Fréttablaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 32
Bakþankar KRISTÍNAR HELGU GUNNARSDÓTTUR SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 F í t o nferskt íslenskt grænmeti sérmerkt þér! Maður nokkur fór með stórfjöl-skylduna í miðbæinn á Menn- ingarnótt. Hann var með móður, eig- inkonu, tengdamóður, mágkonu og stórum krakkaskara sem hann átti að mestum hluta. Það er árlegur við- burður að hann rölti í þessum hópi um stræti og torg og stundum er hóp- urinn jafnvel enn stærri. Hann sér ekki um skipulagningu ferðarinnar. Hún er skipulögð utan um hann af kvenpeningnum í lífi hans. Sjálfur dæsir hann og andvarpar. Af hverju erum við svona mörg? Hvað er plan- ið? Hvað viljið þið sjá? Hvert erum við að fara? Eigum við að mæla okk- ur mót ef við týnumst? Hann fær sjaldnast svör við spurningunum frá hrifnæmum samferðakonum. UM HELGINA uppgötvaði hann loks um hvað málið snerist. Þetta er nefnilega hinn árlegi menningarrat- leikur stórfjölskyldunnar. Þegar einn týnist finnst annar. Mikilvægt er að stöðva á götuhornum, skima yfir mannfjöldann, kanna hvort einhvers staðar sé týnt barn sem maður á, tengdamóðir á villigötum, móðir sem hefur skipt um gönguhóp eða eigin- kona sem flögrar í hvarf. Konurnar í lífi hans héldu á prentaðri dagskrá, þeyttust á milli staða, en komust ekki fyrir á stofutónleikum, misstu af karlakórnum, sáu óljóst glitta í hvítar doppur á þeytingi í mannþröng og giskuðu á að það væri flamengó- dansari, voru of snemma til að sjá síld í ráðhúsi og misstu af leiklist í Iðnó. AÐ LOKUM náði hann dagskránni. Þið missið af öllu. Ég skal sjá um þetta, sagði hann þreyttur. Hvað lang- ar þig að sjá? spurðu samferðakon- urnar auðsveipar. Mig langar að sjá tenórana þrjá, sagði hann og blaðaði í dagskránni. Þeir eru ekki, var svarið. Gott ráð til að gleðja vonsvikna er að gefa þeim að drekka. Hersingin kom sér fyrir á kaffihúsi við Tjörnina. ÉG VIL EKKI missa af Stuðmönnum og flugeldunum, andvarpaði okkar maður. Ég er með flugeldana á hreinu, sagði mágkonan. Þeir byrja klukkan tólf. Nei, ellefu, sagði ein- hver og því var naumlega bjargað að þessi ratleikur endaði með ósköpum. Stórfjölskyldan barst með straumn- um og furðulega lítil afföll urðu af ættmennum. Bleikum stjörnum rigndi yfir Reykvíkinga sem leituðu saman að menningu fram á nótt. Næst er ráð að vera einn á línuskaut- um með dagskrána í plasti. Í leit að menningu

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.