Fréttablaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 2
2 19. ágúst 2003 ÞRIÐJUDAGUR Já, ég er kominn á auðan sjó. Konráð Eggertsson hrefnuveiðimaður er um borð í bátnum Halldóri Sigurðssyni ÍS, en áhöfn bátsins hefur ekki enn getað veitt hrefnu þar sem fjöl- miðlamenn veita þeim eftirför. Spurningdagsins Konráð, ertu kominn á auðan sjó? KJARAMÁL „Með veitingu þessara undanþága er greinilegt að Sigl- ingastofnun er að fara út fyrir sitt valdssvið,“ segir Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags Íslands, um undanþágur sem Siglinga- stofnun veitti til yfirvélstjóra á farþegaskipin Brimrúnu og Særúnu frá Ólafsvík. Annað málið hafði ver- ið kært til Úr- skurðarnefndar s i g l i n g a m á l a sem vísaði mál- inu frá vegna formgalla. Sigl- i n g a s t o f n u n hafnaði undan- þágubeiðninni þann 10. júní. Þá leitaði útgerðin á náðir samgönguráðuneytisins sem sendi Siglingastofnun erindi um að veita undanþáguna. Sigl- ingastofnun varð við þessu og samþykkt undanþáguna. Helgi segir þá ákvörðun vera í andstöðu við gildandi lagafyrirmæli. „Það er morgunljóst að með þessum veitingum er stofnunin að ganga þvert á þau markmið sem henni eru sett með lögum um stofnunina sem hafa það megin- markmið að tryggja öryggi sjó- farenda en virðist hafa breyst í það að trygga afkomu útgerðar- manna. Stofnun sem gengur þan- nig þvert á skyldur sínar hlýtur að tapa tiltrú sjómanna. Þeir sem þar sitja við stjórn að leita sér ann- arra starfa við hæfi;“ segir Helgi. „Eins og fram kemur í lögun- um má aðeins veita undanþágu til yfirvélstjóra á farþegaskip í neyðartilvikum og í eins stuttan tíma og unnt er. Hvað varðar und- anþágurnar á nefnd skip er engin leið að heimfæra þær undir neyð- artilvik og til viðbótar þá hafa þær allt að sex mánaða gildistíma sem greinilega er í andstöðu við ákvæðið um eins skamman tíma og unnt er,“ segir Helgi. Hann segist velta fyrir sér ástæðum þess að undanþágurnar náðu fram að ganga gegn öllum rökum. „Það er athyglisvert að bæði þessi skip skuli vera úr kjördæmi Sturlu Böðvarssonar samgöngu- ráðherra en Siglingastofnun heyr- ir beint undir hann,“ segir Helgi. Hermann Guðjónsson, for- stjóri Siglingastofnunnar, stað- festi að undanþágan hefði verið beitt eftir inngrip samgönguráðu- neytisins. „Ráðuneytið óskaði eftir því við okkur að undanþágan yrði veitt og rökstuddi það með bréfi,“ segir Hermann. Hann segir að stofnunin hafi „fallist á“ rök- stuðninginn og veitt undanþág- una. Ekki tókst að fá viðbrögð Sturlu Böðvarssonar samgöngu- ráðherra. Unnur Sverrisdóttir, lögfræðingur samgönguráðuneyt- isins, sagði að ráðuneytið hafi ekki haft bein afskipti af málinu, heldur einungis bent útgerðinni á að biðja um endurupptöku. „Það voru engin skrifleg til- mæli frá okkur,“ sagði Unnur og taldi þetta mál ekki vera í neinu frábrugðið öðrum málum er sneru að undanþágum. rt@frettabladid.is Stjórnarkreppan í Verkalýðsfélagi Akraness: Tilsjónarmaður selur hlutabréf FÉLAGSMÁL Tilsjónarmaður ASÍ með Verkalýðsfélagi Akraness hefur, samkvæmt heimildum Fréttablaðs- ins, selt hlutabréf félagsins í Fram- taki hf. fyrir um 14 milljónir króna. Hvorki tilsjónarmaðurinn, Ás- mundur Hilmarsson, né Grétar Þor- steinsson, forseti ASÍ, vilja stað- festa söluna á bréfunum í fjárfest- ingasjóðnum Framtaki: „Ég er ekki tilbúinn til að svara til um þetta eða annað sem tengist félaginu. Hins vegar þekki ég að hlutabréf í Framtaki voru boðin föl á síðustu vikum,“ segir Grétar Þor- steinsson. Efasemdir eru um það innan fé- lagins að tilsjónarmaður með rek- stri félagsins, á meðan stjórnar- kreppa þar er óleyst, hafi vald til að selja eignir. Kalla hafi átt eftir heimild trúnaðarráðs eða félags- fundar. Þá segja heimildamenn Fréttablaðsins grun um að bréfin hafi verið seld á lægra verði en það staðið hafi til boða. „Ég undirskrika að