Fréttablaðið - 10.10.2003, Qupperneq 36
36 10. október 2003 FÖSTUDAGUR
FÓTBOLTABALLETT
Svíinn Hanna Ljungberg á æfingu fyrir
úrslitaleikinn í heimsmeistarakeppninni
á sunnudag.
Fótbolti
FÓTBOLTI Fyrrum heimsmeistarinn
Jacques Villeneuve mun ekki
keppa fyrir BAR-liðið í Formúlu 1
í Japan um helgina. Villeneuve,
sem missti sæti sitt hjá BAR fyrir
skömmu, tjáði yfirmönnum liðs-
ins að hann vildi ekki keppa um
helgina. Í hans stað mun Japaninn
Takuma Sato keppa en honum er
ætlað að taka sæti Villeneuve á
næsta tímabili.
„Villeneuve var ákaflega ósátt-
ur við að missa sæti sitt hjá lið-
inu,“ sagði umboðsmaður hans
Craig Pollock. „Hann vissi að
hann myndi ekki leggja sig allan
fram um næstu helgi.“
David Richards, eigandi BAR,
sagðist ekki hafa hikað við að
samþykkja ósk Villeneuve
„Ef hann vill ekki keyra þá
hann um það. Takuma mun keyra
í hans stað,“ sagði Richards. ■
Rúmenar treysta á
Dani og Lúxemborgara
Enska landsliðið:
Owen
ekki með
FÓTBOLTI Michael Owen leikur ekki
með Englandi gegn Tyrkjum í Íst-
anbúl í undankeppni Evrópumóts-
ins vegna meiðsla. Owen meiddist á
sköflungi í leik Liverpool og
Arsenal um síðustu helgi en náði
ekki að jafna sig í tæka tíð. Hann
æfði með enska liðinu en þá voru
aðeins helmings líkur á að hann
gæti verið með. Hann flaug því
ekki með enska landsliðshópnum til
Tyrklands í gær.
Þetta er mikið áfall fyrir Sven-
Göran Eriksson, landsliðsþjálfara
Englands, en Rio Ferdinand var úti-
lokaður frá landsliðshópnum þar
sem hann mætti ekki í lyfjapróf. ■
Formúla 1:
Villeneuve
keppir ekki
JACQUES VILLENEUVE
Villeneuve varð heimsmeistari með Willi-
ams árið 1997 en hefur verið annar öku-
maður BAR-liðsins.
FÓTBOLTI „Norðmenn hafa allt
aðra sýn á fótbolta en við,“ sagði
Morten Olsen, landsliðsþjálfari
Dana, við norska dagblaðið
Verdens Gang. Olsen hefur oft
sagt að honum líki ekki leikstíll
Norðmanna og sagði í fyrra að
þeir væru álíka slakir og Möltu-
menn.
Nýlega sagði hann að það yrði
sigur fyrir fótboltann ef Danir
og Rúmenar kæmust áfram í
Evrópukeppninni en einnig væri
gaman ef Bosníumenn næðu
langt. Þegar norskir blaðamenn
spurðu hvort hann vildi að Norð-
menn kæmust ekki áfram var
hann fljótur að staðfesta það. ■
Morten Olsen um norska landsliðið:
Allt önnur
sýn á fótbolta
Fjórar þjóðir keppa um efstu sætin í 2. riðli og þrjár þjóðir í 4. riðli keppa um sæti í umspili.
Frakkar, Tékkar og Svíar öruggir um sæti í lokakeppninni Evrópumeistarakeppninnar.
Lokaleikirnir fara fram á laugardag.
1. riðill
Á laugardag ræðst hvaða tíu þjóð-
ir fá sæti í lokakeppni Evrópu-
mótsins í fótbolta í Portúgal á
næsta ári. Þá ræðst einnig hvaða
tíu þjóðir taka þátt í umspili um
miðjan nóvember um fimm sæti í
lokakeppninni.
Frakkar sigruðu í 1. riðli með
yfirburðum. Vinni þeir Ísraela í
París á laugardag verður það í
þriðja sinn sem þjóð vinnur alla
leiki sína í undankeppni EM.
