Tíminn - 18.07.1971, Side 5
ÍUNNUÐAGUR 18. júlí 1971
TIMINN
17
Tilraunaskólinn til fyrri umræðu í borgarstjórn:
Ein athyglisverðasta tilraun, sem gerð
hefur verið í skólamálum síðari ár
— sagði Alfreð Þorsteinsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í fræðsluráði.
EB-Rcykjavík, laugardag.
Á fnndi í borgarstjórn s.l.
fimmtudagskvöid, voru teknar til
fyrri umræðu tillögnr fræðsluráðs
Reykjavíkurborgar um stofnun
tilrannaskóla á gagnfræða- og
menntaskólastigi. Geir Hallgríms-
son, borgarstjóri, skýrði álit for-
manns fræðsluráðs, Kristjáns J.
Gunnarssonar, á tillögunum, en
auk hans tók til máls Alfreð Þor-
steinsson, fulltrúi Framsóknar-
flokksins í fræðsluráði, og gerði
grein fyrir afstöðu sinni til til-
laganna. Fer hluti af ræðu Alfreðs
Þorsteinssonar hér á eftir:
Satt bezt að segja, leizt mér
ekki sérlega vel á hugmyndina
um tilraunaskóla í upphafi, taldi
ekki hyggilegt að safna öllum
nemendum á framhaldsskólastigi
undir einn hatt til kennslu í ólík-
um greinum. Hvort tveggja var,
að ég taldi ýmsa annmarka á
framkvæmd slíkrar kennslu, auk
þess, sem ég óttaðist, að viss stétta
skiptiHff gæti skapazt innan slíks
skóla. Þannig myndu nemendur
á háskólabraut hafa nokkra sér-
stöðu og forréttindi umfram aðra
nemendur skólans, t.d. þá, sem
veldu sér iðnaðar- og iðjubraut,
og þessar síðar nefndu braut-
ir yrðu afskiptar.
En eftir því, sem málið þróað-
ist í inéðföííms fræðsluráðs,, varð
mér æ betur-.ljóst, að. kenningÍH-
um stéttaskiptingu innan skólans
væri röng. Þvert á móti er ljóst,
að lögð verður mikil áherzla á
það, að gera námsbrautum jafn
hátt undir höfði og dregið úr þvi
vanmati og vanrækslu á tiltekn-
um námsbrautum, sem skipting
námsbrauta milli ólíkra og að-
skildra skólagerða virðast jafnan
hafa í för með sér, eins og getið
er um í greinargerð með tillögu
um skólann.
Spyrja má, hvað sé unnið við að
sameina almennt framhaldsnám í
einni kennslustofnun. Kostimir
em augljósir. Það er ekki ein-
ungis stefnt að hagkvæmara ytra
skipulagi heldur stefnt að því, að
AlferS Þorsteinsson
gera breytingar á innri starfsemi
skólans — ekki breytingar breyt-
inganna vegna — heldur lireyt-
ingar í þá átt, að auka jafnrétti
nemenda, gefa þeim frjálsari
hendur um námsval — og um-
fram allt, að sinria sérþörfum nem-
enda. Þannig er það markmið
skólans að laða það bezta fram
hjá hverjum ein^pkJipgi í þeim
•filgapgj að . þúa . hann sem bezt
.upffjrfhagnýt.syjr^ í þjóðfélaginu.
Mér finnst það ekki síát mikils-
vert, að gert er ráð fyrir því,
að við skólann starfi náms- og
starfsráðgjafar í þeim tilgangi að
leiðbeina nemendum um náms-
lciðir með þarfir atvinnulífsins í
huga. Þannig mun verða leitað til
vinnuveitenda um samvinnu um
atvinnukynningu, sem þátt af
náms- og starfsráðgjöf skólans, þ.
á.m. skipulagða vinnumiðlun í
sumarleyfum, en auk þess er mjög
líklegt, að starfsþjálfun á vinnu-
stað verði hluti af náminu á sum-
um námsbrautum.
Þannig veröur stefnt að því að
hafa lifandi tengsl milli skóla og
atvinnulífsins, en nokkuð hefur
skort á, að svo hafi verið. Er ein-
mitt vikið að því í greinargerð-
inni með tillögunni, að skólamir
hafi dregizt aftur úr þróun at-
vinnuveganna og að efling hvers
konar starfsmenntunar, ekki sízt
á framhaldsskólastiginu, sé þjóð-
inni efnahagsleg nauðsyn.
