Fréttablaðið - 26.06.2003, Síða 4
4 26. júní 2003 FIMMTUDAGUR
Viltu að Guðjón Þórðarson verði
næsti þjálfari Barnsley?
Spurning dagsins í dag:
Hefurðu keypt einhver hlutabréf
á árinu?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
10%
41%
Nei
Já
49%Alveg sama
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Landbúnaðarráðherra segir mjólkurkvótaverð ógnvænlegt:
Boðar lægri styrki í framleiðslu
LANDBÚNAÐUR Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra segist enga
trú hafa á að samningar ríkis og
mjólkurframleiðenda verði fram-
lengdir óbreyttir þegar núverandi
samningur rennur út eftir tvö ár.
Guðni segir í Bændablaðinu að
Evrópulönd hafi ljáð máls á því í
viðræðum um samninga Alþjóða
viðskiptastofnunarinnar að minnka
verulega framleiðslustuðning við
landbúnað. Af því verði Íslendingar
að taka mið:
„Þess vegna óar mig við því að
sjá bændur kaupa sér kvóta aðeins
tveimur árum áður en núverandi
mjólkursamningur rennur út á
verði sem mér þykir ógnvænlega
hátt. Ég hef margsagt bændum að
ég hafi enga trú á að komandi samn-
ingur verði eins og sá sem er að
líða.“
Snorri Sigurðsson, formaður
Landssambands kúabænda, segir
hátt kvótaverð um skeið hafa end-
urspeglað markaðsaðstæður sem
nú séu breyttar. Verðið hafi því
lækkað aftur.
Snorri segir að taka verði mið af
alþjóðasamningum en að þeim sé þó
ólokið. „Það eina sem liggur fyrir er
loforð stjórnarflokkanna um að
komandi samningar byggi á því
kerfi sem við höfum í dag,“ segir
hann. Ekki náðist í landbúnaðarráð-
herra, sem hefur verið erlendis. ■
Ungur maður dæmdur í 30 daga fangelsi:
Olli umferðaróhappi af ásetningi
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur mað-
ur var dæmdur í 30 daga fang-
elsi og til að greiða Íslandspósti
rúmar 300.000 krónur í skaða-
bætur fyrir tryggingasvik. Mað-
urinn varð í mars 2001 af ásetn-
ingi valdur að umferðaróhappi
og tókst með því að svíkja
180.000 krónur út úr Sjóvá-Al-
mennum.
Annar maður var einnig
ákærður þar sem hinn dæmdi
hélt því fram að þeir hefðu sam-
mælst um að fremja brotið.
Mennirnir tveir höfðu nokkru
áður starfað saman þar sem
meðákærði var yfirmaður þess
dæmda. Hafði meðákærði sagt
hinum dæmda upp störfum
vegna fíkniefnaneyslu og var
því hugsanlega um hefnd að
ræða að hálfu þess dæmda. Var
hann því sýknaður af ákærunni.
Auk þess að greiða Íslands-
pósti skaðabætur vegna
skemmda á bifreiðinni sem
maðurinn ók var hann jafnframt
dæmdur til þess að greiða allan
sakarkostnað. ■
Svíþjóð:
Syndsam-
legur ís
SVÍÞJÓÐ, AP Hvítasunnukirkjan í
Umeå í Svíþjóð hefur rift samn-
ingi við einn stærsta ísframleið-
anda landsins. Ástæðan er sú að
nokkrar ístegundir eru seldar
undir nöfnum sem vísa til höfuð-
syndanna sjö. Kirkjunnar mönn-
um þótti óviðurkvæmilegt að
bjóða upp á íspinna sem báru nöfn
eins og öfund eða græðgi. Ísinn
syndsamlegi verður því ekki á
boðstólum í sumarbúðum kirkj-
unnar. Ósagt skal látið hvort
ákvörðunin hefur úrslitaþýðingu
fyrir afkomu ísframleiðandans en
um 50 börn dvelja í umræddum
sumarbúðum hverju sinni. ■
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi þrítugan Íslending,
Rúnar Ben Maitsland, í fimm ára
fangelsi og tæplega sextugan
Þjóðverja, Claus Friehe, í tveggja
ára og sex mánaða fangelsi fyrir
stórfelld fíkniefnabrot.