málefni fé- lagsins eru í höndum Alþýðusam- bandsins í dag - engra annarra. Það er fyrst og síðast miðstjórn sam- bandsins sem tekur ákvarðanirnar. Við viljum ekki hrófla við meiru og gera meiri breytingar en nauðsyn- legt er til að tryggja starfhæfa stjórn. Vonandi verður það sem fyrst í haust,“ segir Grétar. ■ Vandi sláturhúsa: Ríkið kosti úreldingu MATVÆLAIÐNAÐUR Talið er að slátur- húsum á landinu muni fækka um þriðjung vegna reglugerðar um búnað sem gerir kleift að flá slátur- dýr hangandi. Mörg sláturhús hafa ekki þennan 50 milljóna króna bún- að og Jón Helgi Björnsson, formað- ur Landssambands sláturleyfishafa, segir óvíst að sum þeirra leggi í slíka fjárfestingu. Það muni flýta tímabærri fækkun húsa. Líkur séu á að ríkið styrki úreldingu sláturhúsa. Helst mun talið að sláturhús í Berufirði, á Breiðdalsvík, á Foss- völlum utan Egilsstaða, í Borgar- nesi, við Laxá í Leirársveit og á Hvammstanga og verði aflögð. ■ Á SKURÐSTOFU Aðferðir við meðhöndlun brjóstakrabba- meins kunna að breytast í kjölfar uppgötv- unar Ástralskra vísindamanna. Þeir telja sig hafa fundið tengsl milli veiru og krabba- meinsins. Mikilvæg uppgötvun: Veira veldur brjósta- krabbameini LONDON, AP Vísindamenn telja sig hafa fundið tengsl milli veiru sem nýlega fannst og brjóstakrabba- meins. Læknar Háskóla Nýju Suður- Wales í Sydney og Sjúkrahúss Karls Bretaprins í Ástralíu upp- götvuðu að veiran, sem kallast HHMMTV, er í 40% vefjasýna sem tekin eru úr krabbameins- sýktum brjóstum og leiddu frek- ari rannsóknir í ljós að einungis 2% kvenna, sem ekki eru með brjóstakrabbamein, hafa sömu veiru í sér. Brjóstakrabbamein hrjáir nú eina af hverjum níu konum í Bret- landi. Vísindamenn segja að frek- ari rannsókna sé þörf en þeir binda þó vonir við að uppgötvunin leiði til nýrra aðferða í baráttunni við sjúkdóminn. „Margir telja að brjósta- krabbamein sé arfgengt en arf- gengi á aðeins við í 5% tilfella. Með öðrum orðum við höfum litla sem enga hugmynd um hvað veld- ur brjóstakrabbameini í 19 af hverjum 20 tilfellum,“ sagði Caroline Ford, en hún stýrir rann- sókninni Áströlsku vísindamennirnir hafa einnig fundið vísbendingar um að margir karlmenn sem fá brjóstakrabbamein séu einnig með veiruna í sér. Hún fannst í helmingi vefjasýna sem tekin var úr karlmönnum með brjósta- krabbamein. ■ Alsír: Gíslum sleppt MALI, AP Fjórtán evrópskum ferða- mönnum, sem hefur verið haldið í gíslingu í eyðimörkum Alsírs síð- an um miðjan febrúar, var sleppt á sunnudag. Upphaflega voru 32 ferðamenn teknir í gíslingu, en sautján þeirra var sleppt í maí. Þá lést einn gíslanna í júní. Gíslarnir voru þreyttir og sársvangir þegar þeim var sleppt, en heilsa þeirra var góð miðað við aðstæður. Að sögn gísl- anna var þeim haldið föngnum í litlum hópum og þeim komið fyr- ir á nýjum felustöðum á hverju einasta kvöldi. Gíslarnir fljúga væntanlega til herflugvallar í Cologne þaðan sem þeir halda til síns heima. ■ Kynferðisbrot: Þriggja ára fangelsi DÓMSMÁL Sextugur maður var dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Vestfjarða fyrir ít- rekuð og alvarleg kynferðisbrot gegn stúlku fæddri 1990 á fjög- urra ára tímabili. Honum var gert að greiða 500 þúsund krónur í miskabætur auk 350 þúsund í málsvarnarlaun og 150 þúsund til réttargæslumanns stúlkunnar. Maðurinn neitaði sök og krafðist sýknu. Dómnum þótti frásögn stúlkunnar trúverðug, skýr og greinagóð. Ekki er talinn vafi á því að hann hafi haft fjölmörg tækifæri til að fremja brotin sem honum er gefið að sök. Einnig þykja niðurstöður læknarann- sóknar styrkja frásögn stúlkunn- ar. Maðurinn sagði samskipti sín við stúlkuna ekki hafa verið frá- brugðin samskiptum við önnur börn og að frásögn hennar væri uppspuni. Sálfræðingur stúlk- unnar segir hana upplifa hræðslu og ótta og að sjálfsálit hennar hafi beðið hnekki. Hún muni þurfa að