Fréttablaðið - 07.11.2003, Qupperneq 42
42 7. nóvember 2003 FÖSTUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
4 5 6 7 8 9 10
NÓVEMBER
Föstudagur
Ég var í rokkinu fram eftir aldri.En alveg frá því ég byrjaði að
spila djassmúsík fór ég strax að
semja lög,“ segir Ómar Guðjóns-
son gítarleikari sem nú er að senda
frá sér sinn fyrsta disk.
Nú í sumar fékk hann til liðs við
sig bróður sinn Óskar á saxófón,
Helga Svavar Helgason trommara
og Þórð Högnason á bassann til
þess að taka upp plötuna.
„Við fórum fjórir saman í æðis-
lega ferð í risastóran sumarbústað
við Apavatn. Við ákváðum að njóta
bara lífsins, taka upp plötu og
liggja í potti og elda góðan mat.
Gera eitthvað sem myndi skila sér
á plötunni.“
Útkoman er hlýleg plata sem
ber heitið Varma land.
„Þetta er gert af einlægni og
vonandi kemur platan til með að
snerta einhverja. Við vorum allir
sem einn að hugsa um að búa til
eitthvað fallegt í kringum lag-
línurnar.“
Ómar segist ekkert vera alveg
viss um það hvort allir vilji kalla
þessa tónlist djass.
„Við vorum ekkert að einblína á
að gera djassplötu heldur fyrst og
fremst að láta okkur líða vel og
spila saman.“
Þórður Högnason bassaleikari
hefur lítið sést á senunni undanfar-
in ár „en ég var svo heppinn að fá
hann til að spila með mér á út-
skriftinni minni frá FÍH í febrúar.
Hann fór svo vel með lögin mín að
mér fannst ég verða að fá hann til
að spila á plötunni.“
Í kvöld spila þeir tónlistina af
plötunni á útgáfutónleikum á
NASA við Austurvöll.
Tónleikarnir eru á dagskrá
Jazzhátíðar Reykjavíkur, sem nú
stendur yfir.
Aðrir tónleikar verða einnig á
hátíðinni í kvöld, einnig á NASA.
Vestur-íslenska söngkonan Martha
Brooks stígur á svið og flytur tón-
list með tríói skipuðu hljóðfæra-
leikurum úr fremstu röð
kanadískra djassleikara. ■
Miðasala í í síma 562 9700
www.idno.is
Lau. 8. nóv. kl. 20:00
Örfá sæti laus
Su. 16. nóv. kl. 20:00
Örfá sæti laus
Lau. 22. nóv. kl. 20:00
Örfá sæti laus
Lau. 29. nóv. kl. 20:00
■ ■ KVIKMYNDIR
Sjá www.kvikmyndir.is
Sambíóin Kringlunni, s. 588 0800
Sambíóin Álfabakka, s. 587 8900
Háskólabíó, s. 530 1919
Laugarásbíó, s. 553 2075
Regnboginn, s. 551 9000
Smárabíó, s. 564 0000
Sambíóin Keflavík, s. 421 1170
Sambíóin Akureyri, s. 461 4666
Borgarbíó, Akureyri, s. 462 3500
20.00 Kvikmyndasafn Íslands sýn-
ir sænsku kvikmyndina Smultronstället
eftir Ingmar Bergman í Bæjarbíói,
Strandgötu 6, Hafnarfirði. Sýningin er í
samvinnu við Sænska menningarviku og
sænska sendiráðið
■ ■ TÓNLEIKAR
17.00 Gunnar Kvaran sellóleikari
og Haukur Guðlaugsson píanóleikari
halda tónleika á Ljósafossi, Grímsnesi,
fyrir vistfólk Byrgisins. Gestir velkomnir
20.00 Kvartett Jonas Kull-
hammars frá Svíþjóð verður með djass-
tónleika í Norræna húsinu í tengslum
við sænska menningarviku.
20.00 Óperukór Hafnarfjarðar
verður í Vínarsveiflu í Haukahúsinu á
Ásvöllum með Elínu Ósk Óskarsdóttur
óperusöngkonu og stjórnanda í farar-
broddi.
20.30 Útgáfutónleikar Ómars
Guðjónssonar gítarleikara verða á
Jazzhátíð Reykjavíkur á skemmtistaðn-
um NASA við Austurvöll. Varma land
nefnist diskurinn sem hann er að
senda frá sér. Með honum spila bróðir
hans Óskar Guðjónsson á tenór-
saxófón, Þórður Högnason bassaleik-
ari og Helgi Svavar Helgason trommu-
leikari.
