Fréttablaðið - 19.08.2003, Side 29
ÞRIÐJUDAGUR 19. ágúst 2003
skemmtileg birta
fyrir alla
93.000 eintök
frítt me› Fréttabla›inu á föstudögum
sjónvarpsdagskráin
vi›töl
greinar
ver›launagátur
pistlar
sta›reyndir og sta›leysur
frítt á föstudögum
Skráning í síma 511-1575 og á www.hreyfigreining.is
Námskeið um lífsstíl
Morguntímar • Hádegistímar • Kvöldtímar
Innifalið í öllum námskeiðum er:
3 fastir tímar á viku, aðgangur að opnum tímum og tækjasal, mappa full af fróðleik um
þjálfun, næringu og lífsstíl, tími með þjálfara í tækjasal, fyrirlestur um næringarfræði og
lífsstíl, fitumælingar og þrekpróf, regluleg vigtun, matardagbók og hreyfingardagbók,
samanburður á mælingum í lok námskeiðs, stuttermabolur og vatnsbrúsi.
Fyrstu námskeiðin hefjast 25. ágúst
Karlaátak – 8 vikur, þrisvar sinnum í viku. 14.900 kr.
Í kjólinn – 8 vikur, þrisvar sinnum í viku. 14.900 kr.
Stórátak – 16 vikur, þrisvar sinnum í viku. 26.900 kr.
Unnur Guðrún
Pálsdóttir,
sjúkraþjálfari
Hólmfríður B.
Þorsteinsdóttir,
sjúkraþjálfari
Ása Dagný
Gunnarsdóttir,
íþróttakennari og
nemi í sjúkraþjálfun
Emilía
Borgþórsdóttir,
sjúkraþjálfari
Vaka
Rögnvaldsdóttir,
íþróttakennari
Guðrún
Höskuldsdóttir,
Þolfimileiðbeinandi
TÓNLEIKAR Frá því að Foo Fighters
völdu Kentucky sveitina My
Morning Jacket til þess að hita
upp fyrir sig á flestum tónleikum
þeirra á tónleikaferð þeirra um
Evrópu, hefur athygli fjölmiðla á
sveitinni stóraukist. Sveitin leikur
afar heiðarlegt, áreynslu- og til-
gerðarlaust rokk sem best mætti
líkja við tóna The Band og Neil
Young. Þeim eru þannig eðlislæg
undirstöðuatriði í rokkinu sem
hafa nær gleymst á síðustu árum.
Jim James og sveit hans, My
Morning Jacket, eiga þessa auknu
athygli einum manni mikið að
þakka, Dave Grohl söngvara og
höfuðpaur Foo Fighters:
„Hann komst einhvern veginn
yfir aðra plötu okkar, At Dawn, og
tók hana með sér í ferðalag til
Bermúda,“ svarar Jim aðspurður
um hvernig kynni þeirra og Foo
Fighters urðu. „Hann segist hafa
hlustað á hana ítrekað í fríinu. Svo
bauð hann okkur bara að koma
með á tónleikaferðalag.“
Aðspurður viðurkennir Jim að
hann dái bæði tónlist The Band og
Neil Young. Hann segir þó að
sveitin sé ekkert endilega að reyna
að fylgja í fótspor þeirra. Hann fer
þó ekki leynt með andúð sína á
þeirri rokktónlist sem mest fer
fyrir þessa dagana. Hann talar
eins og ungur maður með gamalt
hjarta.
„Við reynum að láta plöturnar
okkar hljóma eins gamaldags og
mögulegt er. Samt reynum við að
hljóma nýstárlega á sama tíma.
Við notum bara analog-upptöku-
tæki. Ég er ekki mikill aðdáandi
stafrænnar hljóðupptöku. Stund-
um neyðist maður þó til að styðjast
við tölvurnar, það hljómar ekki
eins raunverulega.“
Sveitin hefur því tekið upp allar
þrjár breiðskífur sínar á segul-
band. Þá fyrstu á fjögurra til átta
rása tæki. Fyrir þá næstu höfðu
liðsmenn svo efni á því að kaupa
sér 16 rása tæki. Fyrir þriðju plöt-
una, „It Still Moves“, var keypt
annað 24 rása tæki og segir Jim að
sveitin hafi ekkert að gera með
fleiri upptökurásir en það.
„Ég held að mig langi að nota
færri næst. Það er betra að hafa
takmarkanir. Bítlarnir tóku upp
Sgt. Peppers plötuna sína á átta
rása segulbandstæki. Það er með
flóknari hljóðupptökum allra tíma.
Þú átt ekki að þurfa meira. Þeir
þurftu bara að nota á sér heilann
og sköpunargáfuna í stað þess að
styðjast við eitthvað á tölvuskjá.“
Sveitin hefur ekki enn náð telj-
andi vinsældum í heimalandi sínu
og hefur í raun gengið betur í Evr-
ópu. Strax eftir fyrstu plötuna,
„Tennesee Fire“, náði sveitin að
aðdáendahópi í Hollandi og Belgíu.
Sveitin vakti það mikla athygli þar
að hollenskir kvikmyndagerðar-
menn sáu sig tilneydda til þess að
gera um þá heimildamynd.
„Það var blaðamaður sem skrif-
aði afskaplega fallega um okkur -
hvernig líðan tónlistin hafði á hann
- það minnti hann á þá tíma þegar
hann gekk í skóla. Ég hefði viljað
lesa hana en hún var á hollensku.
Eftir þessa grein fóru fleiri að taka
eftir okkur, önnur blöð, útvarps-
stöðvar og eigendur tónleikastaða.
Þeir borguðu farið fyrir okkur yfir
og þegar við komum þangað var
búið að ráða kvikmyndagerðar-
menn til þess að gera heimilda-
mynd um okkur. Þeim þótti svo
magnað að hljómsveit sem enginn
í Bandaríkjunum þekkti væri orð-
in þekkt í þeirra landi. Þannig
langaði þá að fylgjast með við-
brögðum okkar. Þetta var virki-
lega frábær og dýrmæt upplifun
fyrir okkur,“ segir Jim að lokum
og segist vonast til þess að hitta fé-
laga sína, Braga Ólafsson og
bræðurna Mike og Danni Pollock,
á nýjan leik.
biggi@frettabladid.is
„Stafrænt er ekki
eins raunverulegt“
Tónleikar
MY MORNING JACKET
■ hita upp á tónleikum Foo Fighters í
Laugardalshöll 26. ágúst ásamt Vinyl.
Fréttblaðið náði einkaviðtali við hljóm-
sveitarmeðlimi en þá hlakkar mikið til
tónleikanna.
MY MORNING JACKET
Jim segir að liðsmenn sveitarinnar séu
mikil borgarbörn.