Frakkar unnu alla átta leiki sína í
keppninni 1990-1992 og Tékkar
alla tíu leiki sína í keppninni 1998-
2000. Slóvenar eru öruggir með
sæti í umspili og breytir leikur
þeirra á Kýpur engu um stöðu
þeirra.
NÆSTU LEIKIR
Kýpur - Slóvenía Límassól
Frakkland - Ísrael París
L U J T M S
Frakkland 7 7 0 0 26:2 21
Slóvenía 7 4 1 2 13:10 13
Ísrael 7 2 3 2 9:8 9
Kýpur 7 2 1 4 7:16 7
Malta 8 0 1 7 5:24 1
2. riðill
Bosníumenn, Danir, Rúmenar og
Norðmenn keppa um efstu sætin í
2. riðli. Á laugardag leika Bosníu-
menn við Dani og Norðmenn við
Lúxemborgara.
Bosníumenn unnu Dani 2-0 í vor.
Vinni Bosníumenn aftur á laugar-
dag fara þeir í lokakeppnina og
Danir í umspil. Með jafntefli í
Sarajevo og norskum sigri fara
Norðurlandaþjóðirnar áfram því
Norðmenn höfðu betur í leikjum
sínum gegn Rúmenum. Verði
þjóðir jafnar að stigum verður lit-
ið til innbyrðis viðureigna þeirra í
keppninni. Danir hafa betri stöðu
gegn Norðmönnum og Rúmenum
en Norðmenn eru í plús gegn
Rúmenum og Bosníumönnum.
NÆSTU LEIKIR
Noregur - Lúxemborg Osló
Bosnía-Herzegóvína - Danmörk Sarajevo
L U J T M S
Danmörk 7 4 2 1 14:8 14
Rúmenía 8 4 2 2 21:9 14
Bosnía-Herz. 7 4 0 3 6:7 12
Noregur 7 3 2 2 8:5 11
Lúxemborg 7 0 0 7 0:20 0
3. riðill
Úrslit í 3. riðli réðust fyrir mánuði
þegar Tékkar unnu Hollendinga
3-1 í uppgjöri efstu liða. Tékkar
leika því í Portúgal á næsta ári en
Hollendingar fara í umspil.
Ruud van Nistelrooy leikur ekki
með hollenska landsliðinu þar
sem hann þótti sýna óíþrótta-
mannslega framkomu þegar hann
var tekinn af velli í síðasta leik.
Jimmy Floyd Hasselbaink hlaut
heldur ekki náð hjá hollenska
landsliðsþjálfaranum.
Mikil meiðsl eru í herbúðum
Tékka og leikur Tomas Radciski,
miðvallarleikmaður Dortmund,
ekki með né Karel Poborsky sem
er í leikbanni.
NÆSTU LEIKIR
Austurríki - Tékkland Vínarborg
Holland - Moldavía Eindhoven
L U J T M S
Tékkland 7 6 1 0 20:3 19
Holland 7 5 1 1 15:5 16
Austurríki 7 3 0 4 10:11 9
Moldavía 7 2 0 5 5:14 6
Hvíta Rússl. 8 1 0 7 4:20 3
4. riðill
Svíar eru öruggir sigurvegarar í
4. riðli undankeppninnar og því
öruggir í lokakeppnina í Portúgal.
Lettar, Ungverjar og Pólverjar
keppa um sæti í umspili.
Jafntefli í leik Ungverja og Pól-
verja tryggir Lettum sæti í um-
spili en síðast talda þjóðin stendur
best að vígi fyrir lokaumferðina.
Verði einhverjar þjóðanna jafnar
að stigum skera innbyrðis viður-
eignir úr um röðun liða. Pólverjar
standa betur í viðureignum þeirra
við Letta.
Ungverjar og Lettar standa jafnir
því bæði unnu heimaleik sinn 3-1.
Heildarárangur Ungverja og
Letta mun skera úr um stöðu þeir-
ra verði þjóðirnar jafnar.
NÆSTU LEIKIR
Svíþjóð - Lettland Solna
Ungverjaland - Pólland Búdapest
L U J T M S
Svíþjóð 7 5 2 0 19:2 17
Lettland 7 4 1 2 9:6 13
Ungverjaland 7 3 2 2 14:7 11
Pólland 7 3 1 3 9:6 10
San Marínó 8 0 0 8 0:30 0
FRAKKLAND
Thierry Henry er einn þriggja leikmanna
Arsenal í franska landsliðinu sem leikur við
Ísraela á laugardag.
