Tíminn - 18.07.1971, Síða 3
SCNNUnáÆCR 18. júlí 1971
TIMINN
15
Kaflar úr ræðu Guðmundar G. Þórarinssonar um reikninga Reykjavíkurborgar fyrir árið 1970 og hluti umræðna:
GREIDSLUSTAÐA BORGAR-
SJÓDS ER BLEKKING
- Greiðsluhalli borgarsjóðs 32,3 milljónir króna
EB-Reykjavík, laugardag.
Þegar fjallaS var um reikn-
inga Reykjavíkurborgar fyrir
árið 1970 á borgarstjórnar-
fundi s.l. fimmtudagskvöld,
gagnrýndi Giðmundur G.
Þórarinsson (F) þá harSlega.
Fara hér á eftir kaflar úr
ræSu hans, og ennfremur
orðaskipti milli hans og Geirs
Hallgrímssonar, borgarstjóra.
Guðmundur G. Þórarinsson
sagði m.a-:
„Það scm fyrst vekur athygli
við reikninga borgarinnar fyrir
árið 1070 er hinn mikli greiðslu-
halli, sem nemur 32,3 milljónum
kr. Allt geymslufé, vegna óeyddra
fjárveitinga hefur verið notað, og
þar myndast skuld að upphæð 14,3
millj. kr. Lántökur hafa farið veru
lega fram úr áætlun og orðið
115,8 millj. kr. í stað 37 millj. í
áætlun, en jafnframt hafa skuldir
borgarsjóðs við hinar ýmsu stofn-
anir borgarinnar aukizt mjög, t.d.
hafa skuldir við Malbikunarstöð
aukizt um ca. 10 millj. kr., við
húsatryggingar um ca. 24 millj. kr.
við hitaveitu ca. 10 millj. kr., við
rafmagnsveitu ca. 14 millj. kr.
o.s.frv.
Oft hefur verið deilt um þá
tekjuöflun borgarsjóðs, að • taka
4% arð af hreinni eign hinna
ýmsu stofnana. Sá tekjustofn nam
nú um 32 millj. kr., en að þessu
sinni hefur borgarsjóður auk þess
orðið að ganga verulega á sjóði
fyrirtækjanna. Greiðslustaða borg-
arsjóðs hefur versnað og virðist
mér þó að mat veltufjármuna í
reikningum, sé vægast sagt vafa-
samt og jafnvel hrein blekking,
og er greiðslustaða mun lakari en
látið er í veðri vaka.
Vert er að geta þess, að reikn-
ingur liggur nú seint fyrir — og
alltof seint, og skýrsla endurskoð-
enda barst borgarfulltrúum ekki
í hendur fyrr en á þriðjudag.
Tíminn frá þriðjudégi til fimmtu-
dags, þegar f jallað er nú um reikn-
ingana, er ekki til stórræða, þeg-
ar tekið er tillit til þess að borg-
arfulltrúar vinna borgarstjórnar-
störf sín í aukavinnu. Á síðasta
ári, þegar reikningar voru til um-
ræðu, var mjög gagnrýnt hversu
seint endurskoðunarskýrsla og
reikningar lágu fyrir og hafði borg
arstjóri þá orð á, að nauðsynlegt
væri að bæta úr í því efni, en
efndir hafa engar orðið. Endur-
skoðendur hafa enn ekki fjallað
um svör forstöðumanna stofnana
við athugasemdum sínum og er
það afleitt. Jafnframt er reikning-
urinn ófullkominn, bókhald Iðn-
skólans og Borgarspítalans hefur
ekki verið endurskoðað o^ fyrir
slíku eru engar afsakanir.
Uppsetningin er hrein
blekking
í skýrslu endurskoðenda segir,
að greiðslustaða borgarsjóðs hafi
versnað, greiðslustaða er þar skýr
greind sem brotið: veltufjármunir
deilt með skuld til skamms tíma.
