Fréttablaðið - 10.10.2003, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 10.10.2003, Blaðsíða 18
SJÁVARÚTVEGSMÁL Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra hefur þeyst um heiminn að undan- förnu til að sannfæra fólk um rétt- mæti þess að hefja vísindaveiðar á hvölum. Andstaðan hefur samt verið mun minni en búist var við. Hann segir að ekkert sérstakt mat hafi verið lagt á hver viðbrögðin myndu verða. „Ég er samt sann- færður um að ef við hefðum lagt í svoleiðis mat, þá hefðum við gert ráð fyrir meiri viðbrögðum en raunin varð á,“ segir hann. Í ár voru veiddar 36 hrefnur samkvæmt vísindaáætlun Haf- rannsóknarstofnunarinnar en nú er verið að móta framhaldið. „Þetta verður áfram viðkvæmt mál,“ segir Árni. „Hins vegar varð fjölmiðlaumræða að miklu leyti til á forsendum þeirra gagna sem við lögðum fram og svör við því sem við vorum að segja. Mér fannst ég sjá skilning í umræð- unni sem ég hef ekki séð áður að við þyrftum að rannsaka vist- kerfið og hval- urinn væri hluti af því.“ Það má lesa út úr orðum ráð- herrans að hval- veiðum verður haldið áfram á næsta ári. Sam- kvæmt honum eru þrjátíu og sex hrefnur ekki nóg til að afla nauðsynlegrar þekkingar en meta þurfi hversu mikið verði gert á næsta ári, og þá hvort ákveðið verði að veiða líka stórhveli. Hann segir þó að stór- hvelarannsóknir séu ekki eins knýjandi og hrefnurannsóknirnar og að þeim fylgi ýmis praktísk vandamál. Ætlar ekki að svara Greenpeace Árni ætlar ekki að svara tilboði Greenpeace um að hætta hval- veiðum. „Tilboð Greenpeace gengur út á að við breytum stefn- unni. Sjávarútvegsráðuneytið er kannski ekki rétta heimilisfangið fyrir tillöguna, það er Alþingi sem hafði frumkvæði að hvalveiðum og ef breyta ætti stefnunni, þá ætti það að gerast á þinginu.“ En ætlar ráðherrann að segja fulltrúum Greenpeace þetta? „Ja, ég hafði nú ekki tækifæri til að hitta þá á sínum tíma og ekki haft tækifæri til að fjalla um þetta op- inberlega fyrr en núna, en þeir munu væntanlega lesa þetta,“ segir hann brosandi. Honum þykir ekki mikið um þær undirskriftir sem Green- peace hefur safnað fyrir þá sem ætla til Íslands ef Íslendingar hætta hvalveiðum. „Ég hélt að það væru fleiri milljónir meðlima í Greenpeace.“ Línuívilnun næsta haust Mikið hefur verið þrýst á ráð- herrann að standa við fyrirheit sem gefin voru í kosningabarátt- unni í vor um að taka upp línuí- vilnun fyrir dagróðrarbáta. Árni segist ætla að leggja fram frum- varp í vetur og að einhverskonar línuívilnun verði komið á 1. sept- ember á næsta ári að því gefnu að ríkisstjórn og þingflokkar stjórn- arflokkanna séu því samþykkir. „Hvernig og hversu mikil línu- ívilnunin verður, er of snemmt að segja til um enda hefur hvergi 18 10. október 2003 FÖSTUDAGUR BURTREIÐAR Á VATNABUFFLI Ónefndur knapi hvetur buffalinn óspart í 132. vatnabufflaburtreiðunum í Chonburi héraði skammt frá í Bangkok. Burtreiðarn- ar má rekja til hátíðahalda sem Tælenskir bændur efndu til skömmu áður en hrís- grjónauppskeran var tekin í hús. Ísafjarðarbær og villikattadeilan: Bæjarráð Ísafjarðar leggur til kattaskatt GÆLUDÝR Bæjarráð Ísafjarðarbæj- ar vill banna kattahald í bænum. Þessi samþykkt, sem verður borin undir bæjarstjórn, er gerð í fram- haldi af illvígum átökum þar