Fréttablaðið - 10.10.2003, Blaðsíða 46
Vígstöðvarnar í stríði sjón-varpsstöðvanna hafa fært til.
Íslenska sjónvarpsfélagið hefur
stefnt Stöð 3 gegn Skjá einum og
býður skemmtiþætti í óruglaðri
dagskrá fram til 13. október. Að
því loknu verður rukkað fyrir
áskrift; 990 krónur á mánuði ef
menn eru áskrifendur að ein-
hverri annarri stöð Íslenska út-
varpsfélagsins, annars er verðið
1.990 krónur:
„Það er engin launung að Stöð 3
er stefnt gegn Skjá einum,“ segja
dagskrárstjórarnir hjá íslenska
útvarpsfélaginu og telja sig vera
með fjögur tromp á hendi: Fri-
ends, Simpson, Seinfeld og David
Letterman í svo til beinni útsend-
ingu frá New York. Fyrrnefndu
þættirnir eru eldri:
„Skjár 3 verður á Fjölvarpinu
og hægt að ná stöðinni þar sem
Mancester United var með rás
áður. Útsendingartími verður frá
klukkan 19 á kvöldin og fram til
klukkan þrjú að nóttu,“ segir
Pálmi Guðmundsson, markaðs-
stjóri Íslenska útvarpsfélagsins,
en Stöð 3 hefur auglýst dagskrá
sína grimmt á Skjá einum að und-
anförnu.
Hjá Skjá einum bera menn sig
hins vegar vel:
„Að sjálfsögðu er þetta sam-
keppni en ég bjóst við að þetta
yrði betra,“ segir Helgi Her-
mannsson, dagskrárstjóri á Skjá
einum. „Þetta eru bara gamlar
endursýningar sem eiga fátt sam-
eiginlegt með Skjá einum. Og ef
menn ætla að fara að bera saman
Jay Leno og David Letterman get
ég upplýst að í nýjustu skoðana-
könnunum í Bandaríkjunum er
Leno kominn með 70 prósent
meira áhorf en Letterman og hef-
ur munurinn á milli þeirra aldrei
verið meiri.“
Helgi viðurkennir þó að hann
hafi áhuga á einum þætti sem Stöð
3 ætlar að bjóða upp á: „Það er
Oliver Bean. Hitt er allt gamalt og
sem dæmi má taka að af Friends
eru aðeins 18 þættir eftir. Það sem
á að sýna á Stöð 3 er fólk þegar
búið að sjá á Stöð 2.“ ■
Hrósið 46 10. október 2003 FÖSTUDAGUR
Þetta er í fimmta sinn sem þettaá að vera síðasti veturinn okk-
ar. En ekkert er ákveðið. Fyrst er
að sjá hvernig við komum undan
vetri,“ segir Karl Ágúst Úlfsson
leikari um framtíð Spaugstofunn-
ar sem hefur göngu sína í Ríkis-
sjónvarpinu annað kvöld. „Þessi
hópur hefur starfað saman í 18 ár
og ef mér telst rétt til er þetta tí-
undi veturinn okkar hér í sjón-
varpinu. Við verðum sjálfum okk-
ur líkir: Fylgjumst með fréttunum
og reynum að útskýra þær fyrir
sjálfum okkur og öðrum“ segir
Karl Ágúst.
Telja má víst að þetta verði síð-
asti vetur Spaugstofunnar í Ríkis-
sjónvarpinu. Langt samstarf þeir-
ra félaga hefur borið ríkulegan
ávöxt og síðasta vetur slógu þeir
öll áhorfsmet þvert ofan í spár
gagnrýnenda. Þeir vonast til að
leika þann leik aftur og hafa alla
burði til. Innan hóps munu þó vera
raddir þess efnis að nú sé tími til
að hætta og snúa sér að öðrum
verkefnum. Allir eru Spaugstofu-
menn að vinna við sitt en fádæma
vinsældir í sjónvarpi hafa bundið
þá saman - og sameinað þjóðina
fyrir framan sjónvarpið á laugar-
dagskvöldum. ■
Grín
SPAUGSTOFAN
■ byrjar á morgun í tíunda sinn í Ríkis-
sjónvarpinu. En blikur eru á lofti.
Imbakassinn
...fær sálfræðingurinn dr. Phil
McGraw fyrir sjónvarpsþætti
sína á Skjá einum. Þegar sál-
fræðin fer í sjónvarpið verður úr
heit blanda.
Spaugstofan í síðasta...
Stöð 3 gegn Skjá einum
Það er eins og ég segi!
Það er allt um seinan!
Því miður!
Í FYRRA
...var ég sundkappi Skagafjarðar og
heilbrigðisfulltrúi á Sauðárkróki.
NÚNA
...hef ég misst titilinn og er orðinn
alþingismaður.
Sigurjón Þórðarson er nýr alþingismaður
fyrir Frjálslynda flokkinn.
■ Breyttir tímar
BART SIMPSON
Snjall drengur - og fjölskyldan hans.
Sjónvarp
■ Vígstöðvarnar hafa færst til í stríði
sjónvarpsstöðvanna. Nú er slegist um
léttmetið.
HEIMIR JÓNASSON
Stöð 3
HELGI HERMANNSSON
Skjár einn
FRIENDS
Eldri þættir - sama fjörið.
LETTERMAN
Hér með Clinton - nú á Stöð 3.
SPAUGSTOFAN
Sameinar þjóðina enn og aftur fyrir framan sjónvarpið á laugardagskvöldum
- líklega í síðasta sinn.
Það er allt um seinan,
Lúðvík! Þú nærð ekki að
halda upp á fertugsaf-
mælið!
En ég verð 45 ára
á fimmtudaginn!