1969 var greiðslustaðan 2,23 en
1970 1,77. Segir þar, að uppsetn-
ing þessara liða sé ekki óaðfinn-
anleg. Að mínu viti er uppsetn-
ingin hrein blekking. Veltufjár-
munir eru venjulega skýrgreindir
sem það fé, sem unnt er að ná inn
■í reksturinn innan eins árs. Stór
hluti þeirra fjármuna sem færðir
eru sem veltufjármunir, eru þess
eðlis að óhugsandi er að ná þeim
inn í reksturinn innan eins árs,
en jafnframt er stór hluti, millj-
óna tugir veltufjármuna, þess eðl-
is að óhugsandi er yfir höfuð að
þeir innheimtist. Veltufjármunir
eru því taldir mörgum milljóna
tugum meiri en þeir raunveru-
lega eru, og með því móti, er
greiðslustaða borgarsjóðs gefin
upp miklu betri en hún í rauninni
er. Dæmin eru rnörg og óhugsandi
að xekja þau öll hér. Ég vil taka
nokkur til að skýra málið.
Pípugerðin: 25 millj. kr.
ættu a3 dragast frá veltu-
fjármunum borgarsjóðs
Skuld Pípugerðar ReykjaVíkur
við borgarsjóð er talin með lán-
um til skamms tígia og því færð
til veltufjármuna, en lán til
skamms tíma eru lán sem væntan-
lega innheimtast innan árs. Skuld-
in nemur 26,5 millj. kr. Á síðasta
ári greiddi Pípugerð borgarsjóði
rúmlega hálfa milljón upp í skuld-
ina. Mjöig ólíklegt er að mínu viti
að Pípugerðinni sé fært að greiða
borgarsjóði meira en eina til tvær
milljónir á ári í bezta falli og því
ættu um 25 milljónir að dragast
frá veltufjármunum borgarsjóðs,
en það rýrir greiðslustöðuna veru-
lega. Raunar er Pípugerðin eitt
dæmið um óarðbæra fjárfestingu
þ.e. gífurlegt fjármagn er þar
bundið sem skilar sáralitlum arði.
Korpúlfsstaðir og
Framkvæmdasjóður
Þannig mætti telja upp mörg
dæmi um skuldir borgarstofnana
við borgarsjóð, sem taldar eru til
skamms tíma, í því augnamiði
einu að bæta greiðslustöðu borgar-
sjóðs á pappírnum, en ættu að
skiptast á fleiri ár. Hitt er þó
alvarlegra þar sem fæi'ðar eru til
skuldar hjá stofnunum fjárupp-
hæðir, sem beinlínis eru rekstr-
arfé, sem þegar hefur verið eytt
og óhugsandi er að greiddar verði
yfir höfuð. Þessar fjárhæðir eru
síðan reiknaðar til veltufjármuna
og greiðslustaðan þannig bætt.
Frægasta dæmið er sennilega
Fratnkvæmdasjóður, en þau eru
fleiri. Ef litið er t.d. til reiknings
fyrir Korpúlfsstaði, sem færð ur er
sem sérstakur reikningur fyrir ut-
an reikning borgarsjóðs sjálfs,
sést að fé, sem þar tapast í rekst-
urskostnaði og viðhaldi, er reiknað
Korpúlfsstöðum til skuldar við
borgarsjóð, en í reikningum borg-
arsjóðs er fé þetta fært sem inn-
eign borgarsjóðs hjá Korpúlfs-
stöðum. Skuldin eykst síðan ár
frá ári og er nú rúmlega 10 millj.
kr. Það verkar ákaflega hagstætt
fyrir borgarsjóð, að reikna fé sem
er raunverulega rrkstrarkostnaður
til skuldar á hliðarreikningum
ákveðinnar stofnunar, en færa það
síðan sem eign í reikningum borg-
arsjóðs sjálfs. Þessi eyddi rekstrar
kostnaður er síðan metinn sem
lán til skamms tíma, færður inn
sem veltufjármunir og bætir
þannig greiðslustöðuna. Óhugsandi
er að Korpúlfsstaðir geti greitt
þessa skuld. Vextir af þessu fé
sem jafnframt eru reiknaðir sem
tekjur borgarsjóðs nema nú 870
Guðmundur G. Þórarinsson
þúsundum á ári, eða eru nær jafn
liáir og heildartekjur Korpúlfs-
staða. Það er því hrein blekking
að færa 10 millj. kr. skuld Korp-
úlfsstaða, sem lán til skamms tíma
í borgarreikningum. Nákvæmlega
sömu sögu er að segja um skuld
Framkvæmdasjóðs við borgarsjóð,
en hún nemur rúmlega 93 millj.
kr. Sú fjárhæð er færð í reikn-
ingum borgarsjóðs til veltufjár-
muna, þrátt fyrir staðhæfingar
endurskoðenda um, að sjóðurinn
muni alls ekki geta greitt þessa
fjárhæð. Vextir af skuld Fram-
kvæmdasjóðs nema nú um 10 millj.
kr. á ári og eru færðir sem tekj-
ur borgarsjóðs.
