Fréttablaðið - 14.08.2003, Qupperneq 42
■ ■ KVIKMYNDIR
Sjá www.kvikmyndir.is
Sambíóin Kringlunni, s. 588 0800
Sambíóin Álfabakka, s. 587 8900
Háskólabíó, s. 530 1919
Laugarásbíó, s. 5532075
Regnboginn, s. 551 9000
Smárabíó, s. 564 0000
Borgarbíó, Akureyri, s. 462 3500
■ ■ TÓNLIST
12.00 Á hádegistónleikunum í
Hallgrímskirkju koma fram þær Natal-
ía Chow sópransöngkona og Katalin
Lörincz orgelleikari og flytja bæði söng-
og orgelverk. Meðal annars syngur
Natalía 23. Davíðssálm eftir David Yeung
á kínversku.
20.00 Kammersveitin Ísafold spil-
ar í Nýheimum á Höfn í Hornafirði.
21.00 Hljómsveitin Þel leikur á
Caffé Kúlture í Alþjóðahúsinu, Hverfis-
götu 18. Þel leikur bresk og bandarísk
þjóðlög í bland við eigið efni, auk laga
frá ýmsum áttum. Þóra Björk Þórðar-
dóttir syngur, Hafdís Bjarnadóttir leikur á
rafmagnsgítar, Ragnar Emilsson á kassa-
gítar, Daníel Brandur Sigurgeirsson á
bassa og Þórdís Claessen á slagverk.
Aðgangseyrir er 500 kr.
21.00 Hljómsveitirnar Dys og Rík-
ið spila á veitingastaðnum De Boom-
kikker, Hafnarstræti 9.
21.30 Kvartett Kára leikur á Heit-
um fimmtudegi í Deiglunni á Akureyri.
Kvartettin er skipaður Sigurði Flosasyni á
saxófón, Andrési Þór Gunnlaugssyni á
gítar, Þorgrími Jónssyni á kontrabassa og
Kára Árnasyni á trommur. Efnisskráin
samanstendur af sígrænum djassperlum
sem flestir ættu að kannast við.
22.00 Útgáfutónleikar hljómsveit-
arinar Tube verða á Gauknum. Frítt inn.
Eiríkur Hauksson söngvari leikur
ásamt þeim Eric Qvick trommuleikara,
Jóhanni Ásmundssyni bassaleikara,
Sigurgeiri Sigmundssyni gítarleikara og
Þóri Úlfarssyni hljómborðsleikara tón-
list gömlu meistaranna í hljómsveitinni
Deep Purple á Græna hattinum á Ak-
ureyri.
Megas, Súkkat og Mike Pollock
verða með Megasukk á Trúbadorhá-
tíð í Egilsbúð, Neskaupstað.
Ingvar Valgeirsson trúbador spilar á
Kránni, Laugavegi 73.
Palli í Maus sér um tónlistina á
Laugavegi 11.
■ ■ ÚTIVIST
20.00 Ungmennasamband Borgar-
fjarðar efnir til göngu meðfram Grímsá í
Borgarfirði. Ekið er eftir Borgarfjarðar-
braut og staðnæmst við Grímsárbrúna
við bæinn Fossatún. Upphafsstaður
göngunnar er um 300 m fyrir ofan brú
við veiðistaðinn Strengi. Gengið verður
að Laxfossi og Veiðihúsinu við Grímsá.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Aukasýning verður á
Rómeó og Júlíu í Litla salnum í Borgar-
leikhúsinu.
20.30 The Saga of Gudridur eftir
Brynju Benediktsdóttur verður flutt á
ensku í Skemmtihúsinu, Laufásvegi 22.
21.00 Aukasýning á einleiknum
Ellý, alltaf góð eftir Þorvald Þorsteins-
son í flutningi Ævars Þórs Benedikts-
sonar verður haldin að Litla-Garði á Ak-
ureyri, gegnt flugvellinum. Miðaverð er
kr. 900 og eru súpa og brauð innifalin í
verði.
■ ■ NÁMSKEIÐ
13.00 Árbæjarsafn býður upp á
stutt námskeið í tálgun fyrir foreldra og
börn, eða afa og/eða ömmu og barna-
börn. Ætlast er til að börn komi í fylgd
með fullorðnum sem aðstoða börnin.
Þátttakendur þurfa að skrá sig í miða-
sölu safnsins í síma 577-1111.
■ ■ SÝNINGAR
„Á Café Milanó stendur nú yfir sýn-
ing á 11 nýlegum málverkum Péturs
Péturssonar. Sýningin nefnist „Fjöll og
firnindi“ og eru myndirnar allar af lands-
lagi, málaðar með akríllitum á striga.
