Fréttablaðið - 08.07.2003, Qupperneq 12
12 8. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
5 6 7 8 9 10 11
JÚLÍ
Þriðjudagur
Þriðjudagsgönguferðir í Viðeyhafa notið vinsælda undan-
farin sumur. Í síðustu viku var
skoðað listaverkið eftir Serra,
sem stendur í eyjunni, en í kvöld
verður athyglinni beint sérstak-
lega að fjölskrúðugu fuglalífi
eyjunnar.
„Þetta eru 25 tegundir fugla
sem verpa hérna í eyjunni, og
jafnvel fleiri,“ segir Ragnar Sig-
urjónsson ráðsmaður, sem verð-
ur í fararbroddi göngumanna.
„Við skoðum það sem verður á
vegi okkar. Það er af nógu að
taka þannig að enginn ætti að
verða fyrir vonbrigðum.“
Auk þess gæti farið svo að
göngufólki gefist kostur á að
skoða sérstætt hestakyn, sem
ræktað er í eyjunni.
„Við erum með bæði hesta og
kindur hér á eyjunni. Hestarnir
eru svokallaðir hjálmskjóttir
hestar. Þeir eru ljósir í framan
með blá augu og hvít augnahár.
Þetta litagen hefur alltaf verið
til í íslenska hestinum en því
hefur aldrei verið hampað. Það
er ekki alveg á hreinu hvernig
það erfist en þetta er víkjandi
gen þannig að það er ekkert
alltaf öruggt að maður fái þenn-
an lit.“
Eina gjaldið í gönguna er
ferjutollurinn, fimm hundruð
krónur á mann. ■
■ GÖNGUFERÐ
Fjölskrúðugt
dýralíf í Viðey
Nýi Freemanslistinn
er kominn út.
Vandaðar vörur á góðu verði.
Tryggðu þér eintak í síma 565 3900
- pöntunarlínan opin til 22 alla daga
Í verslun Freemans stendur yfir útsala
- 40% - 50% afsláttur
Freemans - Hjallahrauni 8
220 Hafnarfjörður
www.freemans.is - s: 565 3900
„LJÓSIR Í FRAMAN MEÐ BLÁ AUGU OG HVÍT AUGNAHÁR“
Í Viðeyjargöngunni verður fjölskrúðugt fuglalíf eyjunnar skoðað og auk þess hugað að sér-
stæðu hestakyni sem þar er ræktað.
■ ■ ÚTIVIST
19.30 Ragnar Sigurjónsson ráðs-
maður í Viðey stjórnar gönguferð um
eyjuna og veitir fjölskrúðugu dýralífi
hennar athygli. Þar verpa nú að minnsta
kosti 24 fuglategundir og fer fjölgandi.
Hugsanlega gefst gestum einnig kostur
á að heilsa uppá hjálmskjótta hesta
ráðsmannsins en það er um margt sér-
stakt.
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Söngkvartettinn 4Klassísk-
ar, sem eru söngkonurnar Björk Jóns-
dóttir, Jóhanna V. Þórhallsdóttir og Signý
Sæmundsdóttir og píanóleikarinn Aðal-
heiður Þorsteinsdóttir, heldur tónleika í
Nýheimum á Höfn í Hornafirði.
■ ■ SÝNINGAR
„Meistarar formsins“ nefnist stór
höggmyndasýning í Listasafni Akur-
eyrar, sem gerð er í samvinnu við
Ríkislistasafnið í Berlín. Á sýning-
unni eru verk eftir 43 listamenn, þar
af 11 Íslendinga.
Sýning á verkum þriggja listamanna
í Listasafni ASÍ. Verkin eru eftir lista-
mennina Svavar Guðnason, Nínu
Tryggvadóttur og Kristján Davíðsson.
Sýnd verða verk frá 5. og 6. áratug síð-
ustu aldar sem öll eru í eigu safnsins.
Um er að ræða verk sem safnið hefur
hlotið að gjöf frá velunnurum sínum.
Sýningin Pester a Beuty í Gallerí
Tukt. En sýningin er einkasýning lista-
mannsins GAG og skírskotar til líðandi
atburða þjóðfélagsins. Sýningin stendur
til 12. júlí. Gellerí Tukt er í Hinu Húsinu,
Pósthússtræti 3-5.
Sýningin Fjarskanistan í gallerí
Nema Hvað, Skólavörðustíg 22c. Þeir
sem eiga verk á sýningunni eru Guðný
Rúnarsdóttir, Hildigunnur Birgisdóttir,
Hörn Harðardóttir, Rakel Gunnarsdóttir,
Sólveig Einarsdóttir og Þorbjörg Jóns-
dóttir. Sýningin er opin frá sunnudegi til
miðvikudags frá klukkan 20 til 22.
