Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.10.2003, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 10.10.2003, Qupperneq 19
19FÖSTUDAGUR 10. október 2003 neinu verið lofað um það hvenær, hversu mikið eða hvernig hún á að verða. Það hafa engin loforð verið gefin um það,“ segir hann. „Davíð Oddsson sagði að hann sæi ekkert því til fyrirstöðu að það gæti orðið í haust en það komu upp vandamál sem gerðu það að verkum að ég treysti mér ekki til að gera hluti á þeim for- sendum og nota þær lagaheim- ildir sem ég hef án þess að þing- ið hefði tök á því að fjalla um málið.“ Hann segist ekki verða var við mikinn þrýsting innan úr stjórnarflokkunum fyrir að taka upp línuívilnunina. „Þótt það séu einhverjir þrír menn sem leggja áherslu á það, þá segi ég ekki að það sé einhver óþolandi þrýst- ingur. Við erum líka að fá mikla andstöðu við að taka upp línu- ívilnun.“ En er það ekki enn erfiðara þar sem Árni var sjálfur á móti því á landsfundi Sjálfstæðis- flokksins að taka upp línuíviln- un. „Ég er svo oft búinn að lenda í þeirri stöðu að mál séu umdeild og að engin leið sé út úr því sem allir verða ánægðir með, þannig að ég verð bara að finna skyn- samlega lausn á þessu máli.“ Árna þykir línuívilnun miklu geðfelldari leið til þess að styrk- ja byggðir en byggðakvóti. „Byggðakvótarnir sem ég hef verið að úthluta, það má færa mjög góð rök fyrir því að þeir hafi gagnast mjög lítið fyrir utan að þeir skaffa mönnum vinnu á meðan byggðakvótans nýtur við, en að þeir hafi skapað eitthvað upp á framtíðina, það held ég ekki.“ Finnur ekki áhuga útlendinga Nokkuð hefur verið rætt um það að undanförnu að heimila beri útlendingum að fjárfesta í ís- lenskum sjávarútvegi. Árni bend- ir á að möguleikar erlendra aðila til að eiga í íslenskum sjávarút- vegsfyrirtækjum séu mjög miklir og sambærilegir við önnur lönd. Útlendingum er heimilt að fjárfesta óbeint í sjávarútvegs- fyrirtækjum upp á 25% í gegnum eitt félag en upp allt að 49,9% í gegnum tvö félög en þó ekki hafa raunveruleg yfirráð. „Ég verð bara alls ekki var við neinn þrýsting erlendis frá um að víkka þetta og það eru ekki menn að koma hingað og banka upp á og segja að þá langi að fjárfesta í ís- lenskum sjávarútvegi og geti það ekki vegna þess hvernig reglurn- ar séu,“ segir Árni. Hann segir ástæðuna fyrir því að eftirspurnin sé ekki meiri, sé fyrst og fremst að sjávarútvegur- inn sé ekki grein sem almennt er talið spennandi að fjárfesta í, þeir sem reki fyrirtækin hafi gert það lengi eða séu á öðrum sviðum matvælageirans. Í öðru lagi séu íslensk sjávarútvegsfyrirtæki frekar dýr og þess vegna sé ekki sérstaklega aðlaðandi að fjárfesta í þeim. Í þriðja lagi nefnir hann gjaldmiðilinn. Hann segir að það sé ekki skort- ur á fjármagni í íslenskum sjávar- útvegi. „Við höfum enga sérstaka þörf að fá útlendinga inn í þessa grunn- og höfuðatvinnugrein. Það er alveg nægt fjármagn í þessari grein hér á landi.