Fréttablaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 26
■ ■ KVIKMYNDIR Sjá www.kvikmyndir.is  Sambíóin Kringlunni, s. 588 0800  Sambíóin Álfabakka, s. 587 8900  Háskólabíó, s. 530 1919  Laugarásbíó, s. 553 2075  Regnboginn, s. 551 9000  Smárabíó, s. 564 0000  Sambíóin Keflavík,Ýs. 421 1170  Sambíóin Akureyri, s. 461 4666  Borgarbíó, Akureyri, s. 462 3500 ■ ■ FYRIRLESTUR  12.05 Dr. Hans Köchler, prófessor í heimspeki og deildarforseti heimspeki- deildar Innsbruck háskóla í Austurríki, heldur opinn fyrirlestur í Odda, stofu 101, um samspil valds og aþjóðaréttar, sem hann nefnir: „The Dialectic of Power and Law: The United Nations and the „New World Order““. ■ ■ ÚTIVIST  19.30 Í kvöld stýrir Örlygur Hálfdanarson kúmengöngu í Viðey. Hann fylgir hópnum um þorpið á Sundbakka og skoðuð verður ljós- myndasýning í skólanum sem fjallar um byggðina. Að því loknu verður týnt kúmen og eina sem þarf til þess eru skæri og poki. Siglt er til Viðeyjar frá Sundahöfn. ■ ■ TÓNLEIKAR  20.30 Á sumartónleikum í Lista- safni Sigurjóns Ólafssonar flytja þau Guðrún Birgisdóttir flautuleikari, Sigurð- ur Snorrason klarinettuleikari og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari verk eftir Camille Saint-Saëns og Dmitiri Shostakovich.  20.00 Kammersveitin Ísafold held- ur tónleika í Borgarneskirkju, Borgarnesi. ■ ■ SÝNINGARLOK  Sýningunni „Meistarar formsins: Úr höggmyndasögu 20. aldar“ í Lista- safninu á Akureyri lýkur í dag. Sýning- in er gerð í samvinnu við Ríkislista- safnið í Berlín (Nationalgalerie Berlin) og hefur hún hlotið frábærar viðtökur. ■ ■ SÝNINGAR  Cesco Soggiu og Karl Kristján Davíðsson sýna í Galleríi Sævars Karls í Bankastræti. Sýningin stendur til 28. ágúst.  Sýning á verkum Ragnars Kjartans- sonar stendur yfir í Listasafni ASÍ.  Guðbjörg Lind hefur opnað mál- verkasýningu í aðalsal Hafnarborgar, menningar- og listastofnunar Hafnar- fjarðar. Viðfangsefni Guðbjargar Lindar hafa frá upphafi verið tengd vatni, fyrst fossum og síðar óræðum og ímynduð- um eyjum á haffleti.  Anna Jóelsdóttir hefur opnað sýn- inguna Flökt í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar.  Samsýning 20 akureyrskra lista- manna stendur yfir í Ketilhúsinu á Ak- ureyri.  Sýning á nýjum verkum Rögnu Sig- rúnardóttur var opnuð í gær í Listhúsi Ófeigs að Skólavörðustíg 5, Reykjavík. Viðfangsefni Rögnu er blómaskeið lif- andi hluta og spurningin hvort hræðslan við að eldast sé það sem takmarkar feg- urðarmat okkar. Þetta er 13. einkasýning Rögnu hér á landi.  Íslensk og alþjóðleg samtímalista- verk eru til sýnis í Safni, Laugavegi 37.  Þrjár sýningar eru í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsinu. Þetta eru sýningarnar Humar eða frægð - Smekkleysa í 16 ár, Innsýn í alþjóð- lega samtímalist á Íslandi og Erró Stríð.  Sumarsýning í Listasafni Íslands á úrvali verka í eigu safnsins.  Í Gerðarsafni í Kópavogi stendur yfir sýning á málverkum Jóhannesar Kjarvals úr einkasafni Þorvaldar Guð- mundssonar og Ingibjargar Guðmunds- dóttur.  Baldvin Ringsted og Jóna Hlíf Halldórsdóttir eru með myndlistarsýn- ingu í Bögglageymslunni, Listagilinu á Akureyri. Opið virka daga 17-22 og um helgar 14-18. Sýningin stendur til 1. september.  Kristján Guðmundsson er með sýningu í Kompunni, Kaupvangsstræti 23. Akureyri. Á sýningunni er eitt verk gert úr plasti og gulli. Einnig verður til sýnis og sölu bókverkið (DOKTORSRIT- GERÐ) eftir Sigrúnu Þorsteinsdóttur og Kristján, sem kom út fyrr á þessu ári. Sýning Kristjáns er opin daglega 14-17 til 4. september.  Sumarsýning Handverks og Hönn- unar stendur yfir í Aðalstræti 12. Til sýn- is er bæði hefðbundinn listiðnaður og nútíma hönnun úr fjölbreyttu hráefni. Meðal þess sem sýnt er, eru munir úr tréi, roði, ull, hör, leir, selskinni, hrein- dýraskinni, pappír, silfri og gleri frá 26 aðilum. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga og lýkur 31. ágúst. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. 19. ágúst 2003 ÞRIÐJUDAGUR hvað?hvar?hvenær? 16 17 18 19 20 21 22 ÁGÚST Þriðjudagur Við höfum verið vinir og ná-grannar frá því við vorum smákrakkar, en samt ekki látið verða af þessu fyrr en nú að leika saman sem tríó,“ segir Guðrún Birgisdóttir flautuleikari, sem ætl- ar að spila verk eftir Camille Saint- Saëns og Dmitri Shostakovich á Sumartónleikum í Listasafni Sig- urjóns Ólafssonar í kvöld ásamt þeim Sigurði Snorrasyni klar- inettuleikara og Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur píanóleikara. „En það er nú ekki bara út af slugsi sem við höfum ekki spilað saman áður, heldur eru ekki mörg verk til fyrir þessa hljóðfærasam- setningu.“ Guðrún segir tónlistina, sem flutt verður í kvöld, vera afskap- lega ljúfa og létta. Eftir Saint- Saës flytja þau Sónötu op. 167 fyr- ir klarinettu og píanó, Rómönsu op. 37 fyrir flautu og píanó og Tar- antellu op. 6 fyrir flautu, klar- inettu og píanó. Eftir Shosta- kovich flytja þau Fjóra valsa fyr- ir flautu, klarinett og píanó. „Þetta er mjög aðgengileg tón- list, en samt forvitnileg líka vona ég, því hvorki Shostakovitsj né Saint-Saëns eru mikið leiknir hér í kammertónlist. Og þeir eru mjög flottir saman.“ Að venju eru tónleikarnir í Sig- urjónssafni um það bil klukku- stundar langir. Á eftir gefst færi á setjast niður til að fá sér kaffi og kökur og horfa dreyminn út yfir Sundin. „Ég held að flestir hljóðfæra- leikarar velji eitthvað sumarlegt til þess að flytja fyrir hana Birgittu, ekkju Sigurjóns, sem hefur staðið fyrir þessari tón- leikaröð á hverju sumri í eitthvað á annan áratug.“ gudsteinn@frettabladid.is ■ TÓNLIST Flottir saman TRÍO GUÐRÚNAR, SIGURÐAR OG ÖNNU GUÐNÝJAR Þau spila ljúfa sumartónlist í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld klukkan hálfníu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.