Fréttablaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 8
8 14. ágúst 2003 FIMMTUDAGUR Ekki eins og Bráðavaktin „Fólk sem kemur hingað (á slysadeild Landspítalans) býst oft við að ástandið sé eins og á Bráðavaktinni í sjónvarpinu. Að hér sé allt uppi á háa C-inu, læknar klofvega uppi á sjúklingi að reyna að lífga hann við og mikil hróp og köll. En þetta ger- ist ekki svona.“ Guðbjörg Pálsdóttir, deildarstjóri á Land- spítalanum, í Morgunblaðinu 13. ágúst. Og hananú! „Við eigum að fagna því hvað við eigum góða skóla. Við erum að kenna börnunum það sem passar í okkar samfélagi og eig- um ekki að ganga með haus- poka þótt Japanir geti barið börn til að reikna.“ Vilborg Dagbjartsdóttir í Fréttablaðinu 13. ágúst. Orðrétt Talsverðar líkur á íslensku hitameti í ágúst: Hitabylgjan í rénun í Evrópu VEÐURFAR „Sveiflur í tíðarfari á milli ára í Evrópu geta vissulega verið mjög miklar,“ sagði Harald- ur Ólafsson, veðurfræðingur um hitana sem geisað hafa í Evrópu að undanförnu. „Þar með er ekki sagt að þær séu ekki innan eðlilegra marka. Spár mörg ár fram í tímann gera ráð fyrir að í Suður-Evrópu verði að jafnaði hlýrra og þurrara en nú er. Aftur á móti á úrkoma að aukast lítillega norðar í álfunni. Hlýnunin, sem spáð er á næstu áratugum, er fyrst og fremst ná- lægt yfirborði jarðar, en í efri loftlögum er jafnvel gert ráð fyr- ir kólnun. Flóðin sem gengu yfir Þýskaland, Tékkland og Pólland í fyrra tengdust reyndar kulda í há- loftum, en það er eins með þessa tvo atburði, hitabylgjuna í ár og úrfellið í fyrra, hvorugt er unnt að tengja langtímabreytingum með skýrum og afdráttarlausum hætti. Haraldur segir að sjá megi rén- un á hitum í Evrópu á næstu dög- um. „Hiti í Bretlandi er þegar far- inn að lækka og spákortin benda til að það sama verði uppi á ten- ingnum í Frakklandi og Þýska- landi næstu daga. Það verður þó áfram fremur hlýtt á þessum slóð- um. Varðandi Ísland, segir Harald- ur, að ekkert gefi til kynna annað en að áframhald verði á hlýind- unum hér. „Eins og staðan er nú, þegar tæpar tvær vikur eru liðnar af ágústmánuði, er alls ekki úti- lokað að hitamet verði slegið í Reykjavík. Meðalhitinn fram að 13. ágúst er 13,3 stig en núverandi ágúst- met, sem er 12.4 stig, er frá árinu 1880 og kannski tímabært að það falli.“ ■ Vilja breyta Sin- fóníunni í hlutafélag STJÓRNSÝSLA Vinnuhópur á vegum menntamálaráðherra leggur til að Sinfóníu Íslands verði breytt í hlutafélag. Reykjavíkurborg, Sel- tjarnarnesbær og Ríkisútvarpið vilja hætta þátttöku í rekstri hljóm- sveitarinnar. Skuldir Sinfóníunnar hafa vaxið hröðum skrefum á síðustu árum. Ástæðan mun aðal- lega vera lífeyris- skuldbindingar við fyrrverandi starfs- menn. Skuldir hljómsveitarinnar námu 1742 milljón- um króna í árslok 2002. Það nam um 100 milljónum um- fram eignir. Tekjur Sinfóníunnar árið 2001 voru 434 milljónir króna, þar af 376 milljónir frá opinberum aðilum. Kostnaður var 872 milljónir, þar af 384 milljónir vegna lífeyrisiskuld- bindinga. Vinnuhópurinn sem mennta- málaráðherra skipaði í fyrra og skilaði niðurstöðum í maí segir sumt í lögum um Sinfóníuhljóm- sveit Íslands ekki í samræmi við fyrirkomulag mála, vera óljóst eða orka tvímælis. Sérstaklega eigi það við fjárhagsleg samskipti hljóm- sveitarinnar við rekstraraðilana; ríkið, Reykjavíkurborg, Seltjarnar- nes og Ríkisútvarpið, og samskipti þeirra innbyrðis vegna áætlana- gerðar, ákvarðanatöku og fjárhags- legra uppgjöra. Reykjavíkurborg, Ríkisútvarpið, Seltjarnarnes, sem samtals áttu að leggja Sinfóníunni til um 165 millj- ónir árið 2001, vilja úr samstarfinu. Fulltrúar ráðuneyta munu einnig telja heppilegast að ábyrgð á hljóm- sveitinni sé á einni hendi. Ríkið fái þó áfram framlag frá hinum aðilun- um. Vinnuhópurinn segir að breyta verði rekstrarfyrirkomulagi Sin- fóníunnar. Ýmsir kostir komi til greina en þó helst að breyta hljóm- sveitinni í hlutafélag: „Í því sambandi verði skoðað að setja sérstök lög um hlutafélög í eigu opinberra aðila sem Sinfóníu- hljómsveitin félli undir. Lagt er til að þessi vinna verði hafin sem fyrst.