Tíminn - 18.07.1971, Síða 7

Tíminn - 18.07.1971, Síða 7
StMNUÐAGtJR 18. JBH 1971 T5 árgangar af góðum nemendum Tíminn- NÖ hafa 1S HrgBBg- ar brantskráðst frá skólanum. Hvexnig þyfeir þér nú hafa tíl trfrfat: meS flutning og skipnlag skólans? Sr. GnOmunönr: Ég tel, a3 vel hafi tíl tekizt um flutning gfcólana, og aS hér hafi tekizt aS byggja upp sérstætt mennta- ■cetnr Menntastofnun byggist Bka að verulegu leyti á efni- vöJnum, nemendunum ,og full- jjQt mi, aS viS höfum fengiö mjög góða nemendur. Lang flestir hafa komið aS eigin ósk. Ég held kannski, aS þaS sé mesta gæfa skólans. AnnaS er, 46 pkólinn tekur tvo vetur. XokatakmarkiS er því aldrei langt nndan. Þetta er kostur, því þá taka nemendur námiS þegar föstum tökum. í þriðja lagi skynja menn fljótt, að miVlar kröfur eru til þeirra gerSar, en finna jafnframt, að þeir geta náð árangri. Sú vit- tmd hefur orðið hvatning til að leggja sig fram. Að sjá ár- angur erfiðis sfns fyllir þau áhuga og gerir þau fúsari til að leggja sig fram. Fjórða atriðið er svo félagslífið. Hér hefur yfirleitt verið mjög mikið fé- lagslíf og félagsandi, svo marg- ir hafa furðað sig á, þar sem svo miklar námskröfur eru gerðar. En hvort tveggja er, að nemendur hafa fengið góða hjálp við skipulagningu félags- lífs og að hingað hefur yfir- leitt komið mjög félagslynt fólk. Við höfum verið með fólk á öllum aldri. Meðalaldur er yfirleitt hár og hefur verið að hækka. Það er áberandi, að margt af þessu fólki hefur starfað að félagsmáium, áður en það kemur hingað. Loks tel ég, að góður félagsandi hafi legið í loftinu hér, og það vil ég þakka fyrstu árgöngunum, sem gerðu sér grein fyrir, hve mikilvægt félagslífið er og hag nýting tómstundanna — þótt alltaf séu áraskipti að því eins og öðrum árangri. Hvort svarið er þar með tæmt skal ég ekki segja. Ég held, að orðstír skólans út í frá hafi meira að segja en fullyrðingar okkar, sem störf- um hér, og ég tel óhætt að segja, að almenningsálitið álíti nemendur héðan þroskað fólk, sem farið hefur í gegn um kröfuhart nám, fólk, sem hefur lært að vinna og laga sig eftir kröfum vinnu, félagslifs og samfélags. Sá dómur er óljúg- fróðastur um hvernig til tókst með breytingu skólans, og sá árangur hefur fengizt fyrir sam starf þeirra sem vinna hér og þeirra, sem hingað sækja til mennta. Vantar löggjöf um verzlunarmenntun Síminn: En hvert stefnir nú? Sr. Guðmundur: Inn í þjóð- félag, þar sem menn gera kröfu til þess að eiga kost á meiri menntun en verið hefur. Sumir segja: Til menntunarsamfélags. Þess hlýtur að gæta, líka á sviði verzlunarmenntunar, sem annarrar menntunar í landinu. Ég held, að ekki fari hjá því, að löggjafinn hljóti að álíta verzlunarmenntunina þess eðlis, að um hana þurfi að setja ramma löggjöf. Nú lítur út fyr- ir, að menntun verði í þessum stigum: Grunnskólastigi, mennta skóla og sérskólastigi, og loks háskólastigi, en það gæti orð- ið tvískift. Með hliðsjón af þessu mætti ætla, að ekki sé þess ólíklega til getið. ^ð hvað verzlunarmenntun varðar mun- um við styðjast við fordæmi -*«**•- TÍMINN AHi Freyr Guðmundsson, formaSur Nemendasambands Samvinnuskólans, afhendir sr. Guðmundi vandað raf- magnsorgel aS gjöf frá Nemendasambandmo. AFMÆLISSPJALL VIÐ «•> SR. GUÐMUND SVEINSSON, SKÓLASTJÓRA BIFRÖST frænda okkar á Norðurlöndum, og þá er um þrenns konar mögu leika að ræða: Fordæmi Svía, þar sem verzlunarmenntunin er felld inn í menntaskóla og þeir gerðir að • ejningarskóla allrar menntunar eftir grunnskólastig- ið. I Svíþjóð eru 23 deildir í menntaskólastiginu, þar á með- al til dæmis iðnfræðsla, verzl- unarfræðsla og búfræði, svo nokkuð sé nefnt. í öðru lagi fordæmi Dana, en þar er verzl- unarfræðslan í menntaskóla- stiginu, en verzlunarskólarnir sjálfseignarstofnanir undir verndarvæng verzlunaraðilanna. Ríkið greiðir þar allan reæstrarkostnaði og % hluta stofnkostnaðar, en aðstandend- ur skólanna sjálfra tryggja Ve hluta. Ekki er þó líklegt, að til þessara tveggja þjóða verði leit að, heldur til Norðmanna, en þar er um að ræða bæði ríkis- rekna skóla og einkaskóla — þar eru 100 ríkisverzlunar- skólar en 70 einkaskólar. ROds- skólamir hljóta styrk í beinu hlutfalli við framlag sitt til lögbundinnar fræðslu, þannig að ef kennsluskrá viðkomandi skóla er löggilt af hálfu ríkis- valdsins, er kostnaðurinn full- greiddur. Ég tel ekki ólíklegt, að við förum að fyrirmynd Norð manna, en þessi mál eru nú á umræðustigi í tveimur nefnd- um. Sú fyrri var valin á al- mennri ráðstefnu um verzlunar fræðslu, sem haldin var haust- ið 1969, og hefur því starfað á annað ár, en hin síðari var stjórnskipuð af Menntamálaráðu neytinu nú í vetur. Tíminn: Þýðir þetta breyt- ingu á Samvinnuskólanum í sinni núverandi mynd? Sr. Guðmundur: Þess þarf ekki. Hins vegar er alveg ljóst, að Samvinnufélögin þurfa að koma á námskeiðahaldi,. þótt ekki sé nema til endurmennt- unar starfsmanna sinna, sem væri mjög eðlileg í námskeiða- formi. Það er aðkallandi fyrir samvinnuhreyfinguna að hefja slíka starfsemi og þá skipulega. Þar koma ýmsir möguleikar til greina. Það mætti hugsa sér, að sjálfstæð menntastofnun sæi um námskeiðin — kannski víða um land — eða að það tengdist Samvinnuskólanum hér, en það mætti hugsa sér, ef húsakostur yrði aukinn hér að Bifröst, ann- að hvort beint eða í sambandi yið , orlofsheiniiji, sém hér kunna að rísa. Þriðji möguíeik- inn hefur aðeins verið ræddur: Sameiginlegur félagsmálaskóli samvinnuhreyfingarinnar og verkalýðshreyfingarinnar, sem sæi um námskeið, ráðstefnur, og aðra félagsmála- og fræðslu- starfsemi, svo sem leshringa og slikt Háskóli íslands er lokaðri en háskólarnir á öðrum Norðuriöndunr Tíminn: Nú hefur Handel- sk0jskolen í Kaupmannahöfn tekið við nemendum brautskráð um frá Samvinnuskólanum og viðurkennt próf þeirra fyllilega. Væri ekki eðlilegt, að Háskóli íslands gerði það lfka? Sr. Guðmundur: Það ber að harma, hve Háskóli Islands er lokaður, og ég ætla að meiri víðsýni ríki hjá flestum háskól- um á Norðurlöndum en hjá okkur. Við höldum fast við á- kveðin próf ' og viljum ekki veita mönnum tækifæri til að nema við háskóla, nema þeir hafi þessi sérstöku próf. Háskól ar á hinum Norðurlöndunum hafa að þessu leyti farið aðrar leiðir og veitt mönnum rétt til háskólasetu, án stúdentsprófs, ef viðkomandi hefur sýnt sér- staka hæfni og allar líkur benda til, að sá hinn sami geti ráðið við námið í ákveðnum deild- um kannski ekki lakar en sum- ir aðrir, sem hafa þetta tiltölu- lega þrönga stúdentspróf. Sví- ar hafa til dæmis opnað háskóla sína til muna frá því sem áður var, og Danir hafa opnað vissar deildir fyrir þeim, sem hafa svokallað „höjere handelsek- samen“, svo sem eins og þeir, sem numið hafa hjá Niels Broek, samsvarandi Samvinnu- skólaprófi, og geta þeir inn- ritast í laga- og hagfræðideildir viðkomandi háskóla. Ef þessu yrði svarað með því að námsbraut í Samvinnuskólan- um er töluvert styttri en í menntaskóla, má svara því til, að allmargir nemendur, sem hér stunda nám, hafa eftir gagn- fræðapróf eða landspróf stund- að nám, kannsld einn tij, tvo vetur í menntaskóla, aðrir í erlendum skólum, sem orðið er mjög algengt, og þegar þeir brautskrást héðan, eru flestir um tvítugt, sem er samsvar- andi aldur og við stúdentspróf, og sumir eldri. Nú eru allar horfur á, að háskólinn skiftist í tvær stofn- anir. I fyrsta lagi embættis- og starfsgreinaskóla, tiltölulega opinn, þar sem menn myndu stunda nám fremur fá ár og búa sig undir ákveðin störf í þjóðfélaginu. Vísi að slíkum há- skólum er þegar að finna í Noregi, og mætti segja, að þar væri um að ræða það stig, sem í engilsaxneskri menntun er kallað „College“ stig. 1 öðru lagi yrði hin háskólastofnunin, sem væri frekar vísinda- og rannsóknarstofnun, og þangað leituðu flestir elcki fyrr en þeir hefðu hagnýtt sér hina fyrri menntun og sýnt í námi og starfi, að þeir hefðu náð veru- legum árangri