Fréttablaðið - 10.10.2003, Síða 16
16 10. október 2003 FÖSTUDAGUR
■ Hvað segir fólkið?
Roy Horn alvarlega slasaður eftir árás tígurs í Las Vegas:
Tígurinn trylltist og beit húsbóndann
LAS VEGAS, AP Sjónhverfingamaður-
inn Roy Horn, annar helmingur
þýska tvíeykisins „Siegfried og
Roy“, slasaðist alvarlega þegar
hvítur tígur réðst á hann á sýningu
á Mirage hótelinu í Las Vegas í gær-
kvöldi. Roy stóð að sögn sjónarvotta
einn á sviðinu ásamt sjö ára tígri,
sem kom fram í fyrsta skipti á sýn-
ingu, þegar atvikið gerðist. Dýrið
réðst óvænt á Roy, beit hann í háls-
inn og dró hann út af sviðinu. Roy
reyndi að berja hann frá sér með
hljóðnema en allt kom fyrir ekki.
Starfsfólk sýningarinnar náði að
losa Roy frá dýrinu með því að nota
slökkvitæki. Roy var fluttur á
sjúkrahús, en hann missti mikið
blóð og var í andnauð.
Bernie Yuman, umboðsmaður Si-
egfried og Roy, segir að læknar séu
hæfilega bjartsýnir, ástand Roys sé
alvarlegt.
Hinir þýsku Siegfried og Roy
hafa skemmt gestum á hótelum í
Las Vegas í rúmlega 35 ár. Sex sinn-
um í viku hafa þeir komið fram, 44
vikur á ári. Í sýningunum hafa kom-
ið fram ljón, tígrar og fílar.
Óvissa ríkir um framtíð sýning-
arinnar en 276 manns starfa við
hana. ■
Upphlaup, skattahækk-
anir og Kárahnjúkadeila
Rúm vika er síðan Alþingi var sett. Skiptar skoðanir eru meðal manna um störf þingsins þessa fyrstu daga.
Viðmælendum Fréttablaðsins finnst skattamál, Kárahnjúkadeila og fjarlagafrumvarp hafa borið hæst.
Gamalkunnur
upphrópunarstíll
Ari Edwald, framkvæmdastjóriSamtaka atvinnulífsins, segir
framlagningu fjárlagafrumvarps-
ins bera hæst í
upphafi þings og
gamalkunnan
upphrópunarstíl
stjórnarandstöðu
í umræðunni um
Kárahnjúka.
„Það sem mér
finnst brýnasta
málið á haust-
þinginu er að fjárlagafrumvarpið
nái fram að ganga án þess að af-
gangur þess minnki. Hann má
ekki minni vera. Miðað við stöðu
efnahagsmála í dag þá tel ég að
við hjá Samtökum efnahagslífs-
ins séum sátt við frumarpið. Við
erum samt að sjálfsögðu ekki sátt
við þá raunhækkun sem hefur
orðið á ríkisútgjöldunum á und-
anförnum árum, þar sem forysta
hins opinbera í launahækkunum
gegnir lykilhlutverki.
Mér finnst fjárlagafrumvarpið
langmikilvægasta málið sem rætt
hefur verið en að öðru leyti
finnst mér þingið hafa einkennst
af ákveðnum upphlaupastíl og þá
á ég við umræðuna um Kára-
hnjúka. ■
Skattahækkanir
vekja furðu
Runólfur Ólafsson, fram-kvæmdastjóra Félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda (FÍB),
segir að það sem
hafi komið mest
á óvart í upphafi
þings séu fyrir-
hugaðar skatta-
hækkanir stjórn-
valda.
„Með tilliti til
kosningaloforða
stjórnarflokk-
anna vekur sérstaka furðu að
verið sé hækka skatta á bifreiða-
fjölskyldurnar í landinu. Í ljósi
kosningabaráttunnar í vor átti ég
von á einhverju allt öðru en
þessu. Stjórn FÍB kom af fjöllum
ef svo má að orði komast. Við
bjuggumst við öðru.
Okkar félag hefur aldrei mót-
mælt því að verið sé að inn-
heimta skatta af umferðinni til
uppbyggingar á vegakerfinu. Nú
er hins vegar farið að hengja
mikið af óskyldum verkefnum á
bifreiðaeigendur. Undir vegasjóð
heyrir nú viðhald flugvalla sem
ekki eru lengur í almennri notk-
un, styrkur til innanlandsflugs,
styrkir til sérleyfishafa, reiðveg-
ir, ferjur og flóabátar.“ ■
Karllægt
þing
Þorbjörg Inga Jónsdóttir, for-maður Kvenréttindafélags Ís-
lands, segir Alþingi slá sig sem
karllægt í upp-
hafi þings. „Kon-
um hefur fækkað
á þingi og við
höfum lægst
hlutfall kvenna á
þingi á Norður-
löndunum.“
Hún fagnar
frumvarpi nokk-
urra þingkvenna um að gera
kaup á vændisþjónustu refsiverð,
en gangi það í gegn eiga við-
skiptavinir vændiskvenna yfir
höfði sér allt að tveggja ára fang-
elsi. „Við erum sannfærðar um
að fólk í öllum flokkum hjálpi til
við að koma þessu á. Þetta er
komið í lög í Svíþjóð og hefur
gefið góða raun. Þetta er skref í
átt til frekari siðmenningar.“
Þorbjörg segir ýmis hitamál á
þinginu varða konur sérstaklega.