“ Um áttatíu hljóðfæraleikar- ar eru fastráðnir hjá Sinfóníunni. Vinnuhópurinn minnir á að í sam- komulagi milli borgar og ríkis um byggingu tónlistarhúss í Reykjavík sé ákveðið að húsið taki 1.300 til 1.500 manns í sæti: „Sú ákvörðun kallar á, að mati hljómsveitarinnar, ef vel á að vera, um níutíu manna hljómsveit, svo hægt verði að fylla salinn af þeim hljómi sem hann er hannaður fyr- ir,“ segir vinnuhópur menntamála- ráðherra. Ekki fékkst samband við Tómas Inga Olrich menntamálaráðherra í gær. Hann var sagður vera að und- irbúa sig undir fund sem hann á í dag með vísindastjóra Evrópusam- bandsins. gar@frettabladid.is             !"##$% & ''(#  ) '' *## %# $ + ,,'            + -#'''$ ./.0/1 222 % ( # MENNTAMÁL „Miðað við það sem liggur fyrir er skólanum ekkert að vanbúnaði til að hefja skólastarf við upphaf skólaársins,“ segir Ás- dís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri Garðabæjar, vegna nýja einka- skóla Hjallastefnunnar ehf. sem verið er að stofnsetja á Vífilsstöð- um. Minnihluti bæjarstjórnar Garðabæjar lagði til á fundi bæjar- ráðs að skólanum yrði frestað um eitt ár vegna þess að hann yrði ekki tilbúinn fyrir upphaf skóla- árs. Einar Sveinbjörnsson, bæjar- fulltrúi Framsóknarflokks og óháðra, sagði að frá hendi bæjar- ins væri einkennileg fljótaskrift á þessu máli. Tillagan um frestun var felld. Ásdís Halla segir að skólinn sé ekki á vegum bæjarins þar sem samið hafi verið við forráðamenn Hjallastefnunnar um rekstur skól- ans. Hún segir að þeim formsatrið- um sem snúa að bænum hafi verið fullnægt. Einkaskólinn verði nið- urgreiddur af bæjarfélaginu þannig að allir sitji við sama borð. „Það er mikilvægast að foreldr- ar og nemendur hafi fullt frelsi til að velja þennan skóla eða einhvern þeirra þriggja góðu grunnskóla skóla sem eru í Garðabæ. Með nýja einkaskólanum erum við að koma á frjálsu vali,“ segir hún. ■ Bæjarstjóri Garðabæjar um Vífilsstaði: Ekkert að vanbúnaði til að hefja skólastarf ÁSDÍS HALLA BRAGADÓTTIR Segir enga ástæðu til þess að fresta nýja einkaskólanum. Ríkið íhugar að breyta Sinfóníunni í hlutafélag. Skuldir hlaðast upp vegna lífeyrisréttinda starfsmanna. Fjölga þarf hljóðfæraleikurum til að fylla sal fyrirhugaðs tónlistarhúss „þeim hljómi sem hann er hannaður fyrir“. Reykjavík, Seltjarnarnes og RÚV vilja úr rekstrinum. HÁSKÓLABÍÓ Sinfónía Íslands hefur aðstöðu í Háskólabíó. „Ekki verður hjá því komist að minnast á hljómburð Háskólabíós, því hljómsveitin verður í vaxandi mæli vör við að hljómleikagestir, einkum ungt fólk, gengur frá tónleikum vegna þess hve hljómburður þar er lélegur,“ segir í nýrri skýrslu vinnuhóps um Sinfóníuna. REKSTRARGJÖLD SINFÓNÍUNNAR Í m.kr. 1997 1998 1999 2000 2001 Launagjöld 166,8 213,3 220,0 264,6 341,8 Lífeyrisskuldbindingar 17,2 148,2 28,4 121,2 384,4 (gjaldfært en ógreitt) Önnur rekstrargjöld 78,3 91,2 104,3 193,4 138,2 Eignakaup 1,9 2,1 5,4 11,7 7,8 Samtals 264,2 454,7 358,1 591,0 872,2 ■ Í því sambandi verði skoðað að setja sérstök lög um hlutafé- lög í eigu opin- berra aðila sem Sinfóníuhljóm- sveitin félli undir. Skák: Jóhann í Hrókinn SKÁK Jóhann Hjartarson stór- meistari er genginn til liðs við Skákfélagið Hrókinn og mun tefla fyrir félagið á Íslandsmóti skák- félaga í vetur. Jóhann er stiga- hæsti skákmaður Norðurlanda og númer 53 á heimslistanum. Jóhann varð fyrst Íslands- meistari árið 1980, aðeins sautján ára gamall. Lengst náði Jóhann þegar hann sigraði Viktor Korchnoj í áskorendaeinvígi um heimsmeistaratitilinn 1988, en hann beið síðan lægri hlut fyrir Anatoly Karpov. Um þetta leyti var Jóhann meðal sterkustu skák- manna heims og átti með afrekum sínum mikinn þátt í að auka vin- sældir skákarinnar á Íslandi. ■ ÞÝSKI FLJÓTABÁTURINN ÓÐINN Rínarfljótið er ekki svipur hjá sjón og bátar og prammar verða að fara að öllu með gát. FJÖRTÍU GRÁÐUR Í RÓM Svo heitt að sólþyrstir ferðamenn nota hvert tækifæri til að flýja sólina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.