“ ■ Sjálfsmorðsárás í Írak: Tíu létust BAGDAD, AP Tíu létust og að minns- ta kosti 28 særðust í sjálfs- morðsárás á lögreglustöð í Bagdad í gærmorgun. Karlmaður ók bíl, fullum af sprengiefni, í átt að lögreglustöð- inni í Sard-borg en þegar lögregla hugðist stöðva manninn, sprengdi hann bílinn í loft upp. Sprengingin var svo öflug að metra djúpur gíg- ur myndaðist undir bílnum. Meðal þeirra sem létust voru þrír lög- regluþjónar og fimm óbreyttir borgarar. Árásin var gerð þegar um það bil 50 lögreglumenn voru að safnast saman framan við lög- reglustöðina til liðskönnunar. ■ GREIÐSLUSTÖÐVUN Heildarskuldir Útgáfufélags DV ehf. námu 1,1 milljarði króna í lok júní en eign- ir félagsins voru þá metnar á 786 milljónir. Af þeirri upphæð telur félagið viðskiptavild upp á rúm- lega 500 milljónir króna. Félagið hefur verið rekið með tapi síðustu tvö ár og eins á fyrri helmingi þessa árs. Það hefur verið í greiðslustöðvun í fjórar vikur og stendur hún út mánuð- inn. Áætlanir útgáfufélagsins eru að skera niður um 100 milljónir í rekstri á ári, að færa niður allt hlutafé og fá inn 400 milljóna hlutafé í peningum og með að skuldbreyta langtímalánum í hlutafé. Kröfuhöfum eru boðnar þrjár leiðir við að ná fé til baka, að sögn Jóhannesar Rúnars Jó- hannssonar, aðstoðarmanns út- gáfufélags DV, í greiðslustöðv- uninni. Þeim er boðið að breyta skuldum í hlutafé, birta auglýs- ingar í blaðinu á móti skuldum eða fá greidd 20% af kröfum. Í beiðni sinni um greiðslu- stöðvun er vísað til þess að Framtíðarsýn hf. hafi samþykkt að ganga til viðræðna um sam- einingu félaganna en Framtíðar- sýn hefur verið rekið með hagn- aði á undanförnum árum. Halda útgefendurnir því fram að sam- einað félag muni auðveldlega geta staðið undir skuldabyrði fé- lagsins. ■ Óttar Sveinsson: Útkall á ensku BÆKUR Bandaríska útgáfufyrirtæk- ið Lions Press hefur keypt útgáfu- réttinn að bókinni Útkall í djúpinu eftir Óttar Sveinssonar í öllum enskumælandi löndum. Gengið var frá þessu á bókamessu sem stendur yfir í Frankfurt. Óttar, sem sjálfur er staddur í Frankfurt, segir áætlað að Útkall í djúpinu verði gefin út í Bandaríkjunum, Bretlandi og Kanada á næsta ári. Verið sé að kynna þýðingu á bók hans um Geys- is-slysið í Frankfurt núna. „Ég er afar ánægður með þá miklu viður- kenningu sem í þessu felst. Þetta er sá markaður sem einna erfiðast er að komast inn á,“ segir Óttar. ■ Viðskiptavild DV metin á hálfan milljarð: Skulda 300 milljónir umfram eignir HÚSNÆÐI DV: Viðskiptavild metin á 500 milljónir. Smáralind - Glæsibæ Sími 545 1550 og 545 1500 NIKE herraúlpa Stærðir: S -XXL Litir: Svartur, drapplitur 9.990 kr. PUMA herradúnúlpa Stærðir: S - XXL Litir: Svartur 13.990 kr. Smáralind mán.-fös. kl. 11-19 lau. kl. 11-18 sun. kl. 13-18 www.utilif.is Glæsibæ mán.-fös. kl. 10-18 lau. kl. 10-16 FIVE SEASON dömuanorakkur Stærðir: S - XL Litir: Rauður, blár 8.990 kr. MEXXSPORT dömuúlpa með loðkraga sem hægt er að taka af Stærðir: S - XXL Litir: Drapplitur, svartur 12.990 kr. MEXXSPORT aðsniðin dömuúlpa Stærðir: S - XXL Litir: Rauður, svartur 14.900 kr. Hlýtt í vetur FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.