og því eðlilegt, að þeir héldu áfram í hinni síð- ari stofnuninni. En hún yrði trúlega mun fámennari, enda ætlað annað hlutverk. Tíminn: Nú standa fyrir dyr- um miklar breytingar í skóla- málum almennt. Hverjar eru helstu stefnur í fræðslumálum um þessar mundir? Sr. Guðmundur: Sú stefna, sem lengst hefur verið við líði er sú, að hafa uppi á úrvalinu og koma því eins langt og hægt er, en þá um leið að víkja þeim til hliðar, sem ekki hafa sams konar hæfileika, elita-stefna Þessi hugsun hlýtur að leiða til sldla í þjóðfélaginu milli þessa úrvals með langa menntun að baki — langskólamannanna — og hinna, sem þjóðfélagið telur sig ekki hafa svipaðar skuld- bindingar við, því þeir hafa ekki þá hæfni að miklu sé fyr- ir þá fómandi. Þessa hugmynd má réttlæta á ýmsan máta, frá ____________________________19 stjómmálum, eins og Kínvei*jar með mandarínana, eða út frá þeirri tækni, sem nú ríkir, að viðkomandi hafi vit og hæfi- leika til að stjóma og hagnýta þá tækni, sem til er. Síðan er til önnur stefna, sem litur öðru vísi á málin. Hún kennir, að hver einasti ein- staklingur búi fyrir svo mikl- um hæfileikum, að vonlaust sé, að þeir hagnýtist til fulls. Þetta mætti kalla „egal“-skóla, þar sem öllum er gert jafn hátt und- ir höfði. Tilgangur menntunar- innar sé að gera hverjum þegni Ijóst, að hann búi yfir hæfileik- nm — að allir búi yfir hæfi- leikum, aðeins, að þurfi að finna þá. Það hljóti að verBa sameiginlegt keppikefli ein- staklinganna og þjóðfélagsins að áhersla hvíli á að gera ÖU- um ljóst, hvað þeir getí, ekki, hvað þeir geti eldd. Stefnan verði sú, aS gera alla heilbrigða einstaklinga sem hæf asta. Þetta verði tímafrekt, geti jafnvel tekið alla ævina. Þeir, sem aðhyllast þessa skoðun, telja mikilvægt að halda nemendum f samskonar skólum eða eins hliðstæðum og unnt er, að skólinn skilji efcki milli kunnandi og fákunnandi, ! og taliS er vafasamt aS leggja ) áherzlu á samanburð, leggja i ekki upp úr mismiklum hæfi- leikum heldur mismunandi. Talið er vafasamt að leggja upp úr prófum eins og nú er gert, en það er erfitt að komast und- an úrvalshugmyndinni, elítahug- myndinnL Þessi síðari kenning sækir á, og það mjög verulega. Persónu- lega tel ég, að það beri aS harma, hversu litlar umræður hafa farið fram í skólamálum okkar um þessi grundvallaratr- iði, hvort beri að Jifdla sér að egalskóla eða búa tiJ elítaskóla- stefnu er segi: í þessu eru gáf- ur fólgnar ekki öðru. Hæfileik- ar þeirra, sem ekld falla inn í þetta kerfi eru einskis virði og ekki ómaksins vert að þroska Þá. Hverfur sfúdenfsprófíS? Tíminn: Samkvæmt elftahug- myndinni eru allir mældir í prófum. Til dæmis geta stúlkur ekki orðið sjónvarpsþulir, sem þurfa lftið annað að gera en brosa og lesa,upp nokkrar setn- ingar við og við, nema hafa stúdentspróf. HvaS kæmi í stað slíkrar mælistiku í egalstefnn? Sr. Guðmundur: Talað er um, að allt eins viturlegt sé að fara eftír aldri. Svíar leyfa mönnum nú að setjast í háskóla, ef þeir hafa náð 25 ára alðri. Þá er svo til ætlazt, aS menn séu orðnir svo þroskaðir, að þeim sé velkomið að reyna við það sem þá langar að læra. Egalstefna hvetur til hópvinnu, og þá er spuming, hvort ekki er eins rökrétt að gefa hópum umsögn, rétt eins og tíðkast með einstaklinga f elítastefnu. Forsendan er sú, að þegar út í lífið kemur, þurfa menn ekki síður að vinna í hóp og leysa verkefni í hóp en einir sér sem einstaklingar. Sem dæmi um áhrif hinnar nýju stefnu má benda á fordæmi Svíanna, sem gerðu menntaskól- ana að einingarstigi. Á sama hátt hverfur stúdentsprófið, enda opnar ekkert eitt próf all- ar leiðir, heldur þurfa menn á þessu skólastigi að gera upp við sig, hvaða leið þeir ætla að halda. Einnig má benda á Comprehenisive Schools í Bret- landi, sem byggja á sömu ein- ingarhugmyndinni. Tíminn þakkar sr. Guðmundi fyrir viðtalið og óskar honum velfarnaðar á komandi árum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.