Fréttablaðið - 07.11.2003, Síða 38

Fréttablaðið - 07.11.2003, Síða 38
38 7. nóvember 2003 FÖSTUDAGUR YFIR ATLANTSHAFIÐ Svissneska skútan Carrefour Prevention leggur af stað í Transat Jacques Vabre- siglingakeppninni yfir Atlantshafið. Skút- urnar sigla frá Le Havre í Frakklandi til Bahia í Brasilíu. Siglingar FÓTBOLTI „Það hefði mátt búast við ósigri hér en alls ekki þessum úr- slitum,“ sagði Augusto Lendoiro, forseti Deportivo, eftir 8-3 tap fé- lagsins fyrir Monaco á miðviku- dag. Lendoiro fer ekki á útileiki félagsins en í þetta sinn þáði hann boð um að fylgja liðinu til Monaco. Hann breytti síðast út af þessari sérvisku sinni fyrir fjór- um árum og þá tapaði Deportivo 5-1 fyrir Arsenal í UEFA-bikarn- um. Íþróttablaðið Marca var ekk- ert að skafa utan af hlutunum í umfjöllun sinni um leikinn. „Deportivo var skrípamynd af sjálfu sér. Galisíumennirnir voru staðráðnir í að fremja sjálfsmorð eins og þeir væru haldnir illum öndum.“ ■ FÓTBOLTI Hollenski knattspyrnu- maðurinn Patrick Kluivert fær tvo mánuði til að sanna sig hjá Barcelona. Ef honum tekst ekki vel upp er líklegt að hann verði seldur frá félaginu. Freddy Shepherd, stjórnarfor- maður Newcastle, hefur átt í við- ræðum við Katalóníuliðið um hugsanleg kaup á leikmanninum. Arsenal, Manchester United og Chelsea eru einnig sögð vera á höttunum eftir honum. Kluivert hefur átt erfitt upp- dráttar hjá Barcelona og hefur ekki náð að skora mark það sem af er vetri á Spáni. ■ JAKKAFATADAGAR Vönduð jakkaföt á 20% afslætti MAO jakkaföt 17.990 PARKS jakkaföt 19.990 4YOU jakkaföt 15.990 VAN GILS jakkaföt 29.990 Skyrtur Bindi Skór 2.990 2.990 6.990 LAUGAVEGI 91 - KRINGLUNNI FÓTBOLTI AS Mónakó vann stærsta sigur sem unnist hefur í Meist- aradeild Evrópu á miðvikudag þegar liðið lagði Deportivo La Coruna að velli með átta mörkum gegn þremur. Mónakó sló þar með markamet Paris Saint-German sem lagði Rosenborg að velli 7-2 í Meistara- deildinni í október árið 2000. Einu sinni áður í Evrópukeppni meist- araliða hefur sigur unnist með sömu markatölu en það var þegar Lokomotiv Sofia lagði Malmö að velli tímabilið 1964-65. Didier Deschamps, fyrrum fyrirliði heimsmeistara Frakka og núverandi þjálfari Mónakó, lýsti úrslitunum sem glæsileg- asta sigri á ferli sínum. „Að skora átta mörk gegn jafn sterkum and- stæðingi og La Coruna er ótrú- legt. Stundum er ekki hægt að út- skýra það sem gerist í boltanum. Sem leikmaður held ég að ég hafi aldrei unnið jafn stóran sigur gegn jafn góðu liði.“ Dado Miladin Prso var hetja Mónakó á 29 ára afmælisdegi sín- um. Hann þakkaði Deschamps þjálfara traustið er hann kom inn í byrjunarliðið í stað Fernando Morientes, sem stóðst ekki lækn- isskoðun, og skoraði fjögur mörk á 23 mínútum. „Dado var ótrúlegur,“ sagði Jérôme Rothen, leikmaður Mónakó. „Það voru allir með áhyggur af því að Morientes væri ekki með en við sýndum og sönn- uðum að við erum með mikla breidd og fullt af frábærum leik- mönnum“ Prso hefur aðeins skorað eitt mark í sjö leikjum í frönsku deildinni í ár. Hann hefur ekki fengið mörg tækifæri í byrjunar- liðinu eftir að Morientes var keyptur til liðsins. Hann stóð sig samt ágætlega í fyrra, skoraði tólf mörk í tuttugu leikjum. Með sigrinum komst Mónakó í toppsæti C-riðils með níu stig, tveimur stigum meira en Deportivo og þremur meira en PSV Eindhoven. AEK Aþena er á botni riðilsins með eitt stig. Mónakó þarf á stigi að halda úr síðustu tveimur leikjunum. „Þótt við höfum leikið frábær- lega voru þetta bara þrjú stig,“ sagði franski landsliðsmaðurinn Rothen eftir leikinn. „Við unnum orrustuna en stríðið er ekki búið. Við þurfum að ná jafntefli á heimavelli gegn PSV því það er ekki auðvelt að fara til Aþenu og ná í stig þar.“ ■ Handbolti.is: Vefur helgaður handbolta HANDBOLTI „Hefur nýja fyrirkomu- lagið gert handboltann skemmti- legri en í fyrra?“ spyr Hand- bolti.is í könnun sem vefurinn stendur fyrir. Tveir af hverjum þremur eru jákvæðir en þriðjung- ur ekki. Handbolti.is er nýr íþróttavef- ur sem var fyrst birtur á verald- arvefnum upp úr miðjum septem- ber. Að honum standa Þórður Steinþórsson og Ari Sylvain Posocco en auk þeirra skrifar Guðni Már Ægisson fréttir á síð- una. Vefurinn sérhæfir sig í um- fjöllun um handknattleik. Hann flytur nýjustu fréttirnar af hand- boltanum, úrslit, viðtöl, aðsenda pistla og fleira sem tengist íþrótt- inni. ■ Deportivo La Coruna: Sökudólgurinn fundinn? NIÐURLÚTIR Leikmenn Deportivo La Coruna ganga nið- urlútir af velli eftir 8-3 tapið fyrir Monaco. DADO MILADIN PRSO Með mörkunum fjórum komst Prso, númer níu, upp að hlið þeirra Marco Van Basten og Simone Inzaghi sem náðu einnig að skora fjögur mörk í einum og sama leiknum. Ótrúleg afmælisgjöf Mónakó vann stærsta sigur sem unnist hefur í Meistaradeildinni. Dado Prso var hetja leiksins og skoraði fjögur mörk á afmælisdegi sínum. Patrick Kluivert: Fær tvo mánuði til að sanna sig PATRICK KLUIVERT Hefur ekki náð að skora fyrir Barcelona í spænsku deildinni það sem af er tímabilinu. Nígeríska fótboltalandsliðið: Robson ekki ráðinn FÓTBOLTI Nígeríska knattspyrnu- sambandið getur ekki ráðið Bryan Robson í starf landsliðsþjálfara. „Þeir gátu ekki sannfært mig um að þeir gætu greitt Robson 50.000 dollara á mánuði eins og þeir lof- uðu,“ sagði Musa Mohammed, íþróttamálaráðherra landsins. Nígeríumenn, sem hafa haft fjórtán landsliðsþjálfara frá árinu 1988, tilkynntu í byrjun október að Robson yrði næsti landsliðsþjálf- ari þeirra. Hann átti að stjórna lið- inu í Afríkukeppninni sem fer fram í Túnis á næsta ári. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.