Fréttablaðið - 10.10.2003, Síða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Hvaða hvaða
Netsalan ehf.
Knarrarvogi 4, 104 Reykjavík.
Sími 517 0220, Gsm: 693 0225.
Netfang: netsalan@itn.is
Heimasíða:
www.itn.is/netsalan
Stórlækkað
verð
á 2 síðustu
Viking
fellihýsunum
RÝMINGARSALA
Knaus Sport hjólhýsi
á tilboðsverði
Síðasti Sport traveller húsbílinn
- stórlækkað verð
Missið ekki af
einstöku tækifæri!
g p g ý
Takma
Verð n
Verð áð
Hvaða æsingur er þetta út afþessum verkamönnum þarna
uppi á hálendinu eiginlega? Ég
meina... eins og þeir geti ekki unnið í
blautum skóm og blautum göllum og
sætt sig við að ganga nokkra kíló-
metra til þess að komast í mat? Ég
steig nú sjálfur í lítinn poll um dag-
inn á leið í vinnuna og varð holdvot-
ur í fæturna allan daginn. Kippti
mér ekkert upp við það.
OG HVAÐ með það þótt menn fái
ekki að horfa á sjónvarpið eftir
klukkan níu? Það er ekkert í sjón-
varpinu hvort sem er. Ég horfi
sárasjaldan á það. Svo þýðir ekkert
að vera að glápa á sjónvarpið þegar
menn eiga að vakna snemma og fara
út í hríðina að byggja stóra virkjun.
Ha! Þýðir ekki að slá slöku við! Upp
með virkjunina! Þýðir ekki að sitja á
rassinum og glápa á geimskipið
Enterprise alla daga.
EINANGRUN í húsum er líka stór-
lega ofmetin. Í margar aldir bjuggu
Íslendingar í húsum án einangrunar.
Steinullin er bara tískubóla. Ef ég
mætti ráða myndi ég rífa einangrun-
ina úr minni íbúð eins og skot. Kuld-
inn herðir mann. Menn lifðu þetta af
hér áður fyrr. Þessir verkamenn á
hálendinu verða bara að ganga í
gegnum þetta líka. Fátt er betra fyr-
ir karlmenn, sérstaklega ef þeir eru
aldir upp í mikilli sól, en að skjálfa
úr kulda uppi á íslensku hálendi sex
daga vikunnar og þurfa svo að leita
sér að einhverju að gera á Egilsstöð-
um þann sjöunda.
SVO ER ÞAÐ auðvitað bara pjúra
vælukjóaháttur að vera að kvarta
yfir því að það sé engin kaffiaðstaða
á vinnusvæðinu. Er fólk búið að
gleyma því að hér fyrr á öldum var
ekki hægt að fá kaffi yfir höfuð.
Punktur. Sjálfur drekk ég sárasjald-
an kaffi. Þeir verða bara að drekka
vatn, þessir menn. Það ætti að vera
nóg af því þarna uppfrá, he he. Nei,
ég segi svona.
OG LAUNIN. Það er talið vera til-
tökumál að launin séu minni en
samið var um. Ég skal segja ykkur
það! Ég minni á það, að hér áður
fyrr var fullt af fólki á Íslandi sem
fékk engin laun. Peningar skiptu það
engu máli. Þetta fólk var bara úti,
sem er ómetanlegt. Eða varð það úti?
Ég man það ekki. ■
Bakþankar
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR