Fréttablaðið - 10.10.2003, Page 23
23FÖSTUDAGUR 10. október 2003
Það hefur lítið hvarflað að mérhvað ég geri og þykir í raun
leitt að ekki skuli sama tilhlökkun
ríkja fyrir þessum degi og þegar
ég var krakki,“ segir Matthías
Halldórsson aðstoðarlandlæknir
sem í dag er 55 ára.
Matthías segir að fyrr á árum
hafi hann jafnan hlakkað mjög til
þessa dags og haldið upp á hann.
„Það fylgir víst aldrinum að æðr-
ast ekki yfir hlutunum hvort sem
það er afmælisdagur eða eitthvað
annað,“ segir hann og bætir við að
öllum líkindum taki hann köku
með sér í vinnuna og bjóði félög-
unum upp á. „Á föstudögum erum
við vön að hafa betri mat og það
kemur af sjálfu sér að við höfum
eitthvað gott í matinn á afmælis-
daginn,“ segir Matthías en hann á
ekki von á börnum og barnabörn-
um því þau hjón eiga aðeins eina
stúlku sem enn býr heima.
Matthías er nýlega kominn
heim frá Lúxemborg þar sem
hann var í tveggja ára leyfi en í
vinnu fyrir Evrópusambandið.
„Þar var afskaplega þægilegt og
gott að vera og nauðsynlegt að
fara í burtu og víkka sjóndeildar-
hringinn. Ég hef gert það í gegn-
um árin að fara utan í nám og
vinnu. Bæði hef ég verið í Bret-
landi og Hollandi auk þess sem ég
var í framhaldsnámi í Svíþjóð.
Kona mín sem er meinatæknir
var með mér en hvarf heim aftur
eftir rúmt ár í vinnu sína á Land-
spítalanum.“
Hann segir þau hafa ferðast
nokkuð á meðan þau dvöldu úti
enda þægilegt að ferðast frá Lúx-
emborg. „Það tók ekki langan
tíma að bregða sér til Þýskalands
eða Frakklands en þar eigum við
hús með fjölskyldunni sem við
heimsóttum stundum,“ segir hann
og bætir við að þau hjón eigi ein-
nig sumarbústað austur við Brú-
arhlöð sem þau reyni að dvelja í
um helgar. „Þangað kemur maður
á föstudögum og sefur út í eitt í
þögninni. Þar hefur til skamms
tíma ekki verið neitt símasam-
band og við hlustum mikið á
gömlu gufuna. Kannski að ég sé
orðinn svona gamall en ég hef
gaman af að hlusta á Gerði
Bjarklind með óskalagaþátt
gamla fólksins,“ segir aðstoðar-
landlæknir sem gengur í vinnu á
hverjum degi á aðeins tólf mínút-
um. ■
Afmæli
MATTHÍAS HALLDÓRSSON
AÐSTOÐARLANDLÆKNIR.
■ Hann er 55 ára í dag og ætlar koma
með köku í vinnuna og borða góðan mat
í kvöld
Terta fyrir vinnufélagana
ÁSMUNDUR STEFÁNSSON
Tekur við starfi Ríkissáttasemjara um
næstu mánaðamót. Hefur reynslu við
samningaborðið.
??? Hver?
Ásmundur Stefánsson, nýráðinn Ríkis-
sáttasemjari.
??? Hvar?
Er að láta af störfum sem framkvæmda-
stjóri hjá Framtaki - fjárfestingabanka.
??? Hvaðan?
Ég er úr Reykjavík, móðurfólkið af Akra-
nesi en föðurfólkið af Álftanesi og
Grímsnesi.
??? Hvað?
Er að taka við starfi Ríkissáttasemjara og
hlakka til þess.
??? Hvernig?
Verkefni Ríkissáttasemjara er að aðstoða
þá aðila sem eru að semja til að kom-
ast að sameiginlegri niðurstöðu. Hann
mótar ekki stefnu, setur ekki fram kröfur
eða tekur afstöðu til þeirra. Þó getur
Ríkissáttasemjari þurft að grípa inn í
með sáttatillögu til að finna sameigin-
lega niðurstöðu.
??? Hvers vegna?
Finnst verkefnið áhugavert. Hef reynslu
sem forystumaður í verkalýðshreyfing-
unni um árabil og forystumaður í þeim
samtökum atvinnurekenda sem heita
bankar. Ég var formaður samninga-
nefndar bankanna síðustu árin sem ég
var þar. Hef því reynslu úr báðum áttum
og veit þess vegna hvað gerist við
samningaborðið og hvaða vandamál
eru þar til staðar.
??? Hvenær?
Tek við starfinu 1. nóvember.
■ Persónan
■ Nýjir diskar
MATTHÍAS HALLDÓRSSON AÐSTOÐARLANDLÆKNIR
Hann kom nýlega heim frá Lúxemborg þar sem hann var í tvö ár við vinnu fyrir Evrópu-
sambandið.
Út er komin geislaplataDiabolus in Musica, „Hana-
stél á Jónsmessunótt“, sem er
endurútgáfa vínylplötu með sama
nafni. Platan var tekin upp árið
1976 og inniheldur frumsamin
lög Diabolus in Musica auk lags-
ins Gaggógæi eftir Björn Jónas-
son. Platan er gefin út í minningu
Guðmundar Thoroddsen sem lék
á píanó, slagverk, harmónikku,
klarinett auk þess að syngja.
Hann lést árið 1996. Sveitin skil-
greinir sjálfa sig sem djassaða
kammersveit.