Fréttablaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 19. ágúst 2003 hann sæi ekkert því til fyrirstöðu að taka upp línuívilnun strax í haust. Ef marka má orð Guðmund- ar þá gerði Davíð betur, hann bað bæjarstjórann á Ísafirði að bera Guðmundi kveðju sína og þakklæti fyrir að hafa fengið línuívilnunina í gegn á landsfundinum. Þetta hefði bjargað kosningarbaráttunni fyrir Sjálfstæðisflokkinn eftir að sjávar- útvegsmál urðu allt í einu þunga- miðja kosningabaráttunnar. Á þing- flokksfundi Sjálfstæðismanna í þessari viku var tekist á um hvort standa eigi við loforðið strax. Einna hatrammastur í andstöðu sinni þar var Halldór Blöndal, þingforseti, sem einnig sat í forsæti landsfund- arins þegar tillaga Guðmundar var samþykkt. Davíð hefur stundum sagt að ekki sé sama hverjir það eru sem lofa. Nú hefur hann horfið frá þeirri skoðun að taka beri upp línuívilnun í haust, en segir að þing- ið verði að ræða málið og líkast til komi ívilnunin ekki til fram- kvæmda fyrr en eftir ár. Þetta sama hefur Halldór Ásgrímsson sagt. Vandi þeirra Davíðs og Hall- dórs er sá að þrír stjórnarþing- menn eiga pólitískt líf sitt undir því að staðið verði við línuloforð- ið. Einar Oddur, Einar Kristinn og Kristinn H. Gunnarsson munu ekki þurfa að kemba hærurnar í pólitík ef ekki tekst að friða trillukarlana. Þessir þrír þing- menn ráða meirihluta ríkisstjórn- arinnar. Reyndar bendir fátt til þess að Guðmundur trillukarl í Bolungarvík verði til friðs. Hann undirbýr nú stórfund á Ísafirði um mánaðarmótin til þess að mót- mæla því sem hann kallar svikin loforð. Krafan er: Línuívilnun strax. Hið loðna loforð Davíðs, um að engin fyrirstaða væri gegn því að taka upp línuívilnun í haust, er nú eins og svart ský yfir ríkisstjórn- inni. Örlögin ráðast af því hvernig ársfrestun fer í smábátamenn og aðra þá sem vilja hag trillukarla sem mestan og bestan, hvað sem það kostar. Halldór og Davíð þurfa að gera upp við sig hvort þeir halla sér að stórútgerðinni eða smábátaútgerðinni. Þetta eru í raun átök um hugmyndafræði en ekki stóra hagsmuni. Það eru gömul sannindi að oft veltir lítil þúfa þungu hlassi. Ríkisstjórnin stendur nú frammi fyrir smábáta- mönnum, gráum fyrir járnum. Krafan er að stjórnin standi strax við stefnuyfirlýsingu sína og auki byggðarkvótann og taki upp línu- ívilnun. ■ HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Vill að Alþingi ræði línuívilnun. DAVÍÐ ODDSSON Gaf loforð á Ísafirði en vill nú fresta. SKIPULAG Skipulagsyfirvöld í Reykjavík segja byggingaráform í Lundi í Kópavogi samræmast vel markmiðum um „þéttingu byggðar og sjálfbæra þróun.“ Bæjarstjórinn í Kópavogi sendi í júlí Reykjavíkurborg erindi vegna breyttrar notkunar á Lundi. Í stað 58 þúsund fermetra hátæknimið- stöðvar yrði svæðið nýtt fyrir 480 til 500 íbúðir, leikskóla og hverfis- verslun. Skipulagsstofnun hafi þeg- ar sagt breytinguna vera óveru- lega. Í umsögn skipulags- og bygg- ingarsviðs Reykjavíkur er tekuið undir það að breytingin sé óveru- leg. Mikilvægt sé hins vegar að móta vinnureglur til framtíðar um eðlileg frávik frá áætlaðu byggingamagni. Skipulagsyfirvöld í Reykjavík segjast reyndar enn ekki hafa fengið tillögu að deiliskipulagi Lundarsvæðisins. Á þessu stigi vilji þau þó minna á nálægð Lund- ar við væntanlega stofnbraut í dalnum og munna fyrirhugaðra Kópavogsgangna. Hafa verði í huga hljóðstigið þegar stofnbraut- in er komin í notkun. Eins verði að vanda til útfærslu Lundar með til- liti til þess að svæðið falli vel að núverandi byggð. ■ LUNDUR Skipulags- og byggingarnefnd Reykjavíkur hefur samþykkt jákvæða umsögn embætt- ismanna borgarskipulags um fyrirhugaða stórhýsaþyrpingu í Lundi í Fossvogsdal. Skipulagsyfirvöld í Reykjavík vilja þéttingu byggðar: Borgin jákvæð gagnvart Lundi FERSK Í BÚÐIR Á HVERJUM DEGI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.