Fréttablaðið - 08.07.2003, Side 9
9ÞRIÐJUDAGUR 8. júlí 2003
Er vinningur
í lokinu? Utanlandsferðir • siglingar • sjónvörp reiðhjól • myndavélar • gasgrill
kælibox í bíla • línuskautar
hlaupahjól og margt, margt fleira!
Glæsilegir vinningar
France Telecom:
Starfsmenn
eftir einka-
væðingu
PARÍS, AP Starfsmenn franska rík-
isfyrirtækisins Frence Telecom
halda öllum réttindum sínum og
fríðindum og verða áfram opin-
berir starfsmenn, þótt ríkið selji
ríflega helmings hlut sinn í því.
Ríkisstjórn Frakklands undirbýr
nú lagafrumvarp þar sem þetta
verður tryggt. Rúmlega hundrað
þúsund manns vinna hjá franska
símafyrirtækinu og hafa umræð-
ur um einkavæðingu þess staðið í
nokkurn tíma. France Telecom
skuldar um 68 milljarða evra. ■
Iðnfyrirtæki:
Aukning
í veltu
IÐNAÐUR Áætlað er að velta í iðnaði
aukist um fjögur prósent í ár og
yfir tíu prósent á næsta ári.
Samkvæmt upplýsingum frá
Samtökum iðnaðarins nemur
aukningin að raunvirði tveimur
prósentum í ár og átta prósentum
á næsta ári.
Áætlað er að fjárfesting iðn-
fyrirtækja aukist yfir 20% í ár en
sjö prósent á næsta ári. Að raun-
virði nemur aukningin 21% í ár og
fimm prósentum á næsta ári. Mik-
il aukning í fjárfestingum í plast-
og veiðafæragerð og prentun og
pappír, útskýrir mestan hluta
aukningarinnar í ár. ■
LANDBÚNAÐUR Landbúnaðarráðu-
neytið hefur synjað hreindýra-
vinnslunni Viðbót ehf. á Húsavík
um innflutning hreindýrakjöts frá
Grænlandi á grundvelli þess að um-
sókn um tollkvóta hafi borist of
seint í ráðuneytið. Umsóknin var
send bréfleiðis og bar póststimpil
frá sama degi og umsóknarfrestur
rann út, en samkvæmt ráðuneytinu
gildir sú dagsetning sem bréfið er
opnað.
Ráðuneytið auglýsir níu tonna
tollkvóta og án hans er ekki leyfi-
legt að flytja inn hreindýrakjöt. Við-
bót ehf. stefnir á umfangsmikla
verkun á hreindýrakjöti og er ætl-
unin að flytja meginhlutann út, en
fimm tonna sala á innanlandsmark-
aði átti að mæta upphafskostnaði.
Fyrirtækið hefur óskað eftir því
við ráðuneytið að tollkvótinn verði
auglýstur á ný, en að sögn Arnar
Loga Hákonarsonar framkvæmda-
stjóra, fékk hann þau svör að það
væri ekki unnt fyrr en að mánuði
liðnum vegna sumarleyfa í ráðu-
neytinu. Nokkrir mánuðir eru í að
hreindýraverkunin hljóti vottorð frá
ESB og er ljóst að starfsemin tefst
vegna synjunar á innflutningi. ■
OF SEINT
Hreindýraverkun í bænum hlýtur ekki leyfi
til að flytja inn skrokka frá Grænlandi á
næstunni vegna þess að umsókn til land-
búnaðarráðuneytisins var of lengi í pósti.
Synjað um tollkvóta:
Húsavík fær ekki hreindýr