pípulögnum, en komst svo
að því þegar ég prófaði að ég hef
áhuga á þeim líka.“ ■
Persónan
ÁSTA ÞÓRISDÓTTIR
■ er aðstoðarverslunarstjóri Góða hirð-
isins, sem er nytjamarkaður Sorpu. Hún
sá að sjálfsögðu eftir græjunum sem var
hent við gjaldþrot Radíóhússins og hefði
viljað fá að selja þær í Góða hirðinum.
Imbakassinn
...fær Femínistafélag Íslands fyrir að klæða
þjóðina í bleikt og afhenda ráðamönnum
fallega bleika steina.
Fréttiraf fólki
Dúntekja í bland við margmiðlun
Á vefnum hrokurinn.is, þar semnýlega brottrekinn blaðamaður
DV, Kolbrún Bergþórsdóttir, er
farin að láta til sín taka, er ítarlegt
viðtal við sjálfan Friðrik Ólafsson.
Hann verður einn
fjölmargra þátttak-
enda á komandi al-
þjóðlegu skákmóti
Hróksins og sam-
takanna Skákar í
norðri á Grænlandi.
Friðrik dregur ekki úr aðdáun
sinni og ánægju á framtaki Hrafns
Jökulssonar á umliðnum árum og
kallar hann „trúboða skákarinnar“.
Tveir flugvélar munu taka á loft27. þessa mánaðar og flytja til
Grænlands fjöldann allan af þekkt-
um skákmönnum auk áhugamanna.
Auk þess að skákvæða Grænland
hyggjast Hrókurinn og Skák í
norðri auka menningarsamskipti
þjóðanna til muna. Meðal þeirra
sem mæta eru Halldór Blöndal,
forseti Alþingis, og Össur Skarp-
héðinsson og munu þeir setjast við
hina svörtu og hvítu reiti og kljást
við heimamenn.
Kaup Grindvíkinga á knatt-spyrnumanninum Lee Sharpe
hafa verið mikið til umfjöllunar að
undanförnu. Því vakti það nokkra
athygli að hann var fjarri góðu
gamni þegar FH-ingar lögðu
Grindvíkinga næsta léttilega í síð-
ustu umferð. Í Krikanum var því
haldið fram að Sharpe væri í leik-
banni vegna agabrots en til hans
sást á laugardagskvöldið með bjór
í hönd á skemmtistaðnum Óðali.
Þar mun hann hafa verið að bera
saman bækur sínar við tvo erlenda
atvinnumenn sem einnig leggja
stund á fótmennt – en á öðru sviði
en knattspyrnu.
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að ný bók
Jóns Steinars Gunnlaugssonar hæstaréttarlög-
manns heitir Þriðja dómsstigið.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Biðskýlið.
1915.
Diana Krall.
Handlyftarar
Dalvegur 6-8 · 201 Kópavogur · Sími 535 3500 · Fax 535 3519
haraldur@kraftvelar.is · www.kraftvelar.is
Lyftigeta 2,3 tonn
Sterkbyggðir
og öruggir
Standard
Quicklift
kr
kr
48.515,-
55.966,-
m/vsk
m/vsk
HUDSON ’47
Þeir láta ekki að sér hæða gömlu jálkarnir
og þessi Hudson fer með glans yfir hvers
konar hindrun.
‘29-módelið
í kvartmílu
Í kvöld hefst Landsmót Forn-bílakúbbsins, sem verður hald-
ið á Selfossi um helgina og sam-
einað árlegum Bíladögum á
staðnum. Einar Gíslason hjá
Fornbílaklúbbnum segir að mikið
verði um dýrðir. „Verkstæði og
fyrirtæki á Selfossi með mótor-
vörur verða með opið um helgina
og sýna vöruúrvalið, en hátíðin
hefst á Kambabrún klukkan 20
með því að Geir Haarde fjármála-
ráðherra setur hátíðina. Hann og
formaður Fornbílaklúbbsins aka
svo niður Kambana í gömlum bíl
undir leiðsögn um gömlu Kam-
bana og vegarslóða sem hafa ver-
ið þarna frá upphafi vega. Þaðan
liggur leiðin á tjaldstæðið þar
sem fornbílaklúbburinn kemur
sér fyrir með bílana,“ segir Einar.
