Fréttablaðið - 26.06.2003, Page 38
Þeir vakna stundvíslega klukk-an fimm á morgnana og vekja
okkur hjónin með gargi,“ segir
Pétur Einars-
son, fiskverkandi í Vogum
á Vatnsleysuströnd, um tvo
hrafna sem haldnir eru í
búri rétt fyrir utan svefn-
herbergisgluggann hjá hon-
um. Þar hafa þeir verið í tvo
mánuði í stóru hænsnanets-
búri og Pétri er sagt að til
standi að nota þá í kvikmynd.
Meira veit hann ekki en svefn-
leysið er farið að setja mark sitt á
fjölskyldulífið í Heiðargerði 4 í
Vogum, þar sem Pétur býr ásamt
eiginkonu sinni. Þau hjónin hafa
reynt að fara hefðbundnar leiðir
til að fá svefnfrið:
„Ég hef látið lögregluna í
Keflavík vita en þeir gera ekki
neitt og benda á heilbrigðiseftir-
litið. Þar fæ ég þau svör að hrafn-
ar séu ekki meindýr og falli því
ekki undir starfssvið eftirlitsins.
Sem betur fer held ég til vinnu
um hálfáttaleytið á morgnana
þannig að ég þarf ekki að hlusta á
gargið í hröfnunum allan daginn.
Á kvöldin getum við hjónin sem
betur fer horft á sjónvarp því
stofan okkar er í öðrum enda
hússins og sem betur fer fara
hrafnar snemma að sofa eins og
við,“ segir Pétur, sem telur að
hrafnahald sem þetta brjóti í
bága við dýraverndarlög: „Þar
segir að bannað sé að hefta frelsi
villtra fugla,“ segir hann.
Á daginn sækja frjálsir hrafn-
ar að búri hinna árrisulu hrafna í
Heiðargerðinu og kankast á við
þá með gamalkunnugu krunki,
sem breytist þó í einhvers konar
smelli þegar atgangurinn er hvað
mestur: „Ég veit ekki mitt rjúk-
andi ráð,“ segir Pétur.
eir@frettabladid.is
Hrósið 38 26. júní 2003 FIMMTUDAGUR
Það er náttúrlega heilmikið aðbreyta svona til, en mér líst bara
vel á það,“ segir Halldór Kristjáns-
son, sem stendur upp úr stól inn-
heimtustjóra hjá afnotadeild Ríkis-
útvarpsins eftir sextán ára starf.
Stefnan er tekin á Sauðárkrók, þar
sem Halldór hefur ráðið sig á Þró-
unarsvið Byggðastofnunar.
„Eftir Verzlunarskólapróf vann
ég lengi sem verslunarmaður. Það
hefur verið reglan hjá mér að vera
svona fimm til sex ár á hverjum
stað,“ segir Halldór, sem braut þá
reglu hjá útvarpinu.
Áður en hann kom til Ríkisút-
varpsins bjó hann ásamt eiginkonu
sinni og þremur börnum í New
York. „Ég var að vinna fyrir Sam-
bandið og Álafoss og fór um allt að
selja íslenska ull. Þetta gekk vel og
það var gaman að þessu.“
Á starfstímanum í Ríkisútvarp-
inu fór Halldór í nám og útskrifað-
ist sem stjórnsýslufræðingur árið
1999. „Námið er auðvitað að hluta
til ástæða þess að ég tek mig upp
núna. Að ég fái tækifæri til að nota
það sem ég lærði.“
Halldóri finnst ekki mikið mál
að flytja frá Reykjavík út á land.
„Þó maður fari út af malbikinu er
það bara til að gera mann svolítið
frjórri. Ég tel að ég geti gert ágætt
gagn á landsbyggðinni. Þó að ég
hafi búið á Manhattan, þá er ég
landsbyggðarmaður. Ég sé voða lít-
inn mun á Króknum og Manhattan.“
Félagsmál eru mikið áhugamál.
Halldór er í stjórn Félagsfræðinga-
félagsins. Hann er einnig mikill
áhugamaður um fótbolta, spilaði
með KS í gamla daga en er eitil-
harður KR-ingur í dag. Flutti rétt
við KR-völlinn þegar hann kom frá
Bandaríkjunum og keppti með
öldungunum í fyrra og er skráður í
ár. ■
Persónan
HALLDÓR KRISTJÁNSSON
■ Halldór Kristjánsson hættir nú sem
innheimtustjóri Ríkisútvarpsins eftir
sextán ára starf. Við taka flutningar til
Sauðárkróks.
Fuglasöngur
PÉTUR EINARSSON
■ fiskverkandi í Vogum á
Vatnsleysuströnd vaknar fyrir
allar aldir með hrafnsgarg í eyrum.
Hann veit ekki sitt rjúkandi ráð og vill
það eitt að fá að sofa eins og aðrir.
Imbakassinn
...fær Dorrit Moussaieff fyrir að
gegna hlutverki eiginkonu forseta
Íslands af stakri prýði.
Enginn munur á Manhattan og Króknum
Já,
já...góði Guð,
já!
HALLDÓR KRISTJÁNSSON
Lék fótbolta með Knattspyrnufélagi Siglu-
fjarðar á árum áður. Nú er hann eldheitur
KR-ingur.
Sefur ekki fyrir
hrafnagargi
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
HRAFNINN
Vaknar klukkan fimm á morgnana og byrj-
ar að garga án afláts.