Fréttablaðið - 07.11.2003, Side 10
BYGGÐAMÁL „Okkar möguleikar
felast fyrst og fremst í því að
tengja vestfirska háskólamennt-
um við aðra háskóla í landinu. Þar
horfi ég til Háskóla Íslands, Há-
skólans á Akureyri og rannsókna-
stofnana í sjávarútvegi,“ segir
Einar Kristinn Guðfinnsson, al-
þingismaður Sjálfstæðisflokks-
ins, um þá hugmynd sem hæst ber
innan nefndar iðnaðarráðherra
um úrræði til styrktar atvinnulífi
á Vestfjörðum.
Halldór Halldórs-
son, bæjarstjóri í
Ísafjarðarbæ og
einn nefndar-
manna, sagði í
Fréttablaðinu að hann teldi rétt að
horfa til þess að Vestfirðir stefni
að háskólasamfélagi og fari í raun
þveröfuga leið ef miðað er við
stóriðjustefnuna sem blómstrar á
Austfjörðum. Þar verði áhersla
lögð á stefnu sem væri umhverf-
isvæn og menn muni nýta sér og
halda hreinleika Vestfjarða og
óspilltri náttúru. Mikil þekking í
sjávarútvegi og öflug tæknifyrir-
tæki á sjávarútvegssviði gefi
Vestfirðingum forskot í þessum
efnum.
Einar Kristinn segist taka
heilshugar undir með Halldóri
bæjarstjóra.
„Ég hef unnið með honum að
þessari stefnu ásamt fleira góðu
fólki. Á Vestfjörðum hafa menn
tekið forystu í fjarkennslu á
margan hátt. Þar stunda að jafn-
aði yfir 100 manns háskólanám
með fjarkennslu. Þarna virðist
ekki vera um að ræða bólu sem
einungis stendur í stuttan tíma
heldur virðist þetta vera nokkuð
sem er komið til að vera,“ segir
hann.
Einar Kristinn segir að næsta
skref verði að hefja háskóla-
kennslu á Vestfjörðum.
„Í upphafi mun slíkt ekki gefa
mjög mörg störf en síðan verða
tækifærin nær óþrjótandi, sér-
staklega ef okkur tekst að marka
þessu háskólastarfi sérstöðu, til
dæmis með því að tengja það
rannsóknum á sviði veiðarfæra-
framleiðslu og þorskeldi. Há-
skólavæðing gæti hæglega orðið
stóriðja okkar Vestfirðinga,“ seg-
ir Einar Kristinn.
rt@frettabladid.is
10 7. nóvember 2003 FÖSTUDAGUR
■ Evrópa
STJÓRNSÝSLA Úrskurðanefnd hús-
næðismála telur Íbúðalánasjóð
hafa skapað óvissu um réttarstöðu
skuldara við sjóðinn með sérmeð-
ferð tveggja viðskiptavina.
Þegar Íbúðalánasjóður leysir til
sín íbúðir vegna vanskila hefur
sjóðurinn þá vinnureglu að heimila
ekki skuldaranum endurkaup íbúð-
arinnar fyrr en hún hefur verið
rýmd.
Fólk sem missti íbúð sína á
nauðungaruppboði vildi endur-
heimta íbúðina áður en til útburðar
kæmi. Íbúðalánasjóður synjaði
beiðninni. Í kæru til úrskurðar-
nefndar húsnæðismála benti fólkið
á að sjóðurinn hefði í tveimur sam-
bærilegum tilvikum orðið við
beiðni um endurkaup.
Úrskurðarnefndin sagði synjun
Íbúðalánasjóðs vera málefnalega.