sækja áframhaldani meðferð og líklegt sé að hún muni þarfnast aðstoðar síðar á ævinni. Við ákvörðun refsingar var lit- ið til þess að brotin gegn stúlkun- ni voru mörg og alvarleg. Hann hafi fært sér í nyt að vera tíður gestur á heimili ömmu hennar og hafi þar með brugðist áunnu trausti með háttsemi sinni. ■ Kauphöllin og Fjármálaeftirlitið: Hyllir undir lok Skeljungsrannsóknar VIÐSKIPTI „Málið er enn í vinnslu en það snýr ekki eingöngu að okkur því það er unnið í samvinnu við Fjár- málaeftirlitið,“ segir Þórður Frið- jónsson, forstjóri Kauphallarinnar, um rannsókn sem fram fer á því hvort lög eða reglur Kauphallarinn- ar hafi verið brotin þann 30. júní þegar 21 prósenta hlutur Shell Petr- oleum í Skeljungi var seldur Burða- rási og Sjóvá-Almennum á undir- verði án þess að tilkynning bærist um viðskiptin fyrr en nokkrum klukkustundum eftir að viðskiptin áttu sér stað. Benedikt Jóhannes- son, stjórnarformaður Skeljungs og Burðaráss, hefur lýst sakleysi í þessu máli og ber við tæknilegum ástæðum svo sem þeirri að yfir- færsla gjaldeyris vegna kaupanna hafi tekið langan tíma. Um svipað leyti og kaupin áttu sér stað þá gerðu Benedikt, stjórnarformaður Skeljungs, og aðrir stjórnendur fyr- irtækisins breytingar á viðskipta- samningum Skeljungs og Shell Petroleum. Benedikt hefur ekki fengist til að upplýsa í hverju þær breytingar voru fólgnar en segir að þær hafi aðeins óveruleg áhrif á aðra hluthafa. Þórður segir að nú hylli undir lok rannsóknarinnar sem staðið hefur í rúmlega sex vikur. „Við reiknum með að mynda okkur skoðun á málinu í þessum mánuði,“ segir hann. Skeljungur verður afskráður hjá Kauphöllinni á næstu vikum en fyr- irtækið Steinhólar sem er að helm- ingshluta í eigu Kaupþings Búnað- arbanka hefur yfirtekið félagið. ■ AKRANES „Ég er ekki tilbúinn til að svara um þetta eða annað sem tengist félaginu,“ segir Grétar Þorsteinsson um fullyrðingar um að tilsjónarmaður sambandsins með Verka- lýðsfélagi Akranes hafi selt úr hlutabréfa- safni félagsins. KAUPHÖLLIN Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinn- ar reiknar með að Skeljungsmálið verði upplýst áður en ágústmánuður verður lið- inn. HELGI LAXDAL Segir Siglingastofnun hafa samþykkt und- anþágu í trássi við lög. „Stofnun sem gengur þannig þvert á skyldur sín- ar hlýtur að tapa tiltrú sjó- manna Afskipti ráðuneytis tryggðu undanþágu Siglingastofnun hafði neitað réttindalausum yfirvélstjóra á Snæfellsnesi um undanþágu en samþykkti fyrir tilmæli ráðuneytis. Ævareiðir vél- stjórar lýsa yfir lögbroti í kjördæmi samgönguráðherra. STURLA BÖÐVARSSON Réttindalaus vélstjóri í kjördæminu á und- anþágu eftir að ráðuneytið skrifaði bréf. Meint launamismunun: Engin svör frá Impregilo KÁRAHNJÚKAR Engin svör fengust hjá ítalska verktakafyrirtækinu Impregilo í gær um ásakanir þess efnis að starfsmönnum við Kárahnjúka væri mismunað í launum eftir þjóðerni. Jón Ingi Kristjánsson, for- maður Afls, starfsgreinafélags Austurlands, sagði í Fréttablað- inu í gær af launauppgjörum að dæma væri ekki hægt að sjá annað en starfsmönnum væri mismunað eftir því hvort þeir væru íslenskir eða erlendir. Á skrifstofu Impregilo á Egilsstöð- um fengust þau svör að að eng- inn talsmaður væri til þess að svara fyrir þetta, heldur var bent á Landsvirkjun. Þorsteinn Hilmarsson, upp- lýsingafulltrúi Landsvirkjunar, segir það ekki hlutverk fyrir- tækisins að svara fyrir um kjaramál starfsmanna Impreg- ilo. Hann segist hafa heyrt af meintri launamismunun, en það hafi ekki fengist staðfest. Það sé alveg ljóst að Impregilo beri að fara eftir virkjunarsamning. Aðbúnaður starfsmanna við Kárahnjúka hefur einnig verið gagnrýndur, en samkvæmt nýrri aðgerðaáætlun um uppbyggingu vinnubúða eiga svefnrými fyrir um 800 manns að vera kominn upp í lok september. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.