Fréttablaðið - 10.10.2003, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 10.10.2003, Blaðsíða 14
,SÝRLAND Flest bendir til þess að bandarísk stjórnvöld ætli að gera alvöru úr hótunum sínum um að refsa Sýrlendingum fyrir meintan stuðning þeirra við hryðjuverka- menn. Bandarísk þingnefnd sam- þykkti frumvarp um frekari refsi- aðgerðir gegn landinu með 33 at- kvæðum gegn tveimur. „Það verð- ur sífellt greinilegra í hvaða liði ríkisstjórn Sýrlands er í stríðinu gegn hryðjuverkum,“ sagði þing- maðurinn Tom DeLay. Frumvarp- ið verður að líkindum lagt fyrir fulltrúadeild Bandaríkjaþings í næstu viku en talið er nánast ör- uggt að það verði samþykkt þar sem og í öldungadeildinni. Í frumvarpinu er Sýrlands- stjórn sökuð um að fjármagna hryðjuverkaárásir og skjóta skjólshúsi yfir hryðjuverkamenn. Því er einnig haldið fram að Sýr- lendingar aðstoði uppreisnar- menn við að gera árásir á banda- ríska hermenn í Írak. Sýrlending- ar vísa þessum ásökunum á bug og ítreka sem fyrr að þeir séu í fullum rétti til að styðja baráttu herskárra Palestínumanna þar sem um sé að ræða andspyrnu gegn hernámsliði. Í frumvarpi bandarísku þing- nefndarinnar er kveðið á um að lagt verði bann við útflutningi á vopnum og efni til vopnagerðar til Sýrlands. Einnig er Bandaríkja- forseta gefinn kostur á því að beita landið frekari viðskipta- þvingunum og hefta ferðafrelsi sýrlenskra sendifulltrúa í Banda- ríkjunum. Frumvarpið kemur í kjölfar loftárásar ísraelska hersins á meintar æfingabúðir herskárra Palestínumanna í Sýrlandi. Nítján manns féllu í sjálfsmorðsárás á ísraelskan veitingastað í Haifa degi fyrir loftárásina. George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur neitað að fordæma loftárásirnar og lagt áherslu á að Sýrlendingar verði að gjalda fyrir stuðning sinn í palestínsk hryðjuverkasamtök. „Sýrland verður að breyta um stefnu, breyta hegðun sinni og hætta að skjóta skjólshúsi yfir hryðjuverkamenn,“ sagði Scott McClellan, talsmaður Hvíta húss- ins. Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna hefur enn ekki tekið endan- lega afstöðu til kröfu Sýrlendinga um að loftárás Ísraela verði for- dæmd. Bretar og Bandaríkja- menn vilja að sjálfsmorðsárás Palestínumanna í Haifa verði ein- nig fordæmd í ályktun Sýrlend- inga en nokkur Evrópuríki hafa gert athugasemdir við orðalag og framsetningu. ■ 14 10. október 2003 FÖSTUDAGUR OSLÓ, AP Ríkissjóður Noregs verð- ur rekinn með rúmlega ellefu hundruð milljarða króna afgangi á næsta ári samkvæmt fjárlaga- frumvarpi sem ríkisstjórn Kjells Megnes Bondeviks lagði fram á norska Stórþinginu í gær. Per-Kristian Foss, fjármála- ráðherra Noregs, segist vonast til að með frumvarpinu takist að halda vöxtum lágum og örva at- vinnulíf. Ríkisstjórn Noregs er minni- hlutastjórn þriggja flokka sem ræður 62 af 165 þingsætum. Hún verður því að semja við stjórnar- andstöðuna um afgreiðslu frum- varpsins. Útgjöld norska ríkisins aukast um tæpa 350 milljarða króna á næsta ári, miðað við fjárlög þessa árs og verða alls 6.750 milljarðar króna. Skatttekjur verða 7.580 milljarðar en að auki áætlar ríkisstjórnin að vaxtatekj- ur og aðrar tekjur af olíusjóði Norðmanna nemi um 330 millj- örðum. Í þeim sjóði eru nú 8.439 milljarðar króna. Atvinnuleysi hefur verið um- talsvert í Noregi, að hluta til vegna hárra vaxta og sterkrar stöðu norsku krónunnar. Sam- keppnisstaða Norðmanna erlend- is hefur því verið veik. Rík- isstjórnin gerir ráð fyrir 1.25% verðbólgu á næsta ári, borið sam- an við 2.5% verðbólgu á þessu ári. Atvinnuleysi verður nær óbreytt eða í kringum 4,5%. ■ ÁSKORUN Jinmao-turninn í Shanghai er þriðja hæsta bygging í heimi. Ofurhugi handtekinn: Kleif 425 metra háan turn KÍNA, AP Kínverskur karlmaður hefur verið úrskurðaður í fimmt- án daga gæsluvarðhald fyrir að klifra upp Jinmao-turn, hæstu byggingu Kína. Turninn er 425 metra hár. Fjöldi manna fylgdist með því þegar hinn 27 ára gamli Wang Huan klifraði upp eftir veggjum byggingarinnar, í fjármálahverfi Shanghai. Að sögn lögreglu var hann klukkutíma að komast á toppinn. Lögreglan kom fyrir stórum