Meðal dagskrárliða má nefna
varahlutamarkað Fornbílaklúbbs-
ins og kassabílarall fyrir ungu
kynslóðina að ógleymdri
kvartmíluspyrnu gamalla bíla,
eins og var í „den“. Það segir Ein-
ar ekki hafa verið gert í háa herr-
ans tíð, en hann reiknar með að á
milli 20 og 30 bílar taki þátt. „Þeir
komast mishratt, sumir eru nokk-
uð öflugir, en mest er þetta auðvit-
að gamanið og reynt að stýra sam-
an þeim sem eru svipaðir að getu.
Þetta eru allt frá 29-módelinu upp
í 76-módelið,“ segir Einar. „Svo
verður grill og gaman á tjaldsvæð-
inu um kvöldið, harmonikkufélag-
ið á Selfossi verður á staðnum og
dúndrandi fjör.“ Hátíðin er öllum
opin og kostar ekkert. ■
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinnhefur áhyggjur af minnkandi
hagvexti í heiminum. Á sama
tíma blómstrar eitt hagkerfi. Það
er Latóhagkerfið. Þar á bæ hafa
menn engar áætlanir uppi um að
gerast aðilar að myntsamstarfi
Evrópu. Nei, þar gildir nú sem
fyrr gjaldmiðillinn Lató. Seðla-
banki Íslands hafði áhyggjur af
því við stofnun þess að hætta
væri á myntruglingi milli Latós-
ins og krónunnar. Þær áhyggjur
reyndust ástæðulausar.
Gjaldmiðillinn hefur ótvíræða
kosti. Maður eignast hann með
þeim einfalda hætti að spara krón-
urnar og leggja þær í banka. Í
staðinn fær maður Latóseðla. Ann-
ar kostur er sá að ekki er hægt að
kaupa óhollustu og vitleysu fyrir
gjaldmiðilinn. Fyrir hann er hægt
að kaupa skyr, grænmeti og ávex-
ti. Svo er líka hægt að fara í sund,
Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og
taka strætó.
Eini gallinn við hagkerfið er að
maður þarf að vera tólf ára eða
yngri til að geta verið með. „Í
fyrra söfnuðu krakkar 30 milljón-
um inn á bankabækurnar sínar,“
segir Magnús Scheving, fram-
kvæmdastjóri Latabæjar. Það er
60 prósenta hagvöxtur frá árinu
áður. „Það voru um sextán þús-
und börn í fyrra sem völdu að
spara og kaupa sér hollustu í stað-
inn.“
Magnús segir að enginn gróði
sé af hagkerfinu. Fyrirtækin sem
séu með leggi þetta af mörkum til
að stuðla að hollustu og heil-
brigði. „Allir eru því ánægðir,“
segir Magnús. Fyrirtækin kynna
sig, foreldrarnir spara peninga og
börnin sækja í meiri hreyfingu og
hollari mat. „Ég hef þá trú að ef
krakki kaupir skyrdós fyrir sína
Latópeninga sé hann líklegri til
að klára matinn sinn,“ bætir
Magnús við.
Geir Haarde fjármálaráðherra
og Hreiðar Már Sigurðsson, for-
stjóri Kaupþings Búnaðarbanka,
tóku Latóhagkerfið í notkun með
aðstoð barna úr Foldakoti. Krakk-
arnir sungu fyrir toppa fjármála-
lífsins: „það kostar ekkert að
brosa og það kostar ekkert að
vera kurteis,“ því auðvitað vita
krakkarnir í Foldakoti að flest
það sem mestu skiptir er ókeypis.
Líka í Latóhagkerfinu.
haflidi@frettabladid.is
Rífandi hagvöxtur í
hollustuhagkerfinu
Gleymdi ég
kaffivélinni
í gangi?
Hagkerfi
■ Latóhagkerfið er komið af stað í
þriðja sinn. Hagsveiflan er í rétta átt og
sífellt fjölgar krökkum sem nota sér þetta
holla og sniðuga hagkerfi.
ÞAÐ KOSTAR EKKERT AÐ BROSA
Krakkarnir í Foldakoti settu Latóhagkerfið í gang í gær með aðstoð Geirs Haarde, fjármála-
ráðherra og Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri Kaupþings- Búnaðarbanka. Þau sungu fyrir
ráðherrann og bankastjórann boðskapinn um að bros og kurteisi eru ókeypis.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
ÁSTA ÞÓRISDÓTTIR
Á sér þann draum að fara með eigin-
manninn, dæturnar tvær og tölvuna norð-
ur á Strandir, þar sem hún hyggst sinna
margmiðlun og dúntekju.