Fréttablaðið - 26.06.2003, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 26.06.2003, Blaðsíða 30
26. júní 2003 FIMMTUDAGUR Ég var orðin algjör Lasarus ogkomin í stóra skömm með garðinn og pallinn hjá mér þar sem blómakerin göptu tóm, í besta falli full af arfa og leifum frá fyrra sumri. Nágrannarn- ir voru farnir að spyrja mig kurteis- lega hvort ég væri ekki mikið fyrir blóm. Því fagnaði ég heilshugar slakri sjónvarpsdagskrá og björtum sumar- nóttum. Ég er nefni- lega með þeim ósköpum gerð eins og kollegar mínir hér á blaðinu að eiga erfitt með að planta mér fyrir framan tækið um hábjargræðis- tímann þegar lóan syngur og maður heyrir grasið vaxa. Þökk sé þeim sem stjórna að hafa sent Sópranó vin minn og aðra kunningja í frí. Því er einskis að sakna...nema ef vera skyldi Saga Forsyte-ættarinnar á sunnudags- kvöldum. Ég beið með eftirvænt- ingu eftir fyrsta þættinum en varð þess þá áskynja að um nýja gerð þáttanna er að ræða. Það þótti mér slæmt því mig langaði að hitta fyr- ir gamla vini frá unglingsárum. Ég mundi þó eftir Soames kallinum, sem ekki var ósvipaður þeim gamla. Mig minnir að amma bless- unin hafi kallað hann skrattkollinn hann Soames og ekki verið mjög hrifin af gjörðum hans á svarthvít- um skjánum. Ég horfði sumsé á þennan fyrsta þátt og fátt annað en Somes rifjað- ist upp fyrir mér. Kann að vera að ég rugli þessu blessaða fólki við Húsbændur og hjú, annan vinsælan þátt til forna sem margir kannast við. Ég er þó ekki frá því að ég hafi alls ekki horft á þessa þætti á sín- um tíma; aðeins talað um þá. Í þann tíma var nefnilega ekkert hægt að taka upp ef maður missti af. Ég er ekki viss nema handboltaæfingar hafi verið sömu kvöld á sama tíma. Ég ætla samt að halda áfram að horfa og vita hvort þetta rifjast ekki upp fyrir mér. ■ Við tækið BERGLJÓT DAVÍÐSDÓTTIR ■ beið spennt eftir að rifja upp kynni við gamla vini frá unglingsárum í Sögu Forsyte-ættarinnar. Gamlir vinir frá unglingsárum 20.00 Kvöldljós 21.00 Bænastund 21.30 Joyce Meyer 22.00 Benny Hinn 22.30 Joyce Meyer Með áskrift að stafrænu sjón- varpi Breiðbandsins fæst aðgangur að rúmlega 40 erlendum sjónvarpsstöðvum, þar á meðal 6 Norðurlanda- stöðvum. Nánari upplýsingar um áskrift í síma 800 7000. 15.15 Olíssport Fjallað er um helstu íþróttaviðburði heima og erlendis. 15.45 FIFA Confederations Cup 2003 (Álfukeppnin) Bein útsending frá undan- úrslitum. 18.00 Íslensku mörkin 18.40 FIFA Confederations Cup 2003 (Álfukeppnin) Bein útsending frá undan- úrslitum. 21.00 European PGA Tour 2003 (Golf- mót í Evrópu) 22.00 Football Week UK (Vikan í enska boltanum) 22.30 Olíssport Fjallað er um helstu íþróttaviðburði heima og erlendis. 