Hlýtur að valda borgar-
sjóði greiðsluerfiðleikum
Rétt er að geta þess, að þessar
vaxtatekjur af lánum sem óhugs-
andi er að greiðist hljóta að valda
borgarsjóði greiðsluerfiðleikum,
vegna þess að þær eru reiknaðar
með tekjum í fjárhagsáætlun, en
eru ímyndaðar tekjur er
aldrei skila sér. Svipaða sögu má
segja um skuldir íþróttasjóðs við
borgarsjóð, en sú skuld nemur um
40 millj. kr. sem er færð í borg-
arreikningum sem lán til skamms
tíma og leggst því við ^veltufjár-
muni og bætir greiðslustöðuna
stórlega. í skýrslu endurskoðenda
segir hins vegar, að óelilegt sé
að færa þessa fjárupphæð til skuld
ar hjá íþróttasjóði, þar sem að-
eins sé um heimild í lögum að
ræða til greiðslu, en ckki laga-
lega skyldu.
Skýrt dæmi
Mér hefur helzt dottið í hug að
líkja þessum færslum í reikingum
borgarsjóðs við það, að ég ræki
sjálfur fyrirtæki sem m.a. ætti
jarðýtu. Fyrirtækið ræki jarðýt-
una með gífurlegu tapi og tæki
þá til bragðs að færa Sérstakan
hliðarreikning fyrir jarðýtuna.
íekstrartap jarðýtunnar, sem næmi
t.d. 10 millj. kr. og gerði það að
verkum að fyrirtækið væri nær
gjaldþrota, væri í reikningum
jarðýtunnar fært sem skuld við
fyrirtækið. En í reikn. fyrirtæk-
isins kæmi tapið fram sem inn-
eign hjá jarðýtunni, þar væri inn-
eignin síðan færð, sem lán til
skamms tíma, legðist því við veltu
fjármuni fyrirtækisins og stór-
bætti greiðslustöðu þess. Allir
hljóta að sjá að greiðslustaða fyr-
irtækisins væri hrein blekking.
Þannig er igreiðslustaða borgar-
sjóðs fengin, en þessar færslur
bæta ekki aðeins greiðslustöðuna,
heldur blekkja þær líka að öðru
leyti. Raunverulegur resktrarkostn
aður er færður sem eign.
Raunveruleg greiSsIu-
staða borgarsjóðs er 1,3
Það er geysilegt verk að yfir-
fara þessa reikninga í held, en
reikningarnir eru yfir 370 bls.
fyrir utan endurskoðunarskýrsl-
ur og athugsemdir. Það er því ekki
unnt til neinnar hlítar á svo
stuttum tíma, utan venjulegrar
vinnu. Ég hef þó gert það að
gamni mínu, að reikna gróft út
raunverulega greiðslustöðu borgar
sjóðs og þá metið skekkjur í reikn-
ingum mjög varlega. Veltuf jármun
ir borgarsjóðs eru nú taldir um
771 millj. kr. Með lánum til
skamms tíma tel é,g óraunhæft
að reikna: Frá Pípugerð Reykja-
víkur 20 millj. kr., Framkvæmda-
sjóði 90 millj. kr., Korpúlfsstöð-
um 10 millj. kr., ríkissjóði 50
millj. kr., íþróttasjóði 30 millj.
kr. — eða samtals um 200 millj.
kr. Greiðslustaðan verður þá 570:
435, sem er=l,3 en það er aldeil-
is annað og alvarlegri staða, en
reikningur borgarsjóðs gefur upp.
Rétt er að geta þess, að við þessa
reikninga er ekki nóg að endur-
meta teljara brotsins, heldur þarf
að skoða nefnarann líka. Þar hef
ég fundið miklu minna athuga-
vert.
Auk alls þessa er alls ekki sam-
ræmi í færslum borgarreiknings-
ins t.d. er skuld Framkvæmda-
sjóðs við borgarsjóð í reikningum
borgarsjóðs, færð sem lán '„il
skamms tíma og stórbætir þannig
greiðslustöðu borgarsjóðs, en í
reikningum Bæjarútgerðarinnar
er skuld BÚR við Framkvæmda-
sjóð, sem er sama skuldin, alls
ekki færð sem skuld til skamms
tíma og greiðslustaða BÚR þannig
stórbætt með þessum misræmi.
