Fréttablaðið - 10.10.2003, Blaðsíða 41
FÖSTUDAGUR 10. október 2003 41
Fréttiraf fólki
Ég er að fjalla um hið örsmáa ínáttúrunni sem er okkur oft
hulið,“ segir Guðrún Gunnarsdótt-
ir myndlistarmaður, sem í dag
opnar sýningu á efri hæðinni í
Gerðarsafni í Kópavogi. „Um leið
er ég kannski að fjalla svolítið um
það hvernig jörðin okkar gæti litið
út ef við höldum áfram að fara illa
með hana. Kannski gætu orðið
bara einhverjar svartar tægjur
eftir.“
Sýning Guðrúnar nefnist Þræð-
ir. Hún sýnir þar þrívíddarteikn-
ingar á vegg.
Guðrún tekur fram að þótt heil-
mikil alvara búi að baki verkum
hennar, þá sé sýningin frekar
írónísk frekar en að hún sé með
pólitískar predikanir.
„Ég er hérna til dæmis með
foss, sem heitir Ekki-foss. Þegar
við erum búin að virkja öll fall-
vötnin þá verða kannski engir
fossar eftir. Þá fáum við okkur
bara ekki-fossa í staðinn.“
Á neðri hæð safnsins verður
einnig opnuð sýning á ljósmynd-
um og málverkum eftir Huldu
Stefánsdóttur.
„Sýningin heitir Leiftur vegna
þess að ljósmyndir eru alltaf leift-
urmyndir,“ segir Hulda. Hún segir
málverkin á sýningunni unnin
með mjög svipuðum hætti og ljós-
myndirnar.
„Þau eru unnin mjög hratt,
næstum því eins og þeim sé smellt
af. Hugmyndin er kannski sú að líf
okkar sé ekki sett saman af stór-
viðburðum heldur þessum litlu
hversdagslegu augnablikum.“
Enn fremur verður opnuð í
Gerðarsafni sýning á völdum lista-
verkum úr einkasafni þeirra Þor-
valdar Guðmundssonar og Ingi-
bjargar Guðmundsdóttur, sem
hefur að geyma margar perlur ís-
lenskrar málaralistar eftir alla
helstu málara þjóðarinnar á síð-
ustu öld. ■
OLIVER KHAN
Kemur við sögu þegar Sportbarinn á Hótel
Valaskjálf verður opnaður.
Sportbar á
Egilsstöðum
AFÞREYING Erlendum starfsmönnum
við Kárahnjúka býðst nú aukin af-
þreying á Austurlandi þegar nýr
Sportbar verður opnaður á Hótel
Valaskjálf á Egilsstöðum. Sport-
barinn verður opnaður á laugar-
daginn með útsendingu á lands-
leik Íslendinga og Þjóðverja.
Klukkustund fyrir leikinn verður
gestum boðið upp á veitingar og
nýi barinn kynntur. Auk beinnar
útsendingar frá íþróttaviðburðum
verður billiardborð á staðnum og
að sjálfsögðu gott úrval af evr-
ópskum bjór. Vonast aðstandend-
ur staðarins eftir góðum viðtök-
um frá heimafólki jafnt sem að-
komufólki sem sífellt fer fjölg-
andi vegna virkjunarfram-
kvæmdanna á hálendinu fyrir
austan. ■
Ekki-fossar eru
það sem koma skal
ÞRÆÐIR GUÐRÚNAR
„Það sem eftir er“ nefnist þetta verk
Guðrúnar Gunnarsdóttur.
LEIFTUR HULDU
„Janúar“ nefnist þessi ljósmynd Huldu
Stefánsdóttur.
■ Leiðrétting
Athygli er vakin á því að í blað-inu í gær var talað um Spora-
messu Al-Anon-samtakanna, Það
er ekki rétt því félagar í samtök-
unum standa fyrir sporaveislu á
sunnudag. Al-Anon er óháð hvers
kyns trúarhópum, stjórnmála-
skoðunum eða stofnunum. Nánari
upplýsingar má finna á vef Al-
Anon-samtakanna, aðstandenda
alkóhólista: www.al-anon.is
Radiohead ætla að gefa út aðrarútgáfur af lögum nýjustu
breiðskífu sinnar, Hail to the
Thief, sem aukaefni á næstu smá-
skífu sveitarinnar. Næsta smá-
skífulag verður 2+2=5 og kemur í
búðir 10. nóvember. Um er að
ræða bæði endurhljóðblandanir
frá Four Tet og Myxomatosis og
útgáfur sem urðu að víkja fyrir
þeim sem
komust
á endan-
lega út-
gáfu
plöt-
unnar.