Fréttablaðið - 10.10.2003, Side 6
6 10. október 2003 FÖSTUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 75.92 -0.04%
Sterlingspund 126.54 0.31%
Dönsk króna 12.08 0.14%
Evra 89.74 0.16%
Gengisvístala krónu 125,74 -0,16%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 330
Velta 5.179 milljónir
ICEX-15 1.845 0,51%
Mestu viðskiptin
Grandi hf. 228.936.782
Síldarvinnslan hf. 143.709.252
Landsbanki Íslands hf. 125.463.672
Mesta hækkun
Grandi hf. 4,35%
Kögun hf . 4,00%
Landssími Íslands hf. 1,65%
Mesta lækkun
Austurbakki hf. -3,17%
Bakkavör Group hf. -1,25%
Og fjarskipti hf. -1,06%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ 9.680,0 0,5%
Nasdaq 1.911,9 1,0%
FTSE 4.313,9 1,1%
DAX 3.481,9 2,5%
NK50 1.329,8 0,3%
S&P 1.038,7 0,5%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Hvað heitir forstöðumaður Hagfræði-stofnunar Háskóla Íslands?
2Arnold Schwarzenegger er nýr fylkis-stjóri í Kaliforníu. Hver fékk næst
flest atkvæði í kosningunum?
3Nú stendur til að selja Landssíma Ís-lands. Hver er forstjóri fyrirtækisins?
Svörin eru á bls. 47
Formaður landbúnaðarnefndar vill að Samkeppnisstofnun skoði kjötmarkaðinn:
Óeðlilegir viðskiptahættir
ALÞINGI Vegna gífurlegs framboðs
á hvítu kjöti sem selt er undir
framleiðsluverði telur Drífa
Hjartardóttir, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins og formaður land-
búnaðarnefndar, að Samkeppnis-
stofnun eigi að skoða málið.
„Það er mjög óeðlilegt að fara
svona inn á markað og borga með
vöru langtímum saman,“ segir
Drífa. „Í raun er kílóið selt á um
100 krónum undir framleiðslu-
kostnaði. Þetta eru mjög óeðlileg-
ir viðskiptahættir. Bankarnir
hafa lánað ótæpilega til stórra
búa og þeir svínabændur sem eru
með minni bú hafa lent undir, því
þeir hafa ekki sama aðgang að
bankakerfinu og stóru aðilarnir.“
Drífa segir að í Bandaríkjunum
og Frakklandi sé beinlínis bannað
að flytja vöru inn á markað sem er
undir framleiðslukostnaði.
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra segist ekki hafa skoðað
það hvort ástæða sé til þess að
Samkeppnisstofnun fari í málið.
„Bændurnir fara auðvitað með
sín málefni og verða að meta það.
Það er enginn vafi að það hafa
margir aðilar verið með inngrip í
markaðinn, ekki bara bankarnir. Í
uppbyggingu kjúklingabúa hafa
margir komið að; Byggðastofnun,
Lánasjóður landbúnaðarins og
sláturfélög bændanna sjálfra.
Þannig að það er við marga að
sakast og ekki einfalt að finna
sökudólginn.“ ■
Brostnar forsendur
búvörusamnings
ALÞINGI Forsendur búvörusamn-
ingsins eru brostnar. Þetta kom
fram í máli Einars Odds Krist-
jánssonar, þingmanns Sjálfstæð-
isflokksins, í utandagskrárum-
ræðum um vanda sauðfjár-
bænda.
Anna Kristín Gunnarsdóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar
sem var málshefjandi, sagði að sú
leið sem farin hefði
verið að því að
styrkja sauðfjár-
rækt og bæta af-
komu bænda væri
kolröng.
„Greinin á nú í
meiri erfiðleikum en nokkru sinni
fyrr og sauðfjárbændur eina stétt
landsins sem í heild má kalla fá-
tæka,“ sagði Anna Kristín. Þórunn
Sveinbjarnardóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar, tók undir orð
Einars Odds. Sagði hún tímabært
að stjórnvöld horfðust í augu við
og viðurkenndu þann vanda sem
bændur stæðu frammi fyrir.
