Fréttablaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 4
4 19. ágúst 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Fórstu í miðbæ Reykjavíkur á
Menningarnótt?
Spurning dagsins í dag:
Áttu gæludýr?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
47%
53%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Lögreglufréttir
■ Lögreglufréttir
BJÖRGUN Fjölveiðiskipið Guðrún
Gísladóttir reyndist svo gott sem
óskemmt á þeirri hlið sem sneri
að hafsbotni við Noreg, frá því í
fyrrasumar þar til á sunnudag, að
skipið var rétt við.
„Það kom ekkert óvænt í ljós.
Það er skeljasandur á hafsbotnin-
um hér og það reyndist hvorki
vera grjót né klappir á milli botns-
ins og skipsins. Ef eitthvað er þá
lítur þetta betur út en við áttum
von á,“ segir Haukur Guðmunds-
son, einn eigenda Guðrúnar Gísla-
dóttur.
Haukur segir sáralitla olíu
hafa lekið úr skipinu eftir að því
var snúið. Olíugirðingu hafi verið
komið fyrir við staðinn og starfs-
menn síðan tryggt að allt væri í
lagi.
„Næsta skref er að taka þá
fimm tanka sem lyftu skipinu af
skipinu og festa þá aftur niður við
botn. Það þarf einnig að vinna smá
breytingar á inndælingunni í skip-
ið sjálft. Við erum að gæla við að
klára þetta á tveimur til þremur
vikum - ef ekkert kemur okkur
mikið á óvart. Við erum brattir í
bili,“ segir Haukur. ■
DÓMSMÁL „Flosi sendi skilaboð til
bróður okkar 12. ágúst um að hann
hafi fengið dóm og að afplánun
væri að hefjast,“ segir Jóna Arn-
órsdóttir, systir Flosa Arnórssonar,
sem var handtekinn fyrir ólögleg-
an vopnaburð á flugvelli í Dubai í
apríl. Flosi sat í fangelsi í fjörutíu
daga en eftir það tók við farbann
sem gilti þar til dómur yrði kveð-
inn upp í máli hans.
Jóna segir að
bróðir þeirra hafi
fengið skilaboð frá
Flosa um að dómur
væri fallinn og
hann væri að hefja
afplánun, en meira hefði það ekki
verið. Hún segist hafa talað við
prestinn á norska Sjómannsheimil-
inu sem Flosi bjó á til að fá ein-
hverjar upplýsingar. Í útvarpinu
var sagt að honum liði vel og væri
á lögreglustöð. Á daginn hafi kom-
ið að enginn vissi hvar hann var.
Fyrstu fjóra dagana fékk fjöl-
skyldan engar upplýsingar og
heyrðu ekkert frá Flosa. Utanríkis-
ráðuneytið, norska sendiráðið og
presturinn voru að reyna að kom-
ast að því hvar hann væri niður-
kominn. „Presturinn sem er mjög
almennilegur hætti ekki að leita
fyrr en hann varð einhvers vísari.
Á sunnudagsmorguninn síðasta
heimsótti hann Flosa í stórt fang-
elsi í Abu Dabhi. Mér skilst að
heimsóknartími sé tvisvar í viku
en fangarnir fá ekki að hringja.“
Flosi fékk tvo dóma, samtals í
fjögurra mánaða fangelsi, annars
vegar fyrir að vera með skotvopn
og hins vegar fyrir að hafa með-
ferðis tuttugu og átta skothylki..
Flosi hefur þegar setið inni í
fjörutíu daga og dragast þeir frá
refsitíma. Lögmaður hans hefur
áfrýjað dómnum og vill freista
þess að hann fái að sitja dómana af
sér samtímis. Áfrýjunin verður
tekin fyrir 24. ágúst og að sögn lög-
mannsins segist hann vonast til að
eftir það verði hann laus innan
fárra daga. Hann segir enga hættu
á að dómurinn verði þyngdur.
Dómar geti aðeins verið þyngdir
ef ákæruvaldið áfrýjar. Þar í landi
falli einn fjórði refsingarinnar
sjálfkrafa niður. Því þurfi Flosi að
sitja inni í þrjá mánuði ef áfrýjun-
in beri ekki tilætlaðan árangur.
hrs@frettabladid.is
Lést eftir lyftuslys:
Höfuðið
klipptist af
HOUSTON, AP Læknir, við Christus
St. Joseph sjúkrahúsið í Houston
í Texas, lést eftir slys í lyftu spít-
alans á laugardag. Bilun olli því
að lyftudyrnar klemmdu skyndi-
lega axlir Hitoshis Nikaidohs, 35
ára, þegar hann var á leið inn í
lyftuna. Lyftan fór af stað og
klippti höfuðið af Nikaidoh.
Starfsmaður sjúkrahússins var
inni í lyftunni og varð vitni að
ósköpunum. Hann naut áfalla-
hjálpar á bráðadeild sjúkrahúss-
ins. Árlega deyja um það bil
þrjátíu Bandaríkjamenn af völd-
um slysa í lyftum og rúllustigum
og rösklega 17.000 slasast. ■
Gramir lestarfarþegar
í Ástralíu:
Hrækja á
starfsmenn
SIDNEY, AP Starfsmenn áströlsku
járnbrautanna segja að farþegar
hræki á þá og skeyti skapi sínu á
þeim ef lestarferðum seinki. Stétt-
arfélag starfsmanna lestanna vill
að efnt verði til auglýsingaher-
ferðar þar sem skýrt komi fram að
ekki sé við almenna starfsmenn að
sakast ef seinkun verður á áætlun.
