Fréttablaðið - 14.08.2003, Qupperneq 52
40 14. ágúst 2003 FIMMTUDAGUR
Eftirfarandi heyrðist kallað á göngumVerslunarskóla Íslands er tveir nem-
endur voru að metast:
„Mamma þín er svo fátæk að þegar
einhver stígur á sígarettustubb á gólfinu
kallar hún. „Djöfullinn, þarna fer
húskyndingin“!“
Pondus eftir Frode Øverli
Með súrmjólkinni
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Á Vífilsstöðum.
Ríflega 2.700 milljónum
króna.
Portúgalskur.
HINSEGIN LEIKHÚS OG CMS THEATER Í NEW YORK SÝNA:
Ain’t
Misbehavin’
The
Fats Waller
Musical
Show
Enga óþekkt
Þú gleymir
því aldrei!
Fimmtud. kl. 20:00 / Föstud. kl. 20:00 / Laugard. kl. 20:00 / Sunnud. kl. 20:00 LOKASÝNING
Miðasalan í Loftkastalanum er opin kl. 15:00 - 18:00 virka daga • loftkastalinn@simnet.is • S: 552 3000
Aðalhlutverk
Andrea Gylfa & Seth Sharp
Kenyatta Herring, Moyo Mbue
& Chris Anthony Giles
„Samhljómur raddanna er oft framúrskarandi og
það er aldrei dauður punktur í sýningunni.“
„Hér er það fjörið sem
er í forgrunni og áhorfendum
er boðið upp á hvert
gæðaatriðið af öðru…“
„Túlkun flytjendanna er svo leikandi
að hvert lag er sem lítill söngleikur.“
Sveinn Haraldsson, MorgunblaðinuSÍÐU
STU
SÝNIN
GAR
Þessi verknaður
stafaði af tíma-
bundinni geðveiki!
■ Jarðarfarir
13.30 Elín Kjartansdóttir, Fjölnisvegi 1,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju.
13.30 Guðrún Sumarliðadóttir, Vestur-
bergi 143, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju.
14.00 Álfhildur Gunnarsdóttir,
Núpskötlu, Melrakkasléttu, verður
jarðsungin frá Snartarstaðakirkju.
14.00 Jón Jóhannsson, Krabbastíg 1A,
Akureyri, verður jarðsunginn frá
Glerárkirkju.
■ Andlát
Inga P. Sólnes lést mánudaginn 11.
ágúst.
Jón Magnússon frá Geirastöðum,
Kleppsvegi 132, Reykjavík, lést þriðju-
daginn 12. ágúst.
Hugmyndin kviknaði þegar égfór á netkaffi niðri í bæ. Þar
komst ég í tæri við allt aðra tölvu-
menningu en ég hef vanist og sá
eitthvað sem ég hafði ekki hug-
mynd um,“ segir Sigurður Pálma-
son, einn þriggja aðstandenda
myndarinnar.
„Þar eru menn að spila tölvuleiki
í allt að 36 klukkustundir samfleytt.
Ég fletti því upp að tveir hafa dáið
út af þessum tölvuleikjum. Einn dó
í Japan eftir að hafa spilað í 86
klukkustundir og annar í S-Kóreu
sem spilaði í sólarhring. Síðan fór
ég að pæla hvort þetta væri vanda-
mál hér á landi og hvort þetta væri
fíkn. Ég talaði við þá hjá SÁÁ og þá
voru margir foreldrar búnir að
hringja inn og leita hjálpar fyrir
börnin sín, en slík hjálp er ekki til
þar,“ segir Sigurður. Hann segir að
spilun tölvuleikja hafi lítið verið
rannsökuð hér á landi og því hafi
hann viljað kanna hvaða áhrif hún
raunverulega hefur á krakka. Nið-
urstaðan er sú að áhrifin eru ofast
neikvæð, þó svo að leikirnir veiti
vissulega skemmtun eins og til er
ætlast.
Að sögn Sigurðar er það aðallega
ungt fólk sem spilar þessa netleiki,
sem urðu vinsælir upp úr 1995.