Er þetta sizt of sterkt að orði
kveðið.
Að mínu viti er hér á
döfinni ein athyglisverðasta til-
raun, sem gerð hefur verið á
skólamálum á íslandi hin síðari
ár — og á Jóhann S. Hannesson
vissulega þakkjr skildar fyrir þá
miklu undirbúningsvinnu, sem
hann- hefur lagt að mörkum við
tillögugerð um skólann. Hann hef
ur starfað eins og myndhöggvari,
sem fær óunninn stein til úr-
vinnslu. í meðförum hans hefur
skapazt heilleg og skýr mynd af
þeim skóla, sem liklegur er til
að leysa af hólmi hina gömlu og
hefðbúndnu skólJk sem marka
nemendutn sina alvcðnu bása í
upphafi raunverulegs framhalds-
náms, og gefa þeim örsjaldan
tækifæri til að leiðrétta stefnuna,
ef ljóst var að hún er röng, nema
með ærinni fyrirhöfn. Hinn nýi
tilraunaskóli leysir þetta vanda-
mál. Honum er ætlað að binda enda
á það, að nemendum sé við ákveð-
inn aldur skipað í skóla, þar sem
þeir eru í eitt skipti fyrir öll
útilokaðir frá tilteknum náms-
brautum. — Honum er ætlað að
gefa nemendum tækifæri til að
fresta endanlegu námsbrautavali
og jafna þannig aðstöðu þeirra til
að velja sér námsbraut í sem
fyllstu samræmi við þann áhuga
og þá getu, sem vaxandi þroski
þeirra kann að leiða í ljós.
Ég vil að endingu koma á
framfæri þeirri hugmynd, að
kalla skólann framvegis sam-
skóla í stað tilraunaskóla. í
greinargerð með tillögunni er
nafngiftinni tilraunaskóli hafnað,
enda þótt búast megi við því, að
fyrst um sinn veröi skólinn nokk-
urs konar tilraunaskóli. Talað hef-
ur verið um sameinaðan fram-
haldsskóla, en miklu einfaldara og
eðlilegra er að tala um samskóla
— skóla, sem sameinar margar oc
ólíkar námsbrautir — og er í
mótvægi við sérskóla.
í tillögunum er gert ráð fyrir,
að um nafn skólans verði farið
eftir tíðkanlegum venjum og
hann kenndur við umhverfi sitt
en ekki markruið, en ég vil halda
því fram, að þessi sjónarmið megi
samræma á einfaldan hátt með
því að tala um samskóla í þessu
og þessu hverfi. Þannig myndi
nýi skólinn í Bi-eiðholtsliverfi
verða nefndur samskólinn í Breið
holti eða Breiðholtshverfí á sama
hátt og við tölum um menntaskól-
ann við Tjörnina eða mennta-
skólann í Hamrahlíð.
Orðsending til
opinberra starfsmanna
Fjárlaga- og liagsýslustofnun fjármálaraðuneytis-
ins á þess kost, eins og á undanfömum árum, að
senda ríkisstarfsmann til þjálfunar í opinberum
rekstri á námskeið, sem haldið verður í Osló á
vegum norska ríkisins. Er námstíminn 12 mánuðir
og hefst 20. september n.k.
Til þátttöku á námskeiði þessu er ætlað að velja
ríkisstarfsmann með staðgóða reynslu á sviði opin-
bers rekstrar, og er háskólamenntun í viðskipta-
fræði, hagfræði, verkfræði eða skyldum greinum
æskileg. Skólagjöld verða engin, og er gert ráð
•fyrir, að þátttakandi haldi óskertum launum
meðan á námskeiðinu stendur, fái greidd fargjöld
og auk þess venjulega námsmannayfirfærslu gegn
skuldbindingu um að starfa a.m.k. eitt ár hjá
ríkinu, eftir að námi er lokið.
Umsóknir um þáttöku ásamt umsögn yfirmanns
eftir því sem við á, þurfa að berast fjárlaga- og
hagsýslustofnun í síðasta lagi 7. ágúst n.k., og
eru þar gefnar nánari upplýsingar.
F j ármálaráðuneyHð,
f járlaga- og bagsýstustofnun.
■ «9
Við höfum flutt
útibúokkar
fiá Grensásvegi 12
íhús
Silla ogValda
aö Álfheimum 74.
ÚTVE GS BAJN KI
ÍSLANDS