Sýningunni lýkur 7. september.“
■ ■ SÝNINGAR
Valgarður Gunnarsson sýnir mál-
verk í Gallerí Skugga, Hverfisgötu 39.
Hann lýsir verkum sínum sem kvarkhug-
myndum um innri og ytri veruleika. Sýn-
ingin er opin fimmtudaga til sunnudaga
til 23. ágúst.
Myndlistarsýningu Geirþrúðar Finn-
bogadóttur Hjörvar í Gallerí Dvergi lýk-
ur á sunnudaginn. Sýningarhúsnæðið er
í kjallara við Grundarstíg 21, Reykjavík.
Guðbjörg Lind hefur opnað mál-
verkasýningu í aðalsal Hafnarborgar,
menningar- og listastofnunar Hafnar-
fjarðar. Viðfangsefni Guðbjargar Lindar
hafa frá upphafi verið tengd vatni, fyrst
fossum og síðar óræðum og ímynduð-
um eyjum á haffleti.
Anna Jóelsdóttir hefur opnað sýn-
inguna Flökt í Hafnarborg, menningar-
og listastofnun Hafnarfjarðar.
Samsýning 20 akureyrskra lista-
manna stendur yfir í Ketilhúsinu á Ak-
ureyri.
Sýningin Þrettán + þrjár stendur yfir
í Lystigarðinum á Akureyri. Þetta er
samsýning þrettán norðlenskra lista-
kvenna og þriggja frá Færeyjum.
Sýningar Gjörningakúbbsins, Heim-
is Björgúlfssonar og Péturs Arnar Frið-
rikssonar voru opnaðar í gær í Nýlista-
safninu við Vatnsstíg. Gjörningaklúbbur-
inn opnar á 2. hæð safnsins sýninguna
Á bak við augun. Í norðursal 3ju hæð-
arinnar er sýning Heimis Björgúlfssonar
Gott er allt sem vel endar (Sheep in
disguise) og í suðursalnum sýning Pét-
urs Arnar Friðrikssonar Endurgerð.
Sýningarnar standa til 7. september.
Þrjár sýningar eru í Listasafni
Reykjavíkur – Hafnarhúsinu. Þetta eru
sýningarnar Humar eða frægð –
Smekkleysa í 16 ár, Innsýn í alþjóð-
lega samtímalist á Íslandi og Erró
Stríð.
Sýning á nýjum verkum Rögnu Sig-
rúnardóttur var opnuð í gær í Listhúsi
Ófeigs að Skólavörðustíg 5, Reykjavík.
Viðfangsefni Rögnu er blómaskeið lif-
andi hluta og spurningin hvort hræðslan
við að eldast sé það sem takmarkar feg-
urðarmat okkar. Þetta er 13. einkasýning
Rögnu hér á landi.
„Meistarar formsins“ nefnist stór
höggmyndasýning í Listasafni Akureyr-
ar, sem gerð er í samvinnu við Ríkis-
listasafnið í Berlín. Á sýningunni eru
verk eftir 43 listamenn, þar af 11 Íslend-
inga.
Sumarsýning í Listasafni Íslands á
úrvali verka í eigu safnsins.
Sumarsýning Handverks og Hönn-
unar stendur yfir í Aðalstræti 12. Til sýn-
is er bæði hefðbundinn listiðnaður og
nútíma hönnun úr fjölbreyttu hráefni.
Meðal þess sem sýnt er, eru munir úr
tréi, roði, ull, hör, leir, selskinni, hrein-
dýraskinni, pappír, silfri og gleri frá 26
aðilum. Sýningin er opin alla daga
nema mánudaga og lýkur 31. ágúst.
30 14. ágúst 2003 FIMMTUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
11 12 13 14 15 16 17
ÁGÚST
Fimmtudagur
Þetta er allt tuttugustu aldarmúsík sem við erum að spila.
Allt er þetta líka tónlist sem okkur
finnst rosalega skemmtileg,“ segir
Daníel Bjarnason, stjórnandi
kammersveitarinnar Ísafoldar.
„Þessi tónlist er oft litin horn-
auga og margir kannski hræddir
við hana, en við bjóðum hér frá-
bært tækifæri fyrir þá sem ekki
þekkja tónlist frá tuttugustu öld að
kynnast henni núna.“
Kammersveitin Ísafold leggur í
dag af stað í tónleikaferð umhverf-
is landið. Fyrstu tónleikarnir verða
á Höfn í Hornafirði í kvöld. Annað
kvöld verður hún komin til Egils-
staða, þar sem hún spilar í Egils-
staðakirkju. Á laugardaginn
verður hún í Laugaborg í Eyja-
fjarðarsveit og síðan liggur leiðin
um Stykkishólm, Borgarnes og
Reykjanes áður en lokatónleikarn-
ir verða haldnir í Listasafni Ís-
lands á fimmtudaginn eftir viku.