sem tekist hafa á kattaeigandi, katta- bani og nágrannar. Samkvæmt til- lögu bæjarráðs verður kattahald bannað í þéttbýli og sumarbú- staðahverfum bæjarins. Þeir sem vilja halda ketti geta sótt um und- anþágu og fengið gegn ákveðnum skilyrðum. Í framhaldi þess að meindýraeyðir bæjarins skaut í gegnum kjallarahurð hjá katta- vini sem haldið hefur tugi villi- katta í kjallara sínum var gert hlé á herför sem stóð mánuðum sam- an á hendur villiköttum. Verði kattabann að veruleika vill bæjar- ráð hefja að nýju herferð gegn villiköttum. Fréttavefurinn bb.is segir frá því að bæjarfélagið muni inn- heimta leyfisgjald af hverjum ketti og gera eigendum skylt að hreinsa dýrin árlega af spóluorm- um. Þá skulu allir kettir hafa hál- sól með bjöllu ásamt skráningar- númeri og símanúmeri eiganda. Ekki verður heimilt að hafa fleiri en tvo ketti eldri en þriggja mánaða á sama heimilinu. Leyfis- hafa ber einnig samkvæmt regl- unum að taka tillit til fuglalífs á varptíma. Bæjarstjórn mun fjalla um til- lögurnar á fundi í dag. ■ Stenst þrýsting þriggja þingmanna Frumvarp um línuívilnun verður lagt fram í vetur. Hvalveiðum mjög líklega haldið áfram á næsta ári. Næg tækifæri fyrir útlendinga að fjárfesta í íslenskum sjávarútvegi. Stríðsherrar berjast: Tugir fallnir í valinn AFGANISTAN, AP Allt að 80 manns hafa fallið eða særst í hörðum bardögum tveggja stríðsherra í norðurhluta Afganistan. Tals- maður utanríkisráðuneytisins segir að átökin séu þau blóðug- ustu sem blossað hafa upp í marga mánuði. Að sögn talsmanns Sameinuðu þjóðanna beita bæði liðin skrið- drekum og sprengjuvörpum. Innanríkisráðherra Afganist- an, Ali Ahmad Jalali, hélt til Maz- ar-e-Sharif til þess að funda með stríðsherrunum sem báðir eru yf- irlýstir stuðningsmenn Hamid Karzai forseta. ■ SKYLDA AÐ SKRÁ Ísfirðingar hyggjast taka upp skráningu á köttum og hyggjast takmarka kattaeign íbúa. BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON Segir gamanmál ekki eiga við í umræðu um vanda bænda. Vandi sauðfjárbænda: Lifa ekki á bröndurum ALÞINGI „Bændur lifa ekki á brönd- urum einum saman,“ sagði Björg- vin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í utandag- skrárumræðum um vanda sauð- fjárbænda á Alþingi í gær. Sagðist Björgvin vera að vísa til þeirrar léttúðar og gamanmáls sem Guðni Ágústsson landbúnað- arráðherra gripi oft til þegar ver- ið væri að ræða landbúnaðarmál. Guðni svaraði og sagði leiðin- legt ef jafn ungur og góður maður af Suðurlandi og Björgvin ætlaði að taka það að sér að vera leiðin- legur. ■ SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRANN Ég verð bara alls ekki var við neinn þrýsting erlendis frá um að víkka þetta og það eru ekki menn að koma hingað og banka upp á og segja að þá langi að fjárfesta í íslenskum sjávarútvegi og geti það ekki vegna þess hvernig reglurnar séu. ÁRNI M. MATHIESEN Mér fannst ég sjá skilning í umræðunni sem ég hef ekki séð áður að við þyrftum að rannsaka vistkerfið og hvalurinn væri hluti af því. Fréttaviðtal KRISTJÁN GUY BURGESS ■ ræðir við Árna M. Mathiesen sjá- varútvegsráðherra. „Þótt það séu einhverjir þrír menn sem leggja áherslu á það, þá segi ég ekki að það sé ein- hver óþolandi þrýstingur. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.