Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.07.2003, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 08.07.2003, Qupperneq 6
6 8. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 76.82 0.47% Sterlingspund 127.15 -0.33% Dönsk króna 11.75 -0.36% Evra 87.35 -0.40% Gengisvístala krónu 124,42 0,49% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 206 Velta 2.569 milljónir ICEX-15 1.502 0,19% Mestu viðskiptin Íslandsbanki hf. 102.927.106 Kaupþing Búnaðarbanki hf. 46.909.532 Pharmaco hf. 30.162.431 Eimskipafélag Íslands hf. 20.851.873 Skeljungur hf. 6.840.000 Mesta hækkun Pharmaco hf. 3,92% Bakkavör Group hf. 1,39% SÍF hf. 1,27% Flugleiðir hf. 1,11% Tryggingamiðstöðin hf. 0,91% Mesta lækkun Líftæknisjóðurinn hf. -16,67% Eimskipafélag Íslands hf. -2,31% Síldarvinnslan hf. -2,13% Nýherji hf. -1,20% Vátryggingafélag Íslands hf. -1,15% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ: 9230,9 1,8% Nsdaq: 1712,1 2,9% FTSE: 4074,8 1,3% Nikke: 9795,1 2,6% S&P: 1002,6 1,7% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Heimsþekktur bandarískur soul-söngvari lést á föstudagskvöldið. Hvað hét maðurinn? 2Hvað heitir lögmaður Péturs ÞórsGunnarssonar í málverkafölsunar- málinu svokallaða? 3Hvaða íslenski stórmeistari tefldi viðIvan Sokolov í bókabúð Máls og menningar um helgina? Svörin eru á bls. 22 IÐNAÐUR Samdráttur er framundan hjá lyfja- og hátæknifyrirtækjum og fyrirtækjum í plast- og veiðar- færagerð samkvæmt könnun Samtaka iðnaðarins á horfum í iðnaði í júní. Samtökin reikna með að sam- drátturinn muni leiða til uppsagna starfsmanna hjá fyrirtækjum í þessum greinum. Í könnun sem náði til 85 meðalstórra og stórra fyrirtækja í hinum ýmsu greinum iðnaðar var sérstaklega spurt um áhrif hás gengis krónunnar á af- komu iðnfyrirtækja í ár. Áhrifin eru á heildina litið neikvæð en mismikil eftir greinum og stærð fyrirtækjanna. „Neikvæðust eru áhrifin í lyfja- og hátækni, plast- og veiðar- færagerð og málm- og skipasmíð- um vegna lakari samkeppnisstöðu á alþjóðlegum markaði,“ segir í fréttatilkynningu frá Samtökum iðnaðarins. „Mörg fyrirtæki í jarðvinnu, prenti og pappír og matvælum og drykkjaframleiðslu njóta hins vegar góðs af háu gengi sem léttir afborganir á erlendum lánum og lækkar innkaupaverð á erlendan varning.“ ■ Könnun Samtaka iðnaðarins: Hátt gengi sligar iðnfyrirtæki SAMDRÁTTUR FRAMUNDAN Samtök iðnaðarins telja samdrátt framund- an hjá lyfja- og hátæknifyrirtækjum og fyrir- tækjum í plast- og veiðarfæragerð. Bráðalungnabólga: Greinist ekki í heiminum SJÚKDÓMAR Alþjóðaheilbrigðisstofn- unin hefur gefið út yfirlýsingu um að bráðalungnabólga greinist ekki lengur í heiminum. Stofnunin vek- ur athygli á því að þótt veikin grein- ist ekki lengur sé ekki þar með sagt að sjúkdómurinn sé horfinn. Heil- brigðisstarfsmenn þurfi eftir sem áður að hafa vakandi auga með sjúkdómnum og greinist hann aftur verða birtar tilkynningar um nauð- synleg viðbrögð. Landslæknisembættið hefur til- kynnt að hætt skuli sérstökum til- kynningum til ferðamanna um bráðalungnabólgu í flugstöðvum og höfnum landsins. ■ BIÐSKÝLIÐ KÓPAVOGSBRAUT Ræningjarnir eru ófundnir. Kópavogur: Þjófa leitað RANNSÓKN Rannsókn vopnaða ránsins í biðskýlinu við Kópa- vogsbraut hefur enn ekki borið árangur. Á morgun eru liðnar þrjár vikur frá ráninu. Að sögn Ei- ríks Tómassonar, yfirlögreglu- þjóns í Kópavogi fara möguleik- arnir minnkandi að ná ræningjun- um eftir því sem lengri tími líður. Eiríkur segir rannsóknina enn vera galopna og allt sé gert til að upplýsa málið. ■ LONDON, AP Tekjur Karls Breta- prins nema nú tæpum 10 miljón- um sterlingspunda, sem er 27% aukning frá fyrra ári. Tekjur prinsins láta nærri að vera tæp- lega 1,3 milljarðar íslenskra króna. Ólíkt móður sinni, Elísa- betu Englandsdrottningu, nýtur Karl ekki framlaga af skattpen- ingum breskra þegna. Tekjur prinsins koma frá hertogadæm- inu í Cornwall sem sett var á fót á 14. öld til að framfleyta erf- ingja bresku krúnunnar. Þrátt fyrir að hagnaður af rekstri her- togadæmisins hafi átt að fjár- magna persónuleg útgjöld Breta- prinsins, rann ríflega helmingur framlaganna eða 57% til opin- berra embættisverka og góð- gerðarstarfsemi. Karli Bretaprins er gert að greiða 40% tekjuskatt. 