22.00 Jazzhátíð Reykjavíkur á
Nasa. Vestur-íslenska söngkonan
Martha Brooks flytur gæðadjass ásamt
tríói sínu með David Restivo á píanó,
Mike Downes á bassa og Ted Warren á
trommur.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Græna landið eftir Ólaf
Hauk Símonarson er sýnt í Frumleik-
húsinu í Keflavík.
20.00 100 prósent hitt með Helgu
Brögu í Ými við Skógarhlíð.
20.00 Íslenski dansflokkurinn
sýnir dansverkin The Match, Symbiosis
og Party á stóra sviði Borgarleikhúss-
ins.
20.00 Kvetch eftir Steven Berkoff á
litla sviði Borgarleikhússins.
20.00 Farsinn Allir á svið á stóra
sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Pabbastrákur eftir Hávar
Sigurjónsson á litla sviði Þjóðleikhúss-
ins.
20.00 Veislan á Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins.
■ ■ SKEMMTANIR
23.00 Hljómsveitin Maus spilar á
Grand Rokk.
Hátíðardansleikur með Bógomil
Font og Orkusveitinni á Nasa við Aust-
urvöll.
Rut Reginalds syngur á Græna
hattinum, Akureyri.
Strákarnir í Sóldögg ætla að gera allt
vitlaust á Gauknum áamt DJ Rikka.
Á Pravda verður grúvbandið
Multiphones með Bigga Nielsen í far-
arbroddi fyrri hluta kvölds og svo verða
Dj’s Balli og Tommi á neðri hæðinni og
DJ Áki á efri hæðinni.
Atli niðri og Þórhallur uppi á
Laugavegi 22.
Motown-sýningin á Broadway með
Páli Óskari í fararbroddi. Hljómsveitin
Jagúar leikur undir og aðrir stórgóðir
söngvarar koma fram. Stórdansleikur
með hljómsveitunum Skítamóral og
Pöpum eftir miðnætti.
Hermann Ingi jr. spilar á Café Catal-
ina í Kópavogi. Frítt inn.
Stefán Örn trúbador spilar bæði á
gítar og píanó á Kránni, Laugavegi 73.
Geirmundur Valtýsson og hljóm-
sveit hans halda uppi sveiflunni á
Kringlukránni.
Veggljós að austan, Danni og Dix-
ielanddvergarnir, Ókind, Lokbrá,
Noise, Jan Mayen, Ríkið, ESP og Days
of our lives koma fram á Samsulli-rokk-
hristingi í Tjarnarbíói.
Hinn eini sanni Viðar Jónsson
skemmtir í Shooters.
Dúettinn Acoustics skemmtir á Ara í
Ögri.
Hljómsveit Rúnars Þórs skemmtir á
ODD-Vitanum, Akureyri.
Hljómsveitin Tilþrif verður í Lundan-
um í Vestmannaeyjum.
■ ■ FYRIRLESTRAR
14.30 Meistaraprófsfyrirlestur
Bergs Sigfússonar um veðrun og þróun
jarðvegs í nágrenni Grundartanga í Hval-
firði fer fram í Odda, stofu 101.
■ ■ SAMKOMUR
11.45 Edda Björgvinsdóttir tekur
á móti gestum og losar um hömlur á
hádegi í Iðnó.
■ ■ FÉLAGSLÍF
19.00 Herrakvöld Vals verður
haldið að Hlíðarenda fyrsta föstudag í
nóvember eins og ávallt. Veislustjóri
verður Guðni Bergsson og ræðumaður
kvöldsins Þórólfur Árnason borgarstjóri.
Skemmtiatriðin verða í höndum Jó-
hannesar Kristjánssonar eftirhermu og
þeirra Stefáns Hilmarssonar og Eyjólfs
Kristjánssonar.
19.00 Árshátíð Félags eldri borg-
ara í Reykjavík verður haldin í Ásgarði,
Glæsibæ.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
OASIS ER Í KRINGLUNNI Í auglýs-
ingu sem birtist í blaðinu í gær
var verslunin Oasis sögð vera í
Smáralind sem er alls ekki rétt
því verslunin er staðsett í Kringl-
unni. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
■ Leiðrétting
■ TÓNLEIKAR ÓMAR GUÐJÓNSSON
Spilar lög af nýjum diski
sínum á djasshátíðinni á
NASA í kvöld.
Lágu í potti við Apavatn
Laugardagur 08.11. kl. 20 uppselt
Föstudagur 14.11 kl. 20 uppselt
Laugardagur 22.11. kl. 20 örfá sæti laus
Föstudagur 28.11. kl. 20 örfá sæti laus
Ósóttar pantanir seldar daglega.
ö›ruvísi
LAUGAVEGI 20B GENGIÐ INN FRÁ KLAPPARSTÍG