Fréttablaðið - 26.06.2003, Qupperneq 35
50 ÁRA „Maður verður nú að gera
sér einhvern dagamun þar sem
vinir og ættingjar geta hist,“ seg-
ir Kristján L. Möller, alþingismað-
ur og varaþingflokksformaður
Samfylkingarinnar sem er 50 ára í
dag. „Ég mun hafa þetta tvískipt
og halda smá samkvæmi á Siglu-
firði laugardaginn 19. júlí í Síld-
arminjasafninu, nánar tiltekið í
Gránu. Þar er verið að byggja upp
gamla síldarverksmiðju og mér
finnst tilhlýðilegt að gera þetta
þar vegna þess að ég rétt náði í
skottið á síldarævintýrinu.“
Kristján bætir því svo við að
þessa sömu helgi ætli Siglfirðing-
ar sem fæddir eru árið 1953 að
koma saman þannig að það má bú-
ast við heilmiklu fjöri á Sigló í
kringum afmælisveisluna.
„Ég geri svo eitthvað hérna
sunnan heiða með fjölskyldunni
og mínum nánustu enda búa
margir ættingjar mínir hérna.
Annars hefur fjölskyldan gert
mikið af því að koma saman í
sumar og það er lítill skortur á til-
efnum til þess en miðsonur minn
var að útskrifast sem stúdent frá
tölvubraut Iðnskólans, sá elsti var
að klára viðskiptafræðina og syst-
urdóttir mín var að útskrifast sem
læknir. Þá er einn mágur nýorð-
inn sextugur og móðir mín verður
80 ára í haust þannig að það er
mikið um veisluhöld í familíunni
um þessar mundir.“
Kristján segist reyna að vera
sem mest á Siglufirði á sumrin.
„Þetta er samt að breytast eftir að
kjördæmið varð svona stórt og nú
verður maður fleiri daga í burtu.
Það felst nefnilega meira í þing-
mannsstarfinu en það sem sést
frá þinghúsinu og það er mikið um
ferðalög, heimsóknir, viðtöl og
viðræður við fólk.“
Þegar Kristján er spurður
hvort einhverjir sérstakir afmæl-
isdagar standi upp úr í minning-
unni rifjar hann upp skemmtilega
afmælisveislu þegar hann hélt
upp á fertugsafmælið á Siglufirði
fyrir tíu árum.
„Sautján ára afmælisdagurinn
er mér alltaf minnisstæður en
þann dag fékk ég langþráð öku-
skírteinið. Þá var átján ára af-
mælið ekki síður spennandi en þá
fékk maður loksins kosningarétt.
Ég man nú ekki hvenær ég fékk
að kjósa fyrst en ég hef kosið rétt
síðan þá.“
thorarinn@frettabladid.is
35FIMMTUDAGUR 26. júní 2003
Pondus eftir Frode Øverli
Afmæli
KRISTJÁN L. MÖLLER
■ alþingismaður er 50 ára í dag. Hann
gerir ráð fyrir að halda upp á tímamótin í
tvennu lagi; með veislu á Siglufirði í júlí
og með fjölskyldunni og nánustu ættingj-
um sunnan heiða.
4,7 í einkunn af 5 mögulegum samkvæmt
frétt Morgunblaðsins 24. júní sl. um könnun
Neytendasamtakanna á 14 tegundum
morgunkorns.
Hollasta
morgun-
kornið!
Hafðu það gott!
KRISTJÁN L. MÖLLER
„Ég ætla nú samt að vona að menn reyni að taka sér smá frí þó það sé ekki mjög auð-
velt og ég stefni að því að skreppa aðeins til útlanda og fullhlaða batteríin eftir kosn-
ingabaráttuna.“
Veisla í gamalli
síldarvinnslu
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
■ Jarðafarir
13.30 Borgþór Ómar Pétursson, Vest-
urvangi 1, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Víðistaðakirkju.
13.30 Rögnvald Kjartansson, Víðigrund
35, Kópavogi, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju.
14.00 Ingólfur Jónsson, dvalarheimilinu
Höfða, Akranesi, verður jarðsung-
inn frá Akraneskirkju.
15.00 Aðalheiður Halldóra Guðbjörns-
dóttir verður jarðsungin frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði.
Þýski leikarinn Horst
Tappert, sem kunnur er úr
Derrick-þáttunum, varð
fyrir fólskulegri árás konu
á sextugsaldri í München í
gær!
Konan hafði Tappert undir
og veinaði: EKKI HÆTTA,
DERRICK! EKKI LÁTA
HARRY TAKA YFIR! Ó,
DERRICK, DERRICK!
Að lokum var hún yfir-
buguð af lögreglu og
mjög afbrýðisömum
dverg!
Haft var
eftir Horst
Tappert:
„Mein Gott!
Donnerwett-
er!“
Mamma þín
setur nýtt
met!
Ekki
orð!