Talsmaður stéttarfélagsins segir
að hótunum í garð starfsmanna
hafi fjölgað óhugnanlega mikið að
undanförnu og við það verði ekki
unað. Almennir starfsmenn taki
ekki ákvarðanir sem valdi seink-
unum. ■
ÚTSKRIFAÐAR
Systurnar Sa Rang og Ji Hye hafa nú verið
útskrifaðar af sjúkrahúsi, réttum mánuði eft-
ir að læknar aðskildu þær.
Kóresku síamstvíburarnir:
Útskrifaðir
af sjúkra-
húsi
SINGAPÚR, AP Kóresku tvíburasyst-
urnar, Sa Rang og Ji Hye voru út-
skrifaðar af sjúkrahúsi í Singapúr
á laugardag en læknar aðskildu
þær í síðasta mánuði. Systurnar,
sem nú eru fimm mánaða gamlar,
voru samvaxnar á mjóhrygg og
mjöðmum og deildu þörmum og
kynfærum að hluta. Tvíburasyst-
urnar njóta enn aðhlynningar á
göngudeild sjúkrahússins í Singa-
púr og óvíst hvenær þær snúið aft-
ur heim til Kóreu. Á næstu árum
eiga systurnar eftir að gangast
undir fjölda lýtaaðgerða. ■
LANDHELGISGÆSLAN Varðskip Land-
helgisgæslunnar hafa fjórum
sinnum farið til Færeyja á þessu
ári til að sækja olíu.
Hafsteinn Hafsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Landhelgisgæsl-
unnar, segir ástæðuna vera þá að
olían sé mun ódýrari í Færeyjum
en á Íslandi. Það muni um tíu
krónum á lítrann og að sparnaður-
inn nemi um átta til tíu milljónum
króna á þessu ári.
„Við erum ekki að fara sérferð
héðan til að gera þetta,“ segir
Hafsteinn. „Það er bara ef við
erum nálægt Færeyjum að við
förum þangað eftir olíu. Þetta er
innan við sólarhrings sigling og
þetta hefur gerst fjórum sinnum á
þessu ári og ekki í síðasta skiptið.
„Hafsteinn segist ekki muna til
þess Landhelgisgæslan hafi grip-
ið til þessa ráðs áður. Aðspurður
segir hann að ekki hafi verið
reynt að semja sérstaklega við ís-
lensku olíufélögin um að fá olíuna
á sama verði og í Færeyjum. Í
raun sé samningurinn við ís-
lensku félögin ágætur. Verð á olíu
í Færeyjum sé hinsvegar óvenju
lágt. ■
Súðvíkingar:
Vilja þverun
Mjóafjarðar
SAMGÖNGUR Hreppsnefnd Súðavík-
urhrepps hefur fjallað um fram-
komnar tillögur Vegagerðarinnar
um endurbyggingu Djúpvegar.
Fréttavefurinn bb.is vitnar í
skýrslu Vegagerðarinnar um mat
á umhverfisáhrifum og segir að
hreppsnefndin sé sammála Vega-
gerðinni um að fara leið 3, þar
sem gert er ráð fyrir þverun
Mjóafjarðar um Hrútey og þver-
un Reykjarfjarðar. Hreppsnefnd-
in bókaði að hún gerði ekki at-
hugasemdir við matsskýrslu
Vegagerðarinnar. Skýrsluhöfund-
ar telja þverun Mjóafjarðar, sem
ágreiningur hefur verið upp um,
ekki valda umtalsverðum um-
hverfisáhrifum. ■
GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR
Vonir standa nú til að íslenski tog-
arinn sem sökk við Noreg í fyrra
sumar náist upp á yfirborðið á
næstu vikum.
Botnhlið Guðrúnar Gísladóttur óskemmd:
Lyft á þremur vikum
TÝR
Landhelgisgæslan sparar 8 til 10 milljónir á árinu með því að sækja olíu til Færeyja.
Skip Landhelgisgæslunnar sigla til Færeyja eftir olíu:
Spara átta til tíu milljónir
Dómurinn þyngist ekki
Lögmaður Flosa Arnórssonar, sem situr í fangelsi í Abu Dabhi ,segir
að ekki sé hætta á að dómur Flosa þyngist við áfrýjun. Það geti
einungis gerst í þeim tilfellum sem ákæruvaldið áfrýjar.
■
Þar í landi falli
einn fjórði refs-
ingarinnar
sjálfkrafa niður.
FLOSI ARNÓRSSON
Lögmaður Flosa vonast til að fangelsisvist hans verði í heildina tveir mánuður í stað fjögurra.
FÉLL AF MÓTORHJÓLI Maður hlut
opið beinbrot á fæti þegar hann
féll af mótorhjóli suður af Keldu-
hverfi á sunnudag.
HAFNAÐI Á STEINI Tveir fransk-
ir ferðamenn lentu utan vegar á
malarvegi á Hrunamannavegi við
Hvítárdal í gær. Ökumaður
missti stjórn á bifreiðinni sem
hafnaði á steini án þess að velta.
Farþeginn var fluttur á slysa-
deild. Bíllinn var nokkuð
skemmdur.