Fréttablaðið - 26.06.2003, Side 1
MEÐFERÐ Mikil ásókn er í áfengis-
meðferð á Vogi nú yfir sumar-
mánuðina og muna menn vart ann-
að eins:
„Þegar biðlistinn er kominn
yfir 300 manns er það mikið. Hins
vegar er það svo að þegar við svo
höfum samband við fólkið er frá
líður eru ekki allir tilbúnir til að
mæta. Það er að sjálfsögðu hluti af
vandamálinu,“ segir Þórarinn
Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, ný-
kominn frá Bandaríkjunum og
hafði því ekki nýjar tölur tiltækar.
Það hafði hins vegar Valgerður
Rúnarsdóttir, læknir á Vogi: „Ég
sé ekki betur en listinn telji nú um
þrjú hundruð manns,“ segir hún.
Reynt er að bregðast skjótt við
á Vogi þegar unglingar undir tví-
tugu eiga í hlut og þurfa þeir
aldrei að bíða nema í nokkra daga
eftir innlögn. Biðin hjá þeim sem
eru að koma í fyrsta sinn á Vog er
eitthvað lengri, en endurkomu-
sjúklingar þurfa að bíða lengst.
Í Heilsustofnuninni í Hvera-
gerði er ástandið ekki betra:
„Biðlistinn hjá okkur er 600
manns,“ segir Árni Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Heilsustofnun-
arinnar. „Hingað hleypur fólk ekk-
ert inn því allir verða að vera með
beiðni frá lækni. Um áramót ger-
um við ráð fyrir að taka í notkun
nýja álmu með 28 rúmum en hún
mun ekki útrýma biðlistum heldur
frekar mæta kröfum nútímans um
bættan aðbúnað,“ segir hann.
Á Reykjalundi er ástandið þó
verst. Þar eru tæplega 1.500
manns á biðlista: „Það dynur á
okkur síminn á öllum stundum og
alltaf lengist biðlistinn,“ segir
Björn Ástmundsson, forstjóri á
Reykjalundi. „Við getum sinnt
fleirum, en hér vantar peninga
eins og víða. Verst þykir manni
þegar fólk liggur í sjúkrarúmum á
spítölum og bíður eftir að komast
hingað, því það er miklu dýrara og
sparar ekkert,“ segir Björn á
Reykjalundi.
eir@frettabladid.is
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 12
Leikhús 12
Myndlist 12
Bíó 14
Íþróttir 10
Sjónvarp 16
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
FIMMTUDAGUR
26. júní 2003 – 142. tölublað – 3. árgangur
STJÓRNMÁL
Borgarstjóri
verði alvöru pólitíkus
bls. 10
AFMÆLI
Veisla í gamalli
síldarvinnslu
bls. 35
STA Ð R EY N D UM
MEST
LESNA DAGBLAÐIÐ
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003
22,1%
52,3%
61,7%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
Ráðherrar meta
mengun hafsins
FUNDUR Umhverfisráðherrar aðild-
arríkja Samnings um vernd Norð-
austur-Atlantshafsins (OSPAR)
funda í Bremen í Þýskalandi í dag.
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra situr fundinn fyrir Íslands
hönd ásamt þremur íslenskum
embættismönnum. Eitt af megin-
viðfangsefnum fundarins er að
meta árangur ríkja í því að draga
úr losun geislavirkra efna í hafið.
Djasstónleikar
á Sögu
TÓNLEIKAR Jóns Kaldal verður
minnst með tónleikum í Súlnasal á
Hótel Sögu klukkan 20.30. Jón var
stjórnarmaður í Jazzvakningu í
mörg ár og kunnur fyrir áhuga
sinn á djasstónlist.
Sjöundu umferð
lýkur
FÓTBOLTI Sjöundu umferð í Lands-
bankadeild karla lýkur í dag. Þrótt-
ur tekur á móti ÍBV á Laugardals-
velli klukkan 19.15. Tveir leikir
verða í 1. deild karla klukkan 20.
Njarðvík tekur á móti Breiðabliki
og Víkingur mætir Stjörnunni á
Víkingsvelli.
FEÐGAR AÐ VEIÐA Við Ingólfsgarð í Reykjavíkurhöfn voru feðgar við veiðar. Ekki fer neinum sögum af því hvernig bar í veiði, en til-
burðirnir lofuðu ansi góðu.
vestfirðir ● gamall aristókrat
▲
SÍÐUR 22-23
Dásemdir
heita vatnsins
ferðir o.fl.
Ásthildur Sturludóttir:
FRAMTÍÐARBÍLLINN
Tæknimenn fullyrða að hluti búnaðarins
verði tilbúinn eftir 18 mánuði.