Þrjár sýningar í Listasafni
Reykjavíkur - Hafnarhúsinu. Sýning-
arnar Humar eða frægð - Smekk-
leysa í 16 ár, Innsýn í alþjóðlega
samtímalist á Íslandi og Erró Stríð.
Sýning á verkum Matthew Barney
stendur í Nýlistasafninu. Sýningin
stendur til 27. júlí.
Sýningin „Í nótt sefur dagurinn“, hef-
ur verið opnuð í versluninni 12 tónum.
Þetta er þriðja einkasýning Marý. Flest
eru verkin á sýningunni olíumálverk frá
þessu ári, þar sem leikið er með hin
ýmsu form.
Ljósmyndir Yann Arthus-Bertrand
eru sýndar á Austurvelli. Sýningin ber
nafnið Jörðin séð frá Himni og hefur
verið sýnd víðs vegar um heiminn. Á
sama tíma verður upplýsingamiðstöð að
Kirkjustræti 12 (Skjaldbreið) þar sem sjá
má kvikmynd um tilurð verkefnisins.
Sýning á verkum Kristjáns Davíðs-
sonar og Þórs Vigfússonar í Listasafni
Árnesinga, Austurmörk 21 í Hveragerði.
Sýningin stendur til 31. júlí.
Kristín Þorgrímsdóttir, skrifari,
heldur sýningu á forntextaverkum sín-
um á Kaffi Espresso í Spönginni,
Grafarvogi. Textarnir í verkunum á
sýningunni eru afritaðir upp úr ís-
lenskum fornritum og gerðir með
stælingum á íslenskum stafa- og let-
urgerðum frá 12. - 15. öld, svo og
myndskreytingum úr fornum ritum.
Sumarsýning Handverks og hönn-
unar stendur yfir í Aðalstræti 12. Til sýn-
is er bæði hefðbundinn listiðnaður og
nútíma hönnun úr fjölbreyttu hráefni.
Meðal þess sem sýnt er, eru munir úr
tré, roði, ull, hör, leir, selskinni, hrein-
dýraskinni, pappír, silfri og gleri frá 26
aðilum. Opið alla daga nema mánudaga
og lýkur 31. ágúst.
Nikals Ejve frá Svíþjóð sýnir í List-
húsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5. Hann
sýnir þar skartgripi og er sýningin opin
virka daga frá 10-18 og laugardaga frá
11-18. Sýningin stendur til 16. júlí.
Sýning á verkum myndlistarkonunn-
ar Óskar Vilhjálmsdóttur er í Þjóðar-
bókhlöðunni.
Sumarsýningu í bókasal Þjóðmenn-
ingarhússins, Íslendingasögur á erlend-
um málum, er ætlað að gefa innsýn í
bókmenntaarfinn um leið og athygli er
vakin á því að fjölmargar útgáfur Íslend-
ingasagna eru til á erlendum málum.
Stóra norræna fílasýningin í
sýningarsal Norræna hússins. Á sýn-
ingunni eru verk eftir dönsku lista-
mennina Peter Hentze, Thomas
Winding og Pernelle Maegaard.
Victoria Winding hefur gert fræðslu-
texta.
Sýning Claire Xuan í Ljósmynda-
safni Reykjavíkur við Tryggvagötu. Lista-
konan kynnir þar myndverk sín og ljós-
myndir og fimmtu ferðdagbók sína, Ís-
land.
Sumarsýning í Listasafni Íslands á
úrvali verka í eigu safnsins.
Steinunn Marteinsdóttir er með
sýningu á Hulduhólum í Mosfellsbæ.
Þar sýnir hún málverk og verk úr leir.
Í Gerðarsafni í Kópavogi stendur
yfir yfirlitssýning á verkum Gerðar
Helgadóttur.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
T0PP 20 Á FM 957
VIKA 27
Where’s The Love -
BLACK EYED PEAS FEAT
Von mín er sú -
LAND & SYNIR
21 Questions -
50 CENT
Crazy In Love -
BEYONCÉ FEATURING JAY-Z
Like a Stone -
AUDIOSLAVE
I Know What You Want -
BUSTAH RHYMES
The Remedy -
JASON MRAZ
Hell Yeah -
GINUWINE
X Gonna Give It To Ya -
DM X10.
Feel Good Time
PINK.
Heaven -
LIVE
Allt -
Á MÓTI SÓL
Rise & Fall -
CRAIG DAVID FEATURING ST.
Taktu mig -
ÞÓREY HEIÐDAL
Bring Me To Life -
EVANESCENCE
Jogi -
PANJABI MC
Loneliness -
TOMCRAFT
Looking to Climb -
DAYSLEEPER
Get Busy -
SEAN PAUL
Times Like These -
FOO FIGHTERS
Íslenskilistinn