Þegar ástæðan fyrir
greiðsluhallanum
er athuguð
Ástæðan fyrir hinum mikla
greiðsluhalla borgarsjóðs 32,3
miilj. kr. er sögð verð- og launa-
hækkanir, sem urðu á árinu 1970.
Vissulega væri ástæða til að rann-
saka þetta nánar, en málið er
bæðí flókið og erfitt og tími lít-
ill, ég hef þó að gamni mínu reynt
að meta nokkra liði. T.d. var til
skólabygginga áætlað fé 97 millj.
framkvæmdir námu hins vegar
120,6 milljónum. Byggingarvísi-
tala var við gerð fjárhagsáætl-
unar í árslok 1969 428 stig. Á
miðju ári 1970 var hún 480 stig.
Ef gert er ráð fyrir að byggingar
framkvæmdir hafi dreifzt nokkuð
jafnt á árið, hefðu framkvæmd-
ir sem námu 97 millj. kr. á áætl-
un, átt að verða 109 millj. kr.
í reynd. Eftir standa því 11 millj.
kr., sem ekki verða skýrðar með
verð- og launahækkunum. Þannig
hef ég reiknað hinar ýmsu bygg-
ingarframkvæmdir og sýna frávik
frá áætlun þá, að framkvæmdir
verða að vera bundnar í flestum
tilfellum við byggingarvisitölu um
600 stig, til þess að vera skýran-
legar með verð- o<r launahækkun-
um eingöngu. Byggingarvísitalan
er hins vegar í dag ekki nema
535 stig. Af þessu sést að ekki er
mikið hald í orðum borgarstjóra
um að hækkunum hafi verði mætt
með auknum sparnaði. Launahækk
anir er hins vegar miklu erfiðara
að meta í öðrum þáttum vegna
þess að vísitölukerfið breytist á
árinu, og launahækkanir hinna
einstöku stétta eru mismunandi.
Óeðlilegar fserslur tekna
Færsla tekna í borgarreikning-
um er óeðlileg þar sem útsvör
meðlög o.fl. er fært til tekna jafn-
óðum og greitt er, en skuldir koma
fram sem ótekjufærðar eftirstöðv
ar. Reikningurinn gefur því eng-
an veginn nægilega glögga yfirsýn,
en hann er nú færður eftir 10—11
ára gömlu kerfi, og er í ráði að
breyta tekjufærslu með hinu nýja
bókhaldskerfi. Sérstaklega þarf
að athuga og bæta innheimtur
borgarsjóðs í heild, þ.e.a.s. þær
innheimtur sem fara fram utan
Gjaldheimtunnar, svo sem meðlög,
húsaleigu, lóðaleigu, afborganir af-
lánum o.fl. Hér virðist vera um
geysimiklar fjárhæðir að ræða og
segir í skýrslu endurskoðenda að
útistandandi leiga nema um 136
millj. kr. Listi yfir meðlagaskuld
ara virðist ekki hafa verið til,
og sýnir það bezt að ekki er von
á góðu.
Óeðlilegur kostnaður o.fl.
Eins og ég hef áður sagt eru
reikningarnir svo gífurlega yfir-
gripsmiklir að þeir verða ekki
ræddi hér til neinnar hlítar.
Mig langar þó til að stinga hér
á aðeins örfáum punktum til við-
bótar.
Oft er rætt um betri vinnunýt-
ingu hjá vinnuflokkum borgarinn-
ar, með tilliti til þess hve lang-
ur tími fari í matartíma og heim-
keyrslur. Mér segir svo hugur um
að laun verkamannanna séu ekki
aðalatriðið i oessu sambandi,
heldur hin lélega nýting leigu-
tækja og vörubifreiða.
Kostnaður við bifreiðir löggæzl
unnar er óeðlilegur, en algengt
er að rckstrarkostnaður bifreiða
þar, sé yfir hálfa milljón og jafn
vel á sjöunda hundrað þúsund kr.
rekstur einnar bifreiðar. Ljóst er
að bifroiðir iögreglunnar eru mik-
Framhald á bls. 16.