Friehe var tekinn á Keflavíkur-
flugvelli með tæp 900 grömm af
sterku amfetamíni og tæpt kíló af
kannabisefnum.
Hann sýndi lög-
reglu sam-
starfsvilja og af-
henti Rúnari efnin,
eins og til hafði
staðið, í samráði
við lögreglu. Það leiddi til hand-
töku Rúnars. Málið tengist þýsk-
um smyglhring sem upprættur
var í Þýskalandi fyrir nokkru. Ís-
lensk lögregla og þýsk hafa unnið
saman að rannsókn málsins.
Claus Friehe, sem var burðar-
dýr, hlaut rúmlega tveggja og
hálfs árs fangelsi. Við ákvörðun
dómsins var litið til þess að hann
var með hreint sakarvottorð.
Hann játaði aðild að málinu og var
samvinnufús við lögreglu. Það
létti rannsóknina. Lögmaður
Friehe sagði fyrir dómi að hann
ætlaði að taka fjögurra vikna
frest til að ákvarða hvort málinu
verði áfrýjað til Hæstaréttar.
Rúnar Ben Maitsland var
dæmdur fyrir þátttöku í innflutn-
ingi fíkniefnanna með því að hafa
tekið við þeim af Friehe. Lögregl-
an hafði þá þegar lagt hald á efnin
og sett gerviefni í þeirra stað.
Ekki var tekið tillit til þess í
dómnum að hann hafi ekki tekið
við raunverulegum fíkniefnum,
eins og lögmaður hans vildi að
yrði gert. Rúnar neitaði sök að
innflutningi, en játaði að hafa tek-
ið við efnunum sem hann var grip-
inn með. Hann sagði þau hafa
verið ætluð til einkaneyslu. Þótti
framburður og skýringar Rúnars
í hæsta máta ótrúverðugar. Upp-
tökur af símtölum og önnur gögn
lögreglu auk framburðar Friehe
þóttu sanna sekt Rúnars. Við
ákvörðun dómsins var litið til
þess að hann rauf skilorð. Hann
hlaut fjögurra ára fangelsi árið
2000 fyrir hlutdeild í Stóra fíkni-
efnamálinu, eins og það var kall-
að. Hann hefur hlotið níu refsi-
dóma frá árinu 1990.
Ólafur Sigurgeirsson, lögmað-
ur Rúnars, segir fimm ára fang-
elsi allt of háan dóm og hafa þeir
ákveðið að áfrýja málinu til
Hæstaréttar. Þeir segja aðild
Rúnars ekki eins mikla og ákæru-
valdið heldur fram og að Friehe
sé aðalmaðurinn og hafi staðið í
stanslausum innflutningi á milli
landanna. Ólafur segir einkenni-
legt að Friehe hafi fengið vægari
dóm en Rúnar. Rúnar hafi tekið
við gerviefnum og ekki hafi ver-
ið hringt í hann til að láta vita af
komu fíkniefnanna til landsins.
Hringt hafi verið í bróður hans.
„Þetta var ekki fullframið brot
heldur tilraun til að taka við
fíkniefnum. Ekki hefur sannast á
hann innflutningur né dreifing
efnisins til fjölda manna og því
er harkalegt að dæma í svo
þunga refsingu,“ segir Ólafur
Sigurgeirsson.
Saksóknari krafðist þess að
Rúnar Ben sætti gæsluvarðhaldi
á meðan mál hans yrði rekið fyr-
ir Hæstarétti, til 24. september.
Einnig krafðist hann gæsluvarð-
halds yfir Claus Friehe til hádeg-
is 24. júlí, á meðan ákvörðunar-
tími til áfrýjunar stendur yfir. Til
frádráttar dóma þeirra beggja
kemur óslitið gæsluvarðhald síð-
an 8. nóvember í fyrra.
hrs@frettabladid.is
Smáralind:
Stórt tívolí
kemur
TÍVOLÍ „Þetta er stærsta tívolí
sem komið hefur til Íslands,“
segir Helga Thors, markaðs-
stjóri Smáralindar.