„Skerðing atvinnuleysisbóta kem-
ur ekki síst niður á konum, þar
sem þær eru meirihluti atvinnu-
lausra. Þörf er á endurskoðun á
atvinnuleysisbótakerfinu. Auk
þess er kominn tími á beinar að-
gerðir vegna launamuns kynj-
anna. Stjórnvöld ættu að rann-
saka launamuninn og útrýma
honum.“ ■
Hrekkur
í kút
Jóhannes Gunnarsson, formað-ur Neytendasamtakanna, seg-
ist hrökkva í kút við upphaf
vegna fyrirhug-
aðrar hækkunar
álagna á bifreiða-
eigendur. „Álög-
urnar eru ærnar
fyrir. Með hækk-
uninni er verið
að setja verð-
bólguna á meiri
ferð en hún er og
hækka skuldir heimilanna. Þetta
finnst mér á skjön við það sem
sagt var í síðustu kosningabar-
áttu.“
Hann segir breytingarnar
leggjast með tvöföldum þunga á
skuldsett heimili landsins, þar
sem hún muni hafa áhrif á verð-
tryggð lán vegna hækkandi vísi-
tölu.
Jóhannes lýsir eftir löggjöf
um innheimtustarfsemi og
greiðsluaðlögun. „Alþingismenn
ættu að taka sig saman í andlit-
inu og setja sjálfsagða löggjöf
um innheimtustarfsemi, þannig
að þeir sem innheimta skuldir
geti ekki aðhafst á þann hátt að
skotleyfi sé á skuldarana. Slík
löggjöf er til staðar í nágranna-
löndum okkar. Auk þess er mikil
þörf á að færa í lög greiðslu-
aðlögun fyrir fólk sem er í fjár-
hagslegum vítahring af utanað-
komandi ástæðum.“ ■
HARKALEGA RÁÐIST
AÐ STJÓRNINNI
Ásbjörn Valur Sigurgeirs-
son segist almennt fylgjast
frekar lítið með störfum
Alþingis, þó eitthvað.
„Það hefur komið mér
verulega á óvart hver-
su stjórnarandstaðan
hefur ráðist harkalega að stjórn-
inni. Ég hélt að málin væru í meira
jafnvægi, en hún hefur ráðist ansi
harkalega gegn félagsmálaráðherra
í Kárahnjúkamálinu.“
ALFARIÐ Á MÓTI
LÆKKUN BÓTA
Jóhann Ágústsson segist
ekki fylgjast mikið með
Alþingi.
„Ég horfði nú samt á
útsendingu frá þinginu
í Sjónvarpinu um dag-
inn og sá þá að verið
var að ræða um að lækka ætti bæt-
ur til öryrkja. Ég get bara sagt að
því er ég alfarið á móti.“
VONBRIGÐI
Hlynur Morthens segist
hafa orðið fyrir vonbrigð-
um með störf Alþingis það
sem af er.
„Stjórnin var búin að
lofa skattalækkunum
en byrjar síðan á því
að hækka skatta á bifreiðaeigend-
ur. Ég er mjög ósáttur við það.“
SVIKIN LOFORÐ
Kristín Rut Fjólmundsdótt-
ir segir svikin loforð
stjórnarflokkanna standa
upp úr nú í upphafi þings.
„Þeir lofuðu skatta-
lækkun en hækka
skatta í staðinn og
auðvitað kom það mér á óvart því
þeir voru búnir að segja allt annað.
Þá hef ég enga trú á öðru en að ef
skattar verði lækkaðir, eins og
stjórnin hefur boðað, þá muni það
aðeins koma þeim til hjálpar sem
hæstar hafa tekjurnar. Mér finnst
einnig slæmt að stjórnin virðist
ekki ætla að standa við loforð um
að hækka atvinnuleysisbætur.“
EKKERT MÓTFRAMLAG
Erla Birgisdóttir segist
vera mjög ósátt við nýtt
fjárlagafrumvarp.
„Ég er sérstaklega
ósátt við hækkun vöru-
gjalds á bensín. Einnig
er ég ósátt við þá
ákvörðun að hætta að vera með
mótframlag í lífeyrissparnað.“
SIGFRIED OG ROY
Dagar þýska tvíeykisins kunna að vera
taldir eftri að hvítur tígur réðst á Roy Horn
og særði hann illa á hálsi. Sigfried og Roy
hafa skemmt í rúma þrjá áratugi og notað
ljón, fíla og tígra.
BEÐIÐ FYRIR BATA
Fjöldi fólks safnaðist saman fyrir utan
sjúkrahúsið þar sem Roy Horn liggur og
bað fyrir bata hans.
LEIÐTOGAFUNDUR
Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, er í
opinberri heimsókn í Rússlandi. Hann
skoðaði sögufræga kirkju í Jekaterínborg í
Úralfjöllum ásamt Vladimir Putin Rúss-
landsforseta.