Fréttablaðið - 07.11.2003, Page 1

Fréttablaðið - 07.11.2003, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 42 Leikhús 42 Myndlist 42 Íþróttir 36 Sjónvarp 44 FÖSTUDAGUR DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG 7. nóvember 2003 – 275. tölublað – 3. árgangur matur o.fl. ● Villibráðarhlaðborð Sigmar B. Hauksson: ▲ SÍÐUR 26 og 29 Hreindýrið kryddar sig sjálft börn o.fl. ● Nýtísku barnavagnar Kristín Helga: ▲ SÍÐUR 30 og 31 Vill líkjast Línu langsokk ÖFUNDARGEN Í REYKJAVÍK Ó- ánægja með tillögur að uppbyggingu í Lundi koma Gunnari Birgissyni, forseta bæjarstjórnar, á óvart. Hann segir Reykvík- inga setja sig upp á móti öllum skipulags- tillögum Kópavogsbúa en feta svo í þeirra fótspor. Sjá síðu 6 VEXTIR MUNU HÆKKA Birgir Ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri greindi frá því í gær að vextir myndu hækka á næstunni. Stækkun Norðuráls, breytingar á húsnæðis- lánum og ríkisútgjöld ráða miklu um hversu miklar hækkanirnar verða. Sjá síðu 2 SKÓLI RÝMDUR Eftir að undirstöður byggingarkrana við Ingunnarskóla gáfu sig og kraninn tók að halla var skólinn rýmd- ur. Foreldrar voru beðnir um að sækja börn sín í skólann meðan viðgerð fór fram. Sjá síðu 2 FRAMÚRAKSTUR GAGNRÝNDUR Ríkisendurskoðun gagnrýnir að rúmlega hundrað fjárlagaliðir fóru meira fram úr fjárlagaheimildum en þau fjögur prósent sem talist geta eðlileg. Sjá síðu 4 SLAGVIRÐI Á LANDINU Lægir í nótt. Huga þarf að niðurföllum því mikil væta fylgir þessu veðri. Minnkandi úrkoma í kvöld og rofar þá heldur til. Sjá síðu 6 SÆNSK MENNING Kvartett Jonas Kullhammars verður með djasstónleika í Norræna húsinu í kvöld. Tónleikarnir eru í tengslum við sænska menningarviku. FJÖLMIÐLAR Stefnt er að því að gefa út nýtt og breytt DV fljótlega í næstu viku. Frétt ehf., útgáfufélag Fréttablaðsins, gekk í gær frá kaupum á þrotabúi og útgáfurétti DV af Hömlum hf. dótturfélagi Landsbankans. „Við ætlum að gefa út kröftugt, þróttmikið og líflegt blað,“ segir Gunnar Smári Egilsson, fram- kvæmdastjóri Fréttar. „Blöð sem byggja á svipuðum grunni og DV eru mest seldu blöðin í svo til öllum nágrannalöndum okkar. Við sjáum enga ástæðu til annars en að það sama geti gilt hér á landi.“ Ráðgert er að DV komi út sex daga vikunnar, og að blaðið komi út á morgnana líkt og Fréttablaðið og Morgunblaðið. „Langflestir lesa blöð á morgnana. Það er því besti tíminn til blaðaútgáfu,“ segir Gunnar Smári. Hann segir að í framtíðinni verði Fréttablaðið og DV undir sama þaki, en ekki sé ákveðið hvort það verði í núverandi hús- næði DV í Skaftahlíð eða annars staðar. Allar deildir blaðanna verða reknar saman að ritstjórn- unum slepptum. Gunnar Smári segir að þessi blöð séu í raun í takmarkaðri samkeppni sín á milli, þrátt fyrir hugmyndir manna um annað. Markmiðið sé að halda öruggri forystu Fréttablaðsins á auglýsingamarkaði en bæta mjög stöðu DV á áskriftarmarkaði. Ekki er búið að ákveða hvar DV verður prentað en rætt verður við prentsmiðju Morgunblaðsins og Ísafoldarprentsmiðju á næstu dög- um. Kaupverð DV er trúnaðarmál. Greitt var fyrir blaðið með nýju hlutafé í Frétt ehf. og er Landsbankinn nú orðinn einn hlut- hafa félagsins. ■ Frétt kaupir þrotabú og útgáfurétt DV af Hömlum: Nýtt og breytt blað í næstu viku HEIMTA GREIÐSLUR FRÁ RÍKISSTJÓRNINNI Fyrrum hermenn stöðvuðu umferð á einni af helstu hraðbrautum Gvatemala í gær. Þannig vöktu þeir athygli á því að ríkisstjórn landsins hefur ekki greitt þeim laun. AP M YN D KJARAMÁL Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands Ís- lands, segir uppsagnir Varnarliðs- ins á kjaraatriðum rafiðnaðar- manna í einhverjum tilfellum ólög- legar. Kaupskrárnefnd varnar- svæða, sem starfar á vegum utan- ríkisráðuneytisins, úrskurðar um laun starfsmanna Varnarliðsins samkvæmt lögum. Engir kjara- samningar eru á milli starfsmanna og vinnuveitandans á Keflavíkur- flugvelli, en hlutverk kaupskrár- nefndar er að halda launum á Keflavíkurflugvelli í samræmi við sambærileg störf á landinu. Úr- skurði nefndarinnar má ekki rjúfa einhliða. „Starfsmannahald Varnarliðs- ins hefur ekkert með það að gera að segja upp kjaraatriðum sem kaupskrárnefnd hefur úrskurðað um. Hvað okkur rafiðnaðarmenn varðar var það gert,“ segir Guð- mundur. Verkalýðsfélög á Suðurnesjum bera nú saman bækur sínar um hversu langt úrskurðir kaupskrár- nefndar ná. Ólafur Darri Andra- son, hagfræðingur Alþýðusam- bandsins og einn þriggja nefndar- manna í kaupskrárnefnd, kveðst ekki vilja fullyrða um hvort ein- hliða kjaraskerðing Varnarliðsins stangist á við úrskurði nefndarinn- ar, áður en farið hafi verið yfir alla úrskurði. „Við fyrstu sýn virðist mér að Varnarliðið sé að segja upp kjaraatriðum rafiðnaðarmanna sem kaupskrárnefnd hefur úr- skurðað um,“ segir hann. Í úrskurði nefndarinnar um rafiðnaðarmenn frá nóvember 2000 sagði að uppbygging launa og kjaraatriða skyldi haldast óbreytt frá því sem áður hefði verið og kæmi fram á launaseðl- unum. ASÍ stefnir á að ljúka yfirferð sinni á úrskurðum nefndarinnar fyrir 15. nóvember. Samkvæmt bréfi sem á annað hundrað starfs- fólks fékk frá Starfsmannahaldi Varnarliðsins verður litið svo á að það segi upp störfum þann dag, hafi það ekki undirritað samning um kjaraskerðingu. Misjafnt er milli starfsmanna hversu mikil kjaraskerðingin er, allt hvort um er að ræða ferðatíma, rútugjald og bílastyrki, en dæmi er um allt að 100.000 króna skerðingu á mánuði. Friðþór Eydal, upplýsingafull- trúi Varnarliðsins, segir ekki fyrir- hugað að draga til baka kjara- skerðinguna, líkt og gert var með uppsagnir 90 starfsmanna. Kjaraskerðing talin ólögleg Formaður Rafiðnaðarsambandsins telur uppsagnir Varnarliðsins á kjaraatriðum rafiðnaðarmanna stangast á við úrskurð kaupskrárnefnd- ar varnarsvæða. Óheimilt er að rjúfa þá úrskurði einhliða. jtr@frettabladid.is Sjá nánar síðu 8 BÚNAÐURINN AÐGÆTTUR Pólskur hermaður hugar að búnaði sínum, skammt utan við hina fornu borg Babýlon. 441 hermaður fallinn: Nær tveir falla daglega ÍRAK, AP Pólskur liðsforingi var skotinn til bana við Al Mussayih, um 40 kílómetra norður af Karbala. Þá féllu tveir bandarískir her- menn í fyrirsáti uppreisnarmanna í Írak í gær. Samtals hefur 441 her- maður fallið í Írak frá því innrásar- stríðið hófst í mars, þar af hafa 269 fallið frá því Bush Bandaríkjafor- seti lýsti yfir því, 1. maí að meiri- háttar átökum væri lokið. Alls hefur 381 Bandaríkjamaður fallið, 53 Bretar, tveir Spánverjar, einn Úkraínumaður, einn Dani og einn Pólverji. Tæplega 2.200 bandarískir her- menn hafa særst í Íraksstríðinu. ■ Fjarðarál: Áætlanir breytast ÁLVER Fram kom á kynningarfundi Seðlabankans með fréttamönnum í gær að nýjustu upplýsingar um framkvæmdir á Austfjörðum bendi til þess að hluti fjárfesting- ar í álveri Fjarðaráls á Reyðar- firði færist afturábak. Þannig sé gert ráð fyrir minni fjárfestingu í álverinu á árinu 2005 en áður hef- ur komið fram og meiri fjárfest- ingu árið 2007. Már Guðmundsson, aðalhag- fræðingur Seðlabankans, segir að þetta leiði til minni spennu og minni hagvaxtar árið 2005 sem flytjist þá að einhverju leyti yfir á árið 2007. ■ þitt eintak v iku legt t ímar i t um fó lk ið í l and inu birta 7. NÓVEMBER TIL 13. NÓVEMBER 2003 ÚTBRE IDDASTA T ÍMARIT LANDSINS – 96 .000 E INTÖK NR . 35 Sjónvarpsdagskrá næstu7daga Bannvara og blandspólur Kynbundið námsval Ástarsorg Fréttir úr ástandinu Verðlauna- krossgáta Hera og hafið Hera: ▲ fylgir Fréttablaðinu dag Lætur stjórnast af innblæstri birta ● Persónuleikapróf

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.