Fréttablaðið - 08.07.2003, Síða 13

Fréttablaðið - 08.07.2003, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 8. júlí 2003 ■ JAFNINGJAFRÆÐSLA 13 SÍÐASTA STOPP FYRIR VEIÐI- FERÐINA Mjódd • Dalbraut • Austurströnd Mjódd • Dalbraut • Austurströnd 1000 kr. tilboð Aukaálegg að eigin vali kr. 150 kr. 1.000 Stór pizza með 2 áleggstegundum sótt Afmælistilboð sótt kr. 1.500 Stór pizza með 4 áleggstegundum, brauðstangir, sósa og 2l gos ® Þessa vikuna eiga vinnu-skólakrakkar víða um land von á heimsókn frá Jafningafræðslu Hins hússins í Reykjavík. Fjórir bílar héldu af stað hver í sinn landshlutann um síðustu helgi og eru þessa dagana að þræða bæjar- félögin. „Ég er staddur á Hellu á Suður- landi núna,“ sagði Vilhjálmur Vil- hjálmsson, kynningarfulltrúi Jafningjafræðslunnar, þegar blaðamaður hringdi í hann í gær. „Við erum fjögur í hverjum bíl, keyrum á milli bæjarfélaganna og förum í vinnuskólana á hverjum stað. Annar bíll fór á Vestfirði, einn á Norðurland og einn á Aust- firði og síðan hittumst við á Akur- eyri á föstudaginn. Þar er stefnt að því að vera með smá uppá- komu, hálfgerða götuhátíð í lok ferðarinnar.“ Hugmyndin með Jafningja- fræðslunni er að ungmenni fræði jafningja sína um hætturnar af fíkniefnum og ofneyslu áfengis. Áherslan er fyrst og fremst lögð á að ræða um sjálfsmynd unglinga og mikilvægi þess að geta tekið sjálfstæðar ákvarðanir. Sterk sjálfsmynd er jafnframt mjög góð forvörn gegn áfengi og fíkniefn- um. „Við erum allt frá 17 upp í svona 24 ára, bæði krakkar sem hafa lent í ofneyslu áfengis og fíkniefna og svo líka bara krakkar sem hafa áhuga á að vinna að góð- um málstað. Við erum alls ekki að fara þessa ferð sem lærðir fyrir- lesarar, þótt við séum búin að fá fræðslu um þessi mál. Við setj- umst bara niður með krökkunum og höfum umræður á léttum og skemmtilegum nótum.“ Þetta er þriðja sumarið í röð sem Jafningjafræðslan leggur land undir fót. „Þetta er fyrsta sumarið sem ég er í þessu en ég er búinn að læra rosalega mikið á þessu sjálf- ur. Þetta verður manni mikið hjartans mál, að vinna svona náið með þessum krökkum,“ segir Vil- hjálmur. Hans bíður stíf keyrsla, því frá Hellu var haldið á Hvols- völl og þaðan á Kirkjubæjar- klaustur, Seyðisfjörð, Þórshöfn, Húsavík og loks á Akureyri. Það- an verður svo haldið í bæinn á ný um næstu helgi. gudsteinn@frettabladid.is Sterk sjálfsmynd er besta forvörnin JAFNINGJAFRÆÐSL- AN LAGÐI Í HANN Á FÖSTUDAGINN Jafningjafræðsla Hins hússins er á hringferð um landið þessa vikuna. 4KLASSÍSKAR Söngkvartettinn 4klassískar verður með söngskemmtanir á Austurlandi næstu daga. Ferðast um og syngja TÓNLIST Sumarið er tími ferðalaga, ekki síður hjá tónlistarfólki en öðrum. Söngkvartettinn 4klass- ískar bregða undir sig betri fætin- um í dag og heldur alla leið austur á Höfn í Hornafirði þar sem hann býður upp á dálitla söngveislu í kvöld. Þaðan halda þær til Seyðis- fjarðar og syngja á tónleikum Bláu kirkjunnar á miðvikudag. Á fimmtudagskvöldið syngja þær svo í kirkjunni á Fáskrúðsfirði og ljúka síðan ferð sinni með söng- skemmtun í félagsheimilinu á Vopnafirði á föstudagskvöldið. „Þetta er eitt það skemmtileg- asta sem við gerum, að fara út á land og syngja þar. Það er svo gaman að vera á ferðalagi að sumri til,“ segir Björk Jónsdóttir söngkona. Ásamt henni eru í kvar- tettinum söngkonurnar Jóhanna V. Þórhallsdóttir og Signý Sæ- mundsdóttir, að ógleymdum pí- anóleikaranum Aðalheiði Þor- steinsdóttur sem jafnframt útset- ur flest lögin fyrir þær. „Þetta er léttklassískt sumar- prógram, lög sem allir þekkja, bæði innlend og erlend,“ segir Björk. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.