Fréttablaðið - 08.07.2003, Side 24

Fréttablaðið - 08.07.2003, Side 24
Bakþankar KRISTÍNAR HELGU GUNNARSDÓTTUR SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan hátt samið um fasteigna- eða framkvæmdalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt lán, sem veitt er til allt að 30 ára gegn veði í fasteign. Frjálsa fjárfestingarbankans Fasteignalán Frjálsi fjárfestingarbankinn, Ármúla 13a, sími 540 5000, www.frjalsi.is Allt að 80%veðsetningarhlutfall af verðmæti fasteignar A B X 9 0 3 0 3 7 5 Hlaupið eins og þið eigið lífið aðleysa í kvennahlaupum, skreytið ykkur bleiku, setjið í brúnir og talið stoltar um breytta tíma og bjarta framtíð. Á meðan stendur fyrirtæki fyrir sérlegum kvennauppsögnum. Trúverðugur fjölmiðill vill fjalla um jafnréttismál á marktækan hátt, spegla nútímann og sýna allar myndir samfélagsins sem við búum í, svo úr verði raunsönn spegilmynd. Þannig getum við sest að fréttum í lok vinnu- dags og speglað okkur í þjóðfélags- speglinum, hugsað með okkur ánægð eða óánægð: Svona erum við. OG NÚ þegar við lítum í þennan spegil erum við oftar en ekki með skeggrót og skalla. Sögulegt útvarp bar karlmennsku keim og þar fór fjöl- miðill fyrir með skilaboð til kvenna. Kannski er það raunsönn spegilmynd af íslensku samfélagi árið tvöþúsund og þrjú? Frelsið er yndislegt og ég geri það sem ég vil, sagði skáldið. Frjálsir fjölmiðlar fara í fylkingar- brjósti og víla ekki fyrir sér kyn- bundnar hópuppsagnir svo spegillinn verður spéspegill. NÚ ERU stelpulegir dagar og allar sofnum við kátar að kveldi og finnst við eiga erindi, vega þungt og vera sterkar. Skokkum og verum bleikar. Það eru meinlausar og sætar aðgerðir. Berjumst gegn vændi á íþróttamótum í fjarlægum löndum, upplifum okkur sýnilegar og nútímalegar - kvenlega feminista, með rósbleika framtíð í fangið. Á meðan er að vísu víða ríf- lega tuttugu prósenta launamunur á konum og körlum hér í paradís norð- ursins. Sá munur er ekki rósbleikur. Á meðan standa yfir hópuppsagnir kvenna á vinnustöðum þar sem karlar eru þó í miklum meirihluta fyrir - á vinnustöðum þar sem starfsmenn sjá sig og upplifa sem merkisbera jafn- réttis og lýðræðis. STÖKU fjölmiðlar róa nú lífróður. Það framkallar þó síst eftirspurn, vel- vild og vinsældir að kasta konum fyrstum frá borði þegar harðnar á dalnum og skilja karla eftir í björgun- arvestum í bátunum. Þá er þrátt fyrir allt erfitt fyrir sauðsvarta að sitja heima að kveldi og treysta merkisber- unum til að flytja trúverðugar fregnir af jafnréttis og mannréttindamálum. Það er dapurlegt fyrir jafnréttiselsk- andi manneskjur þegar vinnustaður ræðst í kynbundnar uppsagnir og skammarlegt fyrir þá sem að slíku standa. ■ Hið rósbleika jafnréttishlaup

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.