Hins vegar hafi sjóðurinn veitt
tvær undanþágur frá umræddri
vinnureglu, í bæði skiptin vegna
veikinda viðkomandi skuldara, án
þess að slíkar undanþágureglur
væri að finna í vinnureglum sjóðs-
ins: „Sértæk frávik eins og hér um
ræðir frá afdráttarlausum vinnu-
reglum telur kærunefnd óæskileg
og til þess fallin að valda réttar-
óvissu fyrir skuldara sjóðsins,“
sagði úrskurðarnefndin og beindi
því til Íbúðalánasjóðs að gæta sam-
ræmis hvað þetta varðar. ■
Háskólavæðing
vestfirsk stóriðja
Miðstöð Símenntunar á
Suðurnesjum:
Glímir við
fjárhags-
vanda
SKÓLAMÁL Miðstöð Símenntunar á
Suðurnesjum stendur frammi fyrir
fjárhagsvanda og neyðist til að
draga úr starfsemi sinni nema til
komi frekara framlag ríkisins.
Miðstöðin hefur annast fullorð-
insfræðslu á svæðinu í sex ár en
sökum mikillar eftirspurnar hefur
reynst erfitt að halda kostnaði
niðri. Framlag ríkisins á þessu ári
er 9 milljónir króna en reiknaður
kostnaður miðstöðvarinnar er 12
milljónir króna. ■
■
„Á Vestfjörðum
hafa menn tek-
ið forystu í fjar-
kennslu.“
Norske skog:
Skipt um
forstjóra
ÓSLÓ, AP Forstjóraskipti verða um
áramótin hjá Norske skogindustri-
er, öðrum stærsta pappírsfram-
leiðanda heims.
Jan Oksum, sem starfað hefur
hjá fyrirtækinu í tæpan aldar-
fjórðung, tekur við af Jan Reinaas.
Norske Skog hefur um 13% mark-
aðshlutdeild í blaða- og tímarita-
pappír. Hagnaður nam rúmum 470
milljónum króna á þriðja ársfjórð-
ungi en var 1.900 milljónir króna á
sama tímabili í fyrra.
Rúm 8000 manns starfa hjá
Norske skog í Lysaker, skammt
utan við Ósló, og tæplega 5000 til
viðbótar í dótturfyrirtækjum. ■
LEYFI TIL AÐ SKJÓTA NIÐUR
FLUGVÉLAR Ríkisstjórn Þýska-
lands hefur samþykkt lagafrum-
varp sem heimilar hernum að
skjóta niður flugvélar sem eru á
valdi flugræningja í þýskri loft-
helgi ef talið er að þær ógni ör-
yggi almennings. Ákvörðunin um
að skjóta niður flugvél verður í
höndum ríkisstjórnarinnar.
HÓTAÐI AÐ SPRENGJA UPP
VERSLUNARMIÐSTÖÐ Tékkneska
lögreglan handtók 18 ára mann
sem hótaði að sprengja upp versl-
unarmiðstöð í Prag ef hann fengi
ekki greitt andvirði 150 milljóna
íslenskra króna. Lögreglu hafa
borist um 500 svipaðar hótanir á
undanförnum sjö mánuðum.
FERÐAÞJÓNUSTA SEM
HLUTFALL AF GJALDEYRISTEKJUM
1998 12,9%
1999 12,8%
2000 13,1%
2001 12,4%
2002 12,1%
Heimild: Svar samgönguráðuneytis
við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur.
Úrskurðarnefnd segir réttarstöðu skuldara í óvissu:
Íbúðalánasjóður hætti sérmeðferð
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR
Íbúðalánasjóður vék frá vinnureglum til að
koma til móts við tvo veika skuldara sem
misst höfðu íbúðir sínar á nauðungarupp-
boði og vildu eignast þær aftur.
Einar K. Guðfinnsson alþingismaður tekur undir með þeim sem
vilja að háskóli og rannsóknir tengdar sjávarútvegi komi vestfirsku
atvinnulífi til bjargar.
EINAR K. GUÐFINNSSON
Vill að háskóli rísi á Vestfjörðum og glæði atvinnulífið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Svonaerum við