23.00 HM 2002 (Suður-Afríka - Spánn) 0.45 Fastrax 2002 (Vélasport) Hrað- skreiður þáttur þar sem ökutæki af öllum stærðum og gerðum koma við sögu. 1.15 Dagskrárlok og skjáleikur 6.58 Ísland í bítið 9.00 Bold and the Beautiful 9.20 Í fínu formi 9.35 Oprah Winfrey 10.20 Ísland í bítið 12.00 Neighbours (Nágrannar) 12.25 Í fínu formi (Þolfimi) 12.40 Dharma & Greg (1:24) 13.00 The Guardian (7:22) 13.45 American Dreams (12:25) 14.25 Smallville (18:23) 15.10 Christina Aguilera 15.25 Britney Spears 15.55 White Fang (Úlfhundurinn) 17.40 Neighbours (Nágrannar) 18.05 Seinfeld (1:5) (Pilot) 18.30 Fréttir Stöðvar 2 19.00 Ísland í dag, íþróttir, veður 19.30 Friends 5 (11:23) (Vinir) 20.00 Jag (2:25) 20.55 Third Watch (15:22) (Næturvakt- in) 21.40 Oz (7:16) (Öryggisfangelsið) 22.35 Columbo: Murder With Too Many Notes (Nótnamorð) Sakamála- mynd. Columbo lögregluforingi lætur ekki að sér hæða. Hann er kallaður til þegar aðstoðarmaður þekkts tónskálds finnst látinn. Columbo grandskoðar mál- ið frá öllum hliðum og sér fljótt hver ber ábyrgðina. Sá grunaði reynir að breiða yfir gjörðir sínar en Columbo lætur ekki blekkjast. Aðalhlutverk: Peter Falk, Billy Connolly, Chad Willet, Hillary Danner. Leikstjóri: Patrick McGoohan. 2000. 0.05 Very Bad Things (Algjör skepnu- skapur) Aðalhlutverk: Christian Slater, Cameron Diaz. 1998. Stranglega bönnuð börnum. 1.40 Friends 5 (11:23) (Vinir) 2.05 Ísland í dag, íþróttir, veður 2.35 Tónlistarmyndbönd frá Popp TíVí 6.00 Follow That Dream 8.00 Cheaters 10.00 Ping 12.00 Evil Woman 14.00 Follow That Dream 16.00 Cheaters 18.00 Ping 20.00 Evil Woman 22.00 Outside Providence 0.00 Highlander: Endgame 2.00 From Dusk Till Dawn 4.00 Outside Providence 7.00 70 mínútur 16.00 Pikk TV 19.00 XY TV 20.00 Pepsí listinn 22.03 70 mínútur 23.10 Trailer 23.40 Meiri músík SkjárEinn 21.00 Sjónvarpið 22.20 Gamlir og góðir kunningjar mæta aftur til leiks á skjánum eftir tíufréttir í kvöld en þá hefj- ast endursýningar á síðustu syrpum úr tveimur af vinsælustu gamanþáttaröðum sem sýndar hafa verið í íslensku sjónvarpi. Frasier karlinn Crane, Niles bróðir hans, pabbi þeirra og allt þeirra kompaní hefur leikinn strax að loknum tíufréttum og 25 mínútum síðan láta blaða- konan Carrie og stöllur hennar í Beðmálum í borginni ljós sitt skína. 18.30 Fólk með Sirrý - í sumarbún- ingi. (e) 19.30 Hljómsveit Íslands - Gleðisveit Ingólfs (e) 20.00 According to Jim 20.30 Life with Bonnie Skemmtilegur gamanþáttar um spjallþáttastjórnandann og skörunginn Bonnie Malloy. 21.00 The King of Queens 21.30 Hljómsveit Íslands - Gleðisveit Ingólfs Í þáttunum um Hljómsveit Ís- lands, eða Gleðisveit Ingólfs, er fylgst með Ingólfi umboðsmanni koma með- limum Gleðisveitarinnar í fremstu röð sveitaballahljómsveita og vera snöggur að því! 22.00 Hjartsláttur á ferð og flugi Þóra Karítas og Mariko mæta aftur í fullu fjöri á skjáinn í sumar með þáttinn Hjartslátt á ferð og flugi. Stelpurnar hafa sagt skilið við strætóinn í bili og hefja sig nú til flugs með Flugfélagi Íslands; í sumar er landið allt undir! Tekinn verður púlsinn á því sem verður að gerast á Íslandinu bláa í sumar og hver veit nema þær kíki líka eitthvað út fyrir landsteinana. 