Strax í dag er spilun þeirra orðin að
vandamáli. „Í myndinni er ég að at-
huga hversu stórt vandamál þetta
er. Fólk er að krossast á raunveru-
leikanum og vernduðu umhverfi,
þar á meðal krakkar. Svo er líka
eldra fólk sem er í vandræðum. Í
Bandaríkjunum spiluðu til dæmis
100.000 manns tölvuleikinn Sims í
partíi á gamlárskvöld.“
Sigurður segir að leikir á borð
við Counter Strike séu mikið spilað-
ir hér heima. „Við Íslendingar erum
rosalega aktívir þegar við tökum
eitthvað að okkur og gerum það
mjög vel. En ég er að sjá fullt af
krökkum sem eiga við þetta vanda-
mál að stríða.“
Að sögn Sigurðar hafa engin ald-
urstakmörk verið vegna tölvu-
leikjakaupa hér á landi. „Foreldrar
hafa einnig verið að koma í búðir og
biðja um blóðuga leiki fyrir börnin
sín. Þú ferð í bíó sem þriðja persóna
og horfir á eitthvað gerast en í
tölvuleikjunum eru krakkarnir að
taka ákvörðun um að gera hlutina.
Þeir skjóta, drepa og ná í vændis-
konur eins og í Vice City. Sjö til átta
ára gamlir krakkar ættu ekki að
hafa hugmynd um hvað vændis-
kona er.“
freyr@frettabladid.is
■ Höfundar heimildarmyndarinnar Ein-
elti-Helvíti á jörð eru að vinna að nýrri
mynd um tölvuleikjanotkun barna. Fjöl-
margir hafa óskað eftir aðstoð hjá SÁÁ
vegna tölvuleikjafíknar.
Heimildarmynd
Tölvuleikjafíklum fjölgar
SIGURÐUR PÁLMASON
Stendur um mitt sumar við autt mark á
fótboltavelli. Allir krakkar eru vafalaust í
tölvunni heima hjá sér. Vinnuheiti heim-
ildamyndarinnar hans er „Undo.“ Þar er
vísað í tölvuheima þar sem alltaf er hægt
að ýta á undo til að hætta við aðgerð og
byrja upp á nýtt. Raunveruleikinn er hins
vegar aðeins flóknari.
Sagan er einföld, maður kemuraftur í þorpið sitt og segist
hafa búið í vellystingum á Ís-
landi,“ segir Martina Siler, leik-
ritaskáld frá Slóveníu, um leikrit-
ið Reykjavík, en þar kemur Ísland
við sögu.
Martina er fædd og uppalin í
Ljubjana, höfuðborg Slóveníu, og
er 23ja ára og náði því rétt í rass-
gatið á að tilheyra sambandslýð-
veldi Júgóslavíu. Leikrit hennar
um manninn frá Íslandi vann
verðlaun í samkeppni, sem haldin
var í Slóveníu, og þannig var
Martina uppgötvuð.
„Maðurinn er samt að ljúga
þessu um að hann hafi verið á Ís-
landi og átt þar konu og verið með
eigið fyrirtæki,“ segir Martina, en
hún valdi Ísland sem þessa útópíu,
fyrirheitna landið, bæði vegna
þess að margir frá fyrrum
Júgóslavíu búa hérna og líka
vegna þess að það er svipur með
sögum þessara tveggja landa:
„Þið hafið að vísu notið miklu
meiri velgengni en við eftir að
hafa fengið sjálfstæði, en þetta er
að koma hjá okkur. Og sagna-
hefðin er mjög sterk hjá okkur
rétt eins og Íslendingum. Svo er
veðurfar og stemningin í samfé-
laginu ekki ósvipuð.“
Martina var einmitt að koma
frá London og líður svolítið eins
og hún sé komin heim til sín á Ís-
landi. Í London fundaði hún með
The Royal Court Theatre um leik-
ritið sitt, Reykjavík, en ekkert
hefur komið út úr þeim fundum.
Martina verður hér á landi fram í
september og fer svo heim til Lju-
bjana og bíður eftir því að leik-
húsið PJU frumsýni sitt fyrsta
leikverk. ■
Ísland fyrir-
heitna landið
MARTINA SILER
■ er leikritaskáld frá Slóveníu. Leikrit
hennar, Reykjavík, þykir eitt það efnileg-
asta sem er í gangi í slóvensku leikhúsi
þessi misserin. Þar er Ísland fyrirheitna
landið.
Leikskáld
MARTINA SILER
Slóvenska leikskáldið Martina
Siler er komið hingað alla leið frá
Slóveníu. Hún er í fríi í Reykjavík
en hefur skrifað leikrit þar sem
Ísland er fyrirheitna landið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Ég vildi að ég gæti talað! Þá
gæti ég útskýrt þetta allt
saman!