Tíminn - 19.08.1971, Blaðsíða 14
14
tIminn
FIMMTUDAGUR 19. ágúst 1971
NÝTT!
FASRLINE ELDHÚSIÐ
TRÉVERK FYRIR HÚS OG ÍBÚÐIR
Seljum FAIRLINE eldhús með og án tækja,
ennfremur fataskápa, inni og útihurðir.
Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar.
Gerum teikningar og skipuleggjum eldhús og
fataskápa, og gerum fast. bindandi verðtilboð
^ Komum í heimahús ef óskað er.
VERZLUNIN ÓÐINSTORG H.F.
BANKASTRÆTl 9 - SÍMl 1-42-75.
I ____________________________________________
Yið velium PllltSsð
það borgctr sig
- OFNAR H/F.
t: : 4 Síðumúla 27 * Reykjavík
•Símar '3-55-55' og 3-42-00
Frændur og vinir.
Kærar þakkir fyrir ánægjulega heimsókn 7. ágúst.
Gjafir, blóm og heillaskeyti eru hér með þökkuð.
Lifið heil.
Haraldur Magnússon, Eyjum.
Mínar beztu þakkir vil ég færa ykkur börnum mín-
um, systkinum, barnabörnum og öðrum ættingjum og
kunningjum, fyrir gjafir, blóm, skeyti og vinarkveðjur
á 70 ára afmæli mínu, 11. ágúst s.l. Guð blessi ykkur öll.
Kristjana Guðmundsdóttir,
Starfsmannahúsi Kópavogshælis.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúS vlS andlát og útför
Jakobs Benadiktssonar,
VopnafirSI.
Börn, tengdabörn og aSrir vandamenn
Fribrik
efstur eftir
4. umferb
Úrslitin í fjórðu umferð Norð-
urlandamótsins í skák, sem tefld
var í gærkvöldi í Norræna hús-
inu, voru á þessa leið: Friðrik
Ólafsson vann Sviann Seje Holm
og Jón Kristinsson vann Svíann
Johnny Ivarsson. Báðir þessir sigr
ar eru öruggir mjög. En Frey-
steinn á biðskák við Finnann
Mikael Nykopp, og hefur Frey-
steinn peði minna. Þá er biðskák
á milli Björns Þorsteinssonar og
Ingmars Barda, þar hefur Björn
peði yfir. Sama er að segja um
Hákon Ákvist, hann hefur peði
yfir Kenneth Josefsson. Síðasta
skákin sem fór í bið'í gærkvöldi
var skák þeirra Jensens, Dan-
mörku við Helge Gunters, Noregi.
Eftir þessa fjórðu umferð er
Friðrik Ólafsson efstur með þrjá
og hálfan vinning. Staðan er nokk
uð óglögg að öðru leyti vegna
margra biðskáka.
Fimmta umferð verður tefld
kl. 6 í kvöld i Norræna Húsinu.
íbróttir
Framhald af bls 13
varð Leiknir Jónsson í fjórða
sæti og var það slakari árangur
hjá honum en búizt var við fyrir
fram. Guðmundur Gíslason sigr-
aði í 100 m. flúgsundi og Salóme
Þórisdóttir vann 100 m. baksund.
Þá unnu fsiendingar tvöfaldan sig
ur í 400 m. fjórsundi karla,.Guðm.
Gíslason vann og Hafþór B. Guð-
mundsson varð annar.
Á morgun verður nánar sagt frá
L ídskeppninni og birt viðtöl við
nokkra úr hóni dönsku keppend-
anna um mótið.
Chou En-Lai
Framhatd aí bls. 9
þjóðunum og stofna „sjálfstætt
ríki á Formósu“.
Ég innti hann cftir, hvort
hann teldi möguleika á því í
framtíðinni, að Kínverjar, Banda
ríkjamenn, Sovétmenn og Jap-
anir gerðu með sér ekki-árásar-
sáttmála. Sýnilegt var, að hann
taldi mikið vatn þurfa að renna
til sjávar áður en unnt yrði að
koma við slíkri framvindu í
stjórnmálum, en hann sagði þó,
að þetta kynni að bera á góma
í viðræðunum við Nixon forseta
þegar að þeim kæmi.
Norrænar fóstrur þinga
Fyrir nokkru komu hingað til
lands fulltrúar frá norrænum fóstr
um, til fundar við stjórn Fóstru-
félags íslands.
Er þegar hafinn undirbúning-
ur að norrænu fóstrumóti, sem
ákveðið er að halda í Reykjavík
dagana 31. júlí til 5. ágúst sum-
arið 1972.
Hafa íslenzkar fóstrur tekið
þátt í norrænum fóstrumótum síð
an árið 1956.
Eru mót þessi haldin á fjögurra
ára fresti og er nú röðin komin
að íslandi að halda slíkt mót.
Hefur þegar að mestu leyti ver-
ið gengið frá dagskrá fóstrumóts-
ins 1972, þar sem fjallað verður
För utanríkisráðherra
Framhald af bls. 1
Einar Ágústsson bauð síðan við-
stadda velkomna, og þakkaði þeim
fyrir að koma á fundinn, og að
orðum hans loknum, báru blaða-
mennirnir fram spurningar sínar.
Páll Heiðar Jónsson, sem var einn
íslendinganna á blaðamannafund-
inum, sagði Tínanum í kvöld, að
spurningar blaðanna hefðu ver-
ið mjög hagstæðar málstað ís-
lands, því í framhaldi af þeim
hefði ráðherrann og Hans G. And
ersen komið fram þeim sjónar-
miðum og þeim skýringum, sem
nauðsynlegt er að komizt á fram
færi í Bretlandi.
Margvíslegar spurningar
Spurt var t.d. um hvort íslend-
ingar óskuðu eftir nýju þorska-
stríði, sem auðvitað var svarað
neitandi. Hvers vegna ekki væri
farið til alþjóðadómstólsins í
Haag, og hvort við myndum ekki
heimta meira síðar, ef við fengj-
um 50 mílurnar i gegn, sem svar-
að var neitandi. Af íslendinganna
hálfu var lögð mikil áherzla á að
hér væri um fiskveiðitakmarkan-
ir að ræða, en ekki útfærslu á
landhelgi íslands, en sumir við-
staddra virtust standa í þeirri
meiningu að um væri að ræða
útfærslu á landhelginni.
Einar Ágústsson lagði á það
áherlzu í svörum sínum, að Is-
lendingar væru með útfærslunni
að vernda fiskistofna við íslands-
strendur. til hagsbóta fyrir allar
fiskveiðiþjóðir, en þó einkum með
hagsmuni fslendinga fyrir augum.
Vel heppnaður fundur
Að áliti íslendinganna, sem við-
staddir voru blaðamannafundinn,
hélt Einar Agústsson utanríkisráð-
herra vel á málstað Islendinga og
með sanngirni, en á morgun, sézt
hvernig brezkir ^ blaðamenn
hafa tekið boðskap fslendinganna.
Fundurinn var tekinn upp á mynd-
segulband, en óvíst er, hvort hon-
um verður sjónvarpað. í kvöld er
ráðherra í viðtalsþætti í BBC í
sérstökum þætti. Þá höfðu brezku
blöðin The Guardian og The Daily
Telegraph beðið um einkaviðtal
við utanríkisráðherra, og áttu þau
viðtöl að fara fram í kvöld, og
birtast e. t. v. í blöðunum á
morgun.
Á morgun fer utanríkisráðherra
ásamt fylgdarliði áleiðis til Bonn,
og mun eiga viðræður við full-
trúa vestur-þýzku stjórnarinnar, og
er m. a. ráðgert, að hann hitti
Scheel utanríkisráðherra að máli
á föstudaginn.
tJR OG SKARTGRIPIR:
KORNELÍUS
JONSSON
SKÚLAVÖROUSTÍG 8
BANKASTRÆTI6
^•18588*18600
um hina uppeldislegu hlið starfs-
ins.
Aðalumræðuefni mótsins verð-
ur að þessu sinni: Fóstran sem
uppalandi — nám bama á for-
skólaaldri: (0—7 ára).
Er búizt við því að mót þetta
sæki um fimm til sex hundruð
fóstrur.
Frétt frá Fóstrufélagi íslands.
ÁRNAÐ HEILLA
Valdimar Eyjólfsson, fyrrverandi
vegaverkstjóri á Akranesi er 80
ára í dag. Hann er fæddur á Akra-
nesi 19. ágúst 1891 og þar hefur
hann alið allan sinn aldur. Hann
var fram eftir árum sjómaður og
skipstjóri á eigin bátum. Tæplega
fimmtugur gerðist hann verkstjóri
hjá Vegagerð ríkisins og því starfi
gegndi hann í aldarfjórðung. Valdi-
mar hefur ætíð verið mikill félags-
málamaður, og meðal annars tekið
virkan þátt í störfum Framsóknar-
flokksins á Akranesi. — Valdimar
verður að heiman í dag.
Á víðavangi
Framhald af bls. 3.
„Enn er of snemmt að segja
neitt um áhrif þessara tíðinda
á hag okkar íslendinga, en þau
verða án efa einhver og lík-
lega ekki góð. Kann svo að
fara, að þessi blákaldi raun-
veruleiki kasti nokkrum
skugga á þá sæludaga, sem liin
nýja ríkisstjórn hefur veitt
þjóðinni undanfarið í efnahags
málum.“
Það leynir sér ekki umhyggj
an fyrir þjóðarhag í þessum
orðum. Óskhyggjan stefnir
greinilega að því marki, að hin
nýja ríkisstjórn lendi í erfið-
leikum vegna gjaldeyriskrepp-
unnar í heiminum, þannig, að
það falli skuggi í þá „sælu-
daga, sem hin nýja ríkistjórn
hefur veitt þjóðinni undanfar-
ið í efnaliagsmálum“. Umliyggj
an fyrir þjóðsrhag er engin,
en áhuginn á því að ríkisstjórn
in lendi i erfiðleikum tak-
markalaus. — TIÍ
IVHðkvíslarmálið
Framhald af bls 16.
inn, en þeim dómi var vísað til
Hæstaréttar, og hefur ekki hlot-
ið afgreiðslu þar.
Heyrzt hefur að lausn Laxár-
deilunnar, sem er tengd Miðkvísl-
armálinu, sé ekki langt undan,
og vera má að á eins árs afmæli
sprengingarinnar, verði hægt af
sjá fyrir endaiin á þessari lang
vinno og margumtöluðu deilu.