„Þetta verða sjö tónleikar á átta
dögum. Það gæti orðið svolítið
strembið, en aðallega gaman held
ég,“ segir Daníel.
Ætlunin er að flytja sex verk
eftir tónskáldin Anton Webern,
Charles Ives, Igor Stravinsky, Edg-
ar Varése, Witold Lutoslawski og
Hauk Tómasson.
Kammersveitin Ísafold er ný-
stofnuð en á væntanlega langt líf
fyrir höndum. Framan af tak-
markast starfstími hljómsveitar-
innar því við sumarið og hugsan-
lega jólafrí, enda flestir meðlimir
annað hvort að klára tónlistarnám
hér heima eða í námi erlendis.
„Þetta er hugmynd sem hefur
verið að kvikna á svolítið löngum
tíma. Þessi hópur hefur verið sam-
an í skóla lengi og spilað mikið
saman. Af hverju ekki bara að
stofna hljómsveit þar sem við get-
um ráðið okkur sjálf og spilað þá
músík sem okkur langar til?“
gudsteinn@frettabladid.is
„Margir eru hræddir
við þessa tónlist“
■ TÓNLIST
DANÍEL BJARNASON OG KAMMERSVEITIN ÍSAFOLD
Þau leggja upp í tónleikaferð um landið í dag. Fyrstu tónleikarnir verða á Höfn í Hornafirði í kvöld.
ÁKI ÁSGEIRSSON
Áki Ásgeirsson trompetleikarisegist hvergi fá betri ís í bæn-
um en í ísbúðinni á Hagamel í
Vesturbænum. „Ég fæ mér bara
ís með dýfu. En annars finnst mér
best að fá mér ís á Selfossi, þar í
ísbúðinni rétt hjá brúnni. Það er
alltaf gaman að ís úti á landi.“
Besti ísinní bænum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
www.rvk.is/borgarskjalasafn, sími: 563 1770
Hver var Lárus?
Sýning um Lárus Sigurbjörnsson,
skjala- og minjavörð Reykjavíkurbæjar
1954-1968 á 3. hæð, Tryggvagötu 15.
Opin alla virka daga kl. 10-16.
Aðgangur ókeypis.
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is • 563 1790
Frumefnin Fimm -
Ferðadagbækur Claire Xuan
24. maí - 1.sept. 2003
Tekið er á móti hópum eftir samkomulagi,
nánari upplýsingar í síma 563 1790.
Afgreiðsla og skrifstofa opin virka daga
frá 10-16. Opnunartími sýninga virka daga
12-19 og 13-17 um helgar.
Aðgangur ókeypis
www.listasafnreykjavikur.is
Sími 590 1200
HAFNARHÚS, 10-17
Smekkleysa í 16 ár, Alþjóðleg samtímalist
á Íslandi, Erró - Stríð
Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00
KJARVALSSTAÐIR, 10-17
Íslensk samtímaljósmyndun, Kjarval
Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00
ÁSMUNDARSAFN, 10-16
Ásmundur Sveinsson - Nútímamaðurinn
Minjasafn Reykjavíkur
Árbæjarsafn - Viðey
www.arbaejarsafn.is
s: 577-1111
Árbæjarsafn:
Sögugöngur um Kvosina og gamla
vesturbæinn laugardag
Fjölskyldudagur sunnudag
Viðey:
Ganga þriðjudag kl. 19.30
Upplýsingar um leiðsögn í Viðey
í síma 568-0535 og 693-1440
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
www.gerduberg.is • sími 575 7700.
Brýr á þjóðvegi
Sýningin er framlengd til 21. september
Hvað viltu vita?
Sögusýning um Breiðholtið.
Sýningin er framlengd til 21. september
Jón Ólafsson sýnir í Félagsstarfi
Lokað um helgar til 1. september.
www.gerduberg.is
Ný heimasíða Gerðubergs
verður opnuð 18. ágúst
s. 563 1717
Menningarnótt í miðbænum
Opið í Grófarhúsi frá 13-22
Harrý Potter, Doctuz,
bókmenntaganga, sögustundir
og blúsbandið Svalbarði
Upplýsingar á heimasíðu safnsins
www.borgarbokasafn.is
Minjasafn Orkuveitunnar
Minjasafn Orkuveitunnar í
Elliðaárdal er opið
alla daga kl. 13-17
og eftir samkomulagi
í s. 567 9009