Framtíðarbíllinn:
Talandi bíll
á næsta ári
NEW YORK, AP Bílar framtíðarinnar
verða búnir fullbúnum tölvum
sem skilja munnlegar skipanir
bílstjóra. Þetta fullyrða tækni-
menn IBM tölvufyrirtækisins.
Fyrirtækið þróar nú slíkan
búnað og kynnti möguleika hans á
dögunum. Að sögn tæknimanna
IBM geta bílstjórar meðal annars
lesið fyrir og sent tölvupóst, feng-
ið lesnar leiðarlýsingar og jafnvel
áætlaðan aksturstíma og leikið
tölvuleiki. Upplýsingar um færð,
veður og flugáætlanir geta einnig
birst, kjósi menn það.
Tæknimenn IBM segja það
litlu skipta þó börnin í aftursæt-
inu verði með háreysti, búnaður-
inn muni geta lesið af vörum öku-
mannsins gegnum örsmáa mynda-
vél sem komið verði fyrir á sól-
skyggni ökumannsins. Myndavél-
inni er einnig ætlað að skynja ef
ökumann tekur að syfja, til dæm-
is ef augnlokin síga. Þá verður
lokað fyrir aðgang hans að tölvu-
leikjum, tölvupósti og öðrum að-
gerðum þannig að ökumaður geti
einbeitt sér að akstrinum. Búnað-
urinn gefur einnig frá sér viðvör-
un og leggur til að ökumaður taki
sér hvíld frá akstri eða spili í það
minnsta háværa tónlist.
„Þetta verður nokkurs konar
þjónn á mælaborðinu sem annast
allar þarfir bílstjórans,“ sagði
Mahesh Viswanathan, tæknimað-
ur hjá IBM.
Fjöldi bílaframleiðenda vinnur
að þróun slíks búnaðar, í sam-
vinnu við tölvufyrirtæki. Barbara
Churchill, talsmaður IBM, spáir
því að hluti þessarar nýju tækni
verði kominn í framleiðslu innan
18 mánaða. ■
300 vilja á Vog og
600 í Hveragerði
Mikil ásókn í meðferð yfir sumarmánuðina. Verst er ástandið á Reykja-
lundi, þar sem biðlistinn telur 1.500 manns og síminn hringir látlaust.
ÚTGÁFA Fréttablaðið mun koma út
alla daga vikunnar frá og með 13.
júlí næstkomandi. Þá mun fyrsta
sunnudagsblað Fréttablaðsins líta
dagsins ljós. Eftir það mun Frétta-
blaðið koma út alla daga ársins
með örfáum undantekningum
þegar fleiri en einn hátíðisdagur-
inn raðast saman.
„Það hefur alltaf verið mark-
mið okkar að Fréttablaðið verði
fullburða dagblað. Þótt það hafi
dugað einu sinni að koma út sex
daga vikunnar hafa forsendur
breyst. Auk þess er sunnudagsút-
gáfa spennandi verkefni og góður
kostur bæði fyrir lesendur og aug-
lýsendur,“ segir Gunnar Smári
Egilsson, ritstjóri Fréttablaðsins.
Hann segir að efni blaðsins
muni taka mið af útgáfutímanum;
þarfir lesenda séu aðrar á sunnu-
dögum en virka daga. „Sunnu-
dagsútgáfan gefur okkur tilefni til
að fara yfir útgáfuna í heild og
auka skilin á milli blaðsins á virk-
um dögum og um helgar. Mark-
miðið er að þjóna okkar stóra les-
endahópi sem best alla daga vik-
unnar,“ segir Gunnar Smári.
Aðspurður um hvort fjárhags-
legur grundvöllur væri fyrir
ókeypis dagblaði sjö daga vikunn-
ar sagði Gunnar Smári að mark-
aðsstaða Fréttablaðsins væri orð-
in mjög sterk á virkum dögum og
sunnudagsútgáfan styrkti sóknina
inn á helgarnar. „Alls staðar í
heiminum eru helgarblöðin
sterkasti auglýsingamiðillinn og
það er ekkert sem bendir til að
annað gildi hérlendis. Fréttablað-
ið hefur gengið vel sex daga vik-
unnar og ætti líka að gera það sjö-
unda daginn,“ bætti hann við. ■
Tímamót hjá Fréttablaðinu 13. júlí:
Fréttablaðið á sunnudögum
bls. 21
ÍÞRÓTTIR
Rætist
draumurinn?
bls. 26
LEIKLIST
Söng í hár-
burstann
REYKJAVÍK Suðlæg átt, 3-8
m/s, skýjað með köflum og
stöku skúrir.
Hiti 10 til 15 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
+
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-8 Skúrir 14
Akureyri 3-8 Skýjað 16
Egilsstaðir 3-8 Skýjað 14
Vestmannaeyjar 3-8 Skúrir 13
➜
➜
➜
➜
+
+
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M