Fréttablaðið - 08.07.2003, Síða 2
2 8. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
“Það er alltaf gott að tróna á toppn-
um og við erum á góðri leið þangað.“
Ísland er komið í annað sæti á lista Sameinuðu
þjóðanna yfir þau lönd í heiminum þar sem best
er að búa. Össur Skarphéðinsson er í forystusveit
stjórnarandstæðinga í þessu sama landi.
Spurningdagsins
Össur, er þetta toppurinn?
■ Innlent
1.499,-L E I Ð B E I N A N D I V E R Ð
SPENNANDI FERÐ FÉLAGAR
„Afar hrífandi
frásögn sem heltekur
lesandann.“
Lektørudtalelse, Dansk Biblioteks Center:
„Einstæð frásögn af þjáningum
og þrekraunum,
kjarki og hetjudáðum,
djörfung og áræði
... líflega skrifuð.“
Magnús Magnússon sjónvarpsmaður, Bretlandi:
SPRENGIEFNI Vinnueftirlitið hefur
sent Reykjavíkurborg erindi um
að sprengiefnageymslurnar á
Hólmsheiði verði fluttar á brott
vegna fyrirhugaðrar uppbygg-
ingar íbúðahverfa í nálægð við
geymslurnar. Samkvæmt reglu-
gerðum eiga sprengiefna-
geymslur að vera minnst kíló-
metra frá íbúabyggð, en skipu-
lögð byggð á Norðlingaholti er
of nærri, auk þess sem hest-
húsabyggð er fyrirhuguð á
Hólmsheiði.
„Við höfum erindið uppi á
borði en enginn staður hefur
verið ákveðinn,“ segir Helga
Bragadóttir, skipulagsfulltrúi
hjá borginni.
Elías Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Kemis ehf, sem
framleiðir sprengiefni, telur ör-
uggara að geyma sprengiefni í
byggð en á afskekktum stöðum.
„Ég hef haft áhyggjur af því að
sprengiefni sé geymt á víðavangi,
fjarri byggð.“
Að hans sögn eru litlar líkur á
því að efnin springi í eldsvoðum,
séu þau látin í friði, hins vegar
megi ekki sprauta vatni á þau,
komi til eldsvoða.
Skipulagssvið Reykjavíkur-
borgar hefur einnig á borðinu til-
lögu um að flytja skotæfinga-
svæði sem nú er ofan við Grafar-
holt yfir á norðanvert Álfsnes,
milli Leiruvogs og Kollafjarðar. ■
LUNDÚNIR, AP Utanríkismálanefnd
neðri deildar breska þingsins
gagnrýnir harðlega skýrslur rík-
isstjórnarinnar varðandi vopna-
eign Íraka sem notaðar voru til að
sannfæra þingmenn og almenning
um nauðsyn þess að grípa til hern-
aðaraðgerða gegn Írak. Nefndin
telur þó ekki sannað að Alastair
Campbell, upplýsingafulltrúi
Tony Blair forsætisráðherra, hafi
gert breytingar á skýrslunum í
þeim tilgangi að ýkja þá ógn sem
heimsbyggðinni stafaði af veldi
Saddams Hussein.
Þingnefndinni var fengið það
verkefni að rannsaka hvort yfir-
völd hefðu vísvitandi reynt að
blekkja bresku þjóðina með þeim
gögnum sem sett voru fram um
vopnaeign Íraka. Nefndin kemst
að þeirri niðurstöðu að ríkis-
stjórnin hafi lagt óeðlilega mikla
áherslu á þá fullyrðingu að Írakar
gætu gripið til efna- eða sýkla-
vopna með 45 mínútna fyrirvara.
Blair er jafnframt ávítaður fyrir
að hafa lagt fram skýrslu um
vopnaeign Íraka sem innihélt
kafla úr háskólaritgerð sem finna
mátti á Internetinu án þess að
geta heimilda.
Það sem vakið hefur hvað
mesta athygli er sá úrskurður
nefndarinnar að Alastair Camp-
bell hafi ekki beitt áhrifum sínum
til þess að knýja fram breytingar
á skýrslunum, eins og BBC hefur
haldið fram. Ágreiningur ríkti um
þetta atriði meðal nefndarmanna.
Formaðurinn beitti oddaatkvæði
sínu og varð niðurstaðan því
Campbell í vil.
Fullyrðingin um að írösk yfir-
völd hefðu getað beitt gereyðinga-
vopnum á innan við 45 mínútum
varð kveikjan að hörðum deilum á
milli ríkisstjórnarinnar og breska
ríkisútvarpsins. Fréttamenn BBC
vitnuðu í ónafngreindan heimild-
armann innan leyniþjónustunnar
sem hélt því fram að aðstoðar-
menn Blair hefðu bætt þessu inn í
skýrslu sem lögð var fram í sept-
ember 2001 með það að markmiði
að auka fylgi þingmanna og al-
mennings við hernaðaraðgerðir
gegn Írökum. Þessi frétt vakti
hörð viðbrögð stjórnvalda og hafa
þau árangurslaust reynt að fá hana
dregna til baka. ■
Landhelgisgæslan:
Flugvél í
vanda
LANDHELGISGÆSLAN Þyrla Land-
helgisgæslunnar flaug til móts við
franska einshreyfils flugvél sem
lent hafði í
vanda vestur
af Reykjanes-
hrygg þegar
hún missti afl.
Vélin var á
leiðinni frá
Frakkalandi
til Bandaríkj-
anna og var
ætlunin að taka eldsneyti á Ís-
landi. Flugmálastjórn óskaði eftir
hjálp þyrlunnar. Um tíu leytið í
gærmorgun lenti vélin heilu og
höldnu á Reykjavíkurflugvelli. ■
FORSETI LÍBERÍU
Charles Taylor veifar til mannfjöldans.
Forseti Líberíu:
Pólitískt hæli
í Nígeríu
MONRÓVÍA, AP Charles Taylor, for-
seti Líberíu, hefur samþykkt að
láta af embætti og þegið boð ní-
gerskra yfirvalda um pólitískt
hæli þar í landi. Forsetinn hefur
þó ekki gefið upp hvenær af þessu
muni verða.
Taylor og Obasanjo, forseti Ní-
geríu, hafa hvatt bandarísk yfir-
völd til að senda friðargæslulið til
Líberíu til þess að tryggja það að
átökum í landinu linni þegar sá
fyrrnefndi lætur af völdum. ■
SAMGÖNGUR Formaður Framsókn-
arfélagsins á Siglufirði, Bogi Sig-
urbjörnsson, segir að ef ekkert
verður að gert varðandi frestun
framkvæmda við Héðinsfjarðar-
göng muni hann flytja tillögu um
að félagið verði lagt niður. „Ég sé
enga ástæðu fyrir því að Fram-
sókn hafi bækistöð hér miðað við
framgang þessara mála,“ segir
Bogi.
Bogi segist mjög ósáttur við
frestun framkvæmdanna þar sem
lægsta tilboð sem barst í útboði
hafi verið rétt yfir kostnaðarverði
og því ekki að sjá að neitt væri í
vegi fyrir því að framkvæmdirnar
gætu hafist með haustinu.
„Það er ekkert breytt í um-
hverfi efnahagsmála,“ segir Bogi.
„Eina sem gat breytt þessu var til-
boð sem ekki hefði verið hægt að
fallast á, en þar sem allar forsend-
ur voru fyrir hendi, nema að ríkis-
stjórnin ætlaði aldrei að hefja
framkvæmdirnar, fór mönnum að
bregða.“
Valgerður Sverrisdóttir, fyrsti
þingmaður framsóknarmanna í
Norðausturkjördæmi, segir málið
vera til umfjöllunar hjá stjórn-
völdum.
„Vel hefur verið tekið í það
hvort ekki sé hægt að milda
ákvörðunina á einhvern hátt,“ seg-
ir Valgerður. „Aðalatriðið hlýtur
þó að vera að ákveðið hefur verið
að fara í þessa framkvæmd.“ ■
Örlátur heimsmethafi:
Gaf 480
lítra af blóði
CANBERRA, AP Ástralskur karlmað-
ur á sjötugsaldri komst í heims-
metabók Guinnes sem örlátasti
blóðgjafi sögunnar þegar hann
hafði gefið blóðbanka ástralska
Rauða krossins alls 480 lítra af
blóði.
James Harrison byrjaði að gefa
blóð þegar hann var átján ára gam-
all og eru heimsóknir hans í blóð-
bankann nú orðnar á níunda hund-
rað. Blóðið sem tekið hefur verið
úr Harrison á síðustu fimm ára-
tugum er nóg til að fylla bens-
íntanka í tíu smábílum eða 1.200
gosflöskur, að sögn yfirmanns
ástralska Rauða krossins. ■
LYF DÝRARI HÉR Níu af tíu sölu-
hæstu lyfjunum hérlendis árið
2002 eru dýrari hér á landi en á
hinum Norðurlöndunum. Gera
má ráð fyrir að gjöld Trygginga-
stofnunar lækkuðu um tæp 20%
ef sama verð gilti hér á landi og
annars staðar á Norðurlöndunum,
að því er kom fram í könnun
Tryggingastofnunar.
BIFREIÐ GRANDSKOÐUÐ
Öryggisgæslan í borginni Ramadi
hefur verið hert verulega í kjölfar árása
helgarinnar.
Aukin spenna í Írak:
Ráðist á
bandaríska
hermenn
BAGDAD, AP Bandarískur hermaður
fórst þegar heimatilbúinni
sprengju var varpað á bílalest
hersins í Bagdad í gær. Annar
hermaður lét lífið í skotbardaga
sem braust út þegar vopnaðir
Írakar gerðu herflokki hans fyrir-
sát í norðurhluta borgarinnar.
Einn árásarmanna lést og annar
særðist.
Á sunnudaginn særðust fjórir
bandarískir hermenn þegar hand-
sprengjum var kastað á bílalest í
Ramadi í vesturhluta Írak. Spenn-
an hefur stigmagnast í borginni
síðan á laugardaginn þegar sjö
íraskir lögreglumenn fórust og
tugir særðust í sprengjuárás.
Bandaríski herinn kennir stuðn-
ingsmönnum Saddams Hussein
um árásina en margir borgarbúa
fullyrða að Bandaríkjamenn hafi
sjálfir staðið á bak við tilræðið. ■
Vinnueftirlitið sendir Reykjavíkurborg erindi:
Sprengiefnageymslur
of nálægt íbúðabyggð
SPRENGIEFNIN HÖRFI
Geymslur fyrir sprengiefni á Hólmsheiði
eru of nálægt fyrirhugaðri íbúðabyggð á
Norðlingaholti.
Breska ríkisstjórnin
harðlega gagnrýnd
Bresk þingnefnd kemst að þeirri niðurstöðu að ríkisstjórnin hafi beitt ýkj-
um í skýrslum sínum um vopnaeign Íraka. Alastair Campbell, upplýs-
ingafulltrúi Tony Blair, er ekki talinn hafa gert breytingar á skýrslunum.
HREINSAÐUR AF SÖK
Alastair Campbell, upplýsingafulltrúi Tony Blair, var hreinsaður af ásökunum um að hafa
gert óeðlilegar breytingar á skýrslum ríkisstjórnarinnar um vopnaeign Íraka.
Óánægja með frestun Héðinsfjarðargangna:
Félagið lagt
niður að óbreyttu
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Fyrsti þingmaður framsóknarmanna í
Norðausturkjördæmi segir mál Siglfirðinga
til umfjöllunar hjá stjórnvöldum.
ÞYRLA GÆSLUNNAR
Flogið var til móts við
einshreyfils flugvél.