90 manns eru í starfsliði prinsins, þar af 17 í persónulegu starfsliði hans svo sem matsveinn, einkaþjónar, garðyrkjumenn og hestasveinar. Upplýsingagjöf um fjámrál prins- ins eru liður í því að gera fjármála krúnunnar gegnsærri. ■ Karl Bretaprins: Rúmur miljarður í rekstur FREKUR TIL FJÁRINS Erfingi Bresku krúnunnar þarf röskan milljarð íslenskra króna á ári til eigin þarfa. Prinsinn þarf meðal annars að greiða laun 90 starfsmanna. HÁTÍÐARHÖLD „Þetta heppnaðist í heildina mjög vel. Það létti af mér ákveðnum áhyggjum sem ég hafði fyrir fram því ég frétti að það væri mikill áhugi fyrir Humarhá- tíðinni og búast mætti við tölu- verðu fólki. Hornfirðingar eru ekki það fjölmennir að þeir ráði við að taka við miklum fjölda,“ segir Albert Eymundsson bæjar- stjóri á Höfn í Hornafirði. Hornafjörður er ekki eina bæj- arfélagið sem blés til hátíðarhalda nú um helgina því auk Humarhátíðar- innar voru Þýskir dagar í Vestur- Húnaþingi, Fær- eyskir dagar í Ólafsvík, Þjóðlaga- hátíð á Siglufirði og Goslokahátíð í Vestmannaeyjum. Mestur fjöldi safnaðist saman í Ólafsvík og Höfn en að sögn Al- berts, bæjarstjóra Hafnar, voru þátttakendur á hátíðinni um fjög- ur þúsund. „Við höfum reynt að leggja áherslu á þetta sé fjöl- skylduhátíð og ég tel að hún hafi jákvæð áhrif á bæinn. Ég skil aftur á móti vel það fólk sem finnst þetta vera allt of mikið og vill vera í friði og rólegheitum.“ Að sögn lögreglunnar á Höfn var mikill erill um helgina. „Þetta var hálfgert Halló Akureyri og miklu fleiri voru nú en í fyrra. Við vorum tólf lögreglumenn á vakt en það hefðu mátt vera tíu í viðbót þar sem það var ekki þorandi að fara af vaktinni,“ segir Grétar Þorkelsson lögreglumaður á Höfn. Sjö líkamsárásir hafa verið kærðar til lögreglu, sjö voru tekn- ir vegna gruns um ölvun við akst- ur og þrjú fíkniefnamál komu upp, þó öll minniháttar. Finnur Gærdo, skipuleggjandi Færeyskra daga, í Ólafsvík seg- ist ánægður með helgina. „Það fór allt mjög vel fram og bæjar- búar eru í sjöunda himni og ekki síður Færeyingarnir sem eru al- veg undrandi á öllum fjöldan- um.“ Að sögn Finns voru um það bil sjö þúsund manns í Ólafsvík og telur hann bæinn kominn á landakortið fyrir vikið. Að sögn lögreglunnar í Ólafsvík gekk helgin áfallalaust fyrir sig og mjög vel miðað við fjölda gesta á hátíðinni. vbe@frettabladid.is Færeyingar hissa á mannfjöldanum Mestur mannfjöldi var á Höfn í Hornafirði og í Ólafsvík á útihátíðum síðustu helgar. Skiptar skoðanir eru um hvernig til tókst. ■ Þetta var hálfgert Halló Akureyri og miklu fleiri voru nú en í fyrra. FÆREYSKIR DAGAR Í ÓLAFSVÍK Ólsarar eru alsælir með hvernig til tókst og færeyski kórinn var hissa á öllum mannfjöldanum. KRAFTAKEPPNI Haldin var kraftlyftingarkeppni á Ólafsvík um helgina og þótti vel takast til. Hvert metið féll á fætur öðru FLATEYRI Vestfirðir þykja nokkuð sérstakir á heims- vísu og hyggjast Ísfirðingar og nágrannar koma sér á framfæri með útgáfu vandaðs kynningarrits. Ísafjörður: Kynntur heims- byggðinni FERÐAMÁL Ísafjarðarbær hefur samið við Íslandskynningu ehf. um útgáfu vandaðs kynningarrits fyrir bæjarfélagið sem sent verð- ur í tíu þúsund eintökum út um allan heim. Halldór Halldórsson bæjarstjóri segir Vestfirði hafa sérstöðu á heimsvísu. „Við fjöll- um um náttúruna, fuglalífið og björgin. Hér er mögnuð menning og mannlíf, auk þess sem friðlönd og eyðibyggðir Hornstranda eru einstök.“ Ritið mun fylgja Icelandic Geographic og fylgir því til áskrifenda víða um heim. Vinnsla á blaðinu er þegar hafin og er stefnt á útgáfu næsta vor. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.