22.50 Jay Leno 23.40 Law & Order (e) Lennie Briscoe er töffari af gamla skólanum, lögga sem kallar ekki allt ömmu sína. Hann vinnur með hinum geðuga Reynaldo Curtis við að rannsaka glæpi, yfirheyra grunaða og herja á illmenni út um borg og bý. 0.30 Dagskrárlok 16.45 Fótboltakvöld Endursýndur þátt- ur frá miðvikudagskvöldi. 17.05 Leiðarljós 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Franklín (10:13) 18.30 Stórfiskar (6:13) (The Big Fish) Þáttaröð um stórfiskaveiðar. 19.00 Fréttir, íþróttir og veður 19.35 Kastljósið 20.00 Á milli vita (6:6) (Glappet) Leik- stjóri: Peter Schildt. Aðalhlutverk: Julia Dufvenius og Katharina Cohen. 20.45 Í einum grænum (8:8) Ný garð- yrkjuþáttaröð þar sem tekið er á því helsta sem lýtur að fegrun garða. Um- sjónarmenn þáttanna, Guðríður Helga- dóttir og Kristinn H. Þorsteinsson, gefa áhorfendum hagnýt ráð við umhirðu garða og skipulagningu þeirra. Framleið- andi: Saga film. Textað á síðu 888 í Textavarpi. 21.15 Lögreglustjórinn (7:22) (The District) Sakamálasyrpa um Jack Mannion, hinn skelegga lögreglustjóra í Washington, sem stendur í ströngu í bar- áttu við glæpalýð og við umbætur innan lögreglunnar. Aðalhlutverk: Craig T. Nel- son, John Amos, Jayne Brook og Justin Theroux. 22.00 Tíufréttir 22.20 Frasier (1:24) e. 22.45 Beðmál í borginni (1:26) e. 23.15 Af fingrum fram (7:24) e. 0.00 Kastljósið e. 0.20 Dagskrárlok Frasier og Beð- mál í borginni Doug finnst hann ekki fá næga viðurkenningu í vinnunni. Hann fréttir að ökumenn samkeppnis- aðilans þéni meira en hann. Hann hittir gamlan félaga sem nú vinnur þar og misskilur hann þannig að hann heldur að stórfyrirtækið vilji ráða sig. Doug notar þetta til að heimta hærri laun en það fer ekki eins og hann heldur. The King of Queens ■ Mig minnir að amma blessun- in hafi kallað hann skratta- kollinn hann Soames og ekki verið mjög hrif- in af gjörðum hans á svart- hvítum skján- um. Snoop Dogg: Ósáttur við strippþátt SJÓNVARP Rapparinn Snoop Dogg segist ósáttur við erótískan sjón- varpsþátt er kallast „Girls Gone Wild“ þrátt fyrir að hann hafi eitt sinn komið fram sem kynnir í þ æ t t i n u m . Ástæðan er einföld. Hann er ekki ánægður með valið á kven- fólki en þátt- urinn gengur út á það að stúlkur dansa stripp- dans fyrir myndavélarnar. „Ég hef tekið eftir því að það hafa aldrei verið litaðar stúlkur í þessum þáttum,“ sagði Snoop í viðtali við The Associated Press á dögunum. „Engar svartar stúlkur, engar suður-amerískar stúlkur... bara hvítar og það er ekki svalt.“ En Snoop deyr ekki ráðalaus. Hann hefur ákveðið að byrja með sinn eigin þátt sem byggður er á sömu hugmyndafræði og þáttur- inn „Girls Gone Wild“. Þar segist hann ætla að gefa lituðum stúlk- um tækifæri á að fækka fötum fyrir myndavélarnar. „Þær hafa verið að kvarta í mér eins og snaróðar. Þær halda að ég sé hrifinn af hvítu stelpun- um af því að ég kom fram í þætt- inum, en það er ekki satt, ég gerði þetta bara peningana vegna.“ ■ SNOOP DOGG Segist ekki hrifinn af hvítu stelpunum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.