Breska tívolíið Fun-Land er
væntanlegt hingað til lands á ný
og verður nú staðsett við Smára-
lind.
Tívolíið verður formlega opn-
að klukkan 17 á föstudaginn og
verður starfandi í mánuð, til 27.
ágúst.
Að sögn Helgu eru ný og
spennandi tæki væntanleg með
tívolíinu í ár, meðal annars tæk-
ið „Freak out“, sem er stærsta
tívolítæki sem komið hefur
hingað til lands. ■
ROMANO PRODI
Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins hvetur Breta til þess að taka upp
evruna.
Evran í Bretlandi:
Pólitísk
ákvörðun
LUNDÚNIR, Ákvörðun bresku ríkis-
stjórnarinnar um að fresta upp-
töku evrunnar er fyrst og fremst
pólitísk, að mati Romano Prodi,
forseta framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins. Prodi dreg-
ur í efa þá yfirlýsingu Breta að
ákvörðunin hafi verið tekin með
hliðsjón af efnahagslegri stöðu
landsins.
Í viðtali við BBC segist Prodi
hafa beðið þess lengi að Bretar
gengju í myntbandalagið. Hann
hafi því orðið fyrir miklum von-
brigðum þegar ljóst varð að ekki
yrði af upptöku evrunnar á næst-
unni. Prodi hvatti Breta til að taka
skýra afstöðu í málinu til að
veikja ekki stöðu sína innan Evr-
ópusambandsins. ■
Byggðastyrkir í Noregi:
Hafa áhyggj-
ur af Íslandi
NOREGUR, NRK Íslendingar geta
komið í veg fyrir að Norðmenn
beiti undanþáguákvæði í samn-
ingum um Evrópska efnahags-
svæðið vegna byggðamála í
Norður-Noregi og veiti fyrir-
tækjum þar skattaívilnanir.
Þetta er fullyrt á fréttavef
Norska ríkisútvarpsins, NRK.
Eftirlitsstofnun EFTA hefur
tekið ólíklega í óskir Norð-
manna þess efnis að slíkum að-
gerðum verði áfram beitt en
ætlunin er að afnema alla
byggðastyrki á næsta ári. Norð-
menn vilja beita sérstöku und-
anþáguákvæði en það er þó að-
eins hægt ef öll EFTA-ríkin
þrjú, Noregur, Sviss og Ísland,
sammælast um það. Íslendingar
eru andvígir byggðastyrkjum
líkt og Norðmenn hafa beitt og
því litlar líkur á að þeir fallist á
undanþágur til handa Norð-
mönnum.
Að sögn NRK ætlar Ansgar
Gabrielsen, atvinnumálaráð-
herra Noregs, að taka málið upp
við Íslendinga á ráðherrafundi
EFTA í Kristiansand í Noregi í
dag. ■
GUÐNI ÁGÚSTSSON
Landbúnaðarráðherra segir viðræður Evr-
ópulanda og Alþjóðaviðskiptastofnunarinn-
ar benda til þess að draga þurfi úr ríkis-
styrkjum við mjólkurframleiðendur.
RÚNAR MAITSLAND OG ÓLAFUR SIGURGEIRSON, LÖGMAÐUR HANS
Rúnar var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir hlutdeild sína í Stóra fíkniefnamálinu svokallaða.
■
Lögreglan hafði
þá þegar lagt
hald á efnin og
sett gerviefni í
þeirra stað.
Fimm ára fangelsi er
harkaleg refsing
Rúnar Ben Maitsland var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir þátttöku í innflutningi og móttöku
fíkniefna. Lögmanni hans þykir það harkaleg refsing. Hann hefur ákveðið að áfrýja til Hæstarétt-
ar. Ekki hefur verið ákveðið hvort tveggja ára og sex mánaða dómi yfir Claus Friehe verði áfrýjað.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
ÍSLANDSPÓSTUR
Ungur maður var dæmdur til þess að
greiða Íslandspósti rúmar 300.000 krónur í
skaðabætur fyrir tjón sem hann olli á bif-
reið fyrirtækisins.