púða við hlið byggingar- innar til að bjarga Wang ef hann félli til jarðar. En til allrar ham- ingju komst ofurhuginn heilu og höldnu upp á þak byggingarinnar þar sem lögreglan beið hans. Hann var handtekinn fyrir að ógna öryggi almennings. ■ NORSKA STÓRÞINGIÐ Minnihlutastjórn Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra hefur aðeins rúman þriðjung þingsæta og þarf því að komast að samkomulagi við stjórnarandstöðuna á norska Stór- þinginu um afgreiðslu fjárlagafrumvarps fyrir næsta ár. Fjárlagafrumvarp norsku ríkisstjórnarinnar: Yfir þúsund milljarða afgangur VERJANDINN Lögmaðurinn Peter Althin svarar spurningum fjölmiðla fyrir utan dómshúsið í Stokkhólmi. Morðrannsókn: Gæslu- varðhald framlengt SVÍÞJÓÐ Dómari í Stokkhólmi hefur framlengt gæsluvarðhald yfir Mijailo Mijailovic, sem grunaður er um að hafa myrt utanríkisráð- herrann Önnu Lindh, um tvær vikur. Dómarinn Annalise Setthoff hafnaði kröfu verjandans, Peter Althin, um að Mijailovic yrði lát- inn laus úr haldi. Setthoff sagði að enn væri rökstuddur grunur um að hann hefði framið morðið. Mijailovic má ekki hafa neitt sam- neyti við fólk utan veggja fangels- isins. Mijailovic verður yfirheyrður aftur í dag en gefa verður út ákæru á hendur honum eigi síðar en 24. október. ■ Á ÖLLUM FORSÍÐUM Austurríkismenn glöddust mjög þegar Arnold Alois Schwarzenegger var kjörinn ríkisstjóri Kaliforníu. Fréttir af kosningun- um voru á forsíðum allra austurrískra dag- blaða í gær. SKOTINN TIL BANA José Antonio Bernal Gomez, spánskur diplómat, var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Bagdad í Írak í gær. Gomez var starfsmaður leyniþjónustu Spán- ar og hafði verið í Írak í rúm tvö ár. Ekki er vitað hver var að verki. Ríflega 1.300 spánskir her- menn eru í Írak auk embættis- manna. ■ Alþingi You make it a Sony Sony Center - það fyrsta á Íslandi Nú getur þú verslað Sony hjá Sony því að við opnum nýja verslun í Kringlunni í október. Gæði, þekking og fagmennska alla leið. Sony Center Kringlan í október SONY CENTER Kringlunni 4 - 12 103 Reykjavík Bandaríkjamenn hyggjast draga til baka Írakstillögu sína: Uppgjöf vegna andstöðunnar SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP Banda- ríkjastjórn er sögð hugleiða hvort eigi að bera Írakstillögu undir at- kvæði í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Andstaðan við tillöguna hefur vaxið svo að undanförnu að Bandaríkjamenn eru sagðir efins um að rétt sé að krefjast atkvæða- greiðslu. Móttökur við tillöguna hafa verið mjög neikvæðar, ekki síst frá Kofi Annan, framkvæmda- stjóra Sameinuðu þjóðanna. Frakkar, sem allt frá upphafi voru á móti innrásarstríðinu gegn Írak, hafa einnig lagst eindregið gegn tilllögu Bandaríkjamanna, meðal annars vegna þess að völdin verði ekki færð nógu fljótt til Íraka. Kofi Annan hefur margítrekað þá afstöðu sína að Sameinuðu þjóðirn- ar taki ekki að sér pólitískt hlutverk í uppbyggingu og endurreisnar- starfi í Írak meðan Bandaríkja- menn og Bretar fari með yfirstjórn heraflans þar. Þessi yfirlýsing varð til þess að ríki sem voru tvístígandi gagnvart tillögu Bandaríkjamanna, lögðust á sveif með Frökkum. Bandaríkjamönnum virðist nú nauðugur sá kostur að draga Íraks- tillögu sína til baka, enda hvort tveggja afleitt að láta Öryggisráðið fella hana í atkvæðagreiðslu eða fá hana samþykkta með naumum meirihluta og kljúfa þar með Ör- yggisráðið opinberlega. ■ Sýrlendingum refsað Bandarísk stjórnvöld íhuga að grípa til frekari refsiaðgerða gegn Sýrlandi. Frumvarp þessa efnis verður lagt fyrir þingið í næstu viku. Bush Banda- ríkjaforseti er ekki tilbúinn að fordæma loftárásir Ísraela á Sýrland. BUSH BAKKAR Bandaríkjastjórn íhugar nú að draga til baka Írakstillögu sína vegna háværrar gagnrýni á tillöguna. Andstaða Kofis Ann- ans við innihald tillögunnar er sagt vega þungt í ákvörðun Bandaríkjamanna. STUÐNINGSYFIRLÝSING Borgarstarfsmaður í Damaskus í Sýrlandi pússar skilti sem á stendur „Palestínumenn eru hluti af okkar þjóð og málstaður þeirra er málstaður allra Araba“.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.