HB
Færeyskur meistari annað árið í röð eftir
2-0 sigur á B36.
DANIR
Eiga í harðri baráttu um sæti í lokakeppni
Evrópumótsins í knattspyrnu. Það skýrist á
morgun hvort þeir komist beint í úrslit.
SVÍÞJÓÐ
Svíar eru öruggir áfram í lokakeppnina.
Ungverjar, Lettar og Pólverjar berjast um
annað sætið.
HOLLAND
Ruud van Nistelrooy verður fjarri góðu
gamni þegar Hollendingar leika á morgun.
Sömu sögu er að segja af Hasselbaink.
Enska knattspyrnan:
Coppell til
Reading
FÓTBOLTI Steve Coppell var ráðinn
framkvæmdastjóri Reading í gær.
Hann tekur við af Alan Pardew
sem fór til West Ham í síðasta
mánuði. Fyrsti leikur Reading
undir stjórn Coppell verður á
heimavelli gegn Gillingham á
þriðjudag.
Coppell lék með Tranmere
Rovers á árunum 1973 til 1975 og
með Manchester United frá 1975
til 1983. Coppell gerðist fram-
kvæmdastjóri Crystal Palace árið
1984 en hefur einnig stjórnað
Manchester City, Brentford og
Brighton. Hann skoraði sjö mörk í
42 leikjum með Englendingum á
árunum 1977 til 1983. ■
Færeyska knattspyrnan:
HB aftur
meistari
FÓTBOLTI Havnar Bóltfelag (HB)
varð færeyskur meistari í fót-
bolta annað árið í röð eftir 2-0 sig-
ur á nágrönnum sínum í B36 í
næst síðustu umferðinni. Tór-Ing-
ar Akselsen og Andrew av Fløtum
skoruðu mörkin á lokakaflanum.
Í lokaumferðinni lék HB á
heimavelli gegn KÍ frá Klakksvík
og vann 3-2. B36 varð í öðru sæti
eftir 4-1 sigur á GÍ í Götu og B68
frá Tóftum varð í þriðja sæti. HB
keppir í Meistaradeildinni á
næsta ári, B36 og B68 í UEFA-bik-
arkeppninni og NSÍ frá Runavík í
Getraunabikarnum. ■
Færeyska knattspyrnan:
Albert
bestur mark-
varða
FÓTBOLTI Albert Sævarsson, fyrr-
um markvörður Grindvíkinga,
var valinn í lið ársins í færeysku
knattspyrnunni. Albert lék með
B36 frá Tóftum en félagið varð í
þriðja sæti deildarinnar og leikur
í UEFA-bikarkeppninni á næsta
ári.
Í liði ársins eru: Albert Sæv-
arsson (B68) - Pól Thorsteinsson
(B36), Símun Eliasen (HB), Messi-
as Perreira (NSÍ), Arnbjørn Dani-
elsen (B68) - Jákup á Borg (B36),
Martin Christensen (HB), Rúni
Nolsøe (HB), Øssur Hansen (B68)
- Sorin Anghel (EB/Streymur),
Andrew av Fløtum (HB). ■
FÓTBOLTI Leeds United hefur sett
knattspyrnumanninn Jody Morris
í leikbann sem gildir í allt að tvær
vikur. Bannið var sett í kjölfar
ásakana á hendur Morris um að
hann hafi nauðgað sautján ára
stúlku um síðustu helgi.
Fulltrúar Leeds áttu fund með
Morris og lögfræðingi hans í gær-
morgun og var ákvörðun um leik-
bann tekin í kjölfar þess. Í yfirlýs-
ingu félagsins sagði að Morris
hefði verið settur í bann, í sam-
ræmi við ákvæði í samningi leik-
mannsins, svo félagið geti skoðað
málið. ■
Enska knattspyrnan:
Morris
í bann
JODY MORRIS
Er grunaður um að hafa nauðgað 17 ára
gamalli stúlku ásamt sjö öðrum.