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra segist ekki getað haldið
því fram að forsendur samnings-
ins séu brostnar.
„Ég hef skipað nefnd sem er að
vinna mjög hratt að því að skila til-
lögum til ríkisstjórnarinnar um það
til dæmis hvernig hægt er að bæta
og styrkja samninginn. Ég vil auð-
vitað ekki vera sá sem segir upp
þessum góða samningi sem innihélt
mikla peninga og á margan hátt
nýja von fyrir sauðfjárræktina - það
verður að vera mat bændanna. Telja
þeir að svo sé og ef þeir gera það þá
auðvitað segja þeir samningnum
upp og leita eftir öðrum eða biðja
um endurskoðun á núverandi samn-
ingi.“
Guðni segir það vera sína trú að
bændur muni ekki segja samning-
unum upp. Hann segir stöðu á kjöt-
markaði vera mjög erfiða um þess-
ar mundir vegna breyttra markaðs-
aðstæðna.
„Ég trúi því að á næstunni muni
þetta ástand á kjötmarkaðnum jafn-
ast. Það gerir það alltaf þegar spen-
na er mikil vegna offramleiðslu.“
Landbúnaðarráðherra segir vel
geta verið að lendingin í málinu
verði sú að gerðar verði endurbæt-
ur á samningnum.
„Við vitum að það eru of margir
að framleiða of mikið. Þegar samn-
ingurinn var gerður á sínum tíma
þá gerðum við bændum tilboð um
að hætta og hverfa til annarra star-
fa og það notuðu margir sér það. Ég
get samt ekki sagt hvort slíkt verði
upp á teningnum núna. Ég vil fyrst
sjá tillögur nefndarinnar.“
Búvörusamningurinn var undir-
ritaður árið 2000. Hann er til sjö ára
og samkvæmt honum veitir ríkið
tæpum 18 milljörðum króna til
bænda á tímabilinu.
trausti@frettabladid.is
Fyrrum toppur
Body Shop:
Í forystusveit
Hamleys
VIÐSKIPTI Stuart Rose hefur verið
tilnefndur stjórnarformaður
leikfangakeðjunnar Hamleys,
en Baugur hefur yfirtekið félag-
ið. Rose hefur margháttaða
reynslu af fyrirtækjarekstri.
Hann var um skeið fram-
kvæmdastjóri og varaformaður
stjórnar verslunarkeðjunnar
Body Shop.
„Við erum afar ánægðir með
að Hamleys fái að njóta hæfi-
leika og reynslu Rose í rekstri
sínum,“ segir John Watkinson,
forstjóri Hamleys. ■
DRÍFA HJARTARDÓTTIR
Formaður landbúnaðarnefndar segir bank-
ana hafa lánað ótæpilega til stórra búa.
Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir forsendur búvörusamningsins brostnar. Landbúnaðarráð-
herra er ósammála en telur líklegt að samningurinn verði endurbættur. Ríkisstjórnin bíður
eftir tillögum nefndar sem fjallar um vanda sauðfjárbænda.
■
Ég vil auðvitað
ekki vera sá
sem segir upp
þessum góða
samningi
GUÐNI ÁGÚSTSSON
Landbúnaðarráðherra segir það vera sína
trú að bændur muni ekki segja samning-
unum upp.
ANNA KRISTÍN GUNNARSDÓTTIR
Þingmaður Samfylkingarinnar segir að sú
leið sem stjórnvöld hafi valið til að bæta
kjör bænda sé kolröng.
EINAR ODDUR KRISTJÁNSSON
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir for-
sendur samnings ríkisstjórnar Íslands við
Bændasamtök Íslands um framleiðslu,
verðlagningu og sölu á búvörum brostnar.
TVEIR Á SLYSADEILD Tveir voru
fluttir á slysadeild eftir árekstur
tveggja bíla á mótum Hafnar-
fjarðarvegar og Nýbýlavegar í
Kópavogi um á sjöunda tímanum
í gærkvöldi. Meiðsl voru lítil.
■ Lögreglufréttir
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI