Fréttablaðið - 08.07.2003, Síða 4
4 8. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Hefurðu áhyggjur af sprengief-
nunum sem stolið var ?
Spurning dagsins í dag:
Ertu sáttur við ákvörðun ríkisstjórnarinn-
ar að fresta gerð Héðinsfjarðarganga?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
31%
69%
Enganveginn
vissulega
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
KÝR
Viðskipti með mjólkurkvótann hafa aukist
nokkuð síðustu ár vegna aukinnar tækni-
væðingar og stærri búa.
Mjólkurkvóti:
Meiri
viðskipti
LANDBÚNAÐUR Viðskipti með mjólk-
urkvótann hafa aukist nokkuð síð-
ustu ár, að sögn Ernu Bjarnadótt-
ur, forstöðumanns félagssviðs
Bændasamtakanna. „Það hefur
verið meiri tæknivæðing síðustu
árin og búin hafa verið að stækka
hraðar,“ segir Erna. Erna segir
tölur um viðskipti með mjólkur-
kvótann á þessu ári fljótlega
liggja fyrir, en lokað er fyrir við-
skipti þann 20. júní ár hvert.
Framseljanlegi mjólkurkvót-
inn hefur verið við lýði frá árinu
1992 og voru viðskiptin í kringum
3 milljónir lítra á ári fram til árs-
ins 1998, að sögn Ernu. Síðan þá
hafa hins vegar viðskiptin með
mjólkurkvótann aukist og eru nú
yfirleitt á bilinu 5-6 milljónir lítra
á ári. ■
LEIKSKÓLAR Börnum í leikskólum
sem nutu sérstaks stuðnings hefur
fjölgað mikið á allra síðustu árum.
Árið 1998 nutu 553 börn sérstaks
stuðnings á leikskólum landsins en
í fyrra var fjöldinn kominn upp í
901 barn.
Helgi Hjartarson, yfirsálfræð-
ingur hjá Leikskólum Reykjavíkur,
segir ýmsar ástæður liggja að baki
þessari fjölgun. „Greiningarnet
leikskóla borgarinnar til að finna
börn með þroskafrávik hefur þést á
undanförnum árum,“ segir Helgi.
„Auk þess er starfsfólk leikskóla og
foreldrar meðvitaðri í dag um mik-
ilvægi þess að þroskafrávik upp-
götvist snemma, svo að barnið fái
viðeigandi úrræði sem fyrst.“
Að sögn Helga hafa á síðustu
árum komið út skimunartæki stöðl-
uð fyrir íslensk börn, sem hjálpa
starfsfólki leikskólanna að fylgjast
með þroska barnanna. Hann bendir
einnig á að börnum á leikskólum
Reykjavíkur hefur fjölgað á þess-
um árum, auk þess sem þau koma
yngri inn í leikskólana. ■
LEIKSKÓLABÖRN
Börnum sem njóta stuðnings hefur fjölgað.
Börnum sem njóta sérstaks stuðning á leikskólum fjölgar:
Foreldrar og starfsfólk
leikskóla meðvitaðra
RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR
Sjálfstæðismenn segja ljóst að „hörð við-
brögð og eftirgrennslan“ þeirra vegna nið-
urskurðaáforma í félagsstarfi aldraðra hafi
borið árangur og aðgerðirnar mildaðar.
Sjálfstæðismenn gagn-
rýna:
Í trássi við
samþykktir
SVEITARSTJÓRNIR Sjálfstæðismenn í
borgarráði segja óásættanlegt að
gerðar séu breytingar í félags-
starfi aldraðra í borginni þrátt
fyrir samþykkt borgarstjórnar
um frestun.
Að sögn sjálfstæðismanna varð
uppskátt um áform um niður-
skurð í félagsstarfi aldraðra á
fundi félagsmálaráðs með for-
stöðumönnum félags- og þjón-
ustumiðstöðva 7. maí. Þá hafi fé-
lagsmálaráð óskað eftir skrifleg-
um upplýsingum frá forstöðu-
mönnum um niðurskurð sem á
þessu ári vegna félagsstarfsins:
„Ljóst er að hörð viðbrögð og
eftirgrennslan Sjálfstæðisflokks-
ins vegna áforma um að skera nið-
ur í félagsstarfi aldraðra, í bága
við samþykkt borgarstjórnar,
hafa borið árangur og aðgerðirnar
mildaðar,“ bókuðu sjálfstæðis-
menn í borgarráði á þriðjudag.
Þeir segja hins vegar vísbending-
ar um að verið sé að innleiða
breytingar í félagsstarfinu þrátt
fyrir að samþykkt borgarstjórnar
vegna fjárhagsáætlunar fyrir árið
2003 hefði verið um að fresta fyr-
irhuguðum breytingum. Vinnu-
brögðin séu óásættanleg. ■
SPÁNN, AP Ástríða Spánverja og
annarra íbúa rómansk-amerískra
þjóða, er stórlega ýkt ef marka
má niðurstöður nýrrar könnunar
sem landssamtök spánskra kyn-
fræðinga stóðu fyrir. 1.200 manns
tóku þátt í könnuninni. Sam-
kvæmt henni skipuleggur mikill
meirihluti spánskra para kynlíf
sitt líkt og um heimsókn til tann-
læknis væri að ræða. Þá segist yf-
irgnæfandi meirihluti Spánverja
eða 86%, ánægður eða mjög
ánægður með kynlíf sitt.
77% Spánverja skipuleggja
hvenær dagsins þeir stunda kyn-
líf með maka eða félaga og 52%
ganga enn lengra, taka frá sér-
stakan vikudag til athafnarinnar.
„Kyntröll og karlmennska eru
ekki lengur bundin Pýrenea-
skaga, það heyrir sögunni til. Við
höfum hins vegar sótt í okkur
veðrið hvað varðar mýkt og sam-
skipti, tvö af grundvallaratriðum
farsæls sambands,“ sagði Carlos
San Martin, spánskur kynfræð-
ingur. ■
Kynlíf Spánverja:
Skipulagt út í ystu æsar
MÝKRI OG MÁLGEFNARI
Löngum hafa menn tengt karlmennsku við
Pýreneaskaga. Samkvæmt nýrri könnun
eru tengslin óskýrari en áður, karlmenn á
þeim slóðum hafa mýkst og eru skraf-
hreifnari en áður.
Vestfirðir:
Þorskafjarð-
arheiði lokuð
FÆRÐ „Þorskafjarðarheiðin verð-
ur lokuð næstu vikur þar sem
verið er að setja talsverðan of-
aníburð á þriðjungi leiðarinnar,“
segir Inga Daníelsdóttir starfs-
maður hjá Vegagerðinni.
„Ferðamenn verða því að
velja Strandirnar eða Suðurfirð-
ina á leið sinni vestur.“ Að sögn
Ingu á vegurinn eftir að batna
töluvert við framkvæmdirnar þó
ekki sé um nýlagningu að ræða.
„Hann hefur verið mjög grófur
og seinfarinn en það á eftir að
lagast að einhverju leyti.“ Búist
er við að framkvæmdum ljúki
18. júlí. ■
SPRENGIEFNASTULDUR Lögreglan í
Reykjavík hefur enn ekki orðið
neins vís um hvar 245 kíló af
sprengiefni sem stolið var úr
geymslu á Hólmsheiði fyrir helg-
ina eru niður komin. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu hafa
einhverjar vísbendingar borist,
án þess þó að þær hafi leitt til
framfara í rannsókninni. Lög-
reglan er í virkri leit að sprengi-
efninu og hefur málið forgang.
Almannavarnadeild Ríkislög-
reglustjóra var tilkynnt um
þjófnaðinn þegar í stað, en ekki
er í gangi eiginlegur viðbúnaður
af hennar hálfu. Hins vegar er
fylgst með framþróun málsins.
„Við höfum vitneskju um þetta. Í
versta tilfelli gæti málið leitt til
þess að almannavarnir grípi til
viðbúnaðar, ef sprengiefnið er
notað í illum tilgangi,“ segir Haf-
þór Jónsson, stjóri almanna-
varnadeildar Ríkislögreglu-
stjóra.
„Þetta getur leiðst út í að
sprengiefnið verði notað í þeim
tilgangi að skemma eða limlesta.
Þá yrði gripið til hópslysavið-
búnaðar. Ef það berst hins vegar
fyrirfram ógn eða hótun þyrfti
að grípa til þess að færa fólk
fjær hættunni. Það hefur þó ekki
komið fram að nota eigi þetta í
annarlegum tilgangi.“
Dómsmálaráðuneytið vinnur
nú að endurskoðun reglugerðar
um geymslu sprengiefnis í ljósi
þjófnaðarins. Málið er litið al-
varlegum augum, bæði hjá lög-
reglu og almannavörnum. Óskað
er eftir því að fólk láti lögreglu
vita ef það verður sprengiefnis-
ins vart eða hefur vísbendingar
um þau.
jtr@frettabladid.is
Vísbendingar hafa
ekki skilað árangri
Lögreglan í Reykjavík leitar enn að sprengiefnunum sem stolið var úr
geymslu á Hólmsheiði. Almannavörnum var tilkynnt um málið strax í
upphafi og mun grípa til aðgerða ef hótun berst um notkun efnisins.
SPRENGIEFNI
Meðfylgjandi mynd er af sama magni og
tegund sprengiefna sem stolið var úr
geymslu á Hólmsheiði fyrir helgina. Fólk er
beðið að hafa samband